Morgunblaðið - 11.07.1982, Qupperneq 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ1982
St. Ixtui.s, borgin við Miswiss-
ippi-fljótið sem Gateway-boginn,
meistaraverk flnnska arkitektsins
Eero Saarinen, gn«fir yfir, hefur
ávallt seitt framsýnt og dugandi
fólk til sin. Atvinnuleysi og erfið-
leikar hrjá borgina í dag en „The
Spirit of St. Louis“, eins og Charl-
es Lindbergh nefndi fyrstu vélina
sem hann fiaug yfir Atlantshafið,
lifir enn. Borgin er ekki lengur
fjórða stærsta borg Bandaríkj-
anna, eins og hún var um aldamót-
in siðustu, en höfuðstöðvar flug-
vélaframleiðendanna
McDonnel-Douglas eru þar og
stærsta bjórframleiðslufyrirtæki
landsins, Anheuser-Busch, er í
bænum.
St. Louis byggðist hratt upp
um miðja síðustu öld. Hún var
hliðið til vesturríkjanna því auð-
veldasta leiðin vestur var með-
fram Missouri-ánni sem fellur í
Mississippi rétt norðan við St.
Louis. Hvítu frumbyggjendur
vestursins komu fljótandi á flek-
um niður Illinois-ána, sem einn-
4g fellur í Mississippi rétt við St.
Louis. Gufubátar stórfljótsins
sigldu milli St. Louis og New
Orleans. Skinnakaupmenn voru
fyrstir til að hefja verslun í
borginni, en verslun og skinn-
framleiðsla ýmiss konar blómg-
aðist ört og ekki var þess lengi
að bíða að St. Louis yrði brugg-
höfuðborg landsins.
Lestarteinar í austur- og vest-
urátt tengdust þegar Eads-brúin
yfir Mississippi var opnuð við
hátíðlega athöfn í borginni 4.
júlí 1874. Á heimssýningunni
sem haldin var í St. Louis 1904
var fyrst seldur rjómaís í Banda-
ríkjunum og framtíðin brosti við
bæjarbúum. En samgöngutæki
þróuðust ört og mikilvægi ánna
sem borgin stendur við minnkaði
svo hún óx ekki og dafnaði eins
hratt og á síðustu öld og er nú
15. stærsta borg Bandaríkjanna.
Tvær óiíkar ástæður heyrast
nefndar fyrir því hvers vegna St.
Louis dróst aftur úr öðrum borg-
um. Talsmaður McDonnell-
Douglas sagði að bankastjórar
og athafnamenn borgarinnar
hefðu verið of íhaldssamir til að
byggja upp og hefja nýjar fram-
kvæmdir. „Ekki ein einasta ný-
bygging var reist í miðborginni á
árunum milli 1920 og 1959,"
sagði hann. „Afkomendur þeirra
sem byggðu þessa borg kusu
heldur að njóta afrakstursins af
afrekum foreldranna en fjár-
festa í nýjum framkvæmdum."
James McDonnell var einn af
fáum sem hættu sér út á hálan ís
og opnaði framleiðslufyrirtæki
1939. Hann vonaðist til að geta
lifað af eftirspurn eftir flugvéla-
teikningum, pörtum og viðgerð-
um. Fyrsta árið var erfitt en
brátt gekk betur. Árið 1967 sam-
einuðust fyrirtækin McDonnell
og Douglas í Kaliforníu. Fyrir-
tækið framleiðir nú t.d. DC 10-
breiðþoturnar, F-orustuvélar og
geimskip.
Hin ástæðan fyrir afturför St.
Louis er rakin til í Chicago.
Ákvörðun yfirvalda þar er kennt
um. Það var á sínum tíma
vandamál í Chicago að áin sem
rennur í gegnum borgina og var
notuð sem skolpræsi féll í
Michigan-vatnið sem borgin
St. Louis séð úr Gateway-boganum. Busch-leikvangurinn sést til vinstri. Mjndir: >b
Gateway-boginn er hæsta minnis-
merki Bandaríkjanna og gnæfir yf-
ir St. Louis.
stendur við og borgarbúar sóttu
drykkjarvatn sitt í. Borgaryfir-
völd ákváðu að byggja stíflu til
að skilja þetta tvennt að og
breyta farvegi Chicago-árinnar.
