Morgunblaðið - 05.10.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982
5
Slippstöðin á Akureyri:
Skuttogara fyrir Þingeyr-
inga hleypt af stokkunum
NÝJIIM SKUTTOGARI var
hleypt af stokkunum hjá Slipp-
stöóinni á Akureyri fyrir helgi. Að
sögn Sigurðar Richter, yfirverk-
fræðings hjá Slippstöðinni er um
að ræða tæplega 500 rúmlesta
skuttogara fyrir Fáfni hf. á Þing-
eyri, en hann hlaut nafnið Slétta-
nes.
Skipið er búið að vera í smíð-
um í um það bil eitt ár, en það
verður væntanlega afhent nýj-
um eigendum í janúarmánuði
nk. Skipið er 50,55 metrar á
lengd, 9,76 metrar á breidd, dýpt
á efra þilfari er 6,74 metrar,
dýpt á neðra þilfari 4,44 metrar.
Skipið verður knúið áfram
með Wichmann-aðalvél, sem er
2.000 hestöfl. Hjálparvél er af
gerðinni GMC.
Sigurður Richter sagði að-
spurður, að um þessar mundir
væri Slippstöðinn einnig með
tvo báta úr svokölluðu rað-
smíðaverkefni í smíðum, en þeir
eru smíðaðir með ríkisábyrgð,
auk skips fyrir þróunaraðstoð
íslendinga. Það er því ekki hægt
að segja annað, en verkefnin í
vetur séu ágæt, miðað við
ástandið eins og það hefur verið,
en á tímabili leit út fyrir verk-
efnaskort hjá okkur í vetur.
Hins vegar að ef reka á svona
fyrirtæki eins og bezt verður á
kosið, þurfa að liggja fyrir verk-
efni a.m.k. 2—4 ár fram í tím-
ann,“ sagði Sigurður Richter
ennfremur. Hjá Slippstöðinni á
Akureyri munu starfa tæplega
300 manns í vetur.
Dauft yfir síldveiðinni
DAIIFT hefur verið yfir síldveidum
undanfarna daga og lítill afli borizt á
land. I*ó hefur aflazt svipað magn og á
sama tíma í fyrra.
Nú eru ails um 4.250 lestir af síld
komnar á land. Um 2.000 hafa
veiðzt í nót, og 2.250 í rek- og lag-
net. Veiðar í lagnet hafa gengið
treglega síðan 21. september, en þá
voru um 900 lestir af síld, veiddri í
lagnet, komnar á land, en nú er afl-
inn í lagnet orðinn um 1.300 lestir.
Alls má veiða 50.000 lestir af síld
á þessari vertíð, 1.500 í lagnet,
14.500 í reknet og 34.500 í nót.
fyrir lítið!
Flugleiðir bjóða í vetur mjög ódýr helgarfargjöld til allra áfangastaða
sinna í Evrópu:
Glasgow kr. 3.455.00
Kaupmannahöfn kr. 4.546.00
London kr. 3.993.00
Lux kr. 4.621.00
Osló kr. 4.141.00
Stokkhólmur kr. 5.182.00
Söluskrifstofur félagsins, umboðsmenn og ferðaskrifstofurnar veita upplýsingar
um ferðatilhögun og skilmála og annast alla fyrirgreiðslu við útvegun
á hótelum, bílaleigubílum og því um líku.
Vel skipulögð helgarferð er alvöru-utanlandsferð!
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi