Morgunblaðið - 05.10.1982, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982
Flugleiðir:
Um 34,4% aukning í
Atlantshafsfluginu
í SUMAR hefur tæknilegur rekst-
ur flugs Flugleiða gengið vel.
Aætlun hefur staðist, tafir hafa
verið fáar og flugvélar yfirleitt á
réttum tíma. Á tímabili í sumar
orsakaði mjög mikil umferð um
Kennedy-flugvöll í New York og
O’Hare-flugvöll í Chicago tafir í
Bandaríkjunum. Þessar upplýs-
ingar koma fram í Flugpósti Flug-
leiða.
Samkvæmt spá félagsins um
fjölda farþega í sumar skiptir í
tvö horn. Farþegar í Norður-
Atlantshafsflugi og innanlands-
flugi eru fleiri en spáð var. Far-
þegar frá Norðurlöndum, Bret-
landi og Þýzkalandi hins vegar
færri. Bráðabirgðatölur liggja
fyrir um farþegaflutninga frá
áramótum til 4. september sl.
Samkvæmt þeim eru farþegar í
Norður-Atlantshafsflugi 34,4%
fleiri en á sama tíma í fyrra,
farþegum milli Keflavíkur og
Luxemborgar hefur fjölgað um
54,6% og í innanlandsflugi hef-
ur farþegum fjölgað um 4,4% á
sama tímabili. I Evrópufluginu
hefur orðið minnkun, farþegar
eru 3,4% færri en á sama tíma-
bili í fyrra.
Tölvublaðið
nýtt rit á réttum tíma
Sértu haldinn tölvuhræðslu, þá er Tölvublaðið rétta
meðalið.
Þurfir þú að hagnýta þér kosti tölvutækninnar, þá er
Tölvublaðið nauðsynlegur leiðarvísir.
Tölvublaðið er hagnýtur fræðslu- og upplýsingamiðill
fyrir alla þjóðfélagshópa, um tækni nútímans og fylgi-
fiska hennar.
Áskrifendasíminn er (91)25140.
__*_
^ Ég undirritaður óaka eftir aö gerast áskrifandi aö Tölvublaðinu:
ATH: I næsta tölublaði Tölvublaðsins hefur Nnr.: .................-.....................................
göngu sína bréfaskóli Tölvublaðsins. í hon- I
um verður kennd tölvunarfræði, allt frá | Na,n: ---------------------------------------------------------
grundvallaratriðum og upp úr. Allir áskrif- Hejnli|j: ___________________________ Póstn.: _______________
endur Tölvublaösins hafa rétt á að taka I
próf í skólanum. Hringið eftir nánari upp- | Sveitarfél.: -------------------------- Sími: -------------
lýsingum. Sendiö til: Tölvuútgáfan hf., P.O. Box 10110, 130, Reykjavík.
Gunnar Sigurdsson
Borgarspítalinn:
Nýr yfir-
læknir lyf-
lækninga-
deildar
Á FUNDI stjórnar sjúkrastofnana
Reykjavíkurborgar þann 24. f.m.
var Gunnar Sigurðsson ráðinn yfir-
læknir lyflækningadeildar Borg-
arspítalans frá 1. október að telja.
Gunnar Sigurðsson er fæddur í
Hafnarfirði 1942. Hann tók stúd-
entspróf frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1962 og lauk kandi-
datsprófi við læknadeild Háskóla
Islands 1968. Að loknum aðstoð-
arlæknisstöfum á sjúkrahúsum í
Reykjavík og Sauðárkróki stund-
aði hann framhaldsnám í London
1970—1975, að mestu leyti við
Hammersmith-sjúkrahúsið í
London. Hann lauk doktorsprófi
við Lundúnaháskóla 1975. Næstu
tvö ár stundaði hann rannsókn-
arstörf við California-háskóla í
San Francisco. Viðurkenndur
sérfræðingur í innkirtla- og
efnaskiptasjúkdómum 1976.
Síðan 1977 hefur Gunnar
starfað í Reykjavík, fyrst við
Rannsóknastöð Hjartaverndar
og síðan 1978 hefur hann starfað
við Lyflækningadeild Borgar-
spitalans og Landspítalans.
Gunnar er jafnframt dósent við
læknadeild Háskóla íslands og
hefur skrifað fjölmargar greinar
í innlend og erlend tímarit. Hann
er kvæntur Sigríði Einarsdóttur
píanókennara og eiga þau þrjú
börn.
Sjö umsækjendur voru um
stöðu þessa. Gunnar tekur við af
Þórði Harðarsyni, sem skipaður
hefur verið prófessor við Háskóla
íslands.
Mazda 929—Örugglega bestu bílakaupin í dag.
Mazda 929 Sedan SDX og Limited uppfylla
allar óskir þeirra kröfuhörðustu um glæsilega
hönnun, vandaða smíði, þægindi og sparn-
eytni. Mazda 929 stenst fyllilega samanburð
við bíla, sem kosta jafnvel tugþúsundum
meira.
Eftirtalinn búnaður er innifalinn í verði á
Mazda 929 SDX:
Útispeglar beggja vegna.
V iðvörunartöl va.
Snúningshraðamælir.
Quarts klukka.
Stokkur milli framsæta með
geymsluhólfi.
Opnun á bensínloki og far-
angursgeymslu innan frá.
Barnaöryggislæsingar.
Halogenframljós.
60 A rafgeymir.
Litað gler í rúðum.
Ljós í hanskahólfi og skotti.
Farangursgeymsla teppa-
lögð í hólf og gólf.
Diskahemlar á öllum
hjólum.
Hitastokkur aftur í.
Innfelld rúllubelti á
fram- og aftursætum.
Og þar að auki í Mazda 929 Limited:
Rafknúnar rúður.
Rafknúnar hurðalæsingar.
5 gíra gírkassi.
Veltistýri.
Vökvastýri.
Stillanlegir höfuðpúðar á
aftursætum.
Innilýsing með tímarofa.
Sprautur á framljós.
Framsæti stillanlegt á 8
mismunandi vegu.
Heilir hjólkoppar.
Tölvuklukka.
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99
Fáanlegur aukabúnaður:
Sjálfskipting.
Rafknúin sóllúga.
Álfelgur.
ATHUGIÐ:
Meðaleyðsla Mazda 929 er aðeins 9—9,5 ltr. pr. 100 km.
samkvæmt prófun Morgunbl. 29.9.82.