Morgunblaðið - 11.07.1982, Blaðsíða 22
70
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1982
Guðný Bergsdóttir skrifar
frá Kaupmannahöfn
Tískan er
fyrír alla
Fatahönnuðir hafa í mörg
horn að líta og verða að hafa
hugmyndaflugið í lagi þegar
teikna og framleiða á ný föt.
Ekki er því að neita að þetta á
einna helst við um kvenfólk,
hverju svo sem því er að kenna.
Kannski þora konur að klæðast
öðruvísi klæðnaði, eru opnari
fyrir hinu nýja. Allavega er það
staðreynd að konur eru mun
ákafari og duglegri við að prófa
eitthvað nýtt en karlmenn, sem
helst vilja ganga í sömu fötunum
árið út og inn. En hvað um það,
mörgum konum finnst, þegar
þær verða ófrískar, að þær verði
ólögulegar og geti ekki klæðst
neinum skemmtilegum fötum
eða fylgt tískunni þá mánuði
sem þær ganga með sína mynd-
arlegu kúlu.
En auðvitað eru fatahönnuðir
einnig opnir fyrir þessu
„ástandi" og hanna skemmtiieg-
an og litríkan tækifærisfatnað,
bæði fyrir dagieg not og til sam-
kvæmisnota. Vanfærar konur
geta t.d. auðveldlega gengið í
buxum, buxum með smekk, eða
venjulegum mittisbuxum, sem
hægt er að reima saman og
fylgja þannig stærð magans, eða
hnébuxum, sem eru svo mikið í
tísku núna. Blússurnar eru
skemmtilegar með blúndum og
skreytingum, peysurnar eru lit-
ríkar og sömu sögu er að segja
um kjólana, hér er eitthvað að
finna fyrir hverja konu! Þetta er
bæði skemmtilegur og fjöl-
breytilegur fatnaður, sem setur
meiri lit á hversdagsleikann.
Litirnir eru hlýir og mjúkir,
oft er gull-, silfur- eða brons-
þræðir ofnir í efnin til að gefa
enn líflegra og skemmtilegra út-
lit. Tækifærisfatnaðurinn er sem
sagt mest í pastellitum og flest
sniðin í barokk- og renaissance-
stíl.
Þær konur sem eiga von á sér,
þurfa ekki að óttast að gengið sé
framhjá þeim hvað tískuna
snertir, nei, það er úr meira en
nógu að velja. Það er engin
ástæða til að ganga í hólkvíðum
leiðinlegum kjólum og mussum.
Myndir af tækifærisfatnaði
þeim er birtast með þessari
grein, eru frá danska fyrirtæk-
inu EVA VENTET0J og fata-
hönnuðurinn er Lennart Raa-
holt. Annars tala myndirnar
sinu máli.
- gb
Alúöarþakkir til allra þeirra sem glöddu mig
á níræöisafmæli mínu 20. júní síöastliöinn
meö heimsóknum, gjöfum og skeytum.
Margrét Sigtryggsdóttir
frá Siglufirði.
£. PISTOM DRALJUa E OtU \
LYFTIKRANAR
Raflagnir
Tökum aö okkur nýlagnir
og viögeröir
samvirki
Skemmuvegi 30, simi 4 45 66.
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA HF
FYRIR BÍLA, BÁTA OG BRYGGJUR
MARGAR STÆRÐIR
STERKIR - LÉTTIR
AUÐVELDIR I UPPSETNINGU OG NIÐURTEKT
BORGARTÚNI 28 SÍMAR 22320 - 22028
NÝJUNG — NÝJUNG
Nú geta allir, sem þurfa og
vilja, farið að grenna sig
Hér er um fljótvirka og áhrifaríka aðgerð
aö ræða, sem skaðar ekki líkamann. Að-
geröin byggir á dufti og töflum, sem inni-
halda öll steinefni og vítamín sem líkam-
inn þarfnast. Það er mjög auðvelt að lifa á
dufti nú og töflum sjö daga samfleytt og
léttast um fimm kíló.
Dr. Jan Engelsson
hefur sjálfur reynt
„Létt & Mett“ og
misst 9 kíló á einum
mánuöi.
Sendum gegn
póstkröfu.
Duftið sem heitir
„Létt og Mett“
er blandaö út í te, kaffi, svaladrykk, bul-
jong — eða það sem hver og einn telur
bezt (súrmjólk, léttmjólk eða saft). Milli
mála eru töflurnar notaðar, en þær eru
mjög próteinríkar. Þessa megrunaraöferö
má einnig nota á rólegri hátt — t.d. með
því að sleppa einni máltíð á dag. Fyrir þá,
sem vilja losna við allt aö 10 kíló, er þetta
mjög þægileg aðferð og kemur í veg fyrir
hörgulsjúkdóma.
Fæst í kirkjumunum
Kirkjustræti 10 Rvík, sími 15030.