Ibúar Suður-IIlinois og Missouri
sem sóttu drykkjarvatn sitt í 111-
inois-ána og Chicago-áin átti að
falla i, mótmæltu harðlega. En
áður en dómstólar gátu kveðið
upp dóm í málinu höfðu
Chicago-búar sprengt fyrir stífl-
unni og sendu nágrönnum sínum
fyrir sunnan kveðju sína.
Þeir sem heimsækja St. Louis
í dag og líta lífið í kringum sig
gætu haldið að borgin sé dauð úr
öllum æðum og fæstir vildu búa
þar. En það er ekki rétt. Endur-
nýjun gamalla hverfa hefur haf-
ist og matstaðir og smáverslanir
eru að lifna við þar sem áður
voru hlerar fyrir gluggum. Á
hæðinni, eins og ítalska hverfið
er kallað, eru lítil og snyrtileg
hús og biðraðir við matstaði,
jafnvel á miðvikudagskvöldum.
Hætt er við að borgin missi
Goldenrod „show“-báturinn
stendur vió Eads-brúna á Missis-
sippi.
elsta, stærsta og siðasta
„show“-bátinn á Mississippi-
fljótinu suður til New Orleans
innan skamms, en hún kemst
væntanlega yfir það sem annaö.
Goldenrod-báturinn hefur staðið
í áratugi við Eads-brúna og verið
stolt borgarinnar. Skáldsagan og
leikritið „Showboat" eftir Edna
Ferber gerðist um borð í bátn-
um. Engin hætta er á að borgin
missi annað stolt sitt sem er
baseball-klúbburinn Cardinals.
Þeir eru nú efstir í „austur-
þjóðardeildinni" (Eastern Nat-
ional League). Anheuser-Busch
bjórfyrirtækið, sem framleiðir
Budweiser, Busch og Michalobe,
á Busch-leikvanginn sem er
heimavöllur Cardinals og liðið
sjálft.
„Anheuser byggði ekki leik-
vanginn," sagði Harold Gibbons,
verkalýðsleiðtogi í borginni,
„þeir keyptu hann. Annars eru
Anheuser-bræðurnir ágætir,
peningarnir hafa ekki spillt
þeim.“ Anheuser-bræðurnir voru
ekki í borginni til að segja álit
sitt á borgarmálum eða base-
ball-liðinu, en Jerry Tucker hjá
verkalýðsfélagi starfsmanna í
bílaiðnaði tók í sama streng og
Gibbons. „Anheuser-fjölskyldan
hefur ávallt borið hag borgar-
innar fyrir brjósti. Kannski
vegna þess að enginn myndi
kaup bjór af fólki, sem óorð
hefði á sér. McDonnel-Douglas
selur ekki framleiðslu sína hér í
bænum svo umhyggja yfir-
manna þar fyrir borginni er öllu
yfirborðskenndari."
Hugmyndafræðingar hafa
einnig látið ljós sitt skína í St.
Louis. Barry Commoner, um-
hverfismálafræðingur og
forsetaframbjóðandi vinstri-
manna 1980, bjó lengi vel í borg-
inni. Kynferðisstofnun Masters
og Johnson er við Washing-
ton-háskólann, annan háskóla
borgarinnar. Nú síðast hefur
friðarhreyfingin í Bandaríkjun-
um undir stjórn Randall Kehlers
komið höfuðstöðvum hreyfingar-
innar fyrir í St. Louis. Caron
Fierke, talsmaður hreyfingar-
innar, sagði að yfirveguð ákvör-
ðun hefði verið tekin um stað-
setningu höfuðstöðvanna.
„Þetta var róttækt borg í
gamla daga og það lfir mikið af
þeim anda enn,“ sagði hún, „þótt
borgin sé á yfirborðinu íhalds-
söm og fastmótuð. Friðarhreyf-
ingin hefði aldrei náð svona
langt ef við hefðum verið stað-
sett á austur- eða vesturströnd-
inni. Við hefðum þá strax fengið
vinstristimpil á okkur og ekki
fengið fólk úr báðum flokkum til
liðs við okkur."
Götunöfn í miðborg St. Louis
eru hin sömu og í Philadelphiu
og arkitektúr miðborganna er
mjög svipaður. En St. Louis á
það sameiginlegt með friðar-
hreyfingunni að hún væri ekki
það sem hún er í dag, ef hún
hefði verið á austurströndinni,
hún væri þá aðeins önnur Phila-
delphia eða Baltimore. Hún væri
kannski stærri en hún er í dag,
en færi á mis við slétturnar allt í
kringum Mississippi-fljótið og
fegurð Gateway-bogans.
ab.