Morgunblaðið - 31.10.1982, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982
Hörður Asgeirs
son — Minning
Fæddur 27. desember 1915
I>áinn 23. október 1982
Vinur okkar Hörður Asneirsson
hefur lokið hlutverki sínu á meðal
okkar.
Oft er erfitt að sætta sig við,
t>et;ar samferðafólk deyr, því það
fer með hluta af samtíð okkar með
sér. Þannig fer okkur að þessu
sinni, en eins ok við ráðum engu
um komuna í þennan heim, þá
ráðum við heldur engu um brott-
förina.
Þeim fækkar nú óðum sem uxu
úr grasi á Flateyri á fyrstu ára-
tunum aldarinnar. Minningar
sækja á hut;ann frá leik í æsku,
störfum á Eyrinni okkar, samveru
til sjós ok frá marfíháttuðu sam-
starfi fullorðinsáranna.
Einkenni Harðar voru einlætíni,
hjartahlýja og áhufji fyrir að
verða öðrum að liði. Langvarandi
sjúkdómar t;erðu hann ekki gram-
an út í allt ot; alla, eins og oft
hendir, hann var ávallt reiðubúinn
að rétta hjálparhönd þeim sem á
þurftu að halda.
Það var ánætyulegt að fá tæki-
færi til þess að vera með honum
við stofnun félat;s húðsjúkra, sem
hann bar fyrir brjósti til hinsta
dat;s. Hann hreykti sér ekki af
verkum sínum, þó þau marki spor
í þjóðlífinu, hann vann þau í kyrr-
þey ot; þakkaði öðrum.
Fjölskylduböndin frá Flateyri
of; samheldni systkinanna og fjöl-
skyldna þeirra var honum alla tíð
styrk stoð, en nánasti ástvinurinn,
eiginkonan, var bárufleygur hans
er boðaföllin í ólgusjó lífsins sóttu
að honum í margvíslegum erfið-
leikum og sjúkdómum. Hann vissi
þetta allt, mat það og þakkaði.
Nú þegar Hörður er allur, er að-
eins hægt að þakka samfylgdina.
Hann var góður maður og þar sem
góðir menn fara eru Guðs vegir.
Samúð okkar er einlæg með eig-
inkonu, dóttur og öðrum aðstand-
endum.
Anna Tryggvadóttir og
Þórður Magnússon.
Fyrstu kynni mín af þessum
góða frænda mínum hófust á Flat-
eyri. Torfahúsið er mér þá efst í
huga, síðan barátta hans við eld-
inn í stórbruna frystihúss afa
míns um svipað leyti. Leiðir skilja
í nokkur ár. Næsti staður til frek-
ari kynna er Stykkishólmur. Árið
er 1950. Á leið í sveitina var á
sumri hverju staldrað við í nokkra
daga, jafnvel vikur hjá Herði og
Mummu. Þar var gott að vera.
Aftur skilja leiðir. Arið 1963 hitt-
umst við að nýju og þá til að
starfa saman fram á síðasta dag
Harðar. Það var samvinna sem ég
hefði ekki viljað vera án.
Tvö af hugðarefnum Harðar
voru baráttan við sjúkdóminn
psoriasis og vinna að málefnum
vangefinna. Hvort tveggja fórst
honum vel úr hendi, enda maður-
inn samviskusamur og vinnusam-
ur, tilfinninganæmur, heilsteypt-
ur og örlátur, góður starfsmaður,
eiginmaður og faðir. Allt eru þetta
miklir kostir sem svo margir
fengu að njóta. Þar fór góður
drengur og góður frændi, sem
lengi verður saknað.
Um leið og ég þakka Herði sam-
veruna og samvinnuna, bið ég og
fjölskylda mín Guð að halda fast í
hendur Mummu og Ásu, þeim til
halds og trausts um ókomna fram-
tíð.
Ásgeir Gunnarsson
Sumarið er liðið. Viðbúnaður
náttúrunnar gegn komandi vetri
er hafinn. Tré og blóm hafa fellt
lauf sín og blöð. Haustblærinn er
augljós.
Sumaryls og birtu hafa menn
notið, en misjafnlega. Oft hafði
byrgst sólarsýn og í forsælunni
var á stundum napurt.
Hinn dimmi og kaldi tími vetr-
arins, sem í hönd fer, er því tæp-
ast tilhlökkunarefni. Síst þeim
sem sumarið hafði ekki náð til og
framtíðarvonir kvíða blandnar.
Sjúkdómar og stór skörð höggv-
in í raðir nákominna yfirskyggðu
gjarnan ánægjulegri augnablik.
Angur og óvissa oft efst í huga
viðkvæmra sálna, sem um sárt
áttu að binda.
