Morgunblaðið - 05.10.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982
23
Jafnt hjá öllum efstu liðunum
MIKIÐ var um jafntefli í vestur-
þýsku deildarkeppninni í
knattspyrnu um helgina. Snerti
það öll efstu liðin þrjú og varð því
engin breyting á stöðu þeirra.
Asgeir Sigurvinsson og félagar
hjá Stuttgart halda því efsta sæt-
inu þrátt fyrir að hafa tapað stigi
á heimavelli gegn Armenia Biele-
feldt. Herman Olicher skoraöi
fyrir Stuttgart á 14. mínútu, en
leikmenn Bielefeldt brugðust
ókvæða viö og höfðu svarað með
tveimur mörkum áöur fimm mín-
útur voru liðnar, Frank Pagels-
drof og Horst Wohlers skoruðu.
Frakkinn Didier Six bjargaði svo
stigi fyrir Stuttgart er hann jafn-
aði metin með ágætu marki á 73.
mínútu. Áhorfendur voru um
30.000. Úrslit leikja uröu annars
sem hér segir:
Stuttgart—Arm. Bielefeldt 2—2
Bayern M.—Eintr. Braunschweig 1 — 1
Hamburger SV—Bochum 0—0
FC Köln—Karlsruhe 4—1
Kaiserslautern—Fort. Dusseldorf 3— 1
Bor. Dortmund—Werder Bremen 0—0
Schalke 04—Nurnberg 1 — 1
Mönchengladb.—Eintr. Frankfurt 3—1
Hertha Berlin—B. Leverkusen 3—3
Paul Breitner lá heima í dyngju
sinni meö flensu og háan hita er
Bayern mætti Braunschweig á
heimavelli sínum. Augljóst var aö
liöiö saknaöi hans, því þaö náöi
engum afgerandi tökum á leiknum
og ef nokkuð var voru gestirnir
sterkari aöilinn. Dieter Höness
náöi þó forystunni fyrir liöiö meö
fallegu skallamarki á 29. mínútu,
en Gunther Keute jafnaöi meö
góöu skoti á 67. mínútu, fyrsta
markið sem belgtski markvöröur-
inn Jean Marie Pfaff fær á sig á
heimavelli á þessu keppnistímabili.
Aöeins Köln úr hópi efstu liö-
anna gat státaö af sigri á laugar-
daginn, liöið mætti Karlsruhe og
jafnaði liðið gersamlega viö jöröu.
Klaus Fischer skoraöi fyrsta mark
Kölnar eftir aöeins tvær mínútur,
en Emanuel Gunther jafnaöi eftir
slæm varnarmistök hjá Köln fimm-
tán mínútum síöar. Heimaliðiö náöi
aö gera nánast út um leikinn fyrir
leikhlé, Pierre Littbarski skoraöi
annaö mark Kölnar á 39. mínútu
og Gerd Strack skallaöi i netiö
mínútu fyrir ieikhlé eftir fyrirgjöf
Holgers Willmer. Var fjaörafok út
af marki þessu, þar sem Willmer
þótti áberandi rangstæöur er hann
sendi knöttinn fyrir mark Karls-
ruhe. Köln sótti áfram án afláts í
seinni hálfleik, en tókst ekki aö
bæta fjóröa markinu viö fyrr en á
79. mínútu, Strack var þá felldur
innan vitateigs og Stefan Engels
skoraöi örugglega úr vítinu. Staö-
an er nú þessi:
VFB Stuttgart 8 53 0 22:7 13
Bayern Múnchen 8 52 1 19:4 12
Hamburger SV 8 4 4 0 18:5 12
FC Köln 8 5 1 2 20:11 11
Bor. Dortmund 8 43 1 12:5 11
Werder Bremen 8 4 2 2 12:8 10
Arminia Bielefeld 8 422 15:13 10
1. FC Nurnberg 8 4 1 3 12:18 9
