Morgunblaðið - 31.10.1982, Síða 39

Morgunblaðið - 31.10.1982, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982 39 Helga Sigurdar- dóttir - Minningarorð Fædd 28. febrúar 1912 Dáin 23. október 1982 Laugardaginn 23. október lést í Landakotsspítala í Reykjavík Helga Jórunn Sigurðardóttir, hús- freyja, Barmahlíð 6, Reykjavík eftir langvarandi og erfið veikindi. Helga var fædd að Riftúni í Ölf- usi 28. febrúar 1912, ellefta í röð- inni af þrettán börnum þeirra hjóna, Sigurðar Bjarnasonar og Pálínu Guðmundsdóttur, sem lengi bjuggu á Riftúni. Fimm þessara systkina dóu á unga aldri, en átta komust til fullorðis- og efri ára. Af þeim eru fjögur á lífi. Helga ólst upp hjá foreldrum sín- um í Riftúni í stórum systkina- hópi og naut hún þar almennrar barnafræðslu þeirra tíma og hjálpaði til við bústörfin frá því að hún hafði aldur og getu til. Mun hún hafa haft hina mestu ánægju af sauðfé og hirðingu þess. Til Reykjavíkur fluttist Helga úr foreldrahúsum, þegar hún var sautján ára gömul. Tók hún fljót- lega að nema kjólasaum hjá Vil- borgu systur sinni og öðlaðist meistararéttindi í þeirri iðngrein. Þær systur ráku um tíma sauma- stofu saman og Helga vann að saumaskap árum saman og raunar meira og minna fram á efri ár. Vandvirkni hennar var við brugð- ið og leituðu gjarnan sömu kon- urnar til hennar aftur og aftur, þegar vandaða flík vantaði og það jafnvel löngu eftir að hún hætti að stunda saumaskap sem hliðarstarf við annasöm heimilisstörf. Hinn 18. júní 1936 gengu þau í hjónaband, Helga og eftirlifandi eignmaður hennar, Guðjón Guð- mundsson, rekstarstjóri hjá Rafmagnsveitum ríkisins. Fyrsta heimili þeirra var að Fjölnisvegi 20 í Reykjavík, en lengst af var heimili þeirra að Barmahlíð 6. Er það einkar hlýlegt og smekklegt og ber vitni góðum umgengnis- háttum og myndarskap. Hjóna- band þeirra Helgu og Guðjóns var farsælt og einkenndist, trúi ég, öðru fremur af gagnkvæmu trúnaðartrausti og gagnkvæmri virðingu. Helga og Guðjón áttu barnaláni að fagna og eignuðust fimm börn, sem öll eru farin úr foreldrahús- um og hafa stofnað heimili með mökum sínum. Börnin eru: Erla Hafrún, flugfreyja, fædd 12. júlí 1938, gift Agli Egilssyni forstjóra, Auður Svaia, húsmóðir, fædd 2. desember 1942, gift Rúnari Guð- jónssyni, sýslumanni, Hrafnkell Baldur, framkvæmdastjóri, fædd- ur 9. maí 1946, kvæntur Guðlaugu Jónsdóttur, húsmóður, Helga Sig- ríður, fóstra, fædd 30. desember 1951, gift Thomasi Kaaber, raf- tækni og Guðrún Sóley, við nám í námsráðgjöf, fædd 7. apríl 1953, gift Þorsteini Hilmarssyni, sem er við framhaldsnám í heimspeki. Heimilið varð aðal starfsvett- vangur Helgu eins og svo margra annarra eiginkvenna og mæðra fyrr og síðar. Hún rækti húsmóð- urstörfin af fádæma elju og mynd- arskap og umhyggja hennar fyrir velferð eiginmanns, barna, tengdabarna og barnabarna — já og raunar allra vandamanna — verður lengi í minnum höfð. Hún hafði einstakt starfsþrek og var hamhleypa til allra þeirra verka, sem hún tók sér fyrir hendur. Ekki var óalgengt að Helga legði drjúgan hluta næturinnar við annasaman dag á stóru heimili, til þess að leggja hönd á einhverja flík, sem hún var að sauma á börn- in eða aðra. Fyrirhyggja og reglu- semi voru ríkir þættir í gerð henn- ar. Hún leitaðist ávallt við að vera raunsæ og gekk að hverjum hlut eins og hann var í raun og veru, en hvorki vanmat hann eða miklaði fyrir sér, hvað þá að hún sveipaði hann draumórahulu. Þannig gekk hún að hverju verki, eins