Morgunblaðið - 12.09.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982
79
Perú:
Þekktum
þingmanni
útskúfað
Lima, Perú, 10. aeptember. AP.
ÞEKKTUR perúanskur þingmað-
ur úr flokki Belaunde Terry, for-
seta, hefur verið rekinn úr flokkn-
um fyrir að gagnrýna stefnu ríkis-
stjórnarinnar. Þingmaður þessi,
Julio Cesar Galindo, átti sæti í
mannréttindanefnd flokksins og
hefur oft og einatt látið í sér heyra
upp á síðkastið og ekki vandað rík-
isstjórninni kveðjurnar. Hefur
hann sakað stjórnvöld um yfir-
gang og kúgun við bændur og
staðhæft að fangar væru pyntaðir.
Ríkisstjórnin hefur neitað öllum
þessum ásökunum, en vinstri
sinnuðum skæruliðum hefur vaxið
mjög ásmegin upp á síðkastið og
stjórnvöld svarað með auknum
handtökum og boðum og bönnum.
Ur flokknum voru einnig reknir
tveir aðrir fulltrúar, en ekki jafn
þekktir og Galindo, fyrir að greiða
atkvæði gegn stjórninni í nýaf-
staðinni atkvæðagreiðslu.
Gaddafi
heimsótti
Pólland
Varsjá, 10. seplember. AP.
MOAMMAR Gaddafi, þjóðhöfðingi
Líbýu hélt frá Varsjá í dag eftir eins
dags heimsókn í Póllandi. Gaddafi
kom til Póllands til að ræða stjórn-
málaleg og efnahagsleg samskipti
ríkjanna, að því er talsmaður
utanríkisráðuneytisins sagði í dag.
Gaddafi hitti flesta forystumenn
pólska kommúnistaflokksins, meðal
annars Jaruselski hershöfðingja og
forsætisráðherra.
Gaddafi hélt síðan til Vínar-
borgar að hitta Bruno Kreisky
kanzlara. Einnig er búizt við að
hann komi við í Búlgaríu á þessu
ferðalagi sínu.
I óstaðfestum heimildum AP-
fréttastofunnar sagði, að meðan
Gaddafi var í Póllandi hefði verið
gengið frá viðskiptasamningum
milli ríkjanna og væri þar meðal
annars kveðið á um að Pólverjar
sendu fjórtán þúsund tækni-
menntaða menn á ýmsum sviðum
til starfa í Líbýu.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐENU
Beztu þakkir til allra fyrir heimsóknir,
gjafir og skeyti á sjötugsafmælinu, 22.
ágúst sl.
Halldór Ágústsson
frá Hróarsholti.
Hugheilar þakkir til bama minna, bamabama, tengda-
bama og allra ættingja og vina, sem glöddu mig með
gjöfum, skeytum, blómum og heimsóknum á 80 ára af-
mæli mínu 6. september sL
Guðfylgi ykkur um ókomin ár.
Ingigerdur Jóhannsdóttir, Hjallabraut 5, Hafnaríirði.
JPinnréttingar
Skeifan 7 - Reykjavík - Símar 83913 -31113
forusta!
VÖNDU
innréttingaframleiösla
Bjóðum úrval glæsilegra innréttinga með fjölbreyttum
uppsetningarmöguleikum. 20 ára reynsla segir meira en
mörg orð. - Lítið við og skoðið úrvalið. Gerum verðtilboð,
teiknum, og ráðleggjum þeim sem þess óska.
Fallegt handbragð í fyrirrúmi.
•möbelfakta
Gæðaprófað
Aðili að svensk Mobelinstetute