Morgunblaðið - 11.07.1982, Page 12
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚLl' 1982
Á afmæli foringjans:
Björgvin P. Jónsson
Vaðnesi - Sjötugur
í sextugsafmæli krossberans og
snillingsins Barða Friðrikssonar,
þann 28. marz sl., las Jón Aðal-
steinn í Orðabókinni upp kveðju
frá pottflokknum í Laugardal og
sagðist gera það skv. fyrirmælum
frá „das Fiihrer". „Gvöð, kann
hann ekki þýzku?" hvíslaði þá ein
tindilfætt í salnum.
Ó jú, þeir í hugvísindadeild á
„Melakleppi" kunna slangur í
þýzku. Orðabókar-Jón hefur
hinsvegar ákveðið, að foringi
flokksins skuli heita svo á þýzku,
sjálfsagt til aðgreiningar frá öðr-
um Fuhrer.
Hinsvegar má á það benda, að
eignarfallið af báðum þessum
tignarheitum er eins: Des Fúhrers
wohl! Því það er einmitt þetta sem
gildir í dag: Es lebe das Fúhrer!
Sæl!
Foringinn, alias Björgvin af
Grund og Vaðnesi, P. Jónsson til
viðbótar, er nefnilega sjötugur í
dag. Hann hefur um árabil gegnt
hinu vandasama hlutverki með
hinu „eiegantasta með söluskatti"
(þetta er 4. stig lýsingarorða eins
og þeir þekkja í laugunum) fram-
ferði. Hefði Der Fuhrer haft
eitthvað af ljúfmennsku og húmor
Das Fúhrer, væri Der kannski bet-
ur settur í dag en hann er, þó
tæplega gæti hann orðið betur lið-
inn af alþýðu og Das er. Var þó
KÁPUR
címfa psrm
Skólavörðustíg 3 Reykjavík Sími: 25240
gengi Der bara þó nokkuð hér á
árunum, að því Jón Aðalsteinn
tjáir okkur.
Fundir flokksins eru haldnir
reglulega dag hvern í Laugardals-
laug. Þaðan er ráðum þjóðfélags-
ins ráðið að hluta, hversu mikið er
ekki gefið upp, aðeins að það sé
töluvert. Öllum athöfnum stýrir
foringinn, auk þess sem hann
skipuleggur excursjónir flokksins
í nálægar sveitir. En slíkar menn-
ingar- og útbreiðsluferðir eru
farnar reglulega, enda jafnan
mikil ábyrgð, sem hvílir á þeim,
sem meira mega sín á andlega
sviðinu, eins og útbreitt er í pott-
inum. Ahrif menningarveitunnar
hafa orðið heldur til góðs í vísiter-
uðum sundstöðum, að því er virð-
ist, heimamenn meira að segja
farnir að útnefna foringja að
fyrirmynd okkar. En tæplega lít-
um við á þá, enn sem komið er,
öðruvísi en tígulkónga í saman-
burði við afmælisbarnið, sem er jú
orðið gamalt firma i foringja-
bransanum.
Foringinn er innfæddur Reyk-
víkingur og hefur staðið í verzlun-
arstörfum alla sína tíð og mest við
lífsins Laugaveg. Selt þar bæði
sveskjur og sirs, þó hann telji allt-
af, að „teygjusalan", og náttúrlega
„söluskatturinn", hefji kaup-
mennskuna upp í æðra veldi.
En hin raffíneraða teygjusala er
í því fólgin, að metrinn í teygjunni
getur verið teygjanlegur og því
ríkissjóði til framdráttar að fá svo
„söluskatt ofan á“ sem allra mest.
Enda flestar efnahagsráðstafanir
í þá átt að teygja lopann sem mest
og kallast það þá stjórnmál.
En Björgvin ber velferð allra
stjórnmálamanna mjög fyrir
brjósti og þar með hag ríkisins, þó
svo að „Gunnar minn“ sé jafnan
efstur meðal jafninga hjá honum.
