Morgunblaðið - 31.10.1982, Side 19

Morgunblaðið - 31.10.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982 19 ab's d’absorba Nú kostar 127 án ryövarnar, miöad viö gengi 1.10 ’82 special 3ja dyra aðeins kr. 112.000 iðeins nokkrum bflum óráðstafað Hægri höndin úthúðar Banda- ríkjamönnum Catimini bekuba Jóla- fötin komin Sendum í póstkröfu kRaKKa^ LAUGAVEGI 48 Sími: 13041 Moskva, 29. október. Al*. KONSTANTIN Chernenko, hægri hönd Leonids Breshnev forseta Sov- étríkjanna, gagnrýndi utanríkis- stefnu Bandaríkjastjórnarinnar harðlega í ræðu sem hann hélt í Tblisi í gær. Chernenko sagði Reag- an og stjórn hans ekki hafa staðist „Detente-prófið“, sem felst í vin- samlegum samskiptum og samhliða afvopnun risaveldanna. I»etta er í þriðja skiptið á jafn mörgum dögum, að utanríkisstefna Reagans fær slíka útreið i Sovétríkjunum, en Breshnev forseti hafði dagana tvo á undan verið mjög svo sammála nán- asta aðstoðarmanni sinum í ræðum sem hann hélt. Chernenko sagði m.a.: „Ráða- menn í Bandaríkjunum hafa ekki áhuga á öðru en að spilla afvopn- unarviðræðum og hræða íbúa Vestur-Evrópu með tali um tak- markað kjarnorkustríð í álfunni. Sovétríkin eru einn póll af tveim- ur í heimsstjórnmálum, sá póllinn sem vill koma í veg fyrir kjarn- orkustyrjöld og beita sér fyrir raunhæfum friðarviðræðum. Bandaríkjamenn sitja í öndvegi á hinum pólnum þar sem menn hafa ekki áhuga á öðru en að æsa upp vígbúnaðarkapphlaupið og steypa heiminum út í nýtt „kalt stríð“.“ ^^uglýsinga- síminn er 2 24 80 aaaa 127 hefur eitt hæsta endursöluverö notaöra bíla aaaa 127 eyðir u.þ.b. 6—7 lítrum á hverjum 100 km * EGILL VILHJALMSSONp smiðjuvegi4,kópavogi, sími 77200 BÝÐUR BETUR? Tónlistardagar Dómkirkjunnar Tónlist Jón Ásgeirsson Tónlistardagar Dómkirkjunnar eru lofsvert framtak og sannar- lega tími til kominn að kirkjan geri eitthvað til að ná úr höndum áhugamanna, utan kirkjunnar, sinni tónlist og flytji hana í sinum húsum, þeim, er þangað koma sér til huggunar, einnig til gleði og andlegrar uppbyggingar. Ráðgerð- ir eru þrennir tónleikar og voru fyrstu tónleikarnir sl. fimmtudag, samtímis frumflutningi Töfra- flautunnar hjá íslensku óperunni. Þetta er sagt hér, svo að þeir sem telja að alvarleg tónlist eigi sér fáa aðdáendur megi hugleiða þar um nokkuð, þ.e. um hlut slíkrar tónlistar í tónlistarumsvifum bæj- arins og hversu tónlistariðkun er orðin margslungin í okkar litla bæ. Tónlistardagar Dómkirkjunn- ar hófust með kórlagi eftir Pál ís- ólfsson er heitir Syng Guði dýrð. Annað verkið var svo Gloria, eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Frum- flutningur verks er ávallt tíðindi og vel viðeigandi að kirkjan eigi þátt í þeirri grósku, sem er í tónsköpun hér á landi. Verkið er mjög hljómfallegt en ekki sérlega rismikið og þó það megi rekja til erfiðleika kórsins í að flytja svona tónerfitt verk, var það nokkuð laust í formi. I heild er verkið hljómfallegt, einfalt og skýrt í formi, m.ö.o. fallegt tónverk. Þess skal getið, að verkið var endur- flutt í lok tónleikanna og þéttist þá nokkuð í meðförum kórsins, sem flutti verkið á sannfærandi hátt. Sem milliþátt flutti svo Haukur Guðlaugsson orgelleikari—■ og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar fjögur orgelverk eftir Pál ísólfs- son, tvo fallega orgelforleiki, Máríuvers og Ostinato et Fug- hetta. Sigrún V. Gestsdóttir söng þrjú lög eftir Jón Leifs og átti nokkuð erfitt með þau tvö fyrstu. Vertu guð faðir, faðir minn, er fal- legt lag en það er vandsungið og á í raun að tóna það frekar en að syngja. Annað lagið, Allt eins og blómstrið eina, var flutt allt og of hratt. Sérkennilegur undirleikur- inn á að tákna þungstigna sorg- argönguna, en sálmur þessi var í flutningi Sigrúnar og Marteins H. Friðrikssonar léttstígt göngulag. Síðasta lagið Upp, mín sál, sem er mjög fallegt sálmalag, var besta lag Sigrúnar. Fyrir utan endur- tekninguna á Gloría eftir Hjálmar enduðu tónleikarnir á Jesu meine Freude eftir Bach og til liðs við kórinn fékk stjórnandinn, Mart- einn H. Friðriksson, Ágústu Ágústsdóttur, Sigrúnu V. Gests- dóttir, Rut Magnússon og einn af félögunum í kórnum, Rúnar Ein- arsson, til að syngja smá sólóþætti og þáttinn Góða nótt, sem er með því fallegasta sem Bach reit af kórtónlist. Undirleikur á orgel og celló framinn af Ingu Rós Ing- ólfsdóttur og Helga Péturssyni. Marteinn H. Friðriksson er dug- mikill kórstjóri en hefur ekki á að skipa nógu þjálfuðu söngfólki til að takast léttilega á við svo erfitt verkefni sem Jesu meine Freude. Þrátt fyrir það var flutningur verksins þokkalega unninn en allt of „nervus", jafnvel þeir þættirnir sem einsöngvararnir fluttu. Það er mikill menningarauki að tónleik- um sem þessum og rétt að leggja áherslu á að kirkjan þarf að stór- auka þátttöku safnaða sinna í tónleikahaldi og hlustun fagurrar kirkjutónlistar. Jón Ásgeirsson HVER

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.