Morgunblaðið - 16.07.1982, Side 32
Síminn á afgretðslunni er
83033
IftorjyitnMaííifo
Jttor#vuiMðtifö
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
FÖSTUDAGUR 16. JULÍ 1982
Suðureyri
Bjóða hreppnum
húsin til sölu
„VIÐ MÖFIIM boðiö hús okkar til
sölu sem verkamannahústaði en
hreppsnefndin heldur samt áfram
Féll fram af
svölum á 4. hæð
I»AI) SLYS varð við Æsufell í
Rreiöholti að maður féll fram af
svölurn á fjórðu hæð oj> slasaðist al-
varlega.
Maðurinn var fluttur á gjörgæzlu-
deild Borgarspítalans og var hann
þá meðvitundariaus. Er Morgun-
blaðið fór í prentun í gær var hvorki
kunnugt um tildrög slyssins né voru
meiðsli mannsins fullkönnuð.
áformum sínum um byggingu raðh-
úsanna, þrátt fyrir gjörbreyttar að-
stæður,“ segir Oskar Sigurðsson,
lögreglumaður á ísafirði, áður
trésmiöur á Suöureyri, í samtali við
Mbl., en hann er eigandi eins þeirra
húsa, sem nú eru til sölu á Suður-
eyri.
í samtalinu segir Óskar, að í
haust eigi að hefja byggingu sjö
verkamannabústaða í raðhúsum á
Suðureyri, „þó það liggi ljóst fyrir
að húsnæðismarkaðurinn sé mett-
ur, þar sem fólksfækkun hefur
orðið og næg hús til sölu.
Sjá viðtöl við Óskar og Guð-
laug Arnaldsson í miðopnu.
Haukur Benediktsson, framkvæmdastjóri Borgarspítalans:
Neyðarástand ríkir
vegna skorts á hjúkr-
unarfræðingum
— fráleitt að ráðuneytið skuli ekki hafa tekið á þessu fyrr
Morgunblaóið/ Hagnar Axelsson.
Slapp lítt meiddur úr brotlendingu
FLUGMAÐUR svifflugvélar slapp
með minni háttar meiðsli er hann
brotlenti svifflugu sinni viö bæinn
Læk í Holtahreppi í gær. Flugmaö-
urinn tók þátt í íslandsmótinu í
svifflugi, sem nú stendur yfir á
Hellu. Nvifflugan er skemmd, en
ekki talin ónýt.
Svifflugan brotlenti er hún
átti ófarna 16 kílómetra til Hellu
úr þríhyrningsflugi frá Hellu um
Búrfellsvirkjun og Torfastaði í
Biskupstungum. Tókst flug-
manninum ekki að ná inn á ný-
rækt við bæinn Læk er hann var
að missa hæð á bakaleiðinni, og
lenti á ósléttu svæði skammt frá
Læk. Stöðvaðist svifflugan á
skurðbarmi.
í lendingunni brotnaði vinstri
vængur svifflugunnar, sem var
af gerðinni K-8B, og einnig
vattst upp á búk flugunnar.
Flugmaðurinn steig óstuddur út
úr flugunni en kvartaði undan
bakverkjum. Var hann fluttur í
Borgarsjúkrahúsið í Reykjavík,
en reyndist lítt meiddur.
Svifflugan bar einkennisstaf-
ina TF-SAR og var í eigu Svif-
flugfélags Islands.
Sjá nánar um svif-
flugmótið á miðopnu.
Reykjavíkurborg — ríkið — háskólinn:
,,I»Af) ER Ijóst aö hér á landi er um
alvarlegan skort á hjúkrunarfræð-
ingum að ræða. Ég hef ekki orðið
var við að þeir sæki neitt frekar í
starf eftir að samiö var við þá í vor
og vegna þessa skorts ríkir nánast
neyðarástand á Borgarspítalanum.
I»að vantar nú hjúkrunarfræðinga i
um 20 stöður og vegna þess hefur
ein deild eða hátt í 40 rúm verið
algjörlega lokuð un nokkurn tima og
stafar það ekki eingöngu af sumar-
leyfum. Auk þessa vantar svo hjúkr-
unarfræðinga á nær allar deildir
spítalans eins og er,“ sagði Haukur
Benediktsson, framkvæmdastjóri
Borgarspítalans, í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Aðspurður um það hvað til ráða
væri sagði Haukur, að fyrir mörg-
um árum hefði átt að fjölga fólki í
námi, það hefði verið meira og
minna lokað fyrir fólki, sem hefði
viljað læra þetta. Þessi þróun
hefði fyrir löngu verið ljós og á
hana bent, en ekki farið eftir því
og þetta væri að hefna sín
grimmilega núna. Engar lausnir
væru til, sem gætu leyst vandann
á nægilega skömmum tíma, þann-
ig að þetta neyðarástand myndi
eflaust vara nokkuð lengi enn.
„Það er forkastanlegt að ekki
skuli hafa haldizt í hendur í upp-
byggingu heilbrigðiskerfisins,
bygging stofnana og fjölgun
hjúkrunarfræðinga. Það ættu ekki
að vera neinir annmarkar á því að
ganga þá námsbraut frekar en
aðrar. Það er alveg fráleitt að það
ráðuneyti, sem stjórnar þessu,
skuli ekki hafa tekið á þessu löngu
fyrr, en þess í stað látið blekkjast
af hugmyndum um hundruðir
hjúkrunarfræðinga, sem heima
sætu vegna lágra launa. Það hefur
komið í ljós að framboð á hjúkr-
unarfræðingum hefur ekki farið
vaxandi, þrátt fyrir miklar launa-
hækkanir í vor,“ sagði Haukur
Benediktsson.