Eintr. Braunschw. 7 2 4 1 7:6 8
Bor. Mönchengl.8 40 4 18:14 8
Karlsruher SC 8 3 1 4 7:17 7
1.FC
Kaiserslautern 7223 7:12 6
Hertha BSC Berlin 8 1 4 3 14:16 6
VFL Bochum 8 1 3 4 2:7 5
Schalke 04 8 1 2 5 7:12 4
Fortuna Dússeld. 8 1 2 5 7:23 4
Eintr. Frankfurt 8 116 8:13 3
Bayer 04 Leverk. 8 116 5:21 3
PSV í miklum ham
PSV EINDHOVEN náði forystunni
í hollensku deildarkeppninní í
knattspyrnu um helgina er liöið
malaði Nac Breda mélinu
smærra. Lokatölurnar 8—1 færðu
liðinu forystu á betri markatölu
heldur en Feyenoord getur státað
af, auk þess sem Feyenoord hef-
ur leikið einum leik fleira. Bæði
liöin hafa sama stigafjölda. PSV
var í miklum ham gegn Nac og
þeir Hallvar Thoresen, Jurri Kool-
hof og Rene Van Der Kerkhof
skoruðu allir tvívegis. Rene Lok-
hof og besti maöur vallarins,
Kóreumaöurinn Joong Mo Hu,
skoruöu sitt markið hvor. Koos
Waslander skoraði eina mark Nac
meö síöustu spyrnu leiksins. Úr-
slit leikja uröu sem hér segir:
Pec Zwolle—GAE Deventer 0—1
Tvente—Ajax 1—2
Nec Nijmegen—Haarlem 0—0
PSV Eindhoven—Nac Breda 8—1
FC Utrecht—Groningen 1—1
Willem 2.—Feyenoord 0—2
AZ’67 Alkmaar—Helm. Sport 4—2
Roda JC—Fortuna Sittard 1—1
Sparta—Excelsior 4—2
PSV og Feyenoord hafa 14 stig
hvort félag, PSV eftir 8 leiki, Fey-
enoord eftir 9 leiki. Markatala
PSV er 25—9, markatala Feyen-
oord 18—12. Ajax er í 3. sæti meö
13 stig eftir 8 leiki, en Roda hefur
sama stigafjölda eftir níu leiki,
auk þess sem markatala liösins
er lakari en hjá Ajax.
Andre Jeliazkov og Peter
Houtman skoruðu mörk Feyen-
oord og þeir Marco Van Basten
og Wim Kieft skoruðu mörk Ajax.
Markahæstir eru Koolhof hjá PSV
með 8 mörk, Peter Houtman og
Rick Talan hjá Alkmaar hafa
skorað 7 mörk hvor.
1. deildin í körfu:
Haukar sigruðu Grindavík
FYRSTI leikurinn í 1. deild karla í
körfuknattleik fór fram um helg-
ina, Grindavík og Haukar áttust
við. Grindvíkingar með nýjan
kana, Mike Sailes, komu á óvart
eftir slaka leiki í Reykjanesmót-
inu. í fyrri hálfleik komust þeir í
24—20 en síðan sigu Haukarnir
fram úr og höfðu forystu í hálf-
leik, 36—32.
Seinni hálfleikur hélst jafn
framan af en stórleikur Pálmars
Sigurðssonar gerði út um leikinn
og Haukarnir unnu sigur 84—58.
Haukarnir virkuöu hálf daufir í
leiknum og ef Pálmars heföi ekki
notiö viö væri óvíst hvernig leikur-
inn heföi endað, aö vísu vantaöi
Webster í liö Hauka.
Grindvíkingar eiga eftir aö veröa
sterkari í vetur. Mike Sailes styrkir
þá mjög mikiö. Sterkur leikmaður
sem á eftir aö veröa stórgóöur i
vetur þegar hann kemst í góöa æf-
ingu. í fyrri hálfleik gladdi Sailes
áhorfendur meö sýnikennslu í því
hvernig á aö troöa knettinum og
blokkera skot. Var oft unun aö
horfa á kappann.
