Morgunblaðið - 20.08.1982, Side 16
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. ÁGUST 1982
„Fatnaöur
fyrír íslenskar
aðstæöur“
RÆTT VIÐ ÖRN JÓHANNSSON, ANNAN
EIGANDA VERSLUNARINNAR ÖSSU
„Ég hef veriö spurður aö því,
hvort grundvöllur sé fyrir nýrri
tískuverslun í Reykjavík. Ég svara
þessari spurningu hiklaust játandi
og tel aö evrópska línan, sem viö
erum meö, eigi eftir aö falla fólki
vel i geð," segir Örn Jóhannsson
annar eigandi verslunarinnar
ASSA á Laugaveginum, en hinn
eigandinn er kona hans, Friörikka
Guðmundsdóttir.
Sá fatnaöur, sem her er til sölu,
er einkum frá Þýskalandi og
Danmörku. Eitt aöalfyrirtækið,
sem við skiptum viö, framleiöir
undir heitinu Laurel. Hér er um aö
ræöa fatnaö eins og pils, jakka,
peysur, blússur og kápur, sem
hægt er aö velja saman á ýmsa
vegu. Sú sem hannar þennan fatn-
aö var áöur fatahönnuöur hjá
þýska fyrirtækinu Mondi, en fyrir
nokkrum árum stofnaði hún eigiö
fyrirtæki og byggir hún sitt fataúr-
val upp ekkert ósvipaö og Mondi.
Frá fyrirtækinu Lecomte erum
viö meö sportlegan fatnaö, eins og
peysur, skyrtur og buxur, einnig
þennan fatnaö er hægt að velja
saman á fleiri en einn veg.
Strenesse er líka þýskt fyrir-
tæki, sem framleiöir einkum kápur,
dragtir og stakka, svo og fínan
kvöldfatnað eins og pils, buxur og
jakka. Hægt er að velja saman
fatnaö frá þessum þremur fyrir-
tækjum, þvi fatnaöurinn frá þeim
hæfir vel hver öörum.
Hrásilkifatnaöurinn frá Elisa-
beth Rudolph, sem viö erum meö,
er fyrir kvöldið. Þessar flíkur eru
danskar. Hægt er aö fá náttkjóla,
handklæöi og þvottastykki frá
þessu fyrirtæki. Finnst okkur tilval-
iö að vera meö gjafahluti svona inn
á milli.
Þá erum viö meö buxur úr
teygjuefni frá Gloríu Vanderbilt,
bæöi úr gallaefni og flaueli. Viö er-
um einnig meö pils, blússur og
peysur frá þessu sama fyrirtæki.
It’a me er vörumerki fyrirtækis,
sem viö höfum umboö fyrir, en það
framleiðir fremur pönkaöan fatnað
fyrir unglinga.
Rúskinns- og leöurvörur eins og
pils, buxur og jakkar eru frá Claus
Pind, sem starfar í Danmörku.Skór
og töskur eru svo frá ítalska fyrir-
tækinu Sebastian og þaö má geta
þess aö Margrét Danadrottning
spásseraöi mikiö á stígvélum frá
þessu fyrirtæki meöan á Græn-
landsdvöl hennar stóð.
Sá fatnaöur, sem viö bjóöum
upp á, er fyrir konur á aldrinum
18—40 ára. Höfum við lagt á þaö
áherslu að vera meö fatnaö, sem
hæfir íslenskum aöstæöum.
„Þú spyrö aö því, hvort ég hafi
komið nálægt tískufatnaöi áöur,
en svo er ekki og heldur ekki kon-
an mín, en hún er hjúkrunarfræö-
ingur. Ég er aö Ijúka námi í bygg-
ingartæknifræöi en þaö nám hef
ég stundaö aö undanförnu úti í
Óðinsvéum. Samhliöa náminu höf-
um viö hjónin veriö meö heildsölu,
sem heitir DANCO hf., og höfum
vö flutt inn ýmislegt fyrir ungabörn
eöa allt frá snuöi upp i barna-
vagna.
Þaö má eiginlega segja aö þetta
sé hálfgerö ævintýramennska aö
vera stofna tískuverslun, ef miöaö
er viö efnahagsástandiö nú. En
þaö þarf líka aö hafa unga menn,
sem þora að framkvæma hlutina,
þaö lífgar svolítiö upp á þetta allt
saman.
Auövitaö er dýrt aö setja upp
búö eins og þessa, en vinir og
kunningjar hafa veriö okkur ein-
staklega hjálpsamir og var unniö
dag og nótt viö aö ganga frá versl-
uninni áöur en hún opnaöi. Innrétt-
ingarnar koma allar frá Danmörku
og eru unnar af Jörgen Hansen,
sem kom hingað sérstaklega til aö
setja þær upp. Einnig hefur veriö
mér til aöstoðar Nelly Kops, sem
rekur verslun viö Strikiö í Kaup-
mannahöfn, en sú verslun selur
meöal annars skó frá Sebastian.
Viö höfum ákveöið, aö hafa hér
tiskusýningar í versluninni á hverj-
um föstudegi, þegar koma inn nýj-
ar vörur, því verslunin er rúmgóö
og því auðvelt að koma slíkum
sýningum fyrir og mun ég auglýsa
þær deginum áöur.
Þaö hefur veriö mikil vinna viö
að setja þessa verslun upp, raun-
verulega meiri vinna en ég bjóst
viö í upphafi, en þetta er spenn-
andi verkefni og þaö er mikiö aö
gerast, en ég tek þessu samt frem-
ur rólega," sagði Örn Jóhannsson.