Koma þeir og margir til þess að fá
„víbrasjónir" hjá honum í laugun-
um, sérdeilis fyrir kosningar.
Bjarni Guðna, sást til (læmis mjög
á ferli í laugunum, áður en honum
skaut upp á stjörnuhimininn í
pólitíkinni hér um árið. Nú er
Bjarni aftur farinn að sjást oft í
laugunum og halda sumir að það
boði staðviðraslit í pólitíkinni. En
Björgvin fullvissar okkur um, að
ekkert gerist fyrr en „þeir Gunn-
ar“ ákveði. Enda mun svo vera og
getur Bjarni baðað sig rólegur
uppá það. Þangað til mun foring-
inn láta „kúsk“ sinn, bankastjór-
ann, aka sér til daglegra skyldu-
starfa og allt verður „under contr-
ol“ og ailir „samningar í gildi“ hjá
Benedikt, Þráinn heldur áfram að
„telja niður" og Indriði að „hækka
Rotterdammarkaðinn", en „lokun
Háskólans" verður frestað um
sinn fyrir Jón Aðalstein.
Ekki er á mínu færi að rekja ætt
og uppruna afmælisbarnsins, enda
skiptir slíkt ekki máli þegar í hlut
eiga menn sem eru í sjálfu sér
stofnanir. Þó mun foringinn eiga
bæði börn og buru og vera ham-
ingjusamlega kvæntur Huldu G.
Sigurðardóttur og búa í Goðheim-
um 19 eins og sönnum Austur-
bæing sæmir. Þangað ætlar flokk-
urinn að fjölmenna í dag og votta
foringjanum hollustu sína. Hafa
þegar verið settir í það hinir
fremstu menn af Alþingi og öðr-
um valdaplönum þjóðfélagsins að
yrkja Björgvini lofdrápur þrítugar
og rista honum kefli góð. Er ekki
að efa að þar verður skemmtan
góð og „astróbíóradíófóní" í
hverju horni.
Fyrir hönd flokksins sendi ég
hér með okkar beztu hamingju-
óskir í tilefni dagsins til foringj-
ans og fjölskyldu hans. Um leið
þökkum við honum ljúfmennsku
hans og allt kryddið í tilveru
okkar, og óskum þess að við meg-
um lengi njóta forystu hans og
leiðsagnar.
Hann lifi!
Halidór Jónsson verkfr.,
(settur ritari pottflokksins).
SHI mótmælir
beitingu fjölda-^
takmarkana í HÍ
EFTIRFARANDI ályktun var sam-
þykkt á stúdentaráðsfundi þann 1.
júlí sl.:
„Stúdentaráð Háskóla íslands
mótmælir harðlega beitingu
fjöldatakmarkana í læknisfræði,
tannlæknisfræði og sjúkraþjálfun.
Beiting fjöldatakmarkana er
veruleg skerðing á frelsi til náms
og samrýmist ekki hlutverki há-
skólans sem æðstu menntastofn-
unar landsins.
Fjöldatakmarkanir eru skamm-
tímalausn sem aðeins veltir
vandanum á undan sér og fjölda-
takmarkanir í einni deild geta
leitt af sér fjöldatakmarkanir í
annarri deild.
Stúdentaráð skorar á mennta-
málayfirvöld að vinna að því eftir
fremsta megni að leysa þann
vanda sem notaður er sem réttlæt-
ing fyrir fjöldatakmörkunum."
Ódýru nuddpottarnir
komnir frá Kaliforníu
Vegna hagstæöra samninga getum viö boöiö fyrsta
flokks akril-nuddpotta í garöinn, kjallarann eöa
baöherbergið.
Fáanleg hreinsitæki, neöanvatns Ijóskastarar og
margskonar annar búnaöur.
Nokkrum pottum óráðstafað.
Gerið verðsamanburð.
K. Auðunsson hf., Á. Óskarsson hf.,
Grensásvegi 8, Þverholti, Mosfellssveit,
sími 86088. sími 66600.