Morgunblaðið - 31.10.1982, Side 43

Morgunblaðið - 31.10.1982, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982 43 Hallgrímur Oddsson — Minningarorð Fæddur 1. október 1905 Dáinn 21. október 1982 Hallgrímur Oddsson, fyrrver- andi útgerðarmaður, er látinn. Hann varð bráðkvaddur úti á Kanaríeyjum 21. október sl., en hann hefur dvalið þar á veturna nokkur undanfarin ár. Hallgrímur var fæddur í Stykk- ishólmi 1. október 1905, sonur hjónanna Guðrúnar Hallgríms- dóttur og Odds Valintínussonar, skipstjóra og síðar hafnsögu- manns, sem bjuggu þar. Hallgrím- ur var fimmta barn þeirra hjóna af sjö systkinum, fimm dætrum og tveim sonum, en yngri sonurinn lést sjö ára gamall. Eins og þá var siður byrjaði Hallgrímur snemma að vinna. Hann fór á sjó með föður sínum, tók vélstjórapróf og fékk réttindi til vélgæslu við þá stærð véla, sem þá var yfirleitt notuð í fiskibátum og litlu síðar skipstjórapróf fyrir smærri skip. Hann stundaði sjó- mennsku á þessum skipum frá unglingsárum og fram yfir fer- tugsaldur, en á því tímabili ók hann einnig fólksflutningabíl frá Bifreiðastöð Islands. Hann tók þátt í íþróttum, var knár í islenskri glímu og varð skjaldarhafi í þeirri íþrótt meðal félaga sinna og vina í Snæfells- og Hnappadalssslu og hann glímdi á Þingvöllum árið 1930. Kynni mín, sem þessar línur rita, af Hallgrími hófust um lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Hann hafði þá fyrir nokkru byrjað rekstur útgerðar á fiskibátum. Við tókum þá að okkur forustu í fé- lagssamtökum fiskibátaeigenda í Reykjavík og sinntum þeim sam- eiginlega um margra ára skeið. Það var gott að vinna með Hall- grími að þessum málum. Hann var fljóthuga og ráðhollur, ráðþæginn og framúrskarandi ósérhlífinn og lét aldrei standa á sér, þegar á þurfti að halda. Hann var á tímabili stærsti bátaútgerðarmaður í Reykjavík, átti og gerði út á tímabili fjóra fiskibáta, sem stunduðu ýmist þorsk- eða síldveiðar. Hallgrímur var forustumaður að því að við fimm félagar stofn- uðum Faxaver hf. og var fram- kvæmdastjóri þess félags þann tíma, sem það var rekið. Fyrirtæk- ið leigði hraðfrystihúsið á Kirkju- sandi um árabil og rak það, það keypti Melavelli í Sogamýri, en þar var verkaður fiskur í salt og skreið og söltuð síld. Einnig rak það í félagi við annan aðila síldar- söltun á Siglufirði, og fyrirtækið Kjólar — Kjólar Nýir kjólar frá London. Verö frá kr. 390.00. Stæröir 12—22 (38—48). Dalakofinn Tískuverslun, Linnetsstíg 1, Hafnarfiröi. ALETAP Á ÞRIÐJUDÖGUM ^ ^ __ DROTEA „Þýska brynjan“ Sagt frá knattspyrnumanninum Hans-Peter Briegel Mörk Rummenigge gegn Englandi Knattspyrnumenn eru of hátt launaðir — segir Daninn Bastrup Itarlegar og spennandi íþróttafréttir varð hluthafi í Síldar- og fiski- mjölsverksmiðjunni Kletti. Hallgrímur leigði á tímabili hraðfrystihúsið Hrímni á Siglu- firði og rak þar síldarsöltun. Á þessu tímabili vorum við Hallgrímur mjög nánir og góðir félagar, og kann ég honum miklar þakkir fyrir þann félagsskap. Það var góður hópur við mat- borðið á Hótel Hvanneyri á Siglu- firði, þar sem við sátum saman við matborðið nokkur sumur ásamt þeim Einari Ingvarssyni, banka- fulltrúa, Jóni Árnasyni, fyrrv. al- þingismanni, og Guðfinni Einars- syni, útgerðarmanni. Þegar Hallgrímur hætti útgerð, tók hann sér fyrir hendur að bygRja hús. Hann vann að því í Silfurtúni og á Arnarnesi af mikl- um dugnaði, og lagði þar hönd að verki sjálfur. 5. okt. 1935 gengu þau í hjóna- band Hallgrímur og Aldís Þórð- ardóttir. Þau áttu indælt heimili á Miklubraut 44. Þar eignuðust þau fjögur börn. Þau eru Lilja, -gift Árna Norðfjörð, úrsmið, Sigrún giftist Hólmari Finnbogasyni, þau fluttust til Bandaríkjanna, Gylfi, giftur Asu Magnúsdóttur, og Ás- laug, gift Reyni Svanssyni. Barna- börnin eru orðin fimmtán og barnabarnabörnin eru fjögur. Heimili þeirra var ánægjulegt og gaman að koma til þeirra og dvelja þar. Þau voru samhent í því að sýna gott viðmót og veita vel. Einstök regla var á heimilinu, enda neytti hvorugt þeirra áfengis eða tóbaks. Hallgrímur gerði nokkuð af því að spila á spil, en þó hélt hann sér meira að því að tefla skák og sér- staklega seinni árin átti hann marga kunningja, sem nutu þess að sitja yfir tafli tímunum saman. Eins og fyrr er getið dvaldi hann síðustu ár ævi sinnar lang- dvölum á Kanaríeyjum. Hann stundaði þar akstur á bíl sínum með íslendinga, sem voru þar í leyfi og eignaðist hann marga kunningja í gegnum það starf, sem kunnu vel að meta lipurð hans og velvilja á mörgum sviðum. Öll framkoma hans var þannig að fólk sóttist eftir samvistum við hann, og hann naut þess að leysa vanda þess í leiðsögn og þjónustu á allan þann máta, sem honum var fær. Að leiðarlokum þakka ég Hall- grími samferðina hérna megin. Ég bið allri fjölskyldu hans blessunar Guðs, og bið Guð að styrkja þau. Honum sjálfum bið ég alls hins góða í nýjum heimkynnum. Guð veri með honum. Baldur Guðmundsson TÆKIFÆRIÐ GRÍPTU GREITT v Við þurfum að rýma fyrir nýjum vörum og erum reiðubúnir að gefa þér góðan afslátt af eftirfarandi: Skidoo Citation vélsleöi, notaöur. Artic Pantera, notaöur. Bombardier snjóbíll. Mercedes Benz Unimog, radarbíll. Dodge Weapon diesel. Camper-hús á pick-up. Álhús á pick-up. Hjólhýsi. Tjaldvagn. Gróöurhús. Gísli Jónsson» Co. hf. Sundaborg 41, sími 86644.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.