Morgunblaðið - 05.10.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982 19
Hús þetta stendur við Humlegárdsgatan í Stokkhólmi. Það er annað
þeirra húsa, sem borgaryfirvöld höfðu iformað að taka eignarnámi og
lögðu fram beiðni til eignarnáms strax á árinu 1956. í 25 ár mátti hvorki
rifa, hrófla við né selja húsið.
Svíar sekir um
mannréttindabrot
Fyrsti dómur mannréttindadóm-
stóls Evrópu í fjármunarétti
SVÍÞJÓÐ hefur gerzt brotleg við mannréttindareglur. Það er niðurstaða
Mannréttindadómstóls Evrópu í Strasbourg og mun hún hafa það í för
með sér, að sænska ríkið verður að greiða skaðabætur til tveggja fast-
eignaeigenda i Stokkhólmi, sem orðið höfðu fyrir réttarmissi sökum
ákvörðunar um eignarnám og byggingarbann.
Þetta er i fyrsta sinn, sem þessi dómstóll hefur kveðið upp dóm
varðandi sænsk málefni, en dómstóllinn var stofnaður á sjötta áratugn-
um. Þetta er líka í fyrsta sinn, sem kveðinn er upp dómur yfirleitt gegn
nokkru landi fyrir mannréttindabrot á sviði fjármunaréttar. Kemur þetta
fram í frétt í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter fyrir skemmstu.
Það voru borgaryfirvöld í
Stokkhólmi, sem hugðust taka
tvær húseignir eignarnámi, þar
sem þær stóðu í vegi fyrir götu-
lagningu. Ur þeim framkvæmd-
um varð þó aldrei og fyrir þrem-
ur árum felldi sænska stjórnin
eignarnámið úr gildi.
Mannréttindadómstóll Evrópu
komst að þeirri niðurstöðu með
10 atkvæðum gegn 9, að sænska
stjórnin hefði gerzt brotleg við 1.
grein mannréttindasamþykktar-
innar. Eignarnámsástandið og
byggingarbannið hefði verið það
langvarandi, að hvort tveggja
hefði haft í för með sér takmark-
anir á rétti eigendanna til þess
að hagnýta fasteignirnar, enda
hefðu borgaryfirvöldin hvenær
sem var getað tekið í sínar hend-
ur umráð þessara eigna og með
þvi gert eignarréttinn mjög
óvissan.
Dómstóllinn taldi einnig með
12 atkvæðum gegn 7, að sænska
stjórnin hefði gerzt brotleg við 6.
grein samþykktarinnar, sem
kveður á um rétt manna til þess
að fá „alhliða meðferð" á málum
sínum fyrir dómstólnum. Hins
vegar taldi dómstóllinn ekki, að
sú grein mannréttindasam-
þykktarinnar, sem fjallar um
mismunun gagnvart einstakling-
um, hefði verið brotin, en báðir
eigendur ofangreindra fasteigna
höfðu haldið því fram, að réttur
þeirra hefði verið gerður lakari
en annarra.
Það var hins vegar niðurstaða
dómstólsins, að ekki væri enn
kominn tími til að skera úr um
fjárhagsbætur til eigendanna og
var sænskum yfirvöldum veittur
tveggja mánaða frestur til þess
að gera sátt þar að lútandi við
eigendur beggja fasteignanna.
Karpov
efstur
Tilburg, 4. október. Al*.
KARI’OV heimsmeistari í skák lagði
Kugenio Torre stórmeistara frá
Filippseyjum að velli í biðskák
þeirra úr þriðju umferð í hinu árlega
Interpolis-skákmóti, sem nú er hald-
ið sjötta sinni.
Karpov er í efsta sæti og hefur
hlotið þrjá vinninga. Þegar Karp-
ov og Torre settust að nýju að tafli
eftir 42 leiki hafði heimsmeistar-
inn unnið skiptamun, en Torre gaf
sig hvergi og tók það Karpov á
þriðju stund í biðtafli að leggja
Torre að velli. Torre viðurkenndi
ekki ósigur fyrr en komið var út í
hörku endatafl.
í öðru og þriðja sæti á mótinu
eru Browne, Bandaríkjunum, og
Hollendingurinn Timman, með
tvo vinninga. Næstir koma And-
erson, Nunn, Smyslov og Sosonko
með einn og hálfan, en einn vinn-
ing hver hafa hlotið Húbner, Lars-
en, Petrosyan, Portisch og Torre.
Browne og Timman sömdu um
jafntefli í biðskák sinni úr annarri
umferð í gær, en þrjár aðrar
biðskákir úr þeirri umferð enduðu
einnig með jafntefli, viðureignir
Andersons og Torres, Húbners og
Sosonkos og Smyslovs og Port-
ischs.
