Morgunblaðið - 31.10.1982, Síða 1
80 SÍÐUR
243. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982
Prentsmiöja Morgunblaösins
Meira
hveiti
og korn
Róm .’M). október. Al'.
Matvælastofnun Samein-
uöu þjóðanna, FAO, spáði því
í gær að heildar hveiti- og
kornvöruframleiðsla í heim-
inum í ár myndi nema einum
milljarði og 533 milljónum
smálesta, en það er 0,5 pró-
sent meiri framleiðsla heldur
en á síðasta ári.
FAO spáði því einnig að
hveitisala myndi minnka í 96
milljónir smálesta frá 101 millj-
ón tonna á síðasta ári og korn-
salan myndi einnig dragast sam-
an, vera í ár 100 milljónir tonna,
en var í fyrra 102 milljónir
tonna. Neysla verður minni á ár-
inu og því munu birgðir vaxa.
Loks spáði FAO því að eftir-
spurn eftir hrísgrjónum kynni
að fara fram úr framboðinu, þar
sem framleiðslan hefur verið 3
milljónum tonna minni í ár en í
fyrra, verður nú 40 milljónir
tonna, en var 43 miiljónir tonna.
Jólin nilgast. — Vetur konungur er nýgenginn í garð, þótt þess sjáist engin merki enn. Hins vegar minnir þessi Ijósmynd Kristjáns Kinarssonar okkur i
ad jólin nálgast, því nú er sá tími kominn að verzlunargluggar verða skreyttir jólaskreytingum. Þessi jólasveinn tók sér til að mynda stöðu í glugga
Rammagerðarinnar í gærmorgun og kinkaði óspart kolli og veifaði til þeirra sem þar fóru fram hjá.
Trúarerjur í Nígeríu
kosta 350 manns lífið
lx>ndon, 30. október. Al'.
lllVt 350 MANNS hafa týnt lífi, þar af
eitthundrað lögreglununn, i fjögurra
daga trúarhragðauppþotum í Maidug-
uri í norAausturhluta Nígeriu, að sögn
brezka útvarpsins, BBC. Margar bygg-
ingar voru brenndar til grunna, og að
sögn er líkhúsið við sjúkrahúsið i
Maiduguri sneisafullt af likum.
BBC hafði eftir útvarpsstöð í
Kaduna, sem er röska 600 kílómetra
suðvestur af Maiduguri, að lögreglu
hefði tekizt að bæla uppþotin niður í
De Lorean
sleppt
Los Angeles 30. október .Al'.
JOHN Z. De l.orean, bifreiða-
hönnuðurinn, var látinn laus úr
fangelsi í gær gegn 10 milljóna
dollara tryggingargjaldi, en lög-
fra-ðingar hans náðu á síðustu
stundu fyrir helgina að ná upp-
hæðinni saman. De Lorean var
sem kunnugt er hnepptur í varð-
hald fyrir meinta eiturlvfjasölu
fyrir nokkru. I>að kom babb í bát-
inn hjá De Lorean og lögfræðing-
uin hans er dómstóllinn tvöfald-
aði tryggingarupphæðina á sið-
ustu stundu og varð það næstum
til þess að hann losnaði ekki fyrir
helgi. Kéttarhöldin munu hefjast
innan 70 daga.
Ekki hafði De Lorean spókað
sig utan fangelsismúranna
lengur en í nokkrar mínútur er
hann komst í fréttirnar á ný.
Bifreið sú er ók honum frá
fangelsinu varð fyrir óhappi ók
á tvær aðrar bifreiðir og voru
skemmdir á bifreiðunum um-
talsverðar. Enginn varð þó fyrir
meiðslum.
gærkvöldi, eftir sex stunda bardaga.
Sagði BBC að lögreglan hefði drepið
nær alla ofstækismennina í loka-
áhlaupinu, en áður hefði tekizt að
handtaka fjölmarga þeirra.
llppþotin brutust út þegar lög-
reglan reyndi að taka 16 félaga í
trúflokki heittrúaðra múhameðstrú-
armanna í Maiduguri, sem stunduðu
trúboð í leyfisleysi. Þeir veittu mót-
spyrnu og ofbeldisaðgerðirnar brut-
ust út.
Uppreisnarseggirnir eru sagðir
stuðningsmenn Alhaji Mohammadu
Marwa, sjálfsvalins spámanns, sem
jafnframt er þekktur sem Maitats-
ine, en hann var drepinn í uppþot-
um, sem trúflokkurinn efndi til í
Kano í norðurhluta Nígeríu í des-
ember 1980, en hermt er að þá hafi
um fjögur þúsund manns týnt lífi.
JA KUZEL.SK I hershöfðingi sagði í
ræðu í gær, að herlögum yrði ekki
aflétt i I’óllandi næstu tvö árin ef
Pólverjar kysu að liðsinna þeim öfl-
um sem „höggva að efnahag lands-
ins og grafa undan framforum í
efnahagsmálum“. l’ólska herstjórn-
in á í vændum vaxandi mótmælaað-
gerðir og andóf næstu tvo mánuðina
frá hendi „Einingar", óháðu verka-
lýðssamtakanna sem nýlega voru
bönnuð með öllu i Póllandi.
„Það er enn möguleiki á því að
aflétta herlögunum fyrir áramót-
Blaðið Finaneial Times hafði eftir
talsmanni Shehu Shagari forseta að
óeirðaseggirnir hefðu drepið fjöl-
marga óbreytta borgara sem þeir
hefðu haldið í gíslingu. Hátt á
fjórða hundrað fylgjenda trúflokks-
ins hefðu verið handteknir. Sagði
blaðið að óeirðaseggirnir hefðu ver-
ið vopnaðir byssum, örvabogum og
öðrum vopnum.
Uppþotin í Kano í desember 1980
stóðu yfir í 10 daga, og neituðu emb-
ættismenn í Nígeríu að staðfesta
orðróm um að Líbýumenn hefðu
staðið á bak við óeirðaseggina, en
diplómatar og blöð gáfu í skyn að
beint samband hefði verið á milli
óeirðanna og brottrekstrar allra líb-
ýskra diplómata frá Nígeríu
skömmu seinna.
in,“ sagði Jaruzelski ennfremur,
„en það fer eftir því hvernig stað-
an verður og hversu ágengt and-
kommúnískum öflum verður í
árásum sínum á pólsku þjóðina á
næstunni."
Leiðtogar Einingar hafa boðað
til átta klukkustunda verkfalls 10.
nóvember og síðan til umfangs-
mikilla mótmælaaðgerða dagana
13., 16. og 17. sama mánaðar. Um
þetta sagði Jaruzelski: „Það er
löngu ljóst að ævintýramennska
Jaruzelski
af þessu tagi er með öllu vonlaus
og það versta er að svona lagað
tefur aðeins fyrir bata pólska
efnahagsins. Hversu lengi herlög-
in verða í gildi fer eftir ástandinu
í landinu og ástandið fer eftir
Pólverjum sjálfum. Það er þeirra
að velja." Hann gagnrýndi síðan
Bandaríkjamenn harðlega fyrir að
draga úr efnahagsaðstoð við Pól-
land, sagði Pólland ekki vera neitt
„Texas-fylki", og Pólverja enga
indiána sem hægt væri að loka
inni á lokuðum landsvæðum.
Gasleiðslan niikla:
Reynt að
setja niður
ágreining
New York, 30. oklóber. Al'.
BANDARÍSKIR, kanadískir,
japanskir og evrópskir emb-
ættismenn koma saman í
New York um helgina og
reyna art finna lausn á ágrein-
ingi vegna gasleiöslunnar
miklu, og með hvarta hætti
Bandaríkjamenn geti hætt
refsiartgerðum gegn fyrirtækj-
um, sem hlut hafa átt art smírti
leiðslunnar.
Fregnir herma að reynt sé að
finna lausn sem byggi á langtíma
samkomulagi um fyrirkomulag og
takmörkun viðskipta við ríki
austan járntjalds. Hermt er að
evrópskir aðilar vonist eftir
skjótri lausn málsins, en með öðr-
um og veigaminni skilyrðum en
stjórn Reagans forseta vill setja.
Þannig herma diplómatar að
Evrópuríkin séu tilbúin að semja
og undirrita almenna yfirlýsingu
um nauðsyn sameiginlegrar sam-
stöðu gagnvart Sovétríkjunum, en
að sameiginleg viðskiptastefna
hafi engin áhrif í fyrstu.
Margrét Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, og Helmut
Kohl, kanslari Vestur-Þýska-
lands, létu þá von í ljós við lok
viðræðna í Bonn í gær, að Banda-
ríkjastjórn aflétti sem fyrst þeim
höftum er hún hefur lagt á fyrir-
tæki í Evrópu sem framleiða hluti
samkvæmt bandarískri tækni-
þekkingu í gasleiðsluna miklu frá
Síberíu.
Jaruzelski hótar her-
lögum tvö næstu árin
Varsjá, 30. október. Al'.