Morgunblaðið - 26.09.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1982
55
• Arnór býr í mjög vistlegu húsi í Lokeren og þar hefur hann komið sér vel fyrir.
• Arnór æfir mikið sjálfur í frístundum SÍnum. Ljósm. Þórarinn Ra)?narsson.
minna á bekknum sem varamaður.
Það var mikil reynsla og er mér
minnisstæð. Ég ætla mér ekki á
bekkinn aftur.
Greip tækifærið um
ieið og það bauðst
Fjórða tímabilið mitt hér varð
breyting á. Það kom nýr þjálfari
og hann gaf mér tækifæri til að
spreyta mig með liðinu í æfinga-
leikjum. Ég greip tækifærið sem
bauðst fegins hendi og skoraði í
hverjum leik og barðist eins og
Ijón fyrir sæti mínu í aðalliðinu.
Én þá varð ég fyrir því óhappi að
rifbeinsbrotna og var alveg frá í
sex vikur. Þegar ég tók til við æf-
ingar aftur vantaði mann á miðj-
una hjá Lokeren og þangað var ég
settur af þjálfaranum. Síðan hef-
ur það verið staðan mín, fram-
liggjandi tengiliður. Að vísu hef
ég spilað fleiri stöður þegar vand-
ræði hafa orðið. Þessi staða á vel
við mig og nú hef ég leikið rúm-
lega 100 leiki með Lokeren í þess-
ari stöðu og leik hana líka með
landsliðinu. Keppnistímabilið
gekk vel hjá okkur, við náðum
fjórða sæti og ég stóð mig nokkuð
vel og lék alla leiki með liðinu og
var öruggur með stöðu mína. Við
þetta efldist svo sjálfstraustið
sem er svo nauðsynlegt að hafa í
atvinnuknattspyrnunni eins og í
öðrum íþróttagreinum. Nú, þegar
mitt fimmta keppnistímabil er að
hefjast hér, er staða mín nokkuð
sterk. Ég er í mjög góðri æfingu
og á ekki von á öðru en að standa
mig vel. Enda er mjög mikið í
húfi.
Samningur minn rennur út
næsta vor og þá hef ég mikinn hug
á því að skipta um félag.
Komast í lið sem er
mikið í sviðsljósinu
— Ég stefni að því að reyna að
komast í gott knattspyrnulið sem
er mikið í sviðsljósinu. Ég mun
gera allt til þess að losna héðan í
vor. Ég veit að það hafa ensk og
ítölsk lið verið með fyrirspurnir til
Lokeren. Þá hafa lið frá V-Þýska-
landi haft samband við Lokeren.
En ég mun athuga minn gang
mjög gaumgæfilega og flýti mér
alls ekki að skrifa undir samning
fyrr en ég verð fyllilega ánægður.
Maður má alls ekki rasa um ráð
fram í svona efnum.
Langar mest til Englands
og V-Þýskalands
— Mig langar mest til Eng-
lands eða V-Þýskalands. í báðum
þessum löndum er knattspyrnan
geysilega vinsæl og þar er leikin
góð knattspyrna. Hvað verður
mun tíminn skera úr um. En ég
held að Ítalía verði ekki inni í
myndinni strax. Ég hef brennandi
áhuga á knattspyrnu og finnst
ekkert skemmtilegra en að leika
hana. Ég er ákveðinn í að ná eins
langt í knattspyrnunni og nokkur
möguleiki er. Það er reyndar
draumur hvers einasta knatt-
spyrnumanns að komast á topp-
inn. Það er minn draumur að kom-
ast þangað. Alveg efst. Ég hef gert
það upp við mig að ganga í gegn
um þetta, og þrátt fyrir að þetta
sé harður skóli, þá er það þess
virði.
Markaskorarar í sviðsljósinu
— Ég veit að ég þarf ýmislegt
að bæta. Ég þarf að sanna mig enn
betur. Þróa mig upp í að vera frek-
ari og ákveðnari á leikvellinum.
Jafnvel eigingjarnari, skora meira
af mörkum því að markaskorarar
eru auðvitað alltaf mest í sviðs-
Ijósinu. Ég skoraði 9 mörk með
liðinu á keppnistímabilinu í fyrra
og ætla að reyna að gera enn betur
núna. Samkeppnin í atvinnuknatt-
spyrnunni er hörð og mikið um
það að menn hugsi bara um sjálf-
an sig.
Til þess að ná góðum árangri og
skara fram úr verður hver og einn
að berjast fyrir sínu. Ég æfi til
dæmis mikið sjálfur. Hér bak við
húsið er góður grasvöllur og þang-
að fer ég mjög oft og tek séræf-
ingar. Ég æfi aukaspyrnur,
knatttækni, held bolta mikið á
lofti, æfi markskot, stutta spretti
með boltann og ýmislegt fleira.
Þetta byggist allt á þrotlausum
æfingum.
Hefur líkað vel í Lokeren
— Þessi ár sem ég hef dvalið í
Lokeren hefur mér líkað vel.
Ég hef eignast góða vini, og um-
hverfið hér er vinalegt og rólegt.
