Morgunblaðið - 31.10.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982
5
Rúrik Haraldsson er leikstjóri
l.cikril \ ik-
unnar kl. I 1.00:
„Morðið í
rannsókna-
stofunni“
— eftir Escabeau
Á dagskrá hljóðvarps kl. 14.00 er
leikritið „Morðið í rannsóknarstof-
unni“ eftir Escabeau, í þýðingu
horsteins Ö. Stephensen. Leikstjóri
er Rúrik Haraldsson. Með helstu
hlutverkin fara Benedikt Árnason,
Helgi Skúlason, Baldvin Halldórs-
son og Sigurður Skúlason. Léikritið
er rösklega klukkustund á flutningi.
Tæknimaður: Hreinn Valdimarsson.
Prófessor Harlov er kunnur
fyrir rannsóknir sínar á lifnað-
arháttum fólks á norðurhjara
heims og hefur farið í leiðangra til
heimskautssvæðanna. Dag nokk-
urn þegar hann er að halda fyrir-
lestur í rannsóknastofu sinni er
framið þar morð með dularfullum
hætti. Rannsókn er hafin, en lausn
gátunnar reynist torfundnari en
menn ímynduðu sér í fyrstu.
Ikirn.ilcikriliO a
nuímidac kl. 10.20:
„Borgar-
söngvar-
arnir“
Á dagskrá hljóðvarps á mánudag
kl. 16.20 er leikritið „Borgarsöngv-
ararnir", byggt á ævintýri
Grimmsbræðra, í leikgerð Jóns
Ingvasonar. Leikstjóri er Jónas
Jónasson. Meðal leikenda má
nefna Jón Aðils, Klemenz Jónsson,
Margréti Ólafsdóttur og Harald
Björnsson. Leikurinn var áður á
dagskrá 1963. Hann er tæpur hálf-
tími.
Þetta er sagan um asnann,
hundinn, köttinn og hanann sem
slá sér saman og ákveða að fara
til borgarinnar og syngja þar. En
á leiðinni gerast atburðir sem
breyta áformum þeirra.
Athygli skal vakin á nýjum
flutningstíma barnaleikrita.
Hann er nú á mánudögum klukk-
an 16.20.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
s
Sigurður Skúlason
Helgiförin mikla
Á dagskrá sjónvarps kl. 22.30 er mynd sem sjónvarpið lét nýlega gera um
hina umfangsmiklu pílagrímaflutninga Flugleiða til borgarinnar Mekka í
Saudi-Arabíu. Umsjónarmaður er Sigrún Stefánsdóttir. Kvikmyndun ann-
aðist Páll Reynisson, en hljóðupptöku gerði Jón Arason.
Það tekur adeins i
2V2 klst. ad fljúga til £
v ^ !□
Londonl
Ml
og veröiö okkar er í samræmi viö paö!
Sumir segja að lífið í London sé stórkostleg-
asta leiksýning í heimi, — þar sé meira að sjá
og meira að gera en í nokkurri annarri borg.
Viðhafnarmiklar og hefðbundnar skraut-
sýningar, sögufrægar byggingar, söngleikir,
óperur, barir, veitingahús, diskótek, nætur-
klúbbar og aðrir skemmtistaðir. Öllu ægir
þessu saman í London að ógleymdum ara-
grúa verslana sem hafa á boðstólum vöru-
úrval sem óvíða finnst glæsilegra.
Og hvemig væri svo að bregða sér í 3ja, 5
eða 7 daga ferð? Heimsækja vaxmyndasafnið,
fylgjast með lífvarðaskiptum við Buckingham
Palace, líta inn í dýflissuna í Tower of London
og skoða t.d. British Museum, Windsor
kastalann eða St. Pauls kirkju. Inn á milli má
ekki gleyma að skjótast í verslanir og víst er
að kvölddagskráin verður ekki síður fjölbreytt
og spennandi.
Einstaklingsferðir
Sérstakir samningar hafa verið gerðir um
flug og hótel fyrir þá sem vilja heimsækja
London á eigin vegum. Fyrir vikið em í boði
á einkar hagstæðu verði 3ja eða 5 daga ferðir
með brottför alla fimmtudaga en í vikuferð er
brottför alla laugardaga og sömu fimmtudaga
og hópferðabrottfarirnar eru á.
wh
Hópferðir
Efnt verður til sérstakra hópferða fyrir
aðildarfélaga og standa þær frá fimmtudegi
til þriðjudags.
Brottfarardagar: 18. nóvember
2. desember
16. desember
Smithfield
landbúnaðarsýningin
Dagana 4.-11. desember efnum við til sér-
stakrar hópferðar í tengslum við hina stór-
kostlegu Smithfield-landbúnaðarsýningu.
Verð kr: 7.190.-
Jólaferð
Og auðvitað fömm við í viku jólaferð til
London, njótum fjölbreyttrar dagskrár og
upplifum frábæra jólastemmningu heims-
borgarinnar.
5.500
Verð frá kr.
miðað við gistingu í 2ja manna herbergi.
Innifalið í einstaklingsferðum: Flug, gisting
með morgunverði.
Innifalið í hópferðum aðildarfélaga: Flug, gist-
ing með morgunverði og til viðbótar akstur
til og frá flugvelli erlendis, miði á knatt-
spyrnuleik helgarinnar og íslensk fararstjórn.
Ensk kráarkvöld
19/11 - 21/11
í Súlnasal, Hótel Sögu
Komið við á skrifstofunni og fáið
eintak af bæklingnum “Quick Guide
to London".
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Verð miðað við flug og gengi 1.11. 1982