Morgunblaðið - 16.07.1982, Síða 1
56 SÍÐUR
155. tbl. 69. árg.
FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Herlögin nauð-
synleg til að
hindra innrás
— segir Jaruzelski, leiðtogi pólskra kommúnista
\ arsjá, New York, 15. júlí. Al*.
WOJCIECH Jaruzelski, hershöfðingi og mestur ráðamanna í Pól-
landi, segir í viðtali við pólska tímaritið Parade, að herlögin í
landinu hafi verið nauðsynlcg til að koma í veg fyrir innrás í landið,
en segir hins vegar ekki hvaðan Pólverjum stafaði sú hætta. Einnig
sakar hann Bandaríkjastjórn um að hafa með refsiaðgerðunum
þrýst Pólverjum fastar upp í fangið á Sovétmönnum en ella væri
raunin á.
í viðtalinu við Parade ver
Jaruzelski setningu herlaganna
og segir, að þau hafi verið
skárri kosturinn af tveimur ill-
um því að þjóðin hafi verið á
barmi borgarastyrjaldar og átt
yfir höfði sér innrás erlends
ríkis. Jaruzelski vildi í viðtalinu
ekki láta hafa beint eftir sér, en
fram kemur þó, að herlögin
muni ekki verða afnumin í bráð
heldur dregið smám saman úr
þeim, að Lech Walesa og aðrir
helstu framámenn Samstöðu
verði ekki látnir lausir á næst-
unni, „enda gæti það haft
skelfilegar afleiðingar í för með
sér“, og að Jaruzelski er „afar
bitur í garð vestrænna þjóða,
einkum Bandaríkjamanna"
vegna efnahagsþvingananna.
Segir hann, að lífskjör lands-
manna hafi versnað um 23%
frá árinu 1980 og að skerðingin
verði líklega komin í 30% áður
en árið er á enda.
Miðstjórn pólska kommún-
istaflokksins kom í dag saman
til tveggja daga fundar þar sem
æskulýðurinn í landinu verður
helsta umræðuefnið. Fyrirlitn-
ing ungs fólks á kommúnista-
flokknum veldur ráðamönnum
áhyggjum og í Trybuna Ludu,
málgagni flokksins, er vitnað
til orða Jaruzelski þar sem
hann skorar á fullorðið fólk að
leita „félagsskapar" við ung-
dóminn, sem skilji ekki, að
stuðningur hans við Samstöðu
„er ógnun við sjálfan grundvöll
ríkisins".
íran — írak:
Chang Young-Ja, eiginkona Lee Chol-Hui, sem áður
var einn af jeðstu yfirmönnum suður-kóresku leyni-
þjónustunnar, sést hér flutt í böndum i réttarsal í
Seoul sl. miðvikudag, en hún er ein af sakborningum
í gífurlegu fjárdráttar- og fjársvikamáli. Eiginmadur
hennar og aðrir, sem við sögu koma, eru sagðir hafa
dregið sér allt að einum milljarði dollara, á ellefta
milljarð íslenskra króna. Al’.
Sophia Loren boðaði í gær blaðamenn i Róm á sinn
fund og tilkynnti þeim, að nú veri hún aftur á för-
um frá föðurlandinu. Kvað hún ástæðuna vera þá, að
hætt hefði verið við kvikmynd, sem hún ætlaði að
leika í. Hún tók skýrt fram, að 17 daga vist í ítölsku
fangelsi ætti þar engan hlut að máli, sagðist vera
búin að jafna sig á henni og jafnvel farin að brosa
á nýjan leik. AP
Aröbum ber skylda til
að taka við skæruliðum
Loftárásir á
borgir og bæi
Hvorir um sig segjast hafa hrundið sókn hinna
Nikósíu, Kýpur, 15. júlí. AP.
ÍRANIR lýstu því yfir í dag, að her
þeirra héldi velli á írösku landi og
mæltu því í mót, að frökum hefði
tekist að hrekja þá aftur austur yfir
landamærin. írakar segjast hafa
gert loftárásir á efnahagslega mik-
ilvæga staði í Vestur-íran og valdið
þar miklu tjóni. Fréttum ber sem
sagt ekki saman en Ijóst er, að hart
hefur verið barist i dag.
í tilkynningu írönsku herstjórn-
arinnar segir, að „aumingjalegri
gagnsókn" Iraka hafi verið hrund-
ið eftir mikið hergagnatjón þeirra
og harðar loftárásir iranskra
flugvéla. Hinir síðarnefndu segj-
ast hins vegar hafa hreinsað írak
af írönskum hermönnum eftir að
hafa króað þá af á litlu svæði við
landamærin. Hvorug þjóðin leyfir
erlendum fréttamönnum að fylgj-
ast með gangi mála á vígvellinum
og af þeim sökum er erfitt að meta
sannleiksgildi frétta þaðan.
