Morgunblaðið - 19.09.1982, Qupperneq 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
Utangarðsmenn
endurreistir inn
an veggja Egó?
Ef marka má þau orö, sam
Járnsíðan hefur heyrt, og
ekki er minnsta ástæöa til að
vantreysta, virðist allt benda
til þess aö Utangarðsmenn
séu aö rísa upp á afturlapp-
imar á ný, en að þessu sinni
innan veggja Egósins.
Nei, þeir bræöur Mikki og
Danny Pollock eru ekki
gengnir til liðs við Bubba
Morthens, en Rúnar Erlings-
son, bassaleikari, virðist vera
á góöri leið með það.
Eftir því sem Járnsíöan hef-
ur fregnaö kom upp óánægja
innan Egósins vegna fram-
mistöðu Þorleifs, bassaleik-
ara, fyrir örfáum dögum.
Hljómsveitin er að æfa fyrir
aöra breiöskífu sína, sem
kemur út fyrir jólin. Heldur
hún í hljóöver innan skamms
og þá er eins gott að hafa allt
á hreinu.
Heimildir Járnsíöunnar
herma, að Þorleifi hafi verið
lagt á hilluna til skamms tíma
a.m.k. og Rúnar leiki með Egó
á plötunni. Hvort hann verður
síðan ráöinn í framhaldi af því
er ekki vitað. Rúnar var hins
vegar oröinn hálf-trúlofaöur
hljómsveit Sigurgeirs
Sigmundssonar.
Hin nýja Start. Frá vinstri: Oavíð Karlsson, trommur, Pétur Kristjánsson, sðngur, Eövarð Lárusson, gítar,
Ágúst Ragnarsson, gítar og hljómborð, og Jón Ólafsson, bassi. Morgunblaöió/Emilía.
Steini í Þey
finnst ekki
Margir hafa hringt og spurst
fyrir af hverju Þorsteinn
Magnússon. Steini, hafi ekki
verió meö Þeysurum á Risa-
rokkinu í Höllínni um fyrri
helgi.
Skýringin er einfaldlega sú
aö Steini er týndur. Var síöast
vitaö af honum á ísafiröi, en
þegar maöur var sendur
þangaö til þess að ná fundum
hans, fannst gítarsnillingurinn
hvergi.
Til stóö aö sólóplata hans
kæmi út um þessar mundir,
en útgáfu hennar hefur veriö
frestaó um óákveóinn tíma.
Eftir áreiöanlegum heimildum
hefur Járnsíóan þaö, aö Þeys-
arar hyggist halda áfram fjórir
og hafi jafnvel þegar tekið
ákvöröun um slíkt.
„Þaö tekur sinn tíma að
koma bandinu á fulla ferð“
— segir Pétur Kristjánsson, en er bjartsýnn á framtíðina hjá Start
„Það tekur sinn tíma að koma bandinu á fulla ferö, við æfum
stíft þessa dagana,“ sagði Pétur Krístjánsson, forsprakki
hljómsveitarinnar Start, er Járnsíðan heimsótti hana fyrir
nokkrum dögum þar sem hún var á æfingu. „Við eigum að
leika á tveimur réttarböllum eftir hálfan mánuð og annaö
þeirra er á heimavelli okkar, Félagsgarði í Kjós.“
Eins og þegar hefur veriö skýrt ásamt tveimur öörum.
frá á Járnsíöunni uröu þær breyt-
ingar á hljómsveitinni, aö þrír meö-
limanna hættu. Voru þaö þeir Ei-
ríkur Hauksson, Kristján Edelstein
og Nikulás Róbertsson.
.Eiríki fannst, sem ekki gæfist
nægur tími til aö vinna í frum-
sömdu efni á meöan viö værum á
þessum þeytingi um landiö. Þess
vegna hætti hann. Kristján fór með
honum en Nikulás ákvaö aö hætta
upp úr þessu,“ sagöi Pétur.
Eiríkur og Kristján gengu til liös
viö Sigurgeir Sigmundsson, einn
besta rokkgítarista landsins, og
saman mynda þeir nýja hljómsveit
Nýju mennirnir í Start eru þeir
Eövarö Lárusson, gítarleikari, sem
áöur lék meö Tíbrá á Akranesi, og
Ágúst Ragnarsson, sem síöast lék
á bassa meö Landshornarokkur-
um. Hann mun leika á gítar og
grípa í hljómborö öðru hverju í
Start.
„Þaö er ágætt aö fá nýtt blóö í
hljómsveitina," sagöi Jón Ólafs-
son, bassaleikari, loks þegar hann
leit upp frá hljóöfærinu. Hinir tóku
undir þaö. Eðvarö taldi þaö ekki
þýöa miklar breytingar fyrir sig aö
ganga til liös viö Start. Hann myndi
halda sínu striki eins og hann var
vanur aö gera meö Tíbrá. Ágúst
var aftur á því aö þetta væri tals-
vert stökk fyrir sig upp úr Lands-
hornarokkurunum og þá ekki sist
vegna þess aö nú léki hann á ann-
aö hljóöfæri en þar.
Þótt þrír meðlima hljómsveitar-
innar standi nú á þrítugu var ekki
neinn þreytuhljómur í mönnum.
„Sumarið í sumar er þaö langbesta
sem veriö hefur í sveitaballabrans-
anum allt frá 1976 og reyndar þaö
eina almennilega frá því þá. Diskó-
iö hóf innreið sína upp úr því og
drap alla lifandi músík.
í sumar höfum viö verið meö
blöndu laga af plötunni okkar og
þrusurokklögum. Þaö prógramm
hefur fengið góöar viötökur alls
staöar nema á Akureyri. Þar virö-
ast vera tóm diskófrík. Fólk þarf
ekki aö halda aö þaö kaupi köttinn
í sekknum þótt þaö fari á ball meö
Start eftir breytinguna, viö höldum
alveg okkar línu,“ sagöi Pétur.