Viðrædur um hluta Keldna-
lands sem byggingasvæði
BORGARNTJÓRN samþykkti á fundi sínum í gærkveldi skipulagsforsögn og
að gert verði deiliskipulag að næsta byggingasvæði borgarinnar við Grafar-
vog. í umræðum um málið kom það fram hjá Davíö Oddssyni borgarstjóra,
að óformlegar viðræður hcfðu farið fram á milli borgaryfirvalda annarsvegar
og Háskólans og forsætisráðherra hinsvegar, um að borgin fengi hluta af
Keldnalandi til bygginga. Einnig kom fram hjá Davíð að áætlað væri að á
Grafarvogssvæðinu yrði um 2.000 lóðum úthlutað.
Að samþykktinni í borgarstjórn
stóðu borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, en á móti voru fulltrúar
Alþýðubandalags og Kvennafram-
boðs. Fulltrúar Framsóknarflokks
og fulltrúi Alþýðuflokks sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna.
í umræðum kom m.a. fram hjá
minnihlutanum að mál þetta hefði
litla umfjöllun fengið og ekki væri
faglega staðið að afgreiðslu þess. J. málsins, ekki á efnishlið þess.
Lagt var til að málinu yrði vísað
til Borgarskipulags, en sú tillaga
var felld. Kristján Benediktsson
borgarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins sagðist þó ekki gagnrýna, að
sjálfstæðismenn gengju rösklega
til verks.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði að ekki hefði komið fram
gagnrýni á annað en formhlið
„Grundyallaratriði að
fækka skuttogurunum
— segir I>óröur Friðjónsson formaður efnahagsnefndar ríkisstjórnarinnar
„JAFNHLIÐA því að veitt verður
einhver hugsanleg aðlögunaraðstoð
til togaraflotans, þarf að ganga frá
framtíðarrekstrargrundvelli fyrir
fiskiskipaflotann. Þaö þarf að taka
afstöðu til hversu mörg fiskiskip við
eigum að gera út í landinu og um
leið að hyggja aö fleiri atriðum, eins
og afkomu og aflahorfum," sagði
Þórður Friðjónsson formaður efna-
hagsnefndar ríkisstjórnarinnar þeg-
ar Morgunblaðið ræddi við hann i
gær.
Þórður starfaði með „Storm-
sveitinni” svokölluðu, sem gerði
tillögur til ríkisstjórnarinnar um
lausn á rekstrarvanda togaraflot-
ans. Þórður var ekki sammála
nefndarmönnum að öllu leyti. Ti)
dæmis skrifaði hann aðeins undir
greinargerðina, sem fylgdi tiilögu-
gerðinni, og með fyrirvara um að
byggja þyrfti tillögugerð um að-
gerðir í sjávarútvegs- og fiskveiði-
málum á víðari grunni, en grein-
argerðin gaf til kynna.
„Þegar rætt er um framtíðar-
afkomu fiskiskipaflotans, þá þurf-
um við að geta gengið útfrá
ákveðnum forsendum um hve mik-
inn afla við eigum möguleika á að
veiða á ári hverju. Það þýðir ekki
að halda áfram sífelidri stækkun
fiskiskipaflotans við núverandi
ástand. Ég held að það sé grund-
vallaratriði að fækka skuttogur-
unum eitthvað, í því skyni að veita
þeim skipum, sem eftir eru sæmi-
lega afkomumöguleika. Því er ekki
hægt að slíta í sundur þau atriði,
sem nú er við að glíma, annarsveg-
ar það skammtímavandamál, sem
við glímum við nú og hinsvegar
frambúðarvanda. Hann verður að
ieysa um leið,“ sagði Þórður Frið-
jónsson að lokum.
Hann sagði að tillögur sjálfstæð-
ismanna þyrftu engum að koma á
óvart og nauðsynlegt væri að
bregðast hart við í skipulagsmál-
um, því lóðaskortur væri yfirvof-
andi. Hins vegar kæmi það vinstri
flokkunum greinilega á óvart að
menn létu hendur standa fram úr
ermum.
Eins og fram hefur komið í Mbl.
á að úthluta ‘A hluta lóða á Graf-
arvogssvæðinu næsta vor, og sam-
kvæmt skipulagsforsögn eiga 55%
lóða á svæðinu að vera undir ein-
býlishús, 30% undir raðhús og
15% undir íbúðir í fjölbýli.
Blikksmið-
ir felldu
FÉLAG blikksmiða felldi heildar-
kjarasamninga ANÍ og VNÍ og VMSN
á fundi sínum síöastliðinn miðviku-
dag. Féllu atkvæöi þannig að með
voru 2, 8 á móti og 11 sátu hjá.
Atkvæðagreiðslu um samningana
hafði áður verið frestað.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins munu samningarnir hafa
verið felldir vegna þess, að félags-
menn töldu sig ekki geta samið um
skerðingu á launum sínum. Þá
hefur það einnig haft mikil áhrif á
félaga að blikksmiðir vinna mikið
við byggingaiðnaðinn og telja þeir
sig ekki geta unnið samhliða upp-
mælingarmönnum við húsbygg-
ingar á helmingi lægri launum en
þeir, en með sömu afköstum.
Félag blikksmiða mun nú íhuga
stöðu sína, en ekki er ljóst hvert
næsta skrefið verður samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins.