Morgunblaðið - 26.09.1982, Qupperneq 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1982
xxxxjLin
Colourcylrt Vhoto
Vandaöar
stofumyndir
Þaö er góöur siöur aö láta
taka mynd af börnunum
Þau vaxa, dafna og breyt-
ast.
Þessvegna er það svo
gaman aö eiga góöa
Ijósmynd.
E*
;
Gjafa-
myndatökur
aldraðra
f tilefni árs aldraöra er
mér sérstök ánægja aö
bjóöa öllum 70 ára og
eldri ókeypis myndatöku.
Á hamingjustund ríklr há-
tíðarstemmning á stofunni
hjá mér.
Ekta strigamyndir, Barr-
okk-rammar, Innrömmun.
Mikiö úrval.
Það jafnast fáir á við Hauk hvað varðar skemmtilega sviðsframkomu.
MorgunblaAiA/KÖE.
Ánægjuleg
kvöldstund
með Hauki
IIAtlKlIR Morthens sló í gegn,
rétt einu sinni, á tónleikum i veit-
ingahúsinu Broadway á sunnu-
dagskvöldið, en tónleikarnir voru
haldnir í tilefni þess, að Haukur
var nú fyrir skömmu kjörinn heið-
ursborgari Winnipeg í Kanada.
Var kvöldstund þessi hin ánægju-
legasta og hjálpaðist þar allt að,
góð tónlist, stórgóður söngur
Hauks svo og skemmtileg sviðs-
framkoma, en i augnablikinu man
ég ekki eftir neinum islenskum
skemmtikrafti, sem jafnast á við
Hauk í þeim efnum. Hann hefur á
sér þetta alþjóðlega yfirbragð hins
sviðsvana manns, sem er fátítt að
sjá hér á landi.
En það voru fleiri en Haukur,
sem stóðu fyrir sínu þetta kvöld
og má þar nefna söngkonurnar
þrjár, sem fram komu, þær
Kristbjörgu Löve, Soffíu Guð-
mundsdóttur og Mjöll Hólm, að
ógleymdri hljómsveitinni sem
skipuð var þeim Guðna Guð-
mundssyni, píanó, Eyþóri Þor-
lákssyni, gítar, Guðmundi
Steingrímssyni, trommur, Reyni
Jónassyni, tenórsaxófón og
harmónika, og Ómari Axelssyni,
bassa. Þeir Eyþór og Reynir
komu einnig fram sem einleikar-
ar, Eyþór á gítar og Reynir á
harmóniku. Kynnir var Jónas
Jónasson og skilaði hann hlut-
verki sínu með ágætum eins og
hans var von og vísa. Þá má og
geta þess, að Hrönn Geirlaugs-
dóttir lék á fiðlu við undirleik
Guðna Guðmundssonar áður en
sjálfir tónleikarnir hófust, en að
tónleikunum loknum var stiginn
dans.
Meðfylgjandi myndir voru
teknar á tónleikum Hauks á
Broadway og tala þær sínu máli,
en myndirnar tók ljósmyndari
Morgunblaðsins, Kristján Örn
Elíasson. — Sv.G.
Að loknum tónleikunum var stiginn dans „með sveiflu'
„Opið hús“ hjá FEF á
þriðjudag á Hótel Heklu
FÉLAG einstæðra foreldra er nú að
hefja vetrarstarfið og verður opið
hús á Hótel Heklu, í kaffistofunni,
meðlæti. Þangað koma félagar úr
Vísnavinum, Kristín Bjarnadóttir les
meðal annars undirbúning ráð-
stefnu, sem verður í október um
málefni einstæðra foreldra. Félags-
menn eru hvattir til að fjölmenna á
opna húsið og taka með sér gesti.
Þá er í gangi nú happdrætti á
vegum félagsins til að standa
straum af lokafrágangi hússins í
Skeljanesi, þar sem nokkru er
ólokið í kjallara. Helgina 2. og 3.
október heldur félagið sinn árlega
og stóra flóamarkað í Skeljanesi 6,
og um miðjan október hefst vænt-
anlega dreifing á jólakortum FEF.
Um frekari fundi og uppákomur
verður tilkynnt síðar, þegar
starfsnefndir hafa verið skipaðar,
en það verður gert á opna húsinu
og starfsfúsir félagar geta skráð
sig í nefndir og starfshópa eftir
áhugasviðum.
(Frá stjórn FEF).
eigin Ijóð og fleira verður á dag-
þriðjudaginn 28. september frá kl. skránni. Einnig er ætlunin að ræða
20.30. Verður á boðstólum kaffí og innanfélagsmál, eflingu starfsins,