Fyrsti dagur vetrarins rann upp
líkur öðrum dögum. Skil árstíða
voru óljós þennan morgun. Komu
hans fylgdi ekki frekari uggur en
komu annarra daga. Og vista-
skipti engu fremur í hugum
manna þá en endranær.
En ákvörðunin kom skjótt.
Störfum Harðar, mágs míns, á
þessu tilverustigi skyldi nú lokið.
Að vísu var aðdragandinn ærinn,
en endalokin samt sem áður
óvænt.
Hann hafði um langt skeið verið
haldinn sjúkdómi, sem gjarnan
fer með sigur af hólmi, misfljótt
eftir aðstæðum.
En þegar berjast þurfti á fleiri
vígstöðvum við erfiða vágesti þá
varð vörnin veikari og viðnámið
þvarr.
Líf Harðar og Guðmundu, konu
hans, var síst áhyggjum firrt.
Barnið þeirra, hún Áshildur, var
alltaf lítil og hún þurfti ávallt sér-
stakt skjól, sem þau létu henni
stöðugt ríkulega í té. Missir henn-
ar er mikill við fráfall föðurins. Þó
kjarkur móðurinnar og stilling í
erfiðum veikindum hennar og
áfallasömu lífi sé meiri en flestum
er gefinn.
Hörður, mágur minn, átti sér-
staklega tvö höfuðáhugamál, auk
þeirra starfa sem hann vann fyrir
þakkláta húsbændur.
Áhugamál þessi áttu það sam-
merkt að bæði stefndu þau að
bættri stöðu og betra lífi fyrir þá,
sem minna máttu sín eða áttu við
erfiðan sjúkdóm að stríða.
Hann helgaði krafta sína fé-
lagsstörfum í þágu vangefinna og
einnig þeirra sem þjást af illlækn-
andi húðsjúkdómi. En við þann
sjúkdóm barðist hann í áratugi.
Til starfa að þessum mikilvægu
verkum hreif hann margt ágætra
manna sem halda munu hátt því
merki sem hann hóf og í krafti
mannkærleika og fórnfýsi stefna
að því marki sem hann og þeir
settu.
Hjálpsemi Harðar og greiðvikni
við alla sem höllum fæti stóðu og á
þurftu að halda var viðbrugðið. Sá
eðlisþáttur var gildur. Fóstraður í
skjóli gæskuríkra foreldra.
Styrktur í baráttu fyrir bættum
hag bágstaddra.
En nú er lífsgöngu hans lokið.
Hún er vörðuð þakklæti þeirra
sem nutu gæsku hans og góðra
verka.
En þó nú sé vetur og dagar
skammir þá skulum við muna það
að aldrei skína stjörnurnar skær-
ar en þá. Og stjörnurnar minna á
nálægð himinsins.
Megi sá, sem skóp himininn, líta
til þeirra og leiða þá sem þjást af
söknuði. Og vitja þeirra sem veikir
eru og vanmegna.
Mágur minn hafi heila þökk
mína og minna.
Baldur Sveinsson
Það er skammt stórra högga á
milli innan fjölskyldunnar, þar
sem Hörður bróðir er nú þriðji í
röðinni, sem hverfur yfir landa-
mærin miklu á árinu. Á undan eru
farin Katrín mágkona og Ingimar
mágur.
Hörður var þriðja barn foreldra
okkar, Jensínu Eiríksdóttur og
Ásgeirs Guðnasonar kaupmanns
og útgerðarmanns á Flateyri.
Snögglegt fráfall Harðar kom
okkur að óvörum þótt oft hafi
hann legið á sjúkrahúsi mikið
veikur og vart hugað líf því krans-
æðastífla hrjáði hann um árarað-
ir.
Laugardaginn 23. október talaði
hann við konu sína á sjúkrahúsinu
þar sem hún lá eftir uppskurð og
hugðist hann heimsækja hana um
eítirmiðdaginn með dóttur þeirra.
Af þessari heimsókn varð ekki, því
varla náði hann á Borgarspítalann
í sjúkrabíl, áður en hann yrði all-
ur.
Þar sem Hörður var 1% ári
eldri en ég, lágu leiðir okkar sam-
an frá barnæsku, en þó sérstak-
lega síðustu 20 ár að hann hafði á
hendi stjórn á vörumóttöku og
sendingum og því lífæðin í þeirri
deíld fyrirtækja minna.
Sem unglingur stundaði hann
sjómennsku en hugðist læra í
járnsmiðju á ísafirði í byrjun
kreppunnar, með það í huga að
gerast vélstjóri en námið varð
stutt vegna aðsteðjandi vanda í
þjóðfélaginu.
Eftir það vann hann hjá föður
okkar á Flateyri, ýmist til sjós eða
lands þar til hann fluttist til
Reykjavíkur árið 1939 með konu
sinni, Guðmundu Guðmundsdótt-
ur, og dótturinni, Áshildi, sem þá
var nýfædd.
Hann vann sem bifreiðastjóri
hjá Mjólkursamsölunni um tíma,
en flutti síðan til Skagastrandar
þar sem hann gerðist verkstjóri
við frystihús kaupfélagsins.
í lok stríðsins flutti hann til
Stykkishólms þar sem hann gerð-
ist frystihússtjóri hjá Sigurði Ág-
ústssyni.
Við stofnun frystihúss föður
okkar á Flateyri, tók hann að sér
verkstjórn þar uns það hús brann
árið 1949, að hann flutti aftur til
Stykkishólms og gerðist frystihús-
stjóri aftur hjá Sigurði Ágústs-
syni í Stykkishólmi.
Hörður var góður verkstjóri og
það átti vel við hann að stjórna
fólki. Hann kom sér vel hjá þeim
sem hann hafði samskipti við,
enda átti hann fjölda vina í þeim
fyrirtækjum og byggðarlögum
sem hann starfaði í og er hans
saknað.
Hjálpfýsi Harðar var mikil, sér-
staklega ef einhver átti í vandræð-
um lagði hann sig fram til að
hjálpa og veita aðstoð.
Ég og fjölskylda mín höfum not-
ið greiðvikni hans og Guðmundu
konu hans, fyrst þegar þau bjuggu
úti á landi, svo og eftir að þau
fluttu til Reykjavíkur.
Vegna vinfengis þeirra var auð-
velt að koma börnunum í sveit við
Breiðafjörð enda valdi hann þeim
heimili sem börnunum leið vel á.
Sem starfsmaður fyrirtækja
minna var hann vakandi yfir vel-
ferð þeirra og fór jafnan í eftir-
t
Eiginmaður minn,
KJARTAN BJARNASON,
fyrrverandi spariajóðsatjóri,
frá Siglufirói,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 3. nóvember
kl. 15.00.
Fyrir hönd vandamanna.
Helga Gísladóttir.
t
Jarðarför eiginmanns míns,
HAROAR ÁSGEIRSSONAR,
verslunarmanns,
Kleppsvegi 28,
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 1. nóvember kl. 10.30. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Guömunda Guðmundsdóttir.
Bróðir okkar, t BJÓRN STEFÁN SIGMUNDSSON,
frá Ásmundsstöðum,
Frakkastíg 12,
veröur jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriöjudaginn 2. nóvember
kl. 13.30. Jóhanna Sigurðardóttir, Gunnhildur Siguröardóttír, Sverrir Sigurðsson, Jakobína Sigurðardóttir, Vilborg Sigurðardóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HALLGRÍMUR ODDSSON,
fyrrv. útgerðarmaður,
sem lést á Kanaríeyjum 21. okt., sl. veröur jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni mánudaginn 1. nóvember kl. 13.30.
Lilja Hallgrímsdóttir, Árni Norðfjörö,
Sigrún Hallgrímsdóttir Breazile
Gylfi Hallgrimsson, Ása Magnúsdóttir,
Áslaug Hallgrímsdóttír, Reynir Svansson,
börn og barnabörn.
t
Hjartans þakkir öllum þeim sem heiðruöu minningu fööur okkar,
KRISTINS JÓNSSONAR,
fyrrverandi meöhjálpara,
Sólvallagötu 14, Keflavík.
Sérstaklega vlljum við þakka læknum og starfsfólki sjúkrahúss
Keflavíkur fyrir frábæra umönnun, kórstjóra og kór Keflavíkur-
kirkju, Keflavíkursöfnuði og séra Birni Jónssyni, Akranesi. Guð
blessi ykkur öll.
Jóhanna Kristinsdóttir,
Jón M. Kristinsson,
Júlíus Fr. Kristinsson,
Sigurður B. Kristínsson,
Eggert V. Kristinsson,
María Kristinsdóttir,
Ingibergur Þ. Kristinsson,
Jakob Arnason,
Sonja Kristensen,
Inga Sigurgeirsdóttir,
Hlíf Káradóttir, .
Joseph W. Nipper,
Guörún Júlíusdóttír.
t
Maðurinn minn,
ALEXANDER GEIRSSON,
Ljósafossi,
verður jarösunginn frá Selfosskirkju þriöjudaginn 2. nóvember
kl. 2.
Irma Geirsson.
t
SESSELJA SVEINSDÓTTIR
frá Eskihlíð D
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 2.
nóvember kl. 15.00.
Fyrir hönd vandamanna.
Bjarki Magnússon.
Lokað
veröur mánudaginn 1. nóv. kl. 13—15 vegna jarðar-
farar Hallgríms Oddssonar.
Jóhannes Norðfjörð,
Hverfisgötu 49.
Fyrirtæki okkar
veröa lokuö mánudaginn 1. nóvember til kl. 13.00
vegna jaröarfarar Harðar Ásgeirssonar.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Veltir hf.