og það lá fyrir og kostaði kapps um að ljúka því, án þess þó að kasta nokkurn tíma til þess höndunum. Helga var hljóðlát kona og al- vörugefin, en kunni þó á góðri stund að gleðjast með vinum sín- um og hafði mikla ánægju af. Hún tranaði sér hvergi fram, en væri til hennar leitað var hún boðin og búin að rétta hjálparhönd. Sú hönd var örugg og styrk og lagði sig alla fram við að leysa viðkom- andi mál á sem bestan hátt. Þessa nutum við, ég og mín fjölskylda, í ríkum mæli alla tíð og það var ósjaldan, sem létt var undir með okkur við gæslu barnanna, á með- an þau voru lítil og ósjálfbjarga, og nám og störf okkar foreldranna gerðu okkur ókleift að vera öllum stundum með þeim. Hið sama á reyndar við um önnur börn og barnabörn hennar, enda voru þau öll mjög hænd að ömmu sinni og sakna hennar sárt. Eigi var heldur sjaldan, að sest var að matborði í Barmahlíðinni, hvort sem um var að ræða gestaboð ellegar hvers- dags og má segja að heimili þeirra hjóna hafi verið manns annað heimili allt frá fyrstu kynnum. Helga fór marga veiðiferðina með bónda sínum, einkum hin síð- ari ár og tók „bakteríuna" eins og það er kallað. Kom þar fram, eins og í öllum öðrum athöfnum henn- ar, þessi mikli áhugi og dugnaður og kvartaði hún helst yfir því hve seint á ævinni hún fór að stunda laxveiðar. Seigla Helgu kom vel í ljós í fyrrasumar, en þá virtist sem hún hefði fengið nokkra heilsu á ný, þótt sá bati yrði ekki langvaandi. Þá fór hún í síðustu veiðiferðina með eiginmanninum, í ána sem þau höfðu dvalið við á hverju sumri í fjölda ára. Einnig rættist sá draumur hennar að fara með manni sínum hringferð um landið og gista í tjaldi, en slíkur ferðamáti hafði ætíð verið hanni að skapi. Þau hjónin voru ein- staklega lánsöm með veður í þess- ari ferð, sól og blíða næstum hvern dag. Loks má nefna, að í fyrrahaust fóru þau hjón til Sví- þjóðar til að heimsækja dottur sína, sem þá dvaldi í Lundi við nám. Hafði Helga mikla ánægju af þessum síðustu ferðalögum sín- um. Mér er enn í minni sú mynd, sem ég fékk af Helgu, tengdamóð- ur minni, við fyrstu kynni fyrir einum tuttugu árum. Það var að kvöldi, sem ég kom í Barmahlíðina þeirra erinda, að sjálfsögðu, að finna dótturina, Auði, nú konu mína. Ég hringdi dyrabjöllunni og í dyrasímanum sagði konurödd mér að gera svo vel að koma inn fyrir. Er inn var komið leit ég upp í stigann og á stigaskörinni stóð kona, sem mér fannst, í svip, ógnar stór. Þetta var Helga. Þótt í Ijós kæmi að Helga var rétt með- almanneskja á hæð, hefur mér ætíð fundist þessi fyrsta mynd mín af henni táknræn, því að hún var stór kona að allri gerð. Mest var stærð hennar í hinum erfiðu og langvarandi veikindum hennar. Hún veiktist fyrst alvarlega í ágústbyrjun 1980. Hún gekk undir þrjár meiriháttar skurðaðgerðir og var oft sárþjáð. Hún tók veik- indum sínum eins og öllu öðru af sama raunsæinu og æðruleysinu og felldi aldrei tár af hvarmi. Hún vissi að hverju stefndi og kveið ekki endalokunum. Hún var sér- staklega þakklát læknum og hjúkrunarfólki Landakotsspítala fyrir frábæra umönnun. Ég vil að leiðarlokum færa minni kæru tengdamóður alúðar- þakkir fyrir allt það sem hún var mér. Við, aðstandendur hennar, söknum hennar mjög, en þær góðu minningar, sem við eigum um hana og vitneskjan um að hún dó, þegar dauðinn var henni ábati, verður okkur nokkur huggun. Blessuð sé minning hennar. Rúnar Guðjónsson. Mágkona mín, Helga Sigurðar- dóttir, Barmahlíð 6 hér í bæ, and- aðist í