Morgunblaðið - 19.09.1982, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
61
Er lífíð löður?
Nýlega kom út hjá Farrar, Strauss
& Giroux í New York ný skáldsaga
eftir perúanska rithöfundinn Mario
Vargas Llosa sem sennilega er
þckktastur fyrir skáldsögu sina
„The Green House“ (La Casa
Verde) frá árinu 1968. Nýja bókin
heitir í bandarísku útgáfunni „Aunt
Julia and the Scriptwriter" og er 374
bls. að stærö.
í bókinni, sem Vargas Llosa seg-
ir vera að einhverju leyti sjálfs-
ævisögulega, setur hann fram þá
hugmynd að sé grannt skoðað sé
lífið ekki ýkja ólíkt velluþætti í
sjónvarpi (soap opera) og að í raun
sé vellan ef til vill ein af grund-
vallareindum frásagnarlistarinn-
ar, lífið sé löður.
Sögusviðið er höfuðborg Perú,
Lima, fyrir þrjátíu árum. Sögu-
maðurinn, Mario, er átján ára
námsmaður sem vill verða rithöf-
undur og fær dálítil laun fyrir að
endursemja fréttapistla úr dag-
blöðum fyrir útvarpsstöð í borg-
inni. Tveir atburðir, sem gerast
samtímis, breyta lífi hans. Annar
er sá að útbrunninn framhalds-
þáttahöfundur frá Bólivíu tekur
til starfa við stöðina, hinn er, að
systir eiginkonu frænda Marios
kemur til Lima. Hún er 32 ára og
fráskilin. Mario fellur fyrir báðum
þessum manneskjum. Konan heit-
ir Julia og er á höttunum eftir eig-
inmanni. Handritahöfundurinn,
Pedro Camacho, er smávaxinn og
hlægilegur í algeru húmorleysi
sínu. Hann tekur starf sitt, sem
hann kallar list sina, ótrúlega al-
varlega.
Mario dáist að því hvernig
Pedro helgar sig starfinu. Hann
skrifar, stjórnar og leikur í tiu
framhaldsþáttum á dag og vinnur
myrkranna á milli. Hann er illa
læs og skrifandi og lifir í eymd og
óhreinindum, en skrýðist grímum
og hárkollum, þegar hann er að
skrifa hlutverkin í velluþáttunum
sínum. En einurð hans ber árang-
ur. Pedro Camacho öðlast geysi-
legar vinsældir í Perú.
Mario segir sögu sina í þeim
köflum bókarinnar sem bera
Mario Vargas Llosa
oddatölu að yfirskrift, en hinir
kaflarnir eru smásögur. Þessar
sögur eru vægast sagt rosalegar
og verða æ svakalegri er á líður.
Það sem er á ferðinni er það, að
Vargas Llosa er að beita tækni
Pedro Camachos við bókmennta-
sköpun. Hann setur bara nýja
leikendur inn í framhaldsleikritin.
Smám saman fara þessar sögur
Pedros að gefa sterklega til kynna
aukna brjálsemi höfundarins eftir
því sem vinnuálagið tekur meir á
taugarnar. Þetta lýsir sér m.a.
þannig að persónur Pedros taka að
skjóta upp kollinum í vitlausum
sögum og hann fer að deyða þær í
hópum með jarðskálftum, eldsvoð-
um, járnbrautarslysum og öðrum
hörmungum.
Svipað á sér stað í ástarsögu
Marios og Juliu. Sú saga verður
grátbrosleg þegar faðir Marios
hótar að skjóta hann.
Hin nýja saga Vargas Llosa
þykir bæði fyndin og hlaðin stöð-
ugri spennu, svo lesandann þyrstir
ávallt í framhald eftir hvern
kafla.
— Byggt» Time.
Traust og vel þekkt inn-
flutningsfyrirtæki með
þjónustustarfsemi
Gamalt og gróiö fyrirtæki hyggst tvöfalda hlutafé sitt
til aö fjármagna aukin umsvif og fjárfestingu í fram-
tíöarsölu. Fyrirtækiö er meö mikla þekkingu á sviöi
skrifstofutækni og er meö heimsþekkt umboö fyrir
tölvur og önnur háþróuö tæki. Áætlaö söluverö nýs
hlutafjár er 4.000.000.
Áhugasamir aðilar leggi inn nöfn stn og símanúmer
til Morgunblaösins eða til Fasteignasölunnar Kjör-
eign s.f., Ármúla 21, Reykjavík, merkt 1113.
Heilsuræktin Glæsibæ
Þjálfun við allra hæfi.
Morguntímar, hádegistímar, siðdegis-
tímar og kvöldtímar.
Sér morgunþjálfun fyrir dömur W ára
og eldri.
Upplýsingar og innritanir i sima 85655
alla virka daga frá 9—21.
Einnigfyrir ellilifeyrisþega.
Komið og kynnist hinni frábæru að-
stöðu Heilsuræktarinnar i Glœsibœ.
Komið og lœrið að geisla af gleði og lifs-
þrótti.
HEILSURÆKTIN
GLÆSIBÆ SÍMI 85655
KENWOOD chef
8ESJ/
HJALPARKOKKUWNN
KENWOOD CHEF fylgir þeytari, hrærari, hnoðari, grænmetis-
og ávaxtakvörn, plasthlíf yfir skál.
KENWOOD CHEF er til í þremur mism. litum. Ennfremur er
ávallt fyrirliggjandi úrval aukahluta, svo sem, hakkavél,
grænmetisrifjárn, grænmetis- og ávaxtapressa, kartöflu-
afhýðari, dósahnífur ofl.
(JMBOÐSMENN:
<
co
cr
Ql
J L-húsið, Hringbraut 121, Reykjavík
J L-húsið, Borgarnesi.
Húsið, Stykkishólmi.
Verslun Einars Stefánssonar, Búðardal.
Kaupfélag Saurbæinga, Skriðulandi, Dal.
Póllinn h/f, ísafirði.
Verslun Einars Guðfinnssonar, Bolungarvík.
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi.
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki.
Radío- og sjónvarpsþjónustan, Sauðárkróki.
Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri.
Grímur og Árni, Húsavík.
Radío- og sjónvarpsþjónustan, Selfossi.
Kjarni, Vestmannaeyjum.
Rafvörur, Þorlákshöfn.
Verslunin Bára, Grindavík.
Stapafell h/f, Keflavík.
RAFTÆKJADEILD
Verslun Sveins Guðmundssonar, Egilsstöðum.