Morgunblaðið - 05.10.1982, Síða 28

Morgunblaðið - 05.10.1982, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982 28 Þrjú efstu liðin náðu aðeins 2 stigum — Kevin Keegan skoraði fjögur mörk fyrir Newcastle Frá Skapta Hallgrímseyni í Ipawich. AFLEIT skilyrdi settu mjög mark sitt á knattspyrnuhald í Englandi á laugardaginn. Víöast hvar rígndi mikið og vellirnir voru hálir sem skautasvell. Þaö rigndi þó ekki mörkum aö sama skapi, aö minnsta kosti var lítið skorað miöaö viö laugardaginn þar á undan, en því er kannski ekki saman aö líkja, þá voru skoruð 50 mörk og var litiö á markaregnið þá sem hálfgert undur. Það sem var kannski markverð- ast viö úrslit helgarinnar var ósigur Liverpool gegn Ipswich, en liðið er engu aö síður í efsta sæti deildarinnar þar sem Manchester Utd. mátti sætta síg við jafntefli gegn Luton. Watford náði einnig aöeins jafntefli, en vert er að fylgjast með West Ham, sem vann fjórða sigur sinn í röö og er komið í fjórða sætið með aðeins einu stigi minna en Liverpool og United. Sigur West Ham gegn Arsenal var eftir atvikum sanngjarn. Að vísu sótti Arsenal mun meira, en þetta var klassískt dæmi um þaö að eftír því sem leikmenn reyna meira, tekst minna. West Ham lék skyn- samlega og klókindalega, einkum sýndi Alan Devonshire snilldartakta á vallarmiðjunní. Furðulegasta framlagið átti þó miöherjinn Paul Goddard, hann skoraði annað mark West Ham, átti þátt í þriðja mark- inu og bjargaði auk þess tvívegis af eigin marklínu skotum Arsenal- manna. Það var annars Francois Van Der Elst sem skoraði fyrsta mark WH strax á 20. mínútu. Mark Goddards kom tveimur mínútum fyrir leikhlé. En Talbot skoraöi þá fyrir Arsenal. Alvin Martin skoraöi með skalla eftir aukaspyrnu Franks Lampard strax í upphafi síðari hálf- leíks, Goddard fiskaði spyrnuna, en eina mark Arsenal skoraöi Paul Davis á síðustu mínútu leiksins. Úrslit leikja urðu annars þessi: • George Burley, t.v., átti stórleik í vörninni hjá Ipswich, er liðið geröi sér lítið fyrir og sigraði Liverpool. Arsenal — West Ham 2—3 Birmingham — Watford 1 — 1 Everton — Brighton 2—2 Ipswich — Liverpool 1—0 Luton — Manchester Utd. 1 — 1 Manchester City — Coventry 3—2 Nott. Forest — Stoke 1—0 Southampton — Notts C. 1—0 Sunderland — Norwich 4—1 Swansea — Tottenham 2—0 W. Bromwich — Aston Villa 1—0 Ipswich lék án stjörnuframherja sinna, þeirra Paul Mariners og Al- an Brazils, og í fyrri hálfleik réö Liverpool með öllu gangi leiksins. Góö markvarsla og stórleikur þeirra Burleys og Osmans í vörn- inni hélt Ipswich þó á floti, auk þess sem óheppni elti nokkuð leikmenn Liverpool. Ipswich varð fyrir frekara áfalli, er Hollendingur- inn Franz Thijssen meiddist í fyrri hálfleik og lék ekki með þann sið- ari. Kevin O'Callaghan kom í hans stað og geröi þetta ekki annað en að þjappa leikmönnum Ipswich STAÐAN I. dt iW: I.ncrpool H 5 2 I li 7 17 ManrlH*slí*r Utd. * 1i 2 1 14 6 17 Walford H 5 12 20 6 16 Wcsl llam K 5 1 2 IH H 16 Wi*st Bromwirh H 5 () 3 16 9 15 Manrhrslrr < 'ity H 5 0 3 10 10 15 Tottrnham H 4 13 17 II 13 Stoke H 4 1 3 17 14 13 Aston Villa H 4 0 4 12 12 12 Notlingham For. H 4 0 4 14 16 12 Hri^hlon H 3 2 3 H 19 II l.uton H 2 4 2 21 19 10 ('oventry H 3 1 4 10 II 10 Swansea H 3 1 4 10 12 10 Sunderland H 3 1 4 II 16 10 Ipswirh H 2 3 3 14 II 9 Kverton H 2 2 4 14 13 H Arsenal H 2 2 4 H 9 H Notts ( ounty H 2 2 4 6 15 H Southampton H 2 1 5 4 IH 7 Norwirh H 1 3 4 II 17 6 Birmingham H 1 2 5 4 19 5 STAÐAN Ck> 0 2.deild: Wolverhampton H 6 2 0 1 t , 20 (irimsby H 6 1 1 19 9 19 Sheffield W'ed. H 6 0 2 21 13 1H (Jueens l»ark K. 9 5 2 2 12 H 17 Fulham H 4 2 