Morgunblaðið - 26.09.1982, Side 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1982
Hvernig fremja
á sjálfsmorð
Minn 27 ára gamli Frakki, Pat-
rick Bondy, var búinn að vera at-
vinnulaus í tæpt ár og fyrir u.þ.b.
tveimur mánuðum tók hann inn of
stóran skammt af barbítúr-töflum.
I ágúst sl. svipti Michel nokkur
Fazilleau sig lífi á svipaðan hátt á
tjaldstæði í Frakklandi, en fjöl-
skylda hans hefur lýst honum sem
dulum og einraenum. Dennis
Otterman var aðeins tuttugu og
tveggja ára er hann stytti sér aldur
í íbúð sinni i Strasbourg. Það var
aðeins eitt sem þessir þrír menn
áttu sameiginlegt: Hjá líkum
þeirra allra fannst leiðarvísir með
nákvæmum upplýsingum um það
hvernig fremja ætti sjálfsmorð.
Bókin „Hvernig fremja á
sjálfsmorð" er 276 bls. að stærð
og kostar um 100 krónur út úr
búð og hefur verið á lista yfir
metsölubækur í Frakklandi í tvo
mánuði. I bókinni, sem á frum-
málinu heitir „Suicide, Mode
D’Emploi", er að finna langa og
ítarlega lista yfir alls kyns eitur
og lyf og hvaða magn af hverju
sé banvænt. I öðrum köflum bók-
arinnar er m.a. fjallað um
sjálfsmorð og tryggingar, rétt-
inn til að ákveða að deyja, sögu
sjálfsmorða, aðra möguleika og
staðsetningu.
Bókin hefur vakið mikla reiði
og hneykslun í Frakklandi. Heil-
brigðisráðherra hefur spurst
fyrir um möguleika á að banna
bókina, en Dómsmálaráðuneytið
svarar því til að hún brjóti ekki í
bága við núgildandi lög. Marcel
Bondy, faðir Patricks, sem
nefndur var í upphafi og svipti
sig lífi að forskrift bókarinnar,
hefur hafið mikla herferð til að
reyna að hefta frekari sölu þessa
276 blaðsíðna
leiðarvísir
vekur reiði í
Frakklandi
og selst vel
ritverks. „Það verður að taka
þennan hrylling úr umferð," seg-
ir hann.
Útgefandinn, Alain Moreau,
heldur uppi vörnum fyrir verkið,
á þeirri forsendu að sjálfsmorð
eigi að vera sársaukalaus og að
bókin sýni þeim, sem hyggist
stytta sér aldur, leiðir til að ná
því marki „með aðferðum sem
ekki skerða mannlega reisn".
Moreau kveðst ekki sjá eftir
neinu. Andstæðingum bókarinn-
ar finnst að hann hafi þó ærna
ástæðu til þess.
Jean Pierre Soubrier, þekktur
sálfræðingur og sérfræðingur í
sjálfsmorðum, segir: „Þessi bók
hefur slæm áhrif á þunglynt fólk
sem hugleitt hefur sjálfsmorð.
Níu af hverjum tíu, sem reyna að
svipta sig lífi, vilja í raun ekki að
það takist."
Pierre Moron rekur lækna-
stofu þar sem fólk, sem hefur
gert tilraun til sjálfsmorðs, er
lífgað við og því veitt ráðgjöf.
Hann er ómyrkur í máli:
„Dauðauppskriftirnar í bókinni
eru ýmist árangurslitlar eða
mun óþægilegri en gefið er í
skyn.“ Hann segir að bókin sé
„argasta plat“.
Bókin kom út í apríl. Hún er
væntanleg á markað í Vestur-
Þýskalandi og á Spáni í haust.
Bókaútgefendur í Bandaríkjun-
um, Japan, Brasilíu, Danmörku
og á Italíu eru að semja um út-
gáfu hennar í heimalöndum sín-
um. í Frakklandi seldust 50.000
eintök fyrstu fimm mánuðina.
En það gekk ekki auðveldlega
að fá ritið gefið út. Höfundarnir,
Guillon og LeBonniec, tveir
blaðamenn um þrítugt, báðir
búsettir í París, sendu handritið
til útgáfufyrirtækis þess sem
Moreau stjórnar, en þar var því
hafnað af fimm manna útgáfu-
ráði og síðar var því hafnað af
tíu öðrum útgefendum, en loks
ákvað Moreau að hunsa ákvörð-
un ráðsins og gefa bókina út
þrátt fyrir allt. Það hefur reynst
gróðafyrirtæki.
Byggt á AP og NowtWMk
Allir í
björgunar-
gallana
Þetta er skipun, sem enginn skip-
stjóri vill þurfa aö gefa...
En, ef til kemur, þá gefur Beaufort
Boss 15A björgunarbúningurinn
manni möguleika á aö bjargast í ca.
12—15 klst. í 6—8°C köldum sjó.
Meö nútíma björgunartækni, neyö-
arsendum og þyrlum þá er Boss
15A einn áríöandi hlekkurinn.
unnai S^^eivMn k.f.
SUÐURLANDSBRAUT 16. S: 35200.
Framandi menning
í framandi landi
Ert þú fædd/ur 1965 eöa 1966?
• Viltu búa eitt ár í framandi landi?
• Viltu auka þekkingu þína á umheiminum?
• Viltu kynnast lifnaöarháttum annarra þjóöa?
• Viltu veröa skiptinemi?
Ef svariö er já, haföu samband viö:
á íslandi
Umsóknarfrestur er til 8. okt. Opið daglega milli kl. 15 og 18.
Hverfisgötu 39 — P.O. Box 753 — 121 Reykjavik.
Sími 25450.
leigjenda og leigusala á því,
að Félagsmálaráðuneytið
gefur út eyðublöð fyrir
leigusamninga um íbúðarhúsnæði.
Notkun þess tryggir réttindi
beggja aðila.
HÚSBGEmASAmMD
ÍSIANDS
Hið löggilta eyðublað fyrir leigusamninga
um íbúðarhúsnæði fæst án endurgjalds
hjá bæjar- og sveitarstjórnum
og á skrifstofum okkar.
Önnur samningseyðublöð
eru ekki gild.
‘ c^Húsnæðisslofnun ríkisins