Morgunblaðið - 31.10.1982, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982
47
Crass upp á kant
við stjórnmálamenn
— lag þeirra um Falklandseyjadeiluna veldur reiði þingmanna
Stjórnleysingjahljómsveitin
Crass kom heldur betur viö kaun-
in á breskum siógæðisyfirvöldum
fyrir skemmstu er hún gaf út lag,
sem fjallar um Falklandseyja-
stríöið á milli Breta og Argentínu-
manna.
í texta lagsins er styrjöldin
harkalega gagnrýnd og þá ekki
hvaö síst járnfrúin (meö öllu
ótengd Járnsíöunni illræmdu),
Margaret Thatcher. Segir þar aö
hún eigi alla sök á því hvernig fór.
i textanum segir m.a. : „How
does it feel to be the mother of
1000 dead?“ (Hvernig liöur ykkur,
mæörum hinna þúsund dauöu).
Auk þessarar setningar eru marg-
ar til viðbótar, sem vafalitið falla í
grýttan jarðveg hjá stjórnmála-
mönnum landsins.
„Þetta er svæsnasti texti sem
hefur veriö gefinn út hérlendis,”
sagöi Tim Eggar, einn þingmanna
breska ihaldsflokksins, í viötali við
dagblaöiö Observer. „Þetta geng-
ur út yfir öll velsæmismörk ritfrels-
is. Þetta eru ekkert annað en svi-
viröingar á svíviröingar ofan."
Andy Palmer, einn meðlima
Crass, er ekki á sama máli og
þingmaöurinn. „Inntakiö í texta
okkar er gagnrýni á þá ákvöröun
yfirvalda, aö senda óharðnaöa
unglinga út í opinn dauöann. Þaö
eitt er margfalt ógeöfelldara en öll
verstu orðin í okkar texta.”
Rúnar Erlingsson bassaleikari í Egóið.
Rúnar genginn í Egóið og
tónleikar um allt landið
— nýja plata Egósins væntanleg eftir nokkrar vikur
ALDREI fór þaö svo aö Egóinu
tækist ekki aö fá Rúnar Erlings-
son til liðs viö sig. Rúnar, sem er
einn besti bassaleikari landsins
og var áöur í Utangarðsmönnum
og Bodies, var genginn til liös við
þá Eirík Hauksson, Sigurgeir Sig-
mundsson og Kristján Edelstein í
nýrri hljómsveit þeirra, en snerist
hugur og innritaöi sig í Egóiö áö-
ur en hljómsveitin hélt upp í tón-
leikaferöalag sitt um landiö.
Geysilegur fengur aö honum
fyrir Egóið en að sama skapi mikill
missir fyrir hina. Þarf ekki aö taka
þaö fram, aö Egó stendur nú betur
aö vígi en nokkru sinni meö valinn
mann í hverju rúmi og ný plata
væntanleg eftir nokkrar vikur.
Egó hélt fyrir siðustu helgi upp í
heljarmikiö tónleikaferðalag um
landiö. Er ætlunin aö kynna nýju
plötuna, sem kemur út í nóvem-
berlok. Þá veröa og leikin lög af
plötu Bubba Morthens, Plágunni,
svo og af fyrstu plötu Egósins,
Breyttir tímar.
Egó hélt tónleika á Seyðisfiröi,
Noröfiröi og Reyöarfiröi í vikunni
og aö Laugum í gær. i dag er
stefnan tekin vestur á bóginn og
leikiö á Húsavík i kvöld, 31. Stóru-
Tjarnir veröa þvínæst fyrir valinu á
morgun.
Þaöan veröur haldiö til Akureyr-
ar og troöiö upp í Menntaskólan-
um 2. nóvember og í Dynheimum
4. nóvember. Siglfiröingar veröa
heimsóttir þann 5. nóvember og
þá Sauökrækingar þann 6. Á
Blönduósi veröur leikið 7. nóv., aö
Reykjum í Hrútafirði 8. og yfirreiö-
inni lýkur aö Bifröst i Borgarfirði
þann 9.
Ekki hefur enn neitt veriö
ákveöiö meö tónleika á höfuö-
borgarsvæöinu, en þeir kunna aö
veröa auglýstir siöar.
Nema-hátíö
á Selfossi
SVONEFND Nema-hátið veröur
haldin í íþróttahúsinu á Selfossi
þann 7. nóvember nk. Koma þar
saman allir þeir hljóöfæraleikarar
og söngvarar, sem tekiö hafa upp
í hljóöverinu Nemi í Hraungerö-
ishreppi.
Rimlarokkiö var m.a. tekiö þar
upp svo og Bergmál Bergþóru
Arnadóttur, en auk þess hefur
fjöldi annarra komiö þar við sögu.
Ætti aö geta oröiö gaman á Sel-
fossi þetta kvöld.
Plata Sonus Futurae væntanleg á næstunni:
„Fórum út í þetta
mest fyrir forvitni“
SONUS Futurae heitir sú eina
núlifandi íslenskra hljómsveita,
sem lagt hefur fyrir sig tölvu-
popp/nýrómantík eöa hvaö menn
vilja kalla þá tónlist. Eftir um 3
vikur er fyrsta hljómplata þeirrar
sveitar væntanleg. Er þar um aö
ræöa sex lög á 12 tommu 45
snúninga plötu. Fjögur laganna
voru tekin upp á 24-rása tæki, en
tvö á 8-rása tæki. Þaö er Hljóöriti
sem gefur plötuna út og þessa
dagana er Jónas R. Jónsson
staddur í Hollywood (því eina
sanna) þar sem platan veröur
skorin.
Sonus Futurae er tæplega eins
árs gömul hljómsveit og skipuð
þremur ungum námsmönnum úr
Menntaskólanum í Reykjavík, þeim
Jóni Gústafssyni, sem leikur á seg-
ulband og syngur, Kristni Þóris-
syni, sem syngur og leikur á gítar
og Þorsteini Jónssyni, sem leikur á
hljómborö. Kristinn hefur lagt
stund á píanó- og gítarnám í 6 ár,
en Þorsteinn hefur setiö viö píanó
undir leiösögn kennara í heilan
áratug. Þeir kunna því vel til verka
þótt ungir séu aö árum, allir á aldr-
inum 18—19 ára.
Nafngiftin, Sonus Futurae, er
latnesk aö uppruna og útleggst á
íslensku „Hljómur framtíöarinnar".
E.t.v. ekki aö undra þótt þeir félag-
ar sæki nafniö í latínuna þar sem
tveir þeirra eru viö nám í máladeild
skólans. Reyndar komst sá orö-
rómur á kreik, aö Sonus Futurae
væri ættuö úr Hafnarfiröinum, en
þaö reyndist á misskilningi byggt.
Halldór Árni (sem eitt sinn var kall-
aöur Dóri feiti) úr Hafnarfiröi var
þeim innan handar þegar fyrstu
skrefin á framabrautinni voru stig-
in og töldu þeir félagar aö þannig
heföi Hafnarfjöröur blandast inn í
málin.
Járnsíöan ræddi lítillega viö
hljómsveitarmeðlimