Morgunblaðið - 12.09.1982, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982
Allt þetta umrót og ólgusjóa
hefir aldamótakynslóðin okkar
gengið í gegnum, þolgóð og föst
fyrir, þegar á móti hefir blásið,
þakklát fyrir framfarir nýrra
tíma og um leið fastheldin á forn-
ar dyggðir, sem íslendingum við
upphaf nýrrar aldar lærðist að
hafa í heiðri.
Rósa er einn í þessum hópi.
Þeir, sem hafa átt samleið með
henni gegnum árin, meta hana og
virða fyrir mannkosti hennar og
drengskap. Hún er Bolvíkingur að
uppruna, fædd að Ósi í Bolungar-
vík, en hefir lengst ævinnar búið í
Súðavík. Árið 1931 giftist hún öðl-
ingsmanninum Áka Eggertssyni
frá Kleifum í Seyðisfirði vestra,
sem lést hér syðra í nóvember sl.
Þau hjónin höfðu þá nýlega haldið
upp á gullbrúðkaup sitt með vin-
um og ættingjum á heimili sínu.
Þau Aki og Rósa voru alla tíð sam-
hent vel og starfsöm og höfðu
mörg járn í eldinum. Stunduðu
bæði verzlun, útgerð og búskap í
Súðavík auk þess sem Áki sinnti
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
sína sveit og fékkst jafnframt við
margvíslegar framkvæmdir, sem
smiður og rafmagnsfræðingur, en
Áki var einstakur hagleiksmaður.
sxæsaasoíOíXixsisí
Stór hljómplata aðeins 105
krónur
, Cheerios
Otrúlegt
en satt.
Sómakonan Rósa Friðriksdóttir
í Súðavík við Djúp er áttræð á
morgun, 13. september. Þær eru
þannig svo til jafnöldrur, Rósa og
„öldin okkar", þessi makalausa 20.
öld, sem hefir umbylt islenzku
þjóðlífi og tvívegis sett veröld alla
á annan endann í blóðugum
heimsstyrjöldum.
einn af þessum sjálfmenntuðu
þúsundþjalasmiðum.
Fráfall Áka var Rósu og fjöl-
skyldu hennar að sjálfsögðu mikill
missir en æðrulaus og óbuguð
stendur hún nú á áttræðu, og ég á
von á, að glatt verði á hjalla í
Áka-húsi á þessu merkisafmæli
húsfreyjunnar i hópi ættingja og
vina. Það hefir alla tíð verið
gestkvæmt á heimili hennar, og
alltaf heitt á könnunni hjá Rósu
eða matur til reiðu fyrir gesti og
gangandi.
Ótal minningar um hlýjar við-
tökur, gestrisni og vináttu leita
fram í hugann nú, er ég flyt þess-
ari góðu og gömlu vinkonu minni
og fjölskyldu hennar innilegar
hamingjuóskir á merkum tíma-
mótum og um leið þakkir mínar og
minna fyrir liðna tíð.
Sigurlaug Bjarnadóttir frá Vigur
V
Flogið verður til London og dvalið þar í tvær nætur, síðan er flogið til Genoa Ítalíu og
siglt þaðan til Möltu, Heraklion, Alexandriu, Rodes, Kusadasi, Aþenu, Istanbul og Varna.
Þaðan er flogið til London 15. okt. og dvalið eina nótt eða lengur ef óskað er.
Skemmtiferðaskipið Kareliya er 16.900 lestir nýendurbyggt og því mjög vistlegt m.a. er
þar að finna næturklúbb, spilasal, kvikmyndasal, sundlaug, bókasafn, verslanir, hár-
snyrtistofur, matsali og danssali.
Verð frá kr. 20.760,00
Innifalið: sigling, fullt fæði, flug, flutningur til og frá flugvöllum, gisting í þrjár nætur í
London.
Fáið sérpantaðan lista yfir ferðina. Verið velkomin.
mtKVTit
FERÐASKRIFSTOFA, IðnaÖarhúsinu Hallveigarsligl. Símar 28388 og 28580
— Aþena — Istanbul — Varna
siroanúff oKV^ 367 \er\ð 77
AUCLÝSINCASTOFA MYNDAMÓTA HF
Bridga
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Kópavogs
Vetrarstarfsemi félagsins
hefst fimmtudaginn 16. sept-
ember með eins kvölds tvímenn-
ingi.
Spilað verður að Þinghóli við
Hamraborg, Kópavogi, og hefj-
ast spilakvöld kl. 20.00 stundvís-
lega.
Ráðgerð er bæjakeppni milli
Kópavogs og Selfoss og verða
Selfyssingar gestgjafar. Keppn-
in verður haldin laugardaginn 2.
október og sendir hvort félag sex
sveitir til leiks.
Bridgefélag
Breiðholts
Aðalfundur félagsins verður
haldinn að Hótel Heklu (kaffi-
teriu) sunnudaginn 19. sept. kl. 4
eftir hádegi. Fundarefni venju-
leg aðalfundarstörf. Skipulagn-
ihg vetrarstarfsins.
Stjórnin
Bridgefélag
Selfoss
Úrslit í tvímenningskeppnum
31.8. og 2.9.1982.
31.8. 8 pör, meðalskor 84.
stig
1.—2. Halldór Magnússon —
Eymundur Sigurðsson 94
1—2. Sigfús Þórðarson —
Kristmann Guðm. 94
3.-4. Ólafur Týr —
Gylfi Gíslason 90
3.-4. Garðar Gestsson —
Gestur Haraldsson 90
2.9. 10 pör, meðalskor 108 stig.
1. Sigfús Þórðarson —
Kristmann Guðmundsson 139
2. Kristján Gunnarsson —
Gunnar Þórðarson 128
3. Erlingur Þorsteinsson —
Haraldur Gestsson 125
4. Guðjón Einarsson —
Valgarð Blöndal 122
5. Hannes Gunnarsson —
Ragnar 108
Fimmtudaginn 9. september
verður spilaður eins kvölds
tvímenningur, en fimmtudaginn
16. sept. hefst sveitakeppni með
stuttum leikjum og þurfa sveitir
að tilkynna þátttöku fyrir 13.
sept. til stjórnarinnar. Allir vel-
komnir.
F.h. Bridgefélags Selfoss
og nágrennis,
Sigfús Þórðarson.
Nú siglum við!
Genoa — Malta — Heraklion —
Alexandria — Rodes — Kusadasi
Rósa Friðriksdóttir
í Súðavík - Áttræð
k