Morgunblaðið - 05.10.1982, Page 17

Morgunblaðið - 05.10.1982, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982 17 Lögfræðirit til heiðurs Johs. Andenæs Universitetsforlaget i Ósló hefur gefið út ritgerðasafn til heiðurs Johs. Andenæs, prófessor við lagadeild Oslóarháskóla, sem varð sjötugur 7. september sl. Afmælisritið heitir Lov og frihet — Lög og frelsi — og er 717 blaðsíður með skrá yfir ritverk Johs. Andenæs og Tabula Gratul- atoria. Johs. Andenæs hefur verið pró- fessor í lögum síðan 1945, hann var tilnefndur af deildarráði 1942 en Quisling-stjórnin neitaði að skipa hann. Eftir stríðið var hann í hópi þeirra lögfræðinga, sem fjölluðu um mál norsku föðurl- andssvikaranna og siðar ritaði hann bók um afskipti sín af þeim málaferlum öllum. Johs. Andenæs ritaði á stríðsárunum fræðilegt yfirlit fyrir almenning um norsku stjórnlögin og stjórnskipan í Nor- egi, sem gefin hefur verið út hvað eftir annað. Fræðistörf sín hefur hann hins vegar einkum unnið á sviði refsiréttar. Þá hefur hann einnig gegnt mörgum trúnaðar- sörfum bæði á vegum stjórnvalda og háskólans og var rektor Óslóarháskóla 1970—’72. Afmælisritið til heiðurs Johs. Andenæs skiptist í fjóra megin- kafla, í hinum fyrsta er fjallað um refsirétt, síðan er kafli um réttar- far í refsimálum, þá kafli um stjórnskipunarrétt og loks kafli um almenn viðfangsefni lögfræð- innar. Höfundar eru fjölmargir og frá öllum Norðurlöndunum nema íslandi, hins vegar árna nokkrir íslendingar Johs. Andenæs heilla í Tabula Gratulatoria. Verð bókarinnar Lov og frihet er 390 norskar krónur að því er segir í tilkynningu frá Universi- tetsforlaget í Ósló. Grafíkmappa með verkum fimm kvenna ÍSLENZK grafík hefur gefið út þriðju grafíkmöppuna með verkum 5 listamanna. Sigrid Valtingojer sagði í sam- tali við Mbl. að samtök grafík- listamanna hefðu þann háttinn á að efna annað hvort ár til félags- sýningar og hitt árið er gefin úr mappa með verkum félagsmanna. Að þessu sinni eru verkin í möpp- unni öll eftir konur; Jenný E. Guð- mundsdóttur, Jóhönnu Bogadótt- ur, Lísu Guðjónsdóttur, Sigrid Valtingojer og Sigrúnu Eldjárn, og er eitt verk eftir hverja í möpp- unni. Grafíkmappan er gefin út í 50 eintökum og seld föstum áskrif- endum, en Sigrid sagði hugsanlegt að einhverjir þeirra heltust úr lestinni. Eskifjörður: Síldveiöin mjög misjöfn Kskifirði, 4. oklóber. Margir reknetabátar lögðu net sín í Reyðarfirði i nótt. Afli þeirra var mjög misjafn, var frá 10—120 tunn- ur á bát. Níu reknetabátar lönduðu 400 tunnum og tvö nótaskip um 700 tunnum. Nú er búið að salta í um 5.000 tunnur fyrir utan dagsaflann. Mest hefur verið saltað hjá Sölt- unarstöðinni Auðbjörgu, um 2.800 tunnur. Sjómenn segja töluverða síld vera í firðinum, en í nótt var mjög bjart veður og því ekki góð skilyrði til síldveiða. — Ævar. AUGLVSrNGASIMINN ER: 22480 Gítartónleikar á Kjarvalsstöðum I KVÓLD, þriðjudag, og á morg- un, miðvikudag, munu gítarleik- ararnir Símon Ivar'sson og Sieg- fried Kobilza leika á Kjar- valsstöðum. Hafa þeir félagar sett saman efnisskrá með spænskri tónlist, sem sjaldan heyrist hér á landi. Er það annars vegar klassisk tónlist frá 19. og 20. öld, og hins vegar flamenco. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 bæði kvöldin. Forsala aðgöngumiða er í Hljóðfæraversluninni Rín, Frakkastíg 16, og við inngang- inn. Eftir þessa tónleika í Reykja- vík, halda þeir til Austfjarða, og leika þ. 8. okt. á Neskaupstað, 9. okt. á Breiðdalsvík, 10. okt. á Eg- ilsstöðum og 11. okt. á Seyðis- firði. TR00PER ISUZU TROOPER LEGGUR LAND UNDIR FÓT Isuzu Trooper leggur land undir fót og heldur í hringferö um íslandtil þess aö leyfa landsmönnum að líta á sig.í förinni verður einnig hinn vinsæli Isuzu Pick-up. Komið verður við í öllum landsfjórðungum og mun þá gefast tækifæri til þess að kynnast kostum þessara vönduðu vagna frá ISUZU. Nánar mun verða tilkynnt um tilhögun ferðarinnar í útvarpi. m $ VÉLADEILD GM ISUZU Ármúla3 38900

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.