2 17 12 14 Leeds 7 4 2 1 II 8 14 Chelsea H 3 3 2 12 H 12 Barnsley 7 3 3 1 12 9 12 ('rystal l'alare H 3 3 2 II 9 12 Newraxtle H 3 3 2 II 9 12 l^eicester H 3 1 4 14 9 10 Oldham H 2 4 2 9 10 10 ('arlisle H 3 1 4 15 19 10 Shrewsbury 8 3 0 5 7 11 9 Blarkburn 8 3 0 5 12 17 9 Kotherham 8 2 3 3 10 15 9 Burnley 7 2 14 12 12 7 ( harlton 8 2 2 4 10 16 H Bollon 8 2 15 7 13 7 ('ambridge 9 12 6 9 16 5 l>erby County 7 12 4 6 13 5 Middlesbrough 8 0 3 5 7 21 3 saman. Þeir léku mun betur í síöari hálfleiknum og þá var Mick Mills alveg sérstaklega atkvæðamikill á miðjunni. O’Callaghan geröi góöa hluti, hann er útherji og sprettir hans niður kantana opnuðu nokkr- um sinnum vörn Liverpool. Hann átti allan heiðurinn af sigurmark- inu, sendi knöttinn vel fyrir markið tiu mínútum fyrir leikslok og Mich D’Avrey skallaði glæsilega í netið. Liverpool lék einnig án lykilmanna, lan Rush og Dave Hodgeson, miöherjarnir, báöir meiddir. Þaö hafði auövitaö sitt aö segja, Ken Dalglish og Craig Johnstone léku sem framlínumenn aö þessu sinni, en voru ekki eins beittir og hinir tveir hafa veriö það sem af er hausti. Manchester Utd. lék án tveggja lykilmanna í Luton, þeirra Arnold Muhren og Steve Coppell. Báöir meiddir og Coppell á í miklum vandræðum meö hnéð sem hann var skorinn upp í á síöasta sumri. Stööur þeirra tóku Remi Moses og Ashley Grimes og það voru einmitt þeir sem unnu saman aö marki United. Moses sendi til Grimes á 13. mínútu og írinn horaði skoraði örugglega. Bæöi liöin léku furöu vel í rigningunni og hálkunni og skilyrðin áttu sinn þátt í jöfnun- armarki Luton á 60. mínútu, Brian Horton sendi fyrir markiö og Ricky Hill kastaöi sér fram og skallaði í netið. Knötturinn fór milli fótanna á Garry Bailey, klaufalegt, en hann bætti það að nokkru leyti upp nokkru síðar, er hann varöi hreint ótrúlega glæsilega þrumuskot frá Mal Donaghie. Knötturinn sneiddi varnarmann og breytti gróflega um stefnu þannig að Bailey varö aö gera stefnubreytingu á sjálfum sér í „háloftunum". Auk þeirra Muhr- ens og Coppells, lék United án John Gidmans og Martin Buchans. Miöverðir voru Gordon McQueen og Kevin Moran. Voru þeir frábær- ir aö sögn BBC og litlar líkur á því aö Buchan endurheimti sætið nema aö hinir verði fyrir meiðslum. Watford gerði nóg til aö vinna Birmingham fimm sinnum er liöin mættust á heimavelli síðarnefnda liösins. Mörg góö marktækifæri fóru forgöröum, aöeins eitt nýtt, er Luther Blissett skallaöi í netiö hornspyrnu Nigel Callaghans. Tí- unda mark Blissetts í haust. Heimaliöiö kom íviö meira inn í myndina er á leikinn leiö og jafnaði fremur óvænt á síðustu mínútunni er Kevin Summerfield skoraöi. WBA náöi í dýrmæt stig er liðiö sigraði nágrannaliðið Aston Villa meö eina marki leiksins. Villa var lengst af mun betri aðilinn, en skömmu fyrir leikslok geröi Gord- on Cowans Ijót mistök, ætlaöi aö senda knöttinn til markvarðarins, en sendi þess í staö beint til hins unga Nick Cook og hann skoraði | örugglega. Cook lék í staö Cirylle Regis, en hann mun vera meiddur. Cowans klúöraöi skömmu síöar ákjósanlegu tækifæri til aö jafna, lokatölurnar þvi 1—0 fyrir WBA, fyrsti sigur liðsins gegn Villa í 16 ár. Manchester City reif sig upp eft- ir nokkra lélega leiki og sigraöi Coventry í skemmtilegum leik. Jim Melrose skoraöi fyrir Coventry strax á 8. mínútu, en Graham Bak- er jafnaöi fyrir leikhlé eftir fyrirgjöf hins 16 ára gamla Paul Simpsons. City lék síöan mjög vel framan af síöari hálfleik, Tommy Caton skor- aöi mark eftir aö Asa Hartford haföi rennt knettinum til hans úr aukaspyrnu og á 70. minútu geröi Dave Cross út um leikinn er