Morgunblaðið - 05.10.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982
Madrid takmark
valdaránsins
Herinn trúr, segir
Madrid. 4. október. Al\
ÁKORM valdaræningjanna beindust
einkum að þvi að ná yfirráðum yfir
Madrid. /Etlun þeirra var að ná
valdi yfir öllum aðliggjandi vegum
til borgarinnar, leggja undir sig
stjórnarráðsbyggingarnar og ein-
angra stofnanir eins og póst og síma.
Þetta kom fram í tilkynningu, sem
spánska varnarmálaráðuneytið lét
frá sér fara í dag í kjölfar handtök-
unnar á þremur foringjum innan
spánska hersins, sem fram fór sl.
laugardag.
Blaðið Diario 16 í Madrid skýrir
ennfremur svo frá í dag, að tilraun
13 fórust
með þyrlu
lupelin^a, .1. októher. Al*.
ÞRKTTAN manns fórust þegar her-
þyrla brotlenti á fjallstindi í rigningu
og hvassviðri síðdegis á föstudag, en
meðal þeirra sem fórust voru fram-
bjóðandi stjórnarfiokksins við fylkis-
stjórakosningar í Bahia-fylki og tveir
þingismenn, að því er skýrt var frá í
dag.
Þyrlan fórst í fjallendi skammt
frá Itapetinga, skömmu eftir að hún
hafði árangurslaust reynt að lenda í
borginni Caatiba í suðurhluta Bahia.
Gat þyrlan ekki lent vegna veðurofs-
ans. Jafnframt sagðist flugmaðurinn
eiga í erfiðleikum með þyrluna.
spánska stjórnin
þessi til valdaráns hefði átt að
fara fram 27. október nk., daginn
fyrir almennar þingkosningar,
sem fyrirhugaðar eru á Spáni 28.
okt. nk. Tilraunin hefði borið heit-
ið „Operation Cervantes" og sam-
kvæmt henni hefði auk annarra
mikilvægra bygginga verið áform-
að að hernema konungshöllina.
Alberto Oliart, varnarmála-
ráðherra Spánar, lýsti því yfir í
dag, að langmestur meirihluti
hersins í landinu væri trúr stjórn-
arskrá landsins og konunginum.
Mennirnir þrír, sem handteknir
voru, eru allir foringjar í spánska
hernum og heita Luis Munoz Guti-
errez, Jesus Crespo Cuspineda og
Jose Crespo Cuspineda. Þeir tveir
síðastnefndu eru bræður.
Haft var eftir heimildum í
Madrid í dag, að del Bosch hers-
höfðingi, sem dæmdur var í 39 ára
fangelsi fyrir valdaránstilraunina
23. febrúar 1981, hafi lagt á ráðin
um alla þætti fyrirhugaðrar
valdaránstilraunar frá fangels-
isklefa sínum.
■ ■■ 1
, ERLENT,
Lourdes í Frakklandi:
Oútskýranlegur
krabbameinsbati
l»urdes, Frakklandi, 4. október. Al\
ALÞJÓDLEGA heilbrigðisnefndin í Lourdes hefur tilkynnt að bati
átján ára gamallar stúlku frá Sikiley, sem þjáðist af beinkrabbameini,
sé óútskýranlegur frá læknisfræðilegu sjónarmiði.
Tilkynnt var að stúlkan hafi
verið albata er hún sneri aftur
úr pílagrímsför að grafhýsi heil-
agrar Bernadettu í Lourdes í
Frakklandi, en þá ferð tók hún
sér á hendur sem sína síðustu
ferð eftir að henni hafði verið
tilkynnt að óumflýjanlegt væri
að taka af henni annan fótinn til
að lengja lífslíkur hennar.
Alþjóðlega heilbrigðisnefndin
er saman sett af 16 læknum frá
sex löndum og kannar lækningar
er taldar eru stafa af krafta-
verkum og niðurstöður hennar
gera kaþólsku kirkjunni kleift að
staðfesta kraftaverkin sem opin-
ber.
Olafur Jóhannesson, utanríkisráðherra íslands, lengst til vinstri ásamt utanríkisráðherrum Frakklands og
Grikklands og fulltrúa V-Þjóðverja á NATO-fundinum í Val Davd í Kanada, Berndt von Staden.
Jákvæður andi á NATO-fundi
Val David, (hiebw, 4. októbcr. AF.
