Morgunblaðið - 19.09.1982, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
55
Norræn tónlistar-
hátíð hefet í dag
Tónlistarhátíðin „Ung Nordisk
Musik“ verður haldin í Reykjavík
dagana 19.—26. september. Þessi
hátíð, sem efnt er til árlega, er
haldin til skiptis á Norðurlöndun-
um fimm. Er þetta í annað sinn
sem hún fer fram hér á landi.
Gestir hátíðarinnar að þessu sinni
eru hollenska tónskáldið Ton de
Leeuw, sem mun halda fyrirlestra,
standa fyrir námskeiði um nútíma
tónsmíðaUekni, auk þess sem tón-
leikar verða með verkura hans.
Breska söngkonan Jane Mann-
ing, sem einkum er kunn fyrir
túlkun sína á nútímatónlist,
mun halda söngnámskeið á
hverjum degi hátíðarinnar, hún
mun einnig halda tónleika, þar
sem m.a. verða flutt ný verk, sér-
staklega samin fyrir hana af ís-
lenskum tónskáldum.
Sett verður á stofn 85 manna
samnorræn sinfóníuhljómsveit,
og mun hinn þekkti bandaríski
hljómsveitarstjóri Arthur
Weisberg stjórna henni. í lok
hátíðarinnar mun hljómsveitin
halda tónleika, einleikari verður
Diana Kennedy víóluleikari frá
Bandaríkjunum.
Um 120 manns frá Norður-
löndum sækja hátíðina, tón-
skáld, hljóðfæraleikarar og
fréttamenn frá norrænu út-
varpsstöðvunum, svo eitthvað sé
nefnt.
Auk fyrrgreindra tónleika
verða 11 tónleikar víðs vegar um
borgina og verður flutt samtals
41 verk eftir ung norræn tón-
skáld, þar af 11 íslensk, 7 þeirra
hafa ekki áður átt verk á opin-
berum tónleikum. Tónleikarnir
verða af ýmsu tagi, kammertón-
leikar, tónleikar með elektrón-
ískri músik og Sinfóníuhljóm-
sveit íslands verður með tón-
leika undir stjórn Guðmundar
Emilssonar. Einleikari á þeim
tónleikum verður Roger Carls-
son, slagverksleikari frá Svíþjóð.
Á sunnudagskvöld, 19. sept-
ember, verða haldnir tónleikar í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
með verkum eftir hollenska
tónskáidið Ton de Leeuw og hefj-
ast þeir kl. 20. Hljómsveitar-
stjóri verður Guðmundur Emils-
son.
Flutt verða þrjú verk á þess-
um tónleikum: Music for Strings,
and They Shall Reign for Ever,
og Reversed Night.
Music for Strings er verk fyrir
tólf strengjaleikara, sem var
samið 1970 að beiðni Listahátíð-
arinnar í Zagreb fyrir hljóm-
sveitina Soloists of Zagreb. Þeir
sem flytja þetta verk eru: Rut
Ingólfsdóttir, Unnur María Ing-
ólfsdóttir, Laufey Sigurðardótt-
ir, Lilja Hjaltadóttir, Þórdís
Stross og Gerður Gunnarsdóttir
(fiðla), Hrefna Hjaltadóttir,
Sesselja Halldórsdóttir, Helga
Oddrún Guðmundsdóttir (víola),
Arnþór Jónsson, Haukur Hann-
esson (selló) og Richard Korn
(bassi).
Það er engin leið að lýsa Music
for Strings hvað varðar lagræna
eða hljóðræna þróun þess. Þýð-
ingarmesti þáttur þessarar tón-
listar er líklega hinar stöðugu
breytingar á lögun hennar og lit,
líkt og í kviksjá. Hin iðandi form
eru í þessu tilfelli hljóðræn, sett
saman úr þúsundum örsmárra
skeytinga, færsla, míkrótóna,
styrkbreytinga o.s.frv. Andstætt
þessum síbreytilega hljóðheimi
eru nær hreyfingarlausir, krist-
allaðir hljómar, er heyrast í upp-
hafi verksins. Þeir mynda bak-
grunn og veita skýra andstæðu
vegna stöðugleika síns. Eðli
þessarar tónlistar krefst mikils
krafts og einbeitingar af hálfu
hljóðfæraleikaranna. Hver
þeirra gegnir nokkurs konar ein-
leikshlutverki án þess að verða
nokkurn tíma allsráðandi.