sjúkrahúsi hinn 23. október eftir langa og erfiða sjúkdómslegu og enn lengri veikindi. Hún fæddist 28. febrúar 1912 í Riftúni í Ölfusi, dóttir hjónanna Pálínu Guðmundsdóttur og Sig- urðar Bjarnasonar, sem þar bjuggu um langan aldur og voru bæði af kunnum sunnlenskum bændaættum. Þau eignuðust þrettán börn og komust átta þeirra til fullorðinsára. Ábýlis- jörðin var lítið en notasælt kot og sjósókn úr Þorlákshöfn bætti að nokkru um búhagi, þótt róðurinn hafi ugglaust stundum verið harð- sóttur að koma svo stórum barna- hópi á legg. Ung að árum hélt Helga úr föð- urgarði til Reykjavíkur og nam kjólasaum. Þar kynntist hún ung- um rafvirkja, Guðjóni Guðmunds- syni, nú rekstrarstjóra Raf- magnsveitna ríkisins. Þau gengu í hjónaband árið 1936 og stofnuðu heimili í Reykjavík, þar sem þau dvöldust síðan að undanteknum skömmum tíma, sem þau voru bú- sett í Hafnarfirði. Þau eignuðust fimm börn: Erlu, flugfreyju, gifta Agli Egilssyni forstjóra; Áuði, gifta Rúnari Guðjónssyni sýslu- manni í Borgarnesi; Hrafnkel, for- stjóra, kvæntan Guðlaugu Jóns- dóttur; Helgu, fóstru, gifta Tómasi Kaaber raftækni, og Guðrúnu Sól- eyju, nemanda í námsráðgjöf, gifta Þorsteini Hilmarssyni heim- spekinema. Vettvangur Helgu var hið hljóð- láta starf húsfreyju og móður, að annast heimilið, mann sinn og börn. Heimilið bjó hún af smekk- vísi og að ágætum föngum, og uppeldi barnanna var henni bæði áhuga- og metnaðarmál. Þar var starfsvettvangur hennar allur, og utan heimilisins hafði hún sig litt eða ekki í frammi. Af svo þröng- um vettvangi fer sjaldnast mikil saga. Þar ríkir hin hávaðalausa önn, og ef til vill detta einhverjum í hug orð Bjarna skálds Thorar- ensen, sem hann kvað við lát ann- arrar húsfreyju og móður, en hann var oft frábærlega skyggn á mannlífið og snillingur að draga upp táknmyndir mannlegra ör- laga: l*á oik í stormi hrynur háa hamra þvi tn'ltin skýra frá, þá fjóla fcllur bláa fallió þart cnginn ht vra má, « n angan horfin innir fyrst urtabyKgðin hvrrs hrfur misst. Æðrulaust tók Helga þeim þunga dómi, að sjúkleiki hennar hlyti til eins að draga og að fram- undan biði skammur áfangi. Á milli þess sem hún dvaldist í sjúkrahúsi við erfiðar aðgerðir, annaðist hún heimili sitt meðan kraftar entust. Þegar þá þraut og lokavistin í sjúkrahúsinu tók við, hvarf hún þangað án ótta og von- ar, þótt hugurinn leitaði löngum til barnanna og eiginmannsins, sem nú var orðinn einn heima eft- ir nær hálfrar aldar samfylgd. Nú var ekki annað eftir en að gera sínar síðustu ráðstafanir, og til þess fékk hún að halda ráði uns öllu var lokið. Kæri Guðjón. Þungur harmur er nú kveðinn að þér, börnum ykk- ar Helgu og öllum aðstandendum. Eftir er aðeins að orna sér við yl minninganna, þar sem þið eigið svo drjúgan fjársjóð, og takast svo á við framtíðana við breyttar að- stæður. Ilaraldur Sigurðsson Ný, sportbif reið, f rá, Skoda á, bílasýningu, um, helgina Þú ættir að líta inn í sýningarsalinn að Nýbýlavegi 2 um helgina og kynnast nýja, glæsilega Skodanum okkar, - Skoda Rapid. Þar færðu svar við öllum spurningum varðandi þennan athyglisverða bíl og að auki kynnistu „gömlu góðu“ Skodunum sem að sjálfsögðu standa fyrir sínu við hlið nýja félagans. Sýningin er opin kl. 13.00 til 17.00 laugardag og sunnudag. Ath! Jón Spæjó ætlar að læðast inn milli kl. 14.00 og 15.00 báða sýningardagana og árita myndir af sér með alvörusvip. Og nú er bara að drífa sig! JÖFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.