Morgunblaðið - 11.07.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ1982
67
Japanir auka
herútgjöld
Tókýó, 9. júlí. AP.
JAPANSSTJÓRN hefur ákveðid að
auka útgjöid til hernaðarmála á ár-
inu 1983 um 7,346% frá því sem var-
ið verður til þeirra mála á þessu ári.
Að mati bandarískra stjórnvalda er
aukningin ekki nægilega mikil til
þess að Japanir geti vigbúist svo vel
væri.
Samkvæmt þessu munu útgjöld
Japana vegna hernaðarmála verða
10,76 milljarðar dollara á næsta
ári, en í ár verja þeir 10 milljörð-
um dollara til þeirra hluta. Japan-
ir hafa sett sér það mark að út-
gjöld til varnarmála fari ekki
fram úr einu prósenti af þjóðar-
framleiðslu.
Varnarmálaráðuneytið jap-
anska sóttist eftir því að herút-
gjöld yrðu aukin um 9,7%. Fjár-
málaráðuneytið bauð upphaflega
6,9% hækkun, en síðar náðist
málamiðlun um 7,346% hækkun.
Formælendur fjármálaráðu-
neytisins segja varnarmálin tekin
sérstökum tökum að þessu sinni,
mikið til vegna áskorana Banda-
ríkjamanna, og að á sama tíma og
þessi útgjöld væru aukin, væru
aðrar stofnanir beðnar um að
skera niður sem svaraði 5% af
fjárlögum yfirstandandi árs vegna
efnahagsiegra örðugleika Japana.
Tchaikovsky-keppnin:
Enginn
hlaut
gullið
Moskva, 9. júlí. AP.
BKKSKI píanóleikarinn Peter Don-
ahoe, lenti í öðru sæti í Tchaik-
ovsky-keppninni, ásamt sovétmann-
inum Vladimir Ovchinikov, eftir að
dómnefnd keppninnar hafði komist
að þeirri niðurstöðu að enginn kepp-
endanna verðskuldaði fyrsta sætið
og gullið.
„Ég hefði tekið alveg eins á mál-
inu,“ sagði hinn 29 ára gamli
Donahoe frá Manchester í Eng-
landi. Dómnefndinni kom saman
um að hann hefði leikið áberandi
betur en aðrir í úrslitalotunni, en
frumleg túlkun hans á tónverki
eftir Liszt í undanúrslitunum
hefði rýrt möguleika hans, þegar
kom að úrslitunum.
Þriðja sætið og bronsið hlaut
Michie Koyama frá Japan, en sov-
ésku píanóleikararnir, Dmitri
Gaiduk og Kale Randalu, deildu
fjórða sætinu. Rovena Arrieta frá
Filippseyjum lenti í fimmta sæti,
en þetta er í fyrsta skipti sem þjóð
hennar sendir keppanda á Tchaik-
ovsky-mótið.
AUCIÝSINCASTOFA
MYNDAMÓTA HF
- VERSLUNARSTJÓRAR
XTIR
INNAR
— Bananar Dole — Epli rauö extra fancy —
Epli gul — Epli græn — Appelsinur — Outspan —
Klementinur — Minlolas — Greip — Sítrónur —
Ferskjur — Nektarinur — Plómur rauóar — Plómur
gular — Vínber blá — Vínber græn — Melónur Hony
Dew — Vatnsmelónur — Avocado — Kiwi — Kók-
oshnetur.
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, sími 85300
fyrir þá sem vilja
vera svolitid
Alfa Romeo verksmiðjumar hafa frá upphafi
framleitt bfla sem þurft hafa að ganga í gegnum
hinar erfiðustu raunir á kappakstursbrautum um
allan heim. Hin fjölmörgu gullverðlaun sem Alfa
Romeo hefur sótt á þessar brautir em ótvíræð
sönnun þess að vei hefur til tekist.
Við framleiðslu á fólksbflum fyrir almennan
markað hafa verksmiðjurnar gætt þess fullkom-
lega að viðhalda hinum ótrúlega góðu aksturs-
eiginleikum kappakstursbflanna, kraftinum og
öryggisbúnaði. Ennfremur vekur hin sérstæða
og fallega ítalska teikning þessa bfls alls staðar
verðskuldaða athygli.
Verð aðeins frá kr. 131.702
Þú ert svolítið mikið „Spes“
ef þú ekur á Alfa Romeo
JÖFUR HF.
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
ib