Tvær nýjar tískufataverslanir hafa veriö opnaöar með
stuttu millibili í Reykjavík. t>»r eíga þaö sammerkt aö
hafa á boöstólum vandaöan og sígildan fatnaö frá víöur-
kenndum fyrirtækjum í Noröur-Ameríku og Vestur-
Evrópu. Viö ræöum hér viö eígendur þessara verslana
og spyrjum þá meöal annars hver só sá grundvöllur,
sem þeir byggja á og spjöllum um þann fatnaö, sem
þeir bjóða upp á og sýnum svolítið sýnishorn af honum.
Fágæt umslög á FRÍMEX1982
Frímerki
Jón Aöalsteinn Jónsson
í síöasta þætti fyrir viku var birt mynd af sjaldgæfu
bréfspjaldi frá 1879, sem sýnt er þessa dagana á FRÍM-
EX-1982. Um leiö var gefið í skyn, að margt annað fágæti
yröi sýnt þar. Nú er komið í Ijós, viö hvaö var átt. Er
sjálfsagt að helga þáttinn þessu nýja efni, sem menn
líta nú augum í fyrsta sinni á frímerkjasýningu þeirri,
sem haldin er á Kjarvalsstööum til að minnast 25 ára
afmælis Félags frímerkjasafnara og þess starfs, sem
það hefur innt af höndum í þágu frímerkjasafnara hér á
landi öll þessi ár.
Áriö 1973 var haldin mikil frí-
merkjasýning á Kjarvalsstööum,
ISLANDIA 73, af þvi tilefni, aö
hundraö ár voru liðin frá útkomu
fyrstu íslenzku frímerkjanna. Þá
vildi svo skemmtilega til, að fram
komu hvorki meira né minna en
sjö skildingabréf, áður ókunn, og
eitt svonefnt aurabréf með þjón-
ustufrímerkjum á. Þetta var ein-
stæður fundur, enda settu þessi
bréf sérstæðan svip á sýninguna,
og voru þó þar fyrir 20 skildinga-
bréf í söfnum ýmissa sýnenda.
Þegar ákveöiö var aö halda af- I
mælissýningu 1982, greindi ég |
formanni F.F. frá því, aö ýmislegt
áhugavert myndi vera til í Þjóö-
skjalasafninu, sem gaman væri aö
fá til sýningar. Veitti Bjarni Vil-
hjálmsson þjóöskjalavöröur góö-
fúslega leyfi sitt til aö athuga nánar
það, sem fundizt heföi í skjalasafn-
inu síöustu árin, og taka eitthvaö
af því á væntanlega sýningu. Síöan
voru valin 46 bréf eða umslög, og
eru tíu þeirra meö skildingafrí-
merkjum á og öll áöur ókunn. Er
fjöldi skildingabréfa þá oröinn um
50. Er enginn efi á, að þetta er
langmerkasti fundur gamalla ís-
lenzkra umslaga til þessa, og tæp-
lega trúlegt, aö annar eins eigi eftir
aö gerast í frímerkjaheimi okkar.
Rétt er aö benda sérstaklega á
þaö, aö þessi umslög öll hafa legiö
óhreyfð um og yfir hundraö ár og
hafa því hvorki orðiö fyrir áhrifum
Ijóss né misjafnri meöferö manna.
Þau halda því „ferskleika" sínum,
og þaö er mikils viröi í augum frí-
merkjafræöinga. Á þann hátt má
fá nákvæma mynd af réttum litum
hverrar prentunar, því að aura-
merkin svonefndu voru flest
endurprentuö og sum oft á þeim
rúma aldarfjórðungi, sem þau voru
í notkun, og aldrei varö liturinn
nákvæmlega eins og áöur.
Lítum svo á nokkur skildinga-
bréf, sem sýnd eru. Hér eru fjögur
almenn bréf meö 4 sk. merkjum,
en þau eru víöar þekkt. Aftur á
móti gegnir allt ööru máli um þau
sex bréf, sem eru með svokölluö-
um þjónustufrímerkjum á. Þau frí-
merki máttu aöeins embættis-
menn nota og einungis á embætt-
isbréf. Upplag þeirra var alltaf lítið
í samanburöi viö almenn merki,
svo aö þau eru eölilega sjaldgæf
og ekki sízt á heilum umslögum.
Fram aö þessu hafa veriö þekkt
sex þjónustubréf meö skildinga-
frímerkjum á, en nú bætast önnur
sex viö og sum þeirra meö áöur
óþekktu burðargjaldi. Hér er eink-
um ástæöa til aö benda á tvö bréf,
sem hvort um sig er frímerkt með
tvennd af 8 sk. merki og einu 4 sk.
merki. Annaö bréfanna er frá í apr-
íl 1873 og því elzta skildingabréf,
sem vitaö er meö vissu um aldur á.
Árið 1876 varö að gefa út ný
frímerki í samræmi viö myntbreyt-
ingu áriö áöur, og komu nú aurar í
stað skildinga. Þessi frímerki
nefndust því aurafrímerki og voru
bæði almenn og þjónustumerki.
Elzta almenna auramerkið er 5
aura blátt og mjög sjaldséö. Hér
eru fjögur bréf meö þessu merki,
ýmist sér eöa meö öörum verögild-
um. Þá er þetta frímerki með
tvenns konar tökkun, og eru þær
báöar hér. 20 aura frímerki fjólu-
blátt frá 1876 er einnig sjaldgæft
merki og ekki sízt á bréfi meö
skýrum lit, því að liturinn er mjög
næmur fyrir Ijósáhrifum. Hér er eitt
umslag með 10 merkjum á fram-
hlið og þremur á bakhliö eöa alls
13 merkjum. Auk þess er svo eitt
10 aura af 1. prentun. Þetta hefur
verið óvenjuhátt buröargjald, enda