Morgunblaðið - 12.09.1982, Side 5

Morgunblaðið - 12.09.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982 53 gengiö vonum framar. Ég haföi lítiö fengiö aö spreyta mig hjá liði Bayern á síöasta tímabili og það er gott aö vera kominn á fulla ferö í slaginn aftur. Þaö reyndi á mann sálarlega aö þurfa alltaf aö sitja á bekkn- um hjá Bayern. En það kenndi manni líka aö þaö veröur aö taka hlutunum þó ekki gangi allt aö óskum. Þaö var viss reynsla aö vera settur til hliðar. Hvert er nú takmark leik- manna í Stuttgart 6 keppnistímabilinu? Er stefnt aö meistaratitli eöa gera menn sig ánægöa með aö ná Evrópu- sæti? — Viö leggjum áherslu á aö komast í UEFA-keppnina á næsta ári. Ætlum okkur aö reyna aö veröa í einu af sjö efstu sæt- unum í deildinni. Menn eru ekki með neinar gyllivonir. Þaö er langt og strangt keppnistímabil framundan og allt getur gerst. En ef viö spilum rétt úr spilum okkar, ætti okkur aö takast aö ná takmarkinu sem er, eins og ég sagöi, UEFA-sæti. Ertu ánægöur meö þaö hlut- verk sem þjálfari Stuttgart ætl- ar þér í liðinu? — Já, þaö er ég svo sannar- lega. Mér finnst mjög svipað aö leika hér og meö Standard á sín- um tíma. Ég fell mjög vel inn í þau leikkerfi sem þjálfarinn legg- ur upp. Og næ góðu sambandi viö aöra leikmenn liösins. Staöa mín er erfiö og ég verö aö skila mikilli vinnu á vellinum á meöan á leiknum stendur, en ég er í góöri æfingu og á ekki erfitt meö það. Nú hefur þú átt viö þrálát meiösli aö stríöa og þau hafa sett strik í reikninginn hjá þér. Ertu aö verða góöur af þeim, eöa há þau þér ennþá? — Ég er nýbúinn aö vera hjá færasta sérfræöingi V-Þýska- lands í íþróttameiöslum. Sá hef- ur meöhöndlaö allra helstu íþróttamenn landsins um langt skeið. Hann tjáði mér eftir aö hafa skoöaö mig, aö ég þyrfti aö gangast undir uppskurö. Ég hef átt viö mjög þrálát og slæm meiðsli aö stríöa í náran- um. Afar slæma tognun. Ég var aö ná mér þegar keppnistímabil- iö var aö hefjast, en meiöslin tóku sig upp. — Síðan hef ég veriö spraut- aður og deyfður fyrir hvern leik. En sérfræöingurinn sagöi mér aö þaö mætti ég ekki láta gera • Ásgeir er meö ólíkindum skotfastur knattspyrnumaöur. Hér sést hann vera aö æfa skot Ljótm. ÞR. lengur. Ég yröi aö reyna aö þrauka og spila ódeyföur fram aö jólafríinu. Þá kemur hlé í einn og hálfan mánuö í deildarkeppn- inni hór og þá stendur til aö skera mig upp. — Ég mun aö öllum líkindum veröa í 10 daga á sjúkrahúsi, en þarf um þaö bil sex vikur til aö ná mér. Fram aö þeim tíma verð ég á mjög stífum pillukúr. Þarf aö boröa allt aö 20 pillur á dag. En þaö er iítil von til þess aö meiöslin skáni. Ég mun reyna að leika ódeyföur. Hvernig sem þaö tekst nú. — Eins og stendur get ég ekkert notaö hægri fótinn nema til þess aö hlaupa. Á mjög vont meö aö beita honum nokkuö viö sendingar og skot. Vinstri fótur- inn er hinsvegar mikið skárri. Þaö þarf aö öllum líkindum aö skera mig upp beggja megin í náranum og klippa á og strekkja vel á böndum sem þar eru. — Þetta er einn af þessum hlutum