UTANRÍKISRÁÐHERKAR 16 Atlantshafsbandalagsríkja ræddust við
á tveggja daga fundi um helgina og var m.a. ákveðið að kanna með
hvaða hætti hægt yrði að varðveita öryggi vestrænna varna þegar um
viðskipti við austantjaldsríki væri að ræða.
Ráðherrarnir ræddust við á
óformlegum fundi, þar sem eng-
in dagskrá lá fyrir. Þeim til að-
stoðar var ekki hefðbundin
hjörð aðstoðarmanna, heldur
hafði hver ráðherra með sér
einn ráðgjafa á fundinum.
Til að leggja áherzlu á hversu
óformlegur fundur þessi var,
birtu ráðherrarnir enga sam-
eiginlega yfirlýsingu að honum
loknum, ög aðeins Allan J.
Maceaschen utanríkisráðherra
Kanada kom fram á blaða-
mannafundi við lok fundarins.
Maceaschen sagði að ágrein-
ingurinn varðandi sölu Evrópu-
ríkja á búnaði til gasleiðslunnar
miklu hefði borið á góma á
fundinum, og vissulega hefði
verið ágreiningur í þeim efnum,
en fundarmenn hefu ekki eytt
miklum tíma í að ræða þá deilu,
sem verið hefur ofarlega á
baugi upp á síðkastið. Er deilan
um gasleiðsluna dæmi um þann
ágreining innan Atlantshafs-
bandalagsins hversu mikil áhrif
varnarmálin eigi að hafa ann-
ars vegar þegar um efnahags-
legan ávinning er að ræða hins
vegar.
Að sögn Maceaschen voru
umræður opinskáar og and-
Fundist hafa tveir af fjórum
„svörtum kössum" flugvélarinnar
og leit beinist enn að hlutum úr
hreyflum þotunnar og hjólabúnaði.
Leonid Alexandrovitch Platonov
flugstjóri, sem er 58 ára, segir
hægri hreyflana hafa brugðist þeg-
ar hann hugðist nota afl þeirra til
að stöðva þotuna, gervenda. Sjón-
arvottar halda því fram að þotan
hafi lent á alltof miklum hraða og
alltof innarlega á flugbrautinni.
rúmsloftið jákvætt. Hann sagði
að þeim skjátlaðist verulega,
sem á þessum tímum teldu að
Evrópubúar og Bandaríkja-
menn gætu ekki komið sér sam-
an í nokkru máli eða ættu yfir-
leitt enga samleið.
Yfirvöld í Luxemborg segja að
ástand flugbrautarinnar hafi verið
eðlilegt með öllu, og að ekkert hefði
verið athugavert við fjarskipti
flugturns og þotunnar, og aðflug og
lending „eðlileg í byrjun."
Sovézkir embættismenn með að-
stoðarsamgönguráðherra og for-
stjóra Aeroflot í broddi fylkingar
fylgjast með rannsókninni í Lux-
emborg.
Flugslysiö í Lúxemborg:
Orsakirnar
enn óljósar
Luxemborg, 4. oklóber. AF.
YKIRMAÐUR nefndar, sem vinnur aö rannsókn flugslyssins í Luxemborg,
sagói aó enn væri með öllu óljóst, hvað valdið hefði því að Ilyushin-62-þota
sovézka fiugfélagsins Aeroflot fór út af flugbrautinni á Kindel-flugvelli i Lux-
emborg með þeim afleiðingum aö hún eyðilagðist og sex menn fórust.
allt sem hugurinn girnist
** frá QuElle
Der »goldene Katalog«
von Europas gröötemNfersandhaus
Stœrsta póstverslun í Evrópu.
Quelle pöntunarlistinn með haust- og vetrartískunni 82/83 er nærri þús-
und blaðsíður, uppfullar af vönduðum þýskum varningi. Orvalsfatnaður á
alla fjölskyiduna, skór, töskur, skartgripir, húsbúnaður, heimilistæki, leik-
föng, já allt sem hugurinn girnist. Allt gæðavörur á hagstæðu verði.
Öruggur afgreiðslumáti.
__________________________________________________________________
IVinsamlegast klippið þennan hluta auglýsingarinnar frá og sendið okkur eða hringið —
ef þér viljið kaupa Quelle pöntunarlistann. Verð listans er kr. 72 auk póstkröfugjaldsins.
Quelle-umboðið Pósthólf 39, 230 Njarðvík. Sími 92-3576.
íj Afgreiðsla í Reykjavík Laugavegi 26, 2.h. Sími 21720.
„ Nafn sendanda
heimilisfang 1
sveitarfélag póstnúmer ■
■
L
Quelle umboóið sími 21720