írakar sögðu í dag, að Sýrlend-
ingar hefðu aukið viðbúnað sinn á
landamærum ríkjanna samtímis
innrás írana. Sýrlendingar hafa
stutt írani í Persaflóastríðinu og
lengi hefur veriðgrunnt á því góða
með þeim og Irökum. Stjórnir
flestra Arabaríkja horfa með ugg
á þróun mála og óttast vaxandi
ókyrrð í löndum sínum ef ofstæk-
isfull stefna Khomeinis á eftir að
reynast sigursæl. í dag sökuðu
Saudi-Arabar írani um samstarf
við zíonista, ísraela, og sögðu að
innrásin í Irak væri beinlínis gerð
til að draga athygli manna frá
ástandinu í Líbanon.
W a.shinnlon, Beirut, 15. júlí. Al'.
TALSMAÐUR Bandaríkjastjórnar
sagði í dag, að Arabaríkjunum bæri
skylda til aó skjóta skjólshúsi yfir
hermenn Frelsisfylkingar Palestínu-
manna, sem nú væru i herkvi og
gætu litla björg sér veitt í Vestur-
Beirut. Athygli vekur ordið „her-
menn“ en skæruliðar hafa þeir jafn-
an verið nefndir hingað til. Fundi
með leiðtogum PLO var frestað í
dag vegna veikinda Eliasar Sarkis,
forseta Líbanons, og var haft eftir
yfirmanni öryggismála PLO-samtak-
anna, að nú ykjust stöðugt likurnar
á „blóðugu uppgjöri" á götum
Beirut-borgar.
„Nú er kominn tími til fyrir
Arabaþjóðirnar að leysa þetta
mál,“ sagði Dean Fischer, tals-
maður bandaríska utanríkisráðu-
— segir tals-
maður Banda-
ríkjastjórnar
neytisins, en hingað til hefur ekk-
ert Arabaríkjanna boðist til að
veita liðsmönnum PLO viðtöku.
Fischer sagði einnig, að PLO hefði
fallist „í grundvallaratriðum" á að
fara frá Beirut og er það í fyrsta
sinn, sem Bandaríkjastjórn skýrir
opinberlega frá slíku samkomu-
lagi.
Salah Khalaf, einn af leiðtogum
PLO, sagði í dag útvarpsstöðinni
„Rödd Palestínu", að þrátt fyrir
endalausar samningaviðræður
væru langmestar líkur á „blóðugu
uppgjöri" á götum Beirut-borgar
og að Palestínumenn myndu berj-
ast þar til yfir lyki, jafnvel með
hnefana eina að vopni.
Fundi, sem vera átti í dag með
líbönskum, bandariskum og pal-
estínskum samningamönnum, var
frestað vegna veikinda Sarkisar,
forseta, en gert er ráð fyrir að
hann verði haldinn á morgun,
föstudag. I morgun kom til átaka
milli Israela og Palestínumanna
við flugvöllinn í Beirut og í dag
hafa ísraelskar orrustuflugvélar
steypt sér yfir borgina með mikl-
um gný en án þess að kasta niður
sprengjum.
Engar mútur til Brandts
— segja forráðamenn Flicks-fyrirtækisins
Bonn, 15. júlí. AP.
FORRÁÐAMENN vestur-þýska stórfyrirtækisins Friedrich Flicks segja í
bréfi, sem þeir hafa sent saksóknaranum í Bonn, að Willy Brandt,
formaður Jafnaðarmannaflokksins, hafi enga pcninga þegið frá fyrirtæk-
inu. Var þetta haft eftir talsmanni fyrirtækisins í dag en eins og fram
hefur komið í fréttum eru Brandt og 40 aðrir frammámenn í vestur-þýskum
stjórnmálum grunaðir um að hafa veitt viðtöku fé frá fyrirtækinu í
kosningasjóð gegn skattaivilnunum.
Fyrr í mánuðinum skýrði viku-
ritið Der Spiegel svo frá, að nafn
Brandts og 40 annarra stjórn-
málamanna væri á „mútulista",
sem fundist hefði á skrifstofum
Flicks-fyrirtækisins í Dússeldorf
en það er grunað um að hafa ver-
ið mjög örlátt á fé í kosninga-
sjóði flokkanna gegn tilhliðrun-
arsemi í skattheimtunni. Eftir
iistanum að dæma átti Brandt
að hafa tekið við þremur greiðsl-
um, samtals að upphæð tæpar
800.000 ísl. kr. Brandt hefur
harðlega neitað þessum ásökun-
um.
Þrír ráðherrar í stjórn Helm-
ut Schmidts, flokksbróður
Brandts, eru bendlaðir við þess-
ar mútur, sem Der Spiegel segir,
að séu „líklega mesta spill-
ingarmál” í vestur-þýskri sögu.
Rannsóknin beinist að meintum
skattsvikum einstakiinga, fyrir-
tækja og pólitískra flokka, 700
mál alls, og er reynt að komast
að því hvort mútum hafi verið
beitt í þessu skyni.
Talsmaður saksóknarans í
Bonn hefur skýrt frá því, að
rannsóknin sé mjög umfangs-
mikil, en ekki viljað staðfesta að
Brandt komi þar við sögu.