Morgunblaðið - 05.10.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982
35
Kapella að Sogni í Ölfusi
NÝLEGA hefur verid tekin í notkun
kepella í medferðarheimili SÁÁ að
•Sogni i Ólfusi. Er kapellan klædd
rauðu teppi og veggklæði, ásamt
Kristslíkneski og Ijósastikum.
Rúmar kapellan sex manns í
sæti. Að sögn Sigurðar Gunn-
steinssonar, dagskrárfulltrúa á
Sogni, þá er kapellan fyrst og
fremst hugsuð sem athvarf til
kyrrðarstunda og bænalífs.
Mönnum er frjálst að nota kap-
elluna að vild og hafa vistmenn
notað hana mikið.
Stefjaþankar — ný ljóðabók
STEFJAÞANKAK heitir ný Ijóðabók
eftir Ilöskuld Ottó Guðmundsson,
sem nýlega er komin út.
Höfundur er Austfirðingur að
ætt og uppruna, rösklega sjötugur
að aldri. I formála segir að hann
hafi snemma þótt hagorður og
hafi frá unga aldri fengist við að
gera ljóð og stökur.
Bókin Stefjaþankar er 108 bls.
að stærð, Letur prentaði, en höf-
undur sá um útgáfuna. Sigurunn
Konráðsdóttir skrifar formála.
Flugskýlin á Stóra-Kroppsflugvelli í Reykholtsdal. Þegar lokið verður við ,
að reisa flugskýlið, sem nú er í smíðum, þá er aðstaða til að geyma 4—6
flugvélar í skýlunum.
Borgarfjörður:
Flugskýli á Stóra
Kroppsflugvelli
Borgarfjtfróur.
AHUGI manna á flugi hefur farið
vaxandi undanfarin ár. Hafa menn
í uppsveitum Borgarfjarðar ekki
látið sitt eftir liggja. Eru núna t
eigu manna þar 6 flugvélar. Þurfa
þær sín hús, sérstaklega þegar
kemur fram á veturinn og veður
gerast válynd. Hafa menn því
brugðið á það ráð að reisa flugskýli
yftr flugvélar sínar. Eitt flugskýli er
á Húsafelli og annað var reist fyrir
skömmu við flugvöllinn á Stóra-
Kroppi. Er það í eigu þeirra Jóns,
Jóhannesar og Snorra Kristleifs-
sona á Sturlu-Reykjum i Reyk-
holtsdal, um 250 m2 að stærð.
Um þessar mundi er verið að
reisa annað flugskýli á sama
stað. Er það um 180 m2 að stærð í
eigu Jóns og Guðmundar Pét-
urssona í Geirshlíð í Flókadal.
Samfara þessari auknu flugvéla-
eign, þá efur áhugi manna á flugi
aukizt að mun, svo nú eru menn
að læra að fljúga, sem komnir
eru af því skeiðinu, þegar menn
hafa gaman af að trylla torfæru-
bílum út um víðan völl.
Stóra-Kroppsflugvöllur hefur
verið lengdur upp í 800 metra.
Var það gert nú í vor sem leið. Er
flugvöllurinn því orðinn heils árs
flugvöllur, þar sem ekki ætti
holklaki að myndast á haustin né
aur að vori. Voru þessar endur-
bætur ekki kostnaðarsamar, þar
sem bara þurfti að ýta drulluiagi
ofan af og kom þá í ljós gott und-
irlag, sem auðvelt var að ýta upp.
Þurfti því ekki að aka jarðvegi til
og frá í flugvallarstæðið. Þó þarf
að höggvalta völlinn að vestan-
verðu, þar sem heldur laust er í
vellinum fyrir þyngri flugvélar.
Auðvelt er með aðflug að vellin-
um, þar sem ekki eru nærliggj-
andi fjöll, sem hindra aðflug
vegna sviptivinda. Er mikil bót
að þessari lengingu, þar sem nú
geta mun stærri flugvélar lent á
Stóra-Kropps-flugvelli, jafnvel
Fokkerar Flugleiða þegar að-
stæður eru ákjósanlegar. —pþ-
Bæjarráð Akureyrar:
Teknar verði upp við-
ræður við stjórnvöld
um atvinnuuppbyggingu
Á FUNDI bæjarráðs Akureyrar
síðastliðinn þriðjudag var sam-
þykkt að beina því til bæjarstjórn-
ar aö teknar yrðu upp viðræður við
iðnaðarráðuneytið um atvinnu-
uppbyggingu á Eyjafjarðarsvæð-
inu. Ennfremur var gengið frá
drögum að svörum bæjarráðs til
samstarfsnefndar um iðnþróun á
Eyjafjarðarsvæðinu. Bæjarstjórn
mun taka þessi mál til meðferðar
næstkomandi þriðjudag.
Það voru fulltrúar Sjálfstæð-
isfloksins í bæjarráði, sem til-
löguna um viðræðurnar fluttu og
var hún samþykkt samhljóða.
Tillagan var fyrst flutt í sumar,
en þá var samþykkt að fresta af-
greiðslu hennar og kom hún nú
til afgreiðslu samhliða svörun-
um til nefndarinnar. Að sögn
Sigurðar J. Sigurðssonar, annars
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í
bæjarráði, var meginefni tillög-
unnar það, að hafnar yrðu við-
ræður við stjórnvöld um at-
vinnuuppbyggingu á Eyjafjarð-
arsvæðinu, annars vegar að hafa
skoðanaskipti um uppbyggingu
stóriðju á svæðinu og að hvetja
nágrannasveitarfélögin til sam-
stöðu um þessi mál.
Þá var einnig gengið frá
hugmyndum bæjarráðs að svör-
um til samstarfsnefndar, en þar
var meðal annars spurt hvort af-
staða bæjarstjórnar væri
óbreytt til stóriðjumála. í svör-
um sínum álítur bæjarráð, að
rök liggi að því að næsta átak,
sem gert verði í orkufrekum iðn-
aði, verði á Eyjafjarðarsvæðinu,
en við þetta gerði Kvenna-
framboðið bókun þess eðlis, að
ekki skyldi einblína á byggingu
álvers við Eyjafjörð. Ennfremur
komu fram hugmyndir um þátt-
töku bæjarins í uppbyggingu at-
vinnulífsins og í iðnþróunarsjóði
Eyjafjarðarsvæðisins og hvernig
hægt væri að standa að slíkri
uppbyggingu í gegnum sjóðinn.
Enn getum við boðið örfáa
bíia frá volkswacen audi
á mjög hagstæðu verði
JETTA
CL — CL — CL
verd frá: 000
sjálfskiptur w i.www
PASSAT CL verð frá: 400
AUDI 100 CL
Auói
verd frá: 241 .Q00