Morgunblaðið - 30.06.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.06.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ1982 57 fclk í fréttum Sonur ELísabetar Taylor selur gömul ('hristophcr Wilding og kona hans, Aileen Ghetty. Christopher og Aileen fyrir framan verslun sína „Narcissus** i Santa Barbara. + Christopher Wilding, sonur Elizabeth Taylor, býr í Santa Barbara í Kaliforníu ásamt eiginkonu sinni Aileen Ghetty, sonardóttur milljónamærings- ins Paul Ghetty sem lést fyrir nokkrum árum síðan, og þau versla þar með notuð og gömul föt. Þau kaupa falleg gömul velmeðfarin föt og selja þau aftur. Þau hafa bæði mikið ríki- dæmi á bak við sig. Fjölskylda Christophers er mjög rík en Aileen er ennþá ríkari. En þau eru bæði sammála um það að þau vilja ekki lifa á auðæfum sínum. „Okkur finnst gaman að vinna fyrir okkur sjálf,“ segja þau. Þau eru ánægð með hve verslunin gengur vel hjá þeim. Elizabeth Taylor gefur þeim oft notuð föt af sér til að selja aftur í versluninni, „Narciss- usi.“ „Kjólar móður minnar renna út eins og heitar lumm- ur,“ segir Christopher. Og það kemur líka fyrir að Elizabeth Taylor kaupir hjá þeim för. „Dag einn,“ segir Christopher, “heimsótti hún okkur og valdi kjól sem henni þótti mjög fal- legur. En svo vildi til að þessi kjóll var einmitt gamall kjóll sem hún hafði sjálf átt og gefið okkur, en sem hún þekkti ekki aftur. Móður mín á nefnilega svo geysilega mikið af fötum Oscar Wilde endurborinn?? + Lou Reed, söngvarinn sem Andy Warhol uppgötvaði, var nýlega í París í tilefni af útkomu nýrrar plötu. Lou Reed bjó á hóteli þar sem hann telur að hann hafi búið og dáið í fyrra lífi sínu — Lou Reed telur sig nefnilega vera breska skáldið Oscar Wilde endurholdgaðan og hann bjó á hótelinu sem Oscar Wilde lést á. Sylvia kona hans var með honum í rörinni. COSPER C05PER 89»i Nei, er krakkinn farinn að ganga. Þá getur hann farið út í búð eftir bjór fyrir mig. Skrifar endur- minningar sínar + Angie Bowie, fyrrverandi eig- inkona David Bowie, er að ljúka við að skrifa bók um hið litríka líf sitt með David Bowie. Sam- kvæmt frásögn hennar gekk ekki á öðru en eiturlyfjaneyslu og sjálfsmorðstilraunum og öðru slíku í hjónabandi hennar, og þegar þau skildu eftirlét Angie David Bowie hinn 11 ára gamla son þeirra, Zowie. Því næst fór Angie að búa með pönk-tónlistarmanninum Dew Blood. Þau eignuðust dótt- urina Stöshu og skildu svo ári seinna. Reynsla Angie af því að eftirláta föðurnum Zowie son hennar varð til þess að hún fékkst ekki til að láta Dew Blood fá yfirráðarétt yfir Stöshu og hún hefur ekki áhuga á fleiri hjónaböndum. „Það hefur tekið mig ótrúlega langan tíma að læra að setja mér mín eigin markmið í staðinn yrir að fara alltaf eftir öðrum,“ segir Angie. „Ég á aðeins nokkur góð ár eft- ir,“ segir hún, en hún er nú 35 ára, „svo að ég verð að breyta því sem ég vil breyta núna, það verður of seint þegar ég er orðin sjötug.“ Angie Bowie Svefnsófar sem endast þér alla ævi Tegund 90. Verö 7.650,- 1.450,- útb., 800 á mán. Svefnpláss 115x190 cm, setusófi 90x200 cm. Tegund 150. Verö 9.560,- 1.560 útb., 800 á mán. Svefnpláss 145x190, sem sófi 80x214 cm. Tegund 145. Verö 8.730.- 1.500 útb., 800 á mán. Svefnpláss 145x190, semo sófi 88x198 cm. Svona líta sófarnir út þegar fariö er aö sofa. í þeim öllum er rúmfatageymsla. Tegund 140. Verö 8.200,- 1.500 útb., 800 á mán. Svefnpláss 145x190, sem sófi 81x200 cm. (^HCSGAGNAHÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK SÍMAR: 91 -81199 - 81410 símar 39160 Jón.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.