sem maður veröur aö sætta sig viö, þó aö þaö sé slæmt að þurfa aö gangast undir uppskurö á miðju keppnistíma- bili. En ef meiðslin lagast ekki, sem lítil von er til, er ekki um annaö aö ræöa, sagöi Ásgeir. — ÞR. Ásgeiri er ætluð lykilstaða í liði Stuttgart á tímabilinu Þaö hefur sjaldan veriö búist viö miklu af knattspyrnuliöinu Stuttgart í upphafi keppnistíma- bils þýöverskra. Og gildir það einu hvort sjálfskipaöir knatt- spyrnusérfræöingar eða forráöa- menn liðsins hafa átt í hlut. Þó hefur raunin oft og tíðum oröiö sú, aö félagiö uppskar meir en ráö var gert fyrir. En þrátt fyrir aö þaö hafi aldrei veriö í hópi allra sterkustu iiöanna, má segja aö félagiö hafi stundum komiö skemmtilega á óvart. Þaö sem ber því ef til vill gleggst vitni, er árangur liösins síöustu fjögur ár. Á þessu tímabili hefur liöið þris- var sinnum náö aö tryggja sór sæti í UEFA-keppni. En í fyrra var markiö sett hærra: Þá átti aö gera Stuttgart aö stórveldi á knattspyrnusviö- inu. Og þjálfarinn og forráöa- menn liösins lýstu yfir því, aö ekkert kæmi til greina annaö en meistaratitillinn. Til aö þessi draumur gæti ræst var fjárfest í miöframherjanum Dieter Muller og franska landsliösmanninum Diedier Six á vegum félagsins. Reyndist kaupveröiö vera 2,5 milljónir marka fyrir þá báöa. — í upphafi virtist allt ganga sam- kvæmt áætlun sökum þess aö liöiö bar sigurorö af andstæöing- um sínum í fyrgtu þremur leikjun- um. En síöan fór að síga á ógæfu- hliöina. Og þegar upp var staðið, var liöiö rétt fyrir ofan miöja deild. Vann liöiö sér ekki einu sinni rétt til þátttöku í UEFA- keppninni. I kjölfar þessa slaka árangurs uröu róttækar breytingar á liöinu. T.a.m. fór landsliðsmaöurinn Hansi Muller frá fólaginu, en hann lék fáa leiki á síöasta keppnis- tímabili sakir meiösla. Þá var Leikmenn VFB Stuttgart: Efsta röö, frá vinatrí, Makan, Sigurvinaaon, Allgöwer, Reichert, Bialon, Niedermayer, Six, Betreuer. Miöröö, frá vinatri, Beithaua, þjálfari, Entenmann, aöatoöarþjálfari, Flad, MUIIer, Weiaa, Habiger, Kelsch, Karlheinz Förster, Braun, nuddari, og Jeske, sjúkraþjálfari. Neösta röð, frá vinatri. Jeske, Ohlicher, Schlierer, Gruninger, Roleder, Hadewicz, Bernd Förater, Schafer. Fyrirliði Stuttgart er Bernd Förater, 26 ára gamall. Meöalaldur i liöínu er 25,8 ár. Þeir sem eru fastir leikmenn meö liðinu og leika alla leiki eru: Roleder, Schafer, K-H Förater, Makan, B. Förster, Niedermayer, Allgower, Kelsch, Ásgeir Sigurvinsson, Kempe og Six! Liöiö er í heild metiö á 12 milljónir marka. Fyrir aö vinna leik fá leikmenn 3000 mörk í bónus. Ef jafntefli veröur fá leikmenn 1500 mörk. . _ Helmut Bentheus, þjáHari Stuttgart. Henn tók vió liö- inu fyrir keppnistlmabiliö, og óskaöi eftir því aö Ásgeir yröi keyptur. (17 ár samfellt þjálfaói Benthaus Basel I Sviss. Hann hefur 127 þús- und íslenskar krónur í mán- aðarlaun hjá félaginu. þjálfaranum, Júrgen Sunder- mann, sagt upp störfum. í þelrra stað komu Ásgeir Sigurvinsson og Kurt Niedermaier frá Bayern Múnchen og Thomas Kempe frá Duisburg. Einnig var þjálfarinn Helmut Benthaus ráöinn til fé- lagsins, en hann gat sér orö fyrir aö hafa þjálfaö svissneska liöiö Basel samfleytt í 17 ár. Og telja fróðir menn að þaö sé Evrópu- met. — Hvaö sem því líöur er hinn nýi þjálfari öllu hæverskari en fyrirrennari hans: „Við stefn- um aö því aö endurheimta sæti okkar í UEFA-keppninni.