Stigahæstir í liöi Hauka voru
Pálmar Sigurösson 41, Hálfdán
Markússon 13 og Kári Eiríksson 12
stig, en hjá Grindavík var Mike
Sailes meö 19 stig og Pálmi
Ingólfsson meö 15.
Einn galli er á 1. deildinni í ár.
Fjölga átti í deildinni um eitt liö og
var ÍBV boöin þátttaka en þeir
treystu sér svo ekki til aö vera meö
þegar á hólminn var komiö. Staö-
an er því sú aö ekkert liö fellur í ár.
Kemur þetta óneitanlega niöur á
allri spennu í deildinni. Veröur því
aöeins um þá spurningu aö ræöa
hvaöa liö kemst upp í úrvalsdeild-
ina.
í nógu að snúast hjá yngri
körfuknattleikslandslióunum
• Eins og frá var greint í Mbl.
fyrir nokkru hefur Bandaríkja-
maðurinn John Dooley verið ráð-
inn þjálfari íslenska A-lands-
liðsins í körfuknattleik. Dooley er
sem kunnugt er þjálfari úrvals-
deildarliðs ÍR.
En það eru fleiri landslið en
A-landsliðíö, 21 árs landsliö,
unglingalandsliö og drengja-
landslíð. Þjálfari þeirra er Einar
Bollason fyrrum landsliösþjálfari.
Aðstoðarmenn hans verða Torfi
Magnússon og Jón Sigurðsson.
Verkefni 21 árs liösins veröa 4
ieikir í Belgíu og Hollandi dagana
17.—23. desember, en hópurinn
verður valinn í nóvember, 15—16
manna flokkur.
Unglingalandsliöiö leikur 3
leiki viö íra í frlandi frá 21.—25.
október, en síöan er Polar Cup á
dagskrá 6.—10. janúar. 16 manna
hópur hefur þegar veriö valinn og
er byrjaður aö æfa. Hópinn skipa
eftirtaldir:
Kristinn Kristinsson, Eyþór Þ.
Árnason, Jóhann Bjarnason, Ólaf-
ur Guömundsson, Páll H. Kol-
beinsson, Þorkell Andrósson, Lár-
us Thorlacius, Björn Ottó Steffen-
sen, Jóhannes A. Kristbjörnsson,
Matthías Einarsson, Tómas A.
Holton, Einar Ólafsson, Björn
Zoéga, Matthías Matthíasson og
Birgir Mikaelsson.
Verkefni drengjalandsliösins eru
þau, aö stefnt veröur aö 3 lands-
leikjum viö England ytra dagana
26.—30. desember. Þá er stefnt
aö 3—4 leikjum heima eöa heiman
i lok mars, en ekki er enn Ijóst
gegn hvaöa þjóöum. 16 manna
hópur hefur þegar veriö valinn og
hafið æfingar. Hópinn skipa eftir-
taldir piltar: Ómar Scheving KR,
Ómar Guömundsson KR, Heimir
Jónasson Vai, Karl Guölaugsson
ÍR, Björn Þorvaldsson ÍR, Hjálmar
Hallgrímsson UMFG, Kristinn Ein-
arsson UMFN, Hreiöar Hreiöars-
son UMFN, Jón I. Guöbrandsson
IBK, Sævar Guðbergsson ÍBK,
Matti Osvald Stefánsson iBK,
Magnús H. Matthíasson Val, Sig-
uröur Ingimundarson ÍBK, Skarp-
héðinn Héöinsson ÍBK og Guöjón
Skúlason iBK.
— gg.
• Stórskytta, Þróttar Páll Ólafsson, komst lítiö áleiðis gegn sterkri
vörn Valsmanna.
