Morgunblaðið - 31.10.1982, Side 25

Morgunblaðið - 31.10.1982, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982 25 Klausa í afmælisgrein gáraði í gráu heilasellunum, sem ég sat að hefðbundnum sunnudags- morgunsið með ljúfa tóna eins Brandenborgarkonserts Bachs úr morguntónleikum útvarpsins í eyrum og fletti helgarblöðun- um. Þar var Hjálmar Ólafsson að senda sextugsafmæiiskveðju Árna lögfræðingi Halldórssyni á Egilsstöðum, skrifaði: „Þetta er orðin nokkuð löng vegferð. Allt frá því við sátum saman í stúd- entaráði með Ellu Pálma einni kvenna, Palla Líndal, Tomma Tomm í Keflavík, Víkingi, Jóni P., Jóni úr Hornafjarðarhólum og Jónasi Gísla — og ætluðum að frelsa heiminn. Ég er raunar ekki frá því að þú sért enn á þeim buxunum." Mikið rétt, fyrir 30 árum vor- um við öll farin að frelsa heim- inn, hvert eftir sinni leið og sannfæring um að hún væri sú eina rétta. Bara herða róðurinn. Og þegar að er gáð, erum við þá ekki enn að baksa við þessi ver- aldarbjörgunarstörf — hvert á sinn hátt og eftir gömlu góðu leiðunum okkar. Ég á Moggan- um, afmælisgrein Hjálmars til Árna í Þjóðviljanum, svo sem vera ber, einn boðar í kirkju, annar leggur sitt fram í sjúkra- húsi, tveggja flokka sveitar- stjórnarmenn bardúsa hvor í sínum landsfjórðungi o.s.frv. Enn á fullum spretti og í stress- inu, sem allir eru að níða, eflaust jafn sannfærð um að heimurinn bjargist ekki nema við séum allt- af að skipta okkur af honum. En er ekki stressið það sem maður verður að borga fyrir að vera veðhlaupahestur en ekki belja? eins og einhverjum, eflaust stressuðum, varð að orði. Ætli maður að koma einhverju í verk í þessu flókna og hraða nútíma- samfélagi, þýðir víst ekki annað en vera á harðaspretti gegn um lífið. Sem segir svo vitanlega ekkert um að maður komist nokkurn tíma í mark. Einhver verður líka að vera síðastur. Maður byrjar með hugsjónirnar og kemst svo að þeirri and- styggilegu staðreynd, að til að koma þeim fram fylgir ómæld vinna og hún snýst öll um pen- inga — að safna fé, hala inn fé, útvega fé, biðja um fé ... Bara hafa ekki augun af hugsjóna- málinu, eins og ónefnt dýr á guirót, því annars kynni maður bara að leggjast á meltuna í makindum og hafa það gott. Og hvað yrði þá um heiminn? Varla hefur það verið Brand- enborgarkonsertinn sem ýtti undir hugleiðingar um nauðsyn á stressi í lífinu, en framhalds- þátturinn kviknaði við að setjast aftur við útvarp nú í vikunni. Var þá ekki framvarðarsveitin á hlaupabrautinni á sínum árlega útvarpsumræðuspretti. Raunar fréttist varla af nokkrum áheyr- anda öðrum sem vildi játa að hafa fylgst með linnulaust allt kvöldið. Að agnúast út í pólitík er nefnilega orðið álíka vinsælt þjóðarsport og að bölva veðrinu eða aka bíl eins og „Palli einn í heiminum". Rétt eins og menn hafi óljósan grun um að allt muni lagast af sjálfu sér, ef bara væri hægt að vísa á dyr þessari leiðindatík, pólitíkinni. Þá muni varningur hætta að hækka, allir fá kauphækkun, árekstrum fækka á götuhornum, mann- skapurinn hætta að drekka brennivín sér til óbóta og allt böl bætast. Óneitanlega væri það notalegt ef það dygði að hún hyrfi eins og álfkonan í Öskubusku, hún póli- tík, og allir tækju þá að lifa vel og lengi í áhyggju- og vanda- málaleysi. En pólitíkin bregður sér bara í margra líki og vill ekki hverfa. Hún er ekki aðeins karl- ar að rífast í útvarpinu, eða þinginu svo lítið ber á, og koma út meðal fólksins til að skamm- ast fyrir kosningar. Það er póli- tík, sem tryggir konum jafnrétti (dágóð samlíking það!), fræðir börnin í svona skóla en ekki hinsegin, ákveður hvort vinnu er að hafa og hvernig raðast í launaflokka í samfélaginu, hve mikið maður fær að eiga í budd- unni þegar yfirvöld hafa tekið sitt, hvort manni tekst að byggja yfir sig íbúð, fara á hljómleika, skíði eða gefa út bækur og hvort maður getur tórt sæmilega í ell- inni. I hvert sinn sem efnt er til umræðna í íþróttafélögum eða menningarhópum koma ábúð- armiklir menn og segja: Við skulum halda pólitík fyrir utan þetta! En