“ — En fyrir félagið er meira í húfi, því aö fá veröur meö öllum ráöum þá áhorfendur sem sögöu skiliö viö liöiö og hættu aö mæta á völlinn á síöasta keppnistímabili til fylgis viö það á ný. Að vísu er útlitið ekki gott: Um 20% færri ársmiöar voru seldir fyrir þetta keppnis- tímabil en í fyrra. En til að fólagiö sé rekiö hallalaust þurfa aö meö- altali 28 þúsund áhorfendur aö sækja heimaleiki þess í vetur. Á síöasta ári brugöu forráðamenn liösins sér i gervi falsspámanna og áætluöu aö um 33 þúsund áhorfendur kæmu á völlinn til aö styðja viö bakiö á sínum mönnum. Sú spá stóöst engan veginn og berst félagið því nú í bökkum. Og þó aö fyrrverandi þjálfari liösins, Sundermann, hafi gefiö þaö loforö á síöasta keppn- istímabili aö leikin yröi sóknar- knattspyrna til aö laöa aö áhorf- endur, gleymdist sá mikilvægi þáttur sem vörnin er. Afleiöingin varö sú, aö liöiö tapaöi hverjum leik á fætur öðrum. Af þessu spruttu ýmis leiöindamál sem geröu einungis illt verra. Förster- bræöurnir, sem eru skærustu stjörnur liösins, fóru t.d. aö viöra ýmsar hugmyndir um breytt leikskiplag í trássi viö þjálfarann. Ennfremur lýsti Hansi Múller yfir því, aö hann heföi í hyggju aö yfirgefa félagiö. — Nú telur aftur á móti Benthaus aö bjartari tímar fari í hönd. Og sá maður sem hann ætlar lykiistööu í liöinu er Ásgeir Sigurvinsson. Meö honum á aö hefja félagið til vegs og virö- ingar á ný. Segja má aö hlutverk Ásgeirs sé tvíþætt: Annars vegar aö stjórna leik liösins og hins vegar vera aöalskytta þess. Benthaus hefur nefnilega gert sér grein fyrir því, aö Ásgeir er feiknalega skot- fastur. En Ásgeir á ekki einvörö- ungu aö bera ábyrgö á leik liös- ins, heldur hefur Benthaus í hyggju aö láta öðrum leik- mönnum í té erfið verkefni á knattspyrnuvellinum í því skyni aö koma andstæöingunum sífellt á óvart. Hvort þetta ber árangur eða ekki veit guöinn einn. En gengi liösins í fyrstu leikjunum lofar vissulega góöu um fram- haldiö. Benthaus hefur einnig fastmót- aöar hugmyndir um leikskipulag liösins: Nú á ekki aö falia í annaö sinn í sömu gildruna. j staö þess að leggja höfuðáherslu á sóknina, eiga miövallarleikmennirnir að móta leik liösins; því til staöfest- ingar má nefna aö hann aetlar einungis aö hafa tvo sóknarmenn í liöinu. En þaö mun þó mál manna aö vörnin veröi áfram helzti veikleiki liösins. Aö vísu er Förster-bræörum þar tii að dreifa, en margir telja aö það sé ekki nóg fyrir þá sök aö hinir varnarmennirnir eru allir fremur slakir. En a.m.k. er Benthaus í betri aöstööu en fyrirrennari hans, því aö nú talar enginn um titilinn í Stuttgart. Og þó ...

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.