British Airways
sýnir aftur hagnað
BRESKA RÍKISREKNA flugfélagið British Airways skilaði 70 milljóna sterl-
ingspunda hagnaði síðustu sex mánuðina, að sögn Sir John Kongs, forstjóra
félagsins.
Þetta þykja jákvæðar fregnir í Bretlandi, því félagið hefur á undanfórnum
árum verið rekið með gifurlegum halla. Þannig var hallinn á rekstrinum 300
milljónir punda í fyrra, en í þeirri upphæð er 200 milljóna punda kostnaður
við uppsagnir 24 þúsunda starfsmanna.
Thatcher
vinsælli
en áður
Ixmdon, 4. október. AP.
Í'TTJÓRN Margaret Thatcher,
flokkur hennar og forsætisráð-
herrann sjálfur, njóta meiri vin-
sælda meðal brezkra kjósenda nú
en fyrir ári, samkvæmt skoðana-
könnun Gallup-stofnunarinnar,
sem blaðið The Daily Telegraph
birti í dag.
Þrjú og hálft ár eru nú liðin
frá því Thatcher komst til valda
og er könnunin birt daginn fyrir
flokksþing íhaldsflokksins, sem
hefst á morgun, þriðjudag, í
Brighton.
Samkvæmt könnuninni eru
kjósendur mjög uggandi vegna
atvinnuleysisins í landinu, sem
vex stöðugt, einnig hækkandi
framfærslukostnaðar og þá
mælist festa stjórnarinnar
gagnvart launakröfum lágt
launaðra starfsmanna sjúkra-
húsa ekki sérlega vel fyrir hjá
kjósendum.
Stjórnmálafréttaritarar
herma, að helztu mál flokks-
þings Ihaldsflokksins verði
væntanleg sala nokkurra ríkis-
rekinna iðnfyrirtækja og undir-
búningur fyrir næstu kosningar.
Sir John sagði að rekja mætti
velgengni félagsins síðasta hálfa
árið til gagngerrar endurskipu-
lagningar fyrirtækisins, sem fólst
í uppsögnum þúsunda starfs-
manna, sölu flugvéla og fækkun
flugleiða, sem margar reyndust
óhagkvæmar.
Margaret Thatcher hefur ákveð-
ið að selja flugfélagið til einkaað-
ila, og lýsti hún fögnuði sínum við
fregnirnar af hagnaði BA. Sir
John hvatti hana til að láta ekki af
hugmyndum sínum um sölu fé-
lagsins, sem væri enn verðmeira
nú en áður vegna ábatavonarinn-
ar.
Vera má að erfitt reynist að
selja British Airways, þar sem fé-
lagið hefur safnað skuldum síð-
ustu misseri, og eru þær lauslega
áætlaðar eitt þúsund milljónir
punda í dag. Talið er ólíklegt að
einkaaðilar kaupi félagið nema
skuldirnar verði afskrifaðar áður.
Ágreiningur er í ríkisstjórninni
hvort ríkið skuli afskrifa skuldirn-
ar, eins og verið hefur um annan
iðnað, en ef félaginu væri ætlað að
afskrifa skuldirnar sjálfu, gæti
aldrei orðið af því að það yrði boð-
ið til sölu fyrir næstu kosningar.
Starfsmenn British Airways eru
í dag 41.200 og verða næsta vor
komnir niður í 35.000. Þeir voru
59.000 þegar stjórn Thatchers tók
við í maí 1979. Fækkun starfs-
fólksins er sögð aðalorsökin fyrir
velgengni félagsins nú, en að auki
hefur flugi verið hætt á tugum
flugleiða, tugir flugvéla verið seld-
ir og skrifstofum og bækistöðvum
víða um heim verið lokað.
NÝ BRÁDSKEMMTILEG PLATA
LOKSINS hefur tekist aö endurvekja á íslenskri hljómplötu hina gömlu og góðu
„rokk-stemmningu“ frá sjötta áratugnum.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON valdi nokkur gamalkunn lög frá þessu tímabili sem ekki
hafa áður komið út á íslenskum plötum, lét gera við þau íslenska texta og sá síðan
um útsetningar og hljóðritun og er árangurinn bráðskemmtilequr.
LANDSLIÐ íslenskra dægurlagasöngvara er að finna á plötunni: Björgvin Halldórs-
son, Helga Möller, Jóhann Helgason, Erna Gunnarsdóttir (Erna-Eva-Erna), Sigurður
Dagbjartsson (Upplyfting), Ólafur Þórarinsson (áður Mánum) og Haraldur Sigurðsson
(áður Halli og Laddi).
Platan og kassettan fæst í hljómplötuverslunum um land allt.
Ármúli 38, simi 84549.