það er bara ekki frekar hægt en regninu frá 17. júní eða kyniífi frá barnsfæðingum (þótt það kunni raunar að vera tíma- spursmál). Allt okkar líf, inni- falinn hjúskapur og uppfræðsla æskunnar, á allt sitt undir þess- ari bannsettu tík, pólitíkinni. Það er nefnilega tíkin sú, sem ákveður hvert fara fjármunirnir, afl þeirra hluta sem gera skal og hve miklir peningar verða inn- heimtir til þess og teknir frá öðru — allt eftir hug og stefnu þeirra sem með fara — að ógleymdum títtnefndum hug- sjónamálum þeirra. Það er nefnilega hún sem ákveður for- gangsefnin. Dæmi um klárt forgangsval og spretthörku við að koma málum fram er einmitt nýkjörinn meiri- hluti í borgarstjórn í Reykjavík. Ég kom á verkstæði þar sem héngu uppi „Kosningaloforð sjálfstæðismanna", sem birt voru fyrir kosningarnar. Smið- irnir skemmtu sér við að krossa við hvert loforð sem efnt var að þeirra dómi. Veðjuðu á hann Ilavíð eins og veðhlaupahest. Og nú fimm mánuðum eftir að hann varð borgarstjóri, voru þeir að krossa við síðasta liðinn, loforðið um að lækka fasteignagjöldin, en hann hafði sagt í sjónvarpi að gert sé ráð fyrir því í næstu fjár- hagsáætlun. Krossar voru þegar við loforðin um að fækka borg- arfulltrúum, að hætta við Rauðavatnsbyggðina og byggja með ströndinni, að leggja niður framkvæmdaráð, fella úr gildi bryggjurnar út í Tjörnina, fella úr gildi ákvörðun vinstri meiri- hlutans um íbúðabyggð í Laug- ardal, leggja niður punktakerfið í áföngum og stefna að því að lóðaumboð fullnægi eftirspurn (er byrjaður, sögðu þeir), beita sér fyrir að hafin verði bygging bifreiðageymsluhúss í miðbæn- um, selja Ikarus-vagnana (hann hefur verið að reyna það, en vit- anlega átti ekki að gefa þá, sögðu þeir). Svona á pólitík að vera, enda kusum við hann út á loforðin og finnst við fá það sem boðið var. I síðustu gárum varð mér á í messunni, að kalla bók Marylyn French, Ladies Room, í stað Womans Room, sem breytir þó ekki því sem segja átti. Líklega hefur gamalt grín ruglað mig í ríminu. Á kvennasnyrtunni hjá Sameinuðu þjóðunum stóð jafn- an: Ladies, Dames (konur bæði á ensku og frönsku). Ameríkani sem kom þar að og rak í þetta augun, þrumaði: „Leidies Deim- es, hvaða fjandans munur er á því!“ Svona orðaleikir verða vart þýddir, en í trausti þess að þjóð- in hafi á 10—20 ára skólasetu lært obbolítið í ensku, læt ég skýringuna samt flakka. MorKunblaAiA / Kmilía Björg Björnadóttir gerður hefði verið samningur við Sovétríkin um olíuriðskipti okkar og þeirra á næsta ári. Samið var um kaup á 320 þúsund tonnum af olíuvörum frá Sovétríkjunum. í því felst sú breyting frá árinu í ár, að bensíninnflutningur eykst um 5.000 tonn en innflutningur á svartolíu minnkar um 15.000 tonn og má rekja þá minnkun til banns á loðnuveiðum. í ár eru sem sé samningar um kaup á 330 þús- und tonnum af olíuvörum frá Sov- étríkjunum, sem svarar til um 70% af heildarolíunotkun okkar í ár ef miðað er við 480 þúsund tonna innflutning, aðeins minni en 1981. Hlutur Sovétríkjanna í heildarorkuneyslu landsmanna er því mikill, þar sem olíuvörur full- nægja um eða innan við 40% af orkuneyslu þjóðarinnar. Sé litið á viðskipti íslands og Sovétríkj- anna, innflutning og útflutning, kemur í ljós að þau nema 7,2% af heildarviðskiptum þjóðarinnar. I umræðum um sovéska efna- hagssamvinnusamninginn, sem undirritaður var 2. júlí sl. af Ólafi Jóhannessyni, utanríkisráðherra, fyrir eindregin tilmæli frá Tómasi Árnasyni, viðskiptaráðherra, og ráðuneyti hans, var því meðal annars haldið á loft samningnum til varnar, að aðrar Vestur- Evrópuþjóðir hefðu gert svipaða samninga og ættu mikil viðskipti við Sovétríkin. Hans Dietrich Genscher, utan- ríkisráðherra Vestur-Þýskalands, ritaði nýlega tímaritsgrein, þar sem hann fjallaði meðal annars um viðskipti við Sovétríkin. Hann sagði, að í þeim efnum yrðu vest- rænar þjóðir að gæta þess, að verða ekki háðar Sovétríkjunum í viðskiptum. Hann segir að miðað við innflutning og útflutning sé Vestur-Þýskaland helsti við- skiptavinur Sovétríkjanna á