Morgunblaðið - 11.07.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ1982
51
Hér, i Julianeháb — Qarqortoq, taka íslendingarnir þátt í hátíðarhöldunum.
Mvndin er tekin úr lofti )Tir miðbæinn. Bæjarstjóri í Julianeháb er Henrik Lund,
sem á námsárum sínum var m.a. við íslenskunám við Háskóla íslands.
Taka 150 Islendingar
>átt í landnáms-
íátíð Grænlendinga?
Efnt til sýninga í Rvík í haust
Samtal við Hjálmar
Ólafsson formann
Norræna félagsins
Norrænafélagið hér er nú um það
bil að Ijúka margháttuðum undir-
búningi hópferðar íslcndinga á
(Jra-nlandsgrund til þátttöku i há-
tíðahöldunum í tilefni af 1000 ára
landnámi Eiriks rauða — land-
námshátíð, sem haldin verður í
Vestri byggð í byrjun ágústmánaðar
næstkomandi. Er að því stefnt að í
íslendingahópnum verði allt að 150
manns, sagði Hjálmar Olafsson,
formaður Norrænafélagsins, í sam-
tali við Mbl. nú fyrir helgina.
Ekki verður því við komið að
allur hópurinn fari héðan samtím-
is og fara 30—40 manna hópar
dagana 26. júlí og til 30. júlí, til
Narssarssuaqflugvallar. Með
hverjum hinna fjögurra hópa
verður einn fararstjóri. Hver hóp-
ur mun hafa 14 daga viðdvöl í
Grænlandi. Gerð hefur verið
ferðaáætlun fyrir ferðalangana,
en þeir eiga að hafa með sér að
heiman svefnpoka og dýnu. Meðan
Hjálmar Ólafsson formaður Nor-
rænafélagsins hér.
á ferðalaginu stendur í Grænlandi
verður yfirleitt búið í skólum í
bæjum þeim sem gist verður í.
Þegar eftir komuna til Grænlands
verður farið frá flugvellinum til
Brattahlíðar og ekki farið þaðan
fyrr en næsta dag og þá haldið til
Narssaq og síðan til Julianeháb.
landnámshátíðin. Hápunktur
hennar verður dagana 5. og 6. ág-
úst. Allir Islendingarnir verða
saman komnir í Julianeháb þann
fimmta. Meðal gesta Grænlend-
inga á landnámshátíðinni verða
auk Vigdísar Finnbogadóttur, for-
seta íslands, Margrét Danadrottn-
ing, Haraldur krónprins Norð-
manna og landstjórinn í Kanada.
Næsta dag er gert ráð fyrir að ís-
lendingahópurinn sláist í för með
hátíöargestum öllum og fari til
kirkju. Messað verður í hinum
fornu kirkjurústum í Hvalsey, en
þar mun formaður Landsráðs
Grænlendinga, sr. Jonathan Moz-
feldt, forsætisráðherra Græn-
lands, flytja hátíðarguðsþjónustu
undir berum himni í tóftum hinn-
ar gömlu kirkju.
Ferðaáætlun Islendinganna,
sem Ferðafélagið í Julíaneháb
hefur gert, er eðlilega við það mið-
uð að þátttakendur hafi af henni
sem mesta ánægju og gagn. Reynt
verður að koma sem víðast við þar
sem saga eða náttúra segir ferða-
manninum frá. Má t.d. nefna það
að í námunda við Julianeháb eru
forvitnilegir staðir, sem hægt er
að komast til fótgangandi. Báts-
ferðir eru til nokkurra smá-
byggða. Undir lok dvalarinnar
verður siglt til hins forna bisk-
upsseturs í Görðum og gist þar.
Næsta dag gengið yfir eyðið til It-
illeq í Eiríksfirði og farið á bát til
Narssarssuaq. Gist þar á hóteli
síðustu nóttina.
Eins og sagt var hér í upphafi er
að því stefnt að í Islendingahópn-
um verði alls um 150 manns. Hef-
ur Ferðafélagið í Julianeháb ekki
fyrr tekið á móti svo fjölmennum
ferðamannahópi. Lögð hefur verið
áhersla á að halda kostnaði í lág-
marki. — Vegna forfalla, sagði
Hjálmar, — geta nokkrir komist
með, snúið sér þá til skrifstofu
Norrænafélagsins í Norræna hús-
inu, en það má ekki dragast mikið
úr þessu. í þessu samtali við
Hjálmar Ólafsson kom fram, að
Islendingar munu og eiga hlut að
þeim sýningum, sem verða haldn-
ar í sambandi við landnáms-
hátíðina. Stofnun Árna Magnús-
sonar á Islandi hefur undirbúið
sýningu og lánað Grænlendingum
handrit og annað sýningarefni
sem bregður ljósi á sögu Islend-
inga á Grænlandi. Er hér um að
ræða framkvæmd tillögu frá
Grænlandsnefndinni, sem forsæt-
isráðherra skipaði í aprílmánuði
sl. Ennfremur verður sett upp
„Sýningin um íslenska hestinn",
sem verið hefur í Árbæjarsafni.
Þá hefur Grænlandsnefndin lagt
til, að héðan frá íslandi verði
sendur til Grænlands fræðimaður
til fyrirlestrahalds í skólum og
víðar. Dr. Ólafur Halldórsson mun
takast þessa fyrirlestraferð á
hendur og fer hann með haustinu
og verður um tvær vikur í ferð-
inni, sagði Hjálmar.
Frá Grænlandsnefndinni er
einnig komin sú hugmynd, sem
hrinda á í framkvæmd í október
eða nóvember og skoða má sem
beint framhald af Grænlands-
kynningunni í Norræna húsinu í
vetur er leið og vor. Það er að hér
í Reykjavík, trúlega í Norræna
húsinu, verði settar upp tvær af
afmælissýningum þeim, sem verða
í sumar á Grænlandi og danska
þjóðminjasafnið setur upp þar. —
Þessar sýningar eru um búsetu
norrænna manna á Grænlandi. —
Er svo ráð fyrir gert að forsætis-
ráðherra Grænlands, Jonathan
Mozfeldt, opni þessar sýningar
sagði Hjálmar Ólafsson formaður
Norrænafélagsins.
27. júlí — 3 vikur — 12 sæti laus
Komdu meö til
í þægindin og fjörið
VID AUSTURVOLL
URVAL W
URVÖLL SÍMI26900
Sýning á örtölvum
fyrir kennslu
Miðvikudaginn 14. júlí nk. kl. 13.00—16.00 heldur Reiknistofnun Háskólans sýningu á
örtölvubúnaði í húsakynnum rafmagnsverkfræðiskorar, stofum 148—151 á jarðhæð 2.
áfanga verkfræði- og raunvisindadeildar, Hjarðarhaga 4.
Til sýnis verða allflestar gerðir örtölva, sem eru til sölu hér á landi og sem þykja henta til
kennslu og annarrar tölvunotkunar í skólum.
Kennarar og aðrir, sem áhuga hafa á örtölvum og notkun þeirra í kennslu, eru hvattir til
að notfæra sér þetta tækifæri til að skoða tækin og kynnast þeim af eigin raun.
Reiknistofnun Háskólans.
Sjálfvirkur símsvari
16780
Upplýsingar um skipaferðir allan sólarhringinn.
Nú höfum við tekið i notkun sjálfvirkan símsvara sem veitir
upplýsingar allan sólarhringinn um ferðir skipa og beina
síma fyrirtækisins utan venjulegs skrifstofutíma
Sími á
skrifstofu
21160
HAFSKIP HF.
Símsvari allan
sólarhringinn
16780