Reyndari mönnum í hljómsveit-
inni bar saman um að aö vissu
leyti væri mun skemmtilegra aö
spila á böllunum í sveitinni en áö-
ur. Fólk væri í dag miklu móttæki-
legra fyrir allrahanda rokki en áöur
og því væri ekkert um þaö aö
ræöa aö hljómsveitin þyrfti aö
halda sig viö ákveöin lög, heldur
gæti hljómsveitin leikiö þau lög,
sem henni féllu best í geö.
Þegar ég skildi viö þá félaga
voru þeir aö renna í gegnum lagiö
„Hurt’s So Good“ meö John Coug-
ar. Plata hans, American Fool,
trónar nú á toppi bandariska list-
ans. Ekki var aö heyra annaö en
Start skilaöi því lagi meö prýöi,
þannig aö aödáendur sveitarinnar
vita hverju þeir eiga von á þegar
hún mætir galvösk til leiks um
mánaöamótin.
— SSv.
nýjar plötur... nýjar plötur... nýjar plötur ... nýjar plötur ... nýjar plötur... nýjar plötur... nýjar plötur...
Splrff/85555:
Nina Hagen má svo sannar-
lega naga sig í handarbökin
Hefur fólk heyrt tölvu-reggae? Ef
ekki þá er hægt aó heyra slíkt
undurvel flutt á plötu Spliff,
85555.
Fyrstu kynni mín af v-þýsku
hljómsveitinni Spliff var þegar ég
heyröi lagiö Heute nacht, sem
reyndar ber nafniö Tonight á
ensku útgáfu plötu þeirra félaga,
sem hér veröur fjallaö um. Strax
viö þetta eina lag var Ijóst aó hér
var athyglisverö hljómsveit á ferð.
Plata hennar, 85555, sem út kom
fyrir nokkru gerir þaö aö verkum,
Frida/Something's going on:
Lítil Abba-áhrif, en samt...
ABBA-söngkonan Frida sendi
nýlega frá sér sína fyrstu plötu.
Þaö vantar ekki, aö hún byrjar vel
og er mjög ólík því sem ABBA
hefur veriö aö gera, en eftir því
sem líöur é plötuna veróur
ABBA-keimurinn sterkari og
sterkari og endapunkturinn er
skallapopp.Sérstaklega eru allar
raddanir óþarflega keimlíkar því
sem gerist hjá ABBA.
Þó er margt á þessari plötu,
sem er vel gert. Fyrri hliöin er mun
áheyrilegri og kemur þaö nokkuö á
óvart því á síöari hliöinni eru lög
eftir fræga menn eins og Russ
Ballard, Rod Argent, Bryan Ferry
og Phil Collins, sem stjórnaöi upp-
tökum á plötunni. Lag Ballard er
þó, ásamt lögunum Tell Me it’ s
Over og I Got Something, þaö
besta á plötunni.
Meö Fridu er fríöur flokkur
kunnra hljóófæraleikara. Enda er
ekki hægt aö finna neitt aö undir-
leiknum sjálfum. Frida hefur ekki
mikla rödd, en áheyrilega. Plata
þessi veröur aö teljast þokkaleg
byrjun á sólóferli, en óþarflega
slakir punktar inn á milli-
aö „nýbylgja" hverju nafni, sem
hún nú nefnist, veröur hreinlega aö
gjalti í samanburöi viö Spliff.
Hljómsveitin Spliff haföi áöur
þann starfa aö leika undir meö
söngkonunni Ninu Hagen. Hverju
svo sem um er aö kenna skildu
leiðir þeirra og Hagen má svo
sannarlega naga sig í handarbökin
(ég veit að hún nagar neglurnar).
Spliff er hljómsveit, sem á sér fáa
líka í poppi nútímans.
Sannast sagna veit ég lítió um
þessa hljómsveit, utan hvaö hún er
skipuö fjórmenningunum Bernard
Potschka, Manfred Praeter,
Reinhold Heil og Herwig Mitter-
egger. Allt saman ákaflega sann-
færandi þýsk nöfn, en kvenfólkiö
myndi líkast til segja, aö þetta
væru „svakalega Ijótir gæjar“. Ekki
smáfríöir piltarnir.
Platan 85555 er meö þeim heil-
steyptari sem ég hef heyrt lengi.
Samt eru hliöarnar á henni gerólík-
ar. Sú fyrri er meö „mannlegri" og
reyndar frábærum lögum á borö
viö Deja Vu, Tonight og Emerg-
ency Exit.
Þar er tölvuvæöingin í algleym-
ingí. Nokkurn tíma tekur aö melta
síöari hliöina, en þegar þaö hefur
veriö gert er hún ekki síóur áhuga-
verö en sú fyrri. Spliff tekst betur
upp en flestum öðrum á þessu
sviði. Lögin eru ekki eins köld og
fráhrindandi og menn eiga aö
venjast úr tölvupoppinu. Á kafla í
lokalaginu, In those days, minnir
tónlistin meira aö segja dulítiö á
War of the Worlds eftir Jeff
Wayne, en þaö er þó ekki víða sem
tónlist Spliff likist einhverju ööru,
sem maöur hefur heyrt.
Meö þessari plötu hafa V-Þjóð-
verjar sýnt aö þeir geta fleira en
spilaö góöan fótbolta og tapa
heimsstyrjöldum. 85555 er af-
bragös plata.
nýjar plötur... nýjar plötur... nýjar plötur ... nýjar plötur... nýjar plötur... nýjar plötur... nýjar plötur...