Vest- urlöndum. Engu að síður nemi út- flutningur Þjóðverja til Sovétríkj- anna aðeins þriðjungi af útflutn- ingi þeirra til Sviss. Þar sé aðeins um að ræða 1,9% af útflutningi Þýskalands 1981 — sama ár nam útflutningur íslendinga til Sovét- ríkjanna 6,2% af heildarútflutn- ingi okkar. Níutíu þúsund manns í Vestur-Þýskalandi hafi 1981 beint eða óbeint haft atvinnu af því að framleiða vörur til sölu í Sovét- ríkjunum — eða 0,4% af vinnandi fólki í landinu. Tölur um þetta liggja ekki á lausu hér á landi. Hins vegar má geta þess, að 0,4% af heildarmannafla hér á landi er um 400 manns. Segir Genscher, að enginn geti á þessum forsendum talið, að Vestur-Þjóðverjar þurfi að sæta pólitískum afarkostum í sam- skiptum sínum við Sovétríkin. Hið sama verður ekki sagt um okkur Islendinga miðað við það, hvernig staðið var að gerð sovéska efna- hagssamvinnusamningsins í sumar. Vestur-þýski utanríkisráðherr- ann gerir einnig grein fyrir orku- kaupum Vestur-Þjóðverja af Sov- étmönnum. Gasleiðslan mikla frá Sovétríkjunum til Vestur-Evrópu á að vera fullbúin um miðjan þennan áratug. Innflutningur á gasi til Vestur-Þýskalands frá Sovétríkjunum mun draga úr olíu- innflutningi Þjóðverja þaðan. Niðurstaðan verður sú, að 5 til 6% af heildarorkuþörf Þjóðverja verð- ur fullnægt með orkuinnflutningi frá Sovétríkjunum og eru þeir því mun betur settir að þessu leyti en við íslendingar. Sovéskt gas mun að vísu samsvara 30% af gas- neyslu Vestur-Þjóðverja en Genscher segir, að gerðar hafi verið varúðarráðstafanir til að tryRKja að helstu iðnfyrirtæki er nota þetta gas geti í stað þess not- að olíu eða kol með skömmum fyrirvara. Engar sambærilegar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar af íslenskum stjórnvöldum og raunar hafa þau brugðist hið versta við þegar bent er á hættuna sem af þessu andvaraleysi leiðir. Sýnist það vera pólitískt markmið fleiri en kommúnista að koma í veg fyrir skynsamlegar umræður um þessi mál — þau kunna þó að kalla á lausn á næstu árum, þvi að allar spár sérfræðinga benda til þess að um miðjan þennan áratug hætti Sovétmenn að vera aflögu- færir um olíu. Kútter Sigurfari Frá því var sagt nú í vikunni, að svonefndur Sigurfarasjóður á, Akranesi hefði ákveðið að gangast fyrir víðtækri fjársöfnun meðal einstaklinga og fyrirtækja um land allt því til styrktar að kútter Sigurfari verði varðveittur við byggðasafnið í Görðum. Ýmsum kann að koma það spánskt fyrir sjónir, að menn telji það nauð- synlegt að efna til svo víðtækrar fjársöfnunar til að varðveita kútt- er. Við nánari athugun kemur þó í ljós, að hér er um brýnt verkefni að ræða. Séra Jón M. Guðjónsson, sókn- arprestur á Akranesi og hugsjóna- maður um varðveislu sögulegra minja, beitti sér fyrir því að á þjóðhátíðarárinu 1974 keyptu fé- lagsmenn í Kiwanisklúbbnum Þyrli á Akranesi kútter Sigurfara í Færeyjum. Ekkert skip af þess- ari gerð var þá til hér á landi. Kútterar skipa þó veglegan sess í atvinnusögu þjóðarinnar og 1897 var kútter Sigurfari fyrst keyptur til Islands og gerður út á hand- færaveiðar hér við land næstu 23 árin. Kútterinn var smíðaður í Englándi 1885 og er ætlunin að endursmíði hans verði lokið á Akranesi 1985 ef fjáröflun gengur samkvæmt áætlun og landsmenn bregðast vel við kalli Sigurfara- sjóðs. Undir forystu Gils Guðmunds- sonar, fyrrum alþingismanns, hef- ur nefnd unnið að þvi að koma á fót Sjóminjasafni. Því hefur verið ætlaður staður í Hafnarfirði og verður væntanlega hluti Þjóð- minjasafnsins. Fer vel á því, að fyrsta sérsafn Þjóðminjasafns, ef þa’nnig má að orði komast, tengist sjósókn, án dugmikilla sjófarenda og fiskimanna hefði íslenska þjóð- in aldrei komist í þær álnir að hún hefði efni á því að reisa safn yfir minjar frá fyrri öldum. Æskilegt. væri, að þannig yrði um kútter Sigurfara búið að hann yrði ekki landfastur á Akranesi heldur sjófær og gæti til dæmis einnig glatt gesti hins væntanlega Sjóminjasafns í Hafnarfirði þegar fram líða stundir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.