hann skoraði þriöja mark MC. Gary Thompson tókst aö minnka mun- inn undir lok leiksins, en heimaliöiö héit öllum stigunum. Nottingham Forest sigraði Stoke mun léttar en 1—0-loka- tölurnar gefa til kynna. Stoke sýndi lítiö af þeirri snjöllu sóknarknatt- spyrnu sem á boöstólum hefur veriö hjá liöinu þaö sem af er ha- usti, Forest haföi leikinn ávallt í hendi sér. Garry Birtles skoraöi sigurmarkiö á 60. mínútu, þriöja mark hans í jafn mörgum leikjum. Peter Fox var hetja Stoke-liösins, hann stóö aö vanda í markinu og bjargaði liði sínu frá stórtapi með snilidarmarkvörslu. Tottenham haföi algera yfirburöi framan af gegn Swansea, en nokk- ur opin marktækifæri fóru í súginn af ýmsum sökum, ekki síst vegna klaufaskapar. Heimaliðiö náöi smám saman betri tökum á leikn- um og í seinni hálfleik skoruöu þeir Max Thompson og Bob Latchford fyrir Swansea. Liöið haföi tapaö fjórum leikjum í röö fram aö þess- um sigri. Sunderland hristi af sér fjóra tapleiki í röð, þar af 0—8-hökkun gegn Watford, meö því aö rót- bursta Norwich aö viöstöddum aö- eins rúmum 13.000 áhorfendum. j Ekki mörg ár síöan um 30.000 manns að jafnaöi tróöu sér inn á Roker Park er Sunderland lék þar, jafnvel sem 2. deildarliö. Hvaö um þaö, liðiö lék vel gegn Norwich og þaö stóö ekki steinn yfir steini hjá Anglíuliöinu er upp var staðiö. Þaö var ekkert skoraö í fyrri hálfleik, en sá síöari var ekki eldri en fimm mínútna, en Gary Rowell skoraöi eftir frækinn einleik. Þar meö var ísinn brotinn, Ally McCoist skoraöi 20 mínútum síöar og Rowell var aftur á feröinni skömmu síöar með þriöja mark Sunderland. Lokaorö- iö átti svo John Cook, hann skor- aöi fjóröa markiö eftir mikinn ein- leik. Eina mark Norwich skoraöi Dave Bennett á siöustu mínútunni. Southampton lagaöi mjög stööu sína við botn deildarinnar meö því aö sigra Notts County meö eina marki leiksins á The Dell í South- ampton. Justin Fashanu, lánsmaö- urinn frá Forest, gat leikiö meö á ný eftir meiösli og hann skoraöi sigurmark Southampton í síöari hálfleiknum. Brighton barðist frækilega gegn Everton, tvívegis náöi heimaliöiö forystu í leiknum, en í bæöi skiptin náöi suöurstrandarliðið aö jafna. Adrian Heath skoraöi fyrst fyrir Ev- erton, en Mick Robinson jafnaði. Voru fleiri mörk ekki skoruö í fyrri hálfleiknum. Billy Wright skoraöi aftur fyrir Everton snemma í síöari hálfieik, en Jimmy Case jafnaöi metin meö glæsilegu marki af 30 metra færi. 2. deild: Shrewsbury O — Leicester 2 (McDonald, O’Neil) Carlisle 0 — Wolverhampton 2 (Smith, Livingstone) Rotherham 1 (McBride) — New- castle 5 (Keegan 4, 1 víti, Todd) Leeds 2 (Butterworth, Hird) — Cambridge 1 (Reilley) QPR 3 (Neill, Allen, Micklewaith) — Burnley 2 (Steven 2) Blackburn 2 (Garner, Stonehouse) — Sheffield W. 3 (Bannister 2, Megson) Middlesbrough 1 (Otto) — Oldham 1 (Palmer) Chelsea 5 (Fillery, Speedy 2, Bumstead, Droy) — Grimsby 2 (Drinkell, Cumming) Bolton 1 (Hoggan) — Crystal Pal- ace 0 Charlton 1 (White) — Derby 1 (Gamble) Kevin Keegan hefur greinilega engu gleymt, 5— 1-sigur New- castle var athyglisveröur, en þó var sigur Barnsley gegn Fulham at- hyglisveröari. Lundúnaliðiö náöi þar þriggja marka forystu á fyrstu sjö mínútum leiksins, en Barnsley tókst samt aö kreista fram sigur, svaraöi meö fjórum mörkum. í Knaltspyrna) • Kevin Keegan var sannarlega í essinu sínu á laugardaginn, lið hans Newcastle mætti Rotherham og sigraði með miklum yfirburðum, 5—1. Keegan var öðrum fremur maðurinn á bak við sigurínn, því þessi fyrrum lands- liðsfy rirliöi Englands skoraði fjögur af mörkunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.