Morgunblaðið - 16.07.1982, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ1982
19
Umferðarráð:
Strangar reglur
verði settar um
akstursíþróttir
Nýi Garður endurnýjaður
„Umferðarráð telur nauðsynlegt, að
um akstursíþróttir, þar á meðal
rallkeppni, gildi strangar reglur, er
framfylgt sé vel og vandlega af hálfu
allra hlutaðeigandi, þátttakenda,
þeirra sem fyrir keppni standa og
yfirvalda. Við framkvæmd alla skuli
þess jafnan gætt að öryggi þátttak-
enda, áhorfenda og annarra sé eigi
stefnt i hættu“, segir i samþykkt,
Páfagauk-
ur tapaðist
BLÁR páfagaukur tapaðist í gær
frá Fýlshólum í Efra-Breiðholti.
Páfagaukurinn, sem er mjög
spakur, slapp út um glugga um há-
degisbilið í gær og hefur ekki sézt
til hans síðan. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 77577.
AFLI togara frá Vestfjörðum var al-
mennt góður i júnímánuði sl. og var
uppistaðan í afla þeirra þorskur. Hjá
bátunum var hins vegar lítið um að
vera. Aðeins einn bátur var byrjaður
grálúðuveiðar með línu og aflaði vel
og minni bátar voru að byrja með
handfæri.
Heiði á Langanesi
NIÐJAR Lárusar Helgasonar og
Arnþrúðar Sæmundsdóttur halda
niðjamót að Heiði á Langanesi, dag-
ana 30. júlí til 1. ágúst í tilefni ald-
arafmælis Lárusar, sem var 22.
apríl sl.
Væntanlegir þátttakendur hafi
samband við Baldvin Arason eða
Sæmund Gunnólfsson.
— Fréttatilkynning.
sem Morgunblaðinu hefur borist frá
Umferðarráði.
Umferðarráð telur að fyllsta að-
gát skuli höfð við veitingu heim-
ilda til aksturskeppni á vegum.
Telur umferðarráð að eigi skuli
veita undanþágu frá reglum um
hámarkshraða nema að viðeigandi
öryggisráðstafanir séu jafnframt
gerðar, þ.á m. um lokun vega fyrir
annarri umferð, enda sé þess þá
gætt að slik lokun valdi eigi öðrum
vegfarendum verulegum óþægind-
um, segir ennfremur.
Að lokum segir í samþykkt Um-
ferðarráðs, að það telji það sitt
meginhlutverk að vinna að góðum
akstursháttum, virðingu fyrir um-
ferðarreglum og auknu umferðar-
öryKKÍ- Umferðarráð leggur því
ríka áherslu á, að þessi sjónarmið
séu jafnan höfð að leiðarljósi við
framkvæmd akstursíþrótta og alla
umfjöllun um þær.
í yfirliti um sjósókn og afla-
brögð í Vestfirðingafjórðungi, sem
ísafjarðarskrifstofa Fiskifélags
íslands hefur tekið saman, kemur
fram, að heildaraflinn í mánuðin-
um var 7.967 lestir, en var 9.079
lestir í sama mánuði í fyrra. Árs-
aflinn er þá orðinn 44.932 lestir,
en var orðinn 51.791 lest á sama
tíma í fvrra.
Svipuð þátttaka er nú í úthafs-
rækjuveiðunum og var í fyrra.
Voru 16 bátar byrjaðir veiðar í lok
mánaðarins og öfluðu þeir 223
iestar í mánuðinum, en í fyrra var
júníaflinn 252 lestir.
Aflahæsti Vestfjarðatogarinn í
júnímánuði var Páll Pálsson frá
Hnífsdal með 636,3 lestir í 5 veiði-
ferðum.
NÚ standa yfir gagngerar endurbæt-
ur á Nýja Garði, einum af stúdenta-
görðum Háskóla íslands. Innrétting
hússins verður að öllu leyti endur-
nýjuð og einnig verður gert við húsið
utanvert, en húsið var byggt árið
1942 til 43. Áætlaður kostnaður við
viðgerðina innan húss er tæpar 5
milljónir króna.
Leiðrétting
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi leiðrétting frá
skattstofu Norðurlandsumdæmis
eystra:
Leiðrétting við frétt í Morgun-
blaðinu 14. júlí 1982 um hæstu
skattgreiðendur á Norðurlandi
eystra.
Vilhelm Þorsteinsson hefur
óskað leiðréttingar. Heildargjöid
hans 1981 voru krónur 147.784,00,
en ekki krónur 175.724,00. Um er
að ræða leiðréttingu, sem að
óútskýrðum orsökum hefur ekki
komizt inn í skattskrá.
Vilhelm fellur því úr hópi 10
hæstu gjaldenda í Norðurlands-
umdæmi eystra, en inn kemur
Baldur Jónsson, Goðabyggð 9, Ak-
ureyri, með heildargjöld krónur
179.955,00, þar af tekjuskatt krón-
ur 127.340,00. Vegna mistaka
skattstofu féll nafn hans niður í
upphaflegri frétt.
Að sögn Sigurðar Skagfjörð,
framkvæmdastjóra Félagsstofn-
unar stúdenta, verður á þessu
sumri endurnýjuð öll innrétting
hússins, gerð verða ný og stærri
eldhús en áður hefa verið, hrein-
lætis- og þvottaaðstaða endurnýj-
uð, gerðar setustofur á hverri hæð
auk sameiginlegs viðverusals í
kjallara og ljósmyndakompu og
innréttingar og hurðir í herbergj-
um endurnýjaðar. Þá verða þær
breytingar, að nú verða sjö tvöföld
herbergi fyrir barnlaust sambýlis-
fólk í námi á garðinum og gengið
verður frá kjallara hússins og
fyrstu hæð þannig að fatlaðir eigi
þar greiðan aðgang. Þá verður
byggt skýli við aðalinngang húss-
ins og sett tvöfalt gler í alla
glugga. Áætlað var að þessum
breytingunum yrði lokið 20. sept-
ember, en líkur eru á að það geti
dregizt.
Þá sagði Sigurður, að þetta
væru viðamiklar breytingar, enda
ekki nema von þar sem viðhald
hefði verið vanrækt frá því bygg-
ingu hússins var lokið 1943. Því
hefði verkið verið svo fjárfrekt að
ekki hefði verið unnt að vinna það
nema með framlagi úr ríkissjóði.
Síðan yrði stefnt að því að leiga á
stúdentagörðunum yrði miðuð við,
að fé fengist til eðlilegs viðhalds
þeirra.
Vatnssalerni
Kemisk vatnssalerni fyrir
sumarbústaöi, hjólhýsi
og báta.
Atlas hf
Ármúla 7. - Sími 26755.
IMsthóll' 493 - Hoykjavík.
Góður afli Vestfjarða-
togara í júnímánuði
ÖÐRUM TMm
FYiMMTHDál
Það dylst engum að Opel Rekord er lxixus-
bíll. Hvar sem á hann er litið, hvar sem 1
honum er setið og hvert sem honum er
ekið þá er ekkert sem hægt er útá að setja.
Opel Rekord er rúmgóður, þægilegur og
eins öruggur og hugsast getur. Aflmikill,
en neyslugrannur og endingin er slík að
við endursölu er bíllinn sem nýr.
Vekur Opel áhuga þinn?
Reiðubúinn í reynsluakstur?
Hringdu og pantaðu tíma.
VÉIADEILD
Ármúla3 C 38900
o
>
<