Vissulega sakna ég íslands annað
slagið og það er alltaf jafn gaman
að koma heim, hvort sem það er í
frí eða til að taka þátt í landsleikj-
um. Ég tek þátt í öllum þeim
Iandsleikjum sem ég er valinn í og
þykir það heiður að spila fyrir
land mitt. Landsliðinu hefur líka
gengið vel að undanförnu og ég
veit það vel að hér ytra er vel tekið
eftir því þegar við stöndum í stór-
þjóðum, svo ég tali nú ekki um ef
við sigrum.
Gerets sá erfiðasti
— Ég á ekki von á öðru en að
Lokeren-liðinu gangi allvel í vet-
ur. Við erum með sæmilega gott
lið og munum stefna að því að ná
einu af fjórum efstu sætunum í
deildinni. Að mínum dómi gefur
knattspyrnan hjá fimm bestu lið-
unum hér í Belgíu ekkert eftir
knattspyrnunni í Englandi eða
V-Þýskalandi. Hér er mikið af
góðum leikmönnum. Sá erfiðasti
sem ég hef leikið gegn er bakvörð-
urinn sterki hjá Standard, Gerets.
Hann er sterkur varnarmaður
sem gefur sinn hlut aldrei. Belgiu-
menn eiga góða knattspyrnumenn.
Þeir sýndu það best í HM-keppn-
inni hversu vel þeir geta spilað. Til
dæmis á móti Argentínu.
Ég fylgist vel með knattspyrn-
unni hér í kring. í Hollandi til
dæmis. Þar á ég mér uppáhalds-
ieikmann sem er Johann Cruyff.
Hann er ennþá frábær leikmaður,
og gerði lið Ajax að Hollands-
meisturum í fyrra. Hann lætur
þetta líta út fyrir að vera svo ein-
falt og létt þegar hann leikur
knattspyrnu. Af honum er margt
hægt að læra.
Læknaðist gegnum miðil
Arnór hefur frá mörgu að segja,
þrátt fyrir að hann sé ungur að
árum. Og þegar hann er inntur
eftir því hvað sé nú eftirminnilegt
frá ferli hans fram að þessu segir
hann mér frá einkennilegri lífs-
reynslu sinni.
— Ég varð fyrir mikilli reynslu
fyrir tveimur árum, þá átti ég við
mjög slæm meiðsli að stríða í
baki. Svo slæm voru þau að ég gat
ómögulega hlaupið, hvað þá leikið
knattspyrnu. Ég átti mjög vont
með svefn þar sem eymslin voru
stöðug og ég varð helst að liggja á
maganum. Ég hafði verið í með-
ferð hjá læknum en fékk lítinn
bata. Þá var það að hún amma
mín setti sig í samband við Einar
Einarsson miðil á Einarsstöðum.
Sagði honum frá því hvernig væri
ástatt hjá mér. Og viti menn,
þremur dögum síðar hafði ég feng-
Íð fullan bata. Ég geri mér varla
grein fyrir því enn hvernig. En
eymslin í bakinu hurfu alveg.
Ég minnist þess að kvöld eitt
eftir að talað hafði verið við Ein-
ar, fór sonur minn, Eiður Smári,
sem þá var á þriðja ári, inn í
svefnherbergið, en kom til baka og
var mikið niðri fyrir og sagði:
Pabbi, það er maður inni í her-
bergi. Ég kannaði málið og sá eng-
an, og þessu var síðan gleymt.
Þetta var sérstæð lífsreynsla.
Af knattspyrnuvellinum er mér
eftirminnilegast þegar Lokeren
sigraði Saloniki frá Grikklandi í
Evrópukeppninni, 4—0. „Mér
tókst að skora fjögur mörk og náði
mér mjög vel á strik. Þá eru lands-
leikirnir sem ég hef spilað ofar-
lega í huga mér. Vonandi verða
þeir margir í viðbót í framtíðinni,
segir Arnór.
— ÞR.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
AIGLVSIM.A
SÍMINN KK:
22480
Húseigendur
Viöhald — Nýlagnir
Þarft þú aö endurnýja raflagnir, auka lýsingu, fá
dyrasíma eöa breyta raflögnum fyrir heimilistæki?
Viö bætum úr því, þar aö auki tökum viö aö okkur aö
mæla og yfirfara rafkerfi.
Önnumst einnig nýlagnir, raflagnateikningar og veit-
um ráöleggingar varöandi lýsingu.
Vanir menn. Fljót og góö þjónusta.
Róbert Jack hf.
löggiltir rafverktakar
Flúöaseli 32, 109 FMk.
Símar: 75886
Vestmanneyingar
„10 eftirminnileg kvöld“
í Aöventkirkjunni viö Brekastíg
Námskeið
Glíman við streituna
Meðal efnis:
• Ertu aö undirbúa hjartaáfall
• Hvaö orsakar streitu
• 25 öruggir mótleikir
• Slökun vööva, slökun hugar
• Lykillinn — hvar er skráin?
• Átta reglur — undirstaöan.
Námskeiöiö hefst fimmtudagskvöld 30. september kl. 20.30.
Allir velkomnir. Komiö og kynniö ykkur námskeiöiö.