Þróttur fékk skell
gegn Valsmönnum
— töpuðu med níu marka mun
VALSMENN unnu mjög öruggan
sigur á Þrótti í 1. deildinni á laug-
ardaginn, 23—14. Þetta er annar
stóri skellurinn sem lið Þróttar
fær í íslandsmótinu til þessa.
Greinilegt er á liöi þeirra að sumir
leikmennirnir eru frekar illa undir
mótið búnir, því er líöa tók á leik-
inn gegn Val voru flest allir
leikmenn Þróttar alveg búnir og
lítill sem enginn kraftur í þeim.
Þetta notfæröu Valsmenn sér og
rööuöu mörkum á Þrótt og sig-
ruðu með níu marka mun. I hálf-
leik var staðan hinsvegar jöfn,
9 —9.
Allur fyrri hálfleikur var mjög
jafn, þráft fyrir aö frumkvæöiö í
leiknum hafi veriö hjá Vals-
mönnum. í síöari hálfleik snerist
dæmiö alveg viö. Valsmenn léku
viö hvern sinn fingur og yfirspiluðu
Þróttara algjörlega. Liö Vals beitti
skyndisóknum hvaö eftir annaö
með góöum árangri. Þá var línuspil
oft gott hjá liöinu. Theódór Guö-
finnsson átti mjög góöan leik meö
val og skoraði sjö lagleg mörk.
Flest úr horninu. Þá komu ungu
mennirnir í liöi Vals sérlega vel frá
leiknum. Sýndu góöa takta. Þar
eru menn framtíöarinnar á ferö-
inni. Júlíus og Jakob komu vel frá
leiknum. Einar Þorvaröarson varöi
oft vel í marki Vals, og getur gert
enn betur.
í liöi Þróttar bar einna mest á
Guömundi Sveinssyni og Konráö
Jónssyni í sókninni. Varnarleikur
Þróttar í síöari hálfleik var slakur
og barátta lítil sem engin. í stuttu
máli: islandsmótiö 1. deild. Valur
— Þróttur 23—14 (9—9).
Mörk Vals: Theódór 7, 1 v, Þor-
björn Guðmundsson 4, Jakob 3,
Júlíus 3, Brynjar 2, Jón Pétur 2,
Gunnar 1 og Þorbjörn Jensson 1.
Mörk Þróttar: Konráö Jónsson
5, Guðmundur Sveinsson 5, 1 v,
Páll Ólafsson 3, Gísli og Ólafur H.
1 hvor.
Einar Þorvarðarson Val varöi
tvö víti í leiknum. Siguröur Ragn-
arsson Þrótti varöi eitt.
Brottrekstur af velli: Þorbjörn
Jensson og Júlíus hjá Val í 2 mín.
og Páll Ólafsson og Lárus hjá
Þrótti í 2 mín.
— ÞR.
Stjörnuleikmenn:
Valur:
Theodór Guðfinnsson 3
Einar Þorvarðarson 2
Júlíus Jónsson 1
Þróttur:
Konráö Jónsson 2
Guðmundur Sveinsson 1
Fimakeppni — Firmakeppni
Hin árlega firmakeppni Ungmennafélagsins Aftureld-
ingar í innanhússknattspyrnu veröur haldin í íþrótta-
húsinu aö Varmá (sem hefur einn af þremur stærstu
innivöllum á Stór-Reykjavíkursvæöinu) helgina
16,—17. okt. Þau fyrirtæki sem áhuga hafa, hafi
samband viö Stefán dagana 5.-7. okt. frá kl. 4 til kl.
22 í síma 66754.
Ungmennafélagiö Afturelding.
Firmakeppni Gróttu
í knattspyrnu innanhúss veröur í íþróttahúsi Seltjarn-
arness helgarnar 16. og 17., og 23. og 24. okt. Keppt
verður um Gróttubikarinn sem nú er í vörslu Pósts og
síma. Þátttökugjald er kr. 1.000. Þátttaka tilkynnist í
síma 25769 milli kl. 13 og 15 (Sigrún).
Knattspyrnudeild Gróttu.