Manuela Wiesler flytur verkið
Reversed Night. Það var samið
1971 fyrir einleiksflautu, og er
útfærð gerð flautuverksins
Night Music (1966). Ýmsar vídd-
ir tónlistar víxlast og renna
saman í þessu verki. Verkið lýsir
hljóðlátum og friðsælum minn-
ingum um þögn næturinnar, en
andstætt þeim eru ofsafengin
köll og uppkomur sem trufla
þögnina hvað eftir annað. Mið-
hluti verksins er settur saman
úr mjög hröðum og spenntum
hreyfingum, er flökta umhverfis
ákveðna tónmiðju. Fjórða víddin
kemur að lokum fram og um-
breytir hún áðurkomnum ein-
kennum í nýjan þátt, sem er
rólegur og líðandi. í þessu verki
er stemmningum og einkennum
komið til skila á svipaðan hátt
Ton de Leeuw
og gert er í indversku rasa, þar
sem tónlist er ætlað að lýsa
mannlegum tilfinningum á efra
vitundarstigi.
Verkið And They Shall Reign
for Ever flytja eftirtalin: Rut
Magnússon söngur, Johan Donk-
er Kaat horn, Sigurður Snorra-
son klarinett, Snorri Sigfús
Birgisson píanó, Árni Áskelsson
og Eggert Pálsson ásláttarhljóð-
færi. Þetta verk er samið 1981 í
tilefni tvö hundruð ára afmælis
formlegra samskipta Hollands
og Ameríku. Verkið er samið
fyrir messó-sópran, klarinett,
horn, slagverk og píanó. Textinn
samanstendur af brotum úr
Opinberunarbók Jóhannesar.
Opinberun sýnarinnar af eyð-
ingu heimsins er túlkuð í sex
ólíkum þáttum, sem lýsa á víxl
tilfinningum vona og örvænt-
ingar.
Ton de Leeuw fæddist í Rott-
erdam árið 1926. Hann hóf
tónsmíðanám hjá Toebosch og
Badings, hélt síðan til Parísar og
var við nám hjá Messiaen og
Hartmann. Þegar hann kom aft-
ur til Hollands, lagði hann stund
á austurlenska tónlist í fjögur ár
undir leiðsögn Jaap Kunst. Hann
hefur lengi kennt tónsmíðar við
Tónlistarháskólann í Amster-
dam og var skólastjóri skólans
árin 1971—1973. Þess má geta,
að Ton de Leeuw kemur óbeint
við sögu íslenskrar tónlistar, þar
eð þrír íslendingar hafa lært hjá
honum tónsmíðar; Gunnar
Reynir Sveinsson, Jónas Tóm-
asson og Snorri Sigfús Birgisson.
Meðal helstu verka Ton de
Leeuw eru: Útvarpsóratorían
JOB, en fyrir hana hiaut hann
verðlaun árið 1956. Þar notar
hann bæði söng og tal, hljóm-
sveit og elektróník. I fyrsta
kvartetti sínum og í hljómsveit-
arverkinu Mouvements Rétro-
grades (1957) beitir hann rað-
tækni á skýrt afmarkaðan hátt.
Árið 1961 dvaldi Ton de Leeuw á
Indlandi í boði hollenska
menntamálaráðuneytisins og
hefur austurlenskra áhrifa gætt
í tónlist hans síðan, t.d. í
hljómsveitarverkunum Ombres
og Nritta. Symphonies of Winds
samdi hann árið 1963 fyrir mjög
stóra sinfóníska blásarasveit.
Það verk er tileinkað Igor Strav-
insky, sem samdi verk með sama
nafni fyrr á öldinni og byggir
Ton de Leeuw á hljómi úr Stra-
vinsky-verkinu. I þessu verki
notar hann í fyrsta sinn nótna-
skrift, sem er sjónræn með tilliti
til tíma. Eftir árið 1965 tekur
Ton de Leeuw að nýta rými í tón-
verkum sínum og semur röð af
verkum, sem bera heitið Spatial
Music. I verkinu Spatial Music I
er 32—48 hljóðfæraleikurum
dreift um salinn.
í Spatial Music II fyrir> slag-
verkssveit er hljóðfæraleikurun-
um einnig dreift á vissan hátt og
staða þeirra látin hafa áhrif á
tónlistina, og í þriðja verkinu er
heilli hljómsveit dreift í fjögur
horn salarins og breyta menn
stöðu sinni meðan á flutningi
verksins stendur. I Spatial Music
IV eru 12 hljóðfæraleikarar á
stöðugri hreyfingu kringum
fasta punkta, sem eru píanó og
tveir slagverksmenn. Haiku II er
fyrir sópransöngkonu, sem syng-
ur á sex mismunandi stöðum í
salnum og er henni fylgt eftir af
fjórum blásurum, en hljómsveit-
inni er skipt í fimm hópa. Af
dramatískum verkum Ton de
Leeuw má nefna Alceste, sem er
ópera fyrir sjónvarp, De Droom,
óperueinþáttungur, og Litany of
Our Time, sem er sérstaklega
samið fyrir sjónvarp.
Ennfremur má geta þess að
kammertónleikar verða haldnir
mánudaginn 20. september kl.
20.30 á Kjarvalssöðum. Þar
koma fram norrænir hljómlist-
armenn. Svíinn Lars-Ove Börj-
esson flytur verkið Mue-Zan sem
samið er fyrir altflautu, klarin-
ett, bassklarinett, trompet horn,
túbu og selló, Hróðmar I. Sigur-
björnsson flytur tilbrigði fyrir
tvo gítara, Steen Pade frá
Danmörku verkið Strygekvartet,
Finninn Tapio Nevanlinna leikur
verkið Duetto, Cecilie Ore frá
Noregi verkið Le Tombeau des
Naiades og Hjálmar H. Ragn-
arsson flytur verkið Rómansa.
Eins og áður sagði munu sópr-
ansöngkonan Jane Manning og
Ton De Leeuw halda námskeið í
tengslum við þessa tónlistarhá-
tíð í næstu viku.
Jane Manning hefur getið sér
góðan orðstír fyrir flutning á 20.
aldar tónlist sem og hefðbund-
inni tónlist. Hún hefur sungið í
óperum og óratoríum og komið
fram á mörgum einleikstónleik-
um.
Jane mun halda söngnámskeið
þar sem hún leiðbeinir söngvur-
um. Á morgun kl. 10 heldur hún
fyrirlestur um nútímasöng-
tækni, en námskeiðið hefst kl. 14
sama dag og er síðan daglega að
miðvikudegi undanskildum, frá
kl. 10-13 og 14-17 fram á
föstudag. Fyrirlesturinn og
námskeiðið fara fram í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík og er
aðgangur ókeypis og öllum
heimill.
Ton de Leeuw heldur fyrir-
lestra og námskeið um tónsmíð-
ar og tengsl austrænnar og vest-
rænnar tónlistar. Fara fyrir-
lestrarnir og námskeiðið fram í
Norræna húsinu kl. 16—18
mánudag, þriðjudag, miðvikudag
og fimmtudag. Fyrsti fyrirlest-
urinn fjallar um tónlist Indó-
nesíu. Einnig verða sýndar iit-
skyggnur og leikin tónlist. Að
lokum má geta þess að aðgangur
á fyrirlestra og námskeið Jane
Manning og Ton de Leeuw er
ókeypis og öllum heimill.
Bílaeigendur — bílaeigendur
Tökum aö okkur aö hreinsa miöstöövarkerfi, vatns-
kassa og vélablokkir meö kemískum efnum.
Sími eftir kl. 5, 43116 og 12521.
Fljót og góö afgreiðsla.