Morgunblaðið - 19.09.1982, Page 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
Hl'CAAIin
« IMZ HniYtrt* *■» SYQdifi.
yy Hvcnaer er \jor\ <X ■s\ön\Jc*x'f>S\J\ ð-
gerð&rmönrvjnurvi ?"
TM Rsg U S. Pat Off — all rlghts rnarvad
• 1982 Los Angetes Tlmes Syndicate
Li knlr. va-ri ekki hapgt art láta
hana vera rúmliggjandi, útsol
unum er alveg lokid á þessu
hausti.
l’lugvallarstarfsmennirnir eru í
verkfalli, en gjörid svo vel að
ganga um borð.
HÖGNI HREKKVÍSI
8-/* IM fiu
nSMPU PAI?A "
■ r^) 1 /Ö /n 1
„ NANM Eft BKKEHt 1» tOOKUNGA.1'
„Er að furða þó að
nautinu blöskri?“
Árni Helgason skrifar:
„Góði Velvakandi!
Mikil ósköp er að heyra. Allt að
fara í strand. Enginn rekstrar-
Krundvöllur. Vitlaus stjórnar-
stefna. Allt í kaldakoli og allir á
leið á sveitina.
Þetta er tónn stjórnarandstöð-
unnar í dag. Ja, það er Ijótt, ef satt
er. En hvernig stendur þá á því, að
aldrei hafa verið byggðar fleiri
hallir, aldrei reykt meira, aldrei
drukkið meira, aldrei fleiri farið í
utanlandsreisur og aldrei fleiri
hamast við að fá sér báta og bíla,
svo að það er talið, að við séum
annað mesta bílaland veraldar-
innar miðað víð fólksfjölda?
Það er enginn vandi að fara í
nokkurra vikna verkfall. Hvað
munar um einn kepp í sláturtíð-
inni? Markaðirnir falla, sumt er
nú að verða illseljanlegt, fiskurinn
minnkar í sjónum, peninga-
markaðurinn er dvínandi. Við
þessu er bara eitt ráð sem dugir,
og það er bara að hækka kaupið,
fjölga opinberum starfsmönnum
og bæta við nýjum bönkum. Svona
einfalt er þetta. „Bara selja, bara
græöa, bátar inn í landið flæða.
Baksað er og bara eytt og borgað
aldrei neitt." Þetta var kveðið
fyrir nokkru.
Það þarf að auka framleiðni,
segir röddin, og þá kemur LÍÚ
eins og engill af himni sendur,
flotinn stoppar og framleiðnin
vex. Það þarf að fækka sauðfénu
og þá er bara að hamast við að
byggja fleiri og fleiri fjárhús, og
sláturhúsin þarf að stækka og
gera þau svo fín og flott. Og það
skiptir engu máli hvað þetta kost-
ar. Mjólkina þarf að sækja langar
leiðir, því að það er ekkert vit í því I
að hafa kúabú í námunda við '
mjólkurstöðvarnar. Iðnaðurinn er I
allur í froðu, gróði og tap, tap og
gróði. Hvað er nú hvað? Það botn- I
Árni Helgaaon
ar enginn neitt í neinu. Og svo á
úrræðalaus stjórnarandstaða að
taka við og bjarga þegar nóg hefur
verið grafið undan stjórninni, já,
og þjóðfélaginu um leið. Ég segi
nú bara eins og Kjarval sagði í
eina tíð: „Er að furða, þó að naut-
inu blöskri?" “
Frá Keykjavikurleikunum í frjálsum iþróttum.
Verið að stela af
fólkinu peningum sem
það á með öllum rétti
Angantýr Jónsson, Grindavík,
skrifar 16. september:
„Velvakandi!
Lengi hafa íslenskir stjórn-
málamenn í öllum flokkum klifað
á því í fjölmiðlum, að brýnt væri
að bæta kjör eldra fólksins sem
mest og hlynna að því. En hefir
þetta verið efnt sem skyldi?
Ég sem þessar línur rita hér er
búinn að vera tólf ár í stjórn Líf-
eyrissjóðs verkafólks í Grindavík,
svo að á þeim tíma hefi ég fylgst
vel með þeim málum öllum. Tek
hér eitt dæmi.
Ekkja, sem flutti til Grindavík-
ur frá Vestmannaeyjum eftir gos-
ið, vann þar í sex ár og greiddi í
áðurnefndan sjóð, sótti um eftir-
laun úr honum er hún var orðin
sjötug og fékk þau strax. Hefur
hún fengið úr honum þar til í júlí
sl., en þá fékk ég bréf frá umsjón-
arnefnd eftirlauna um að þessar
bætur yrðu felldar niður með öllu
í ágúst sl.
Ég spurði eftirlaunanefnd
hvernig á þessu stæði. Svarið var
að hún hefði svo háar makabætur
að á þeim forsendum væri þetta
fellt niður.
Ég hringdi í dómsmálaráðu-
neytið og fékk þau svör þar að
þetta væri orðið að lögum fyrir
nokkru. Dálaglegir þingmenn sem
þjóðin hefur kosið til að arðræna
eldra fólkið. Og eftir því sem ég
best veit hafa ýmsir fleiri orðið
fyrir þessu arðráni.
Hafa lesendur nokkurn tíma
heyrt annað eins? Ef fólk greiðir í
lífeyrissjóð á það að fá sín elli- eða
eftirlaun aldraðra þegar það er
orðið sjötíu ára gamalt. Þarna er
verið að stela af fólkinu peningum
sem það hefur greitt í sjóðinn og á
með öllum rétti.
Þetta er heilsulítil kona, 75 ára
gömul, og eru makabætur hennar
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga til Tóstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisfóng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
Meira af
frjálsum
Ómar Hólm, Hafnarfirði, skrif-
ar:
„Kæri Velvakandi!
Mig langaði til að beina einni
spurningu til Bjarna Felixsonar:
Er ekki hægt að sýna aðeins meira
af frjálsum íþróttum í sjónvarp-
inu? Ég tók eftir því, að skrifað
var um það í þessa dálka fyrr í
mánuðinum, að meira mætti sýna
frá körfuboltaleikjum sem hér eru
háðir og eins frá leikjum með liði
Péturs Guðmundssonar í Banda-
ríkjunum. Þetta tek ég undir. Það
ætti að vera hægt að sýna fleira
en þennan sífellda fótbolta.
Með þökk fyrir birtinguna."
kr. 2.900 á mánuði; það sem hún
fékk úr sjóðunum hjá mér kr.
1.200. Hún þarf að greiða í húsa-
leigu á mánuði kr. 3.500 og í hús-
sjóð um 500 kr. á mánuði, svo að
makabæturnar og eftirlaunin
hrukku rétt fyrir þessum kostnað-
arliðum. Hún hefur eftirlaun frá
Tryggingastofnun ríkisins kr.
4.300 á mánuði, með tekjutrygg-
ingu, og á hún þá að lifa á þessum
krónum og borga bæði rafmagn,
hita og meðul og allt sem svo til
þarf.
Það sjá allir heilvita menn að
svona lagað getur ekki gengið og
ekkert réttlæti er í þessu.
Góðir lífeyrissjóðs- og eftirlauna-
þegar!
Ykkur er boðið upp á það sem
þið hafið varla átt von á. Eg skora
á þá menn sem að þessu arðráni
standa að svara þessari grein
minni eða gefa sig fram við mig
annaðhvort í síma eða með blaða-
skrifum, svo að ég viti hverjir þeir
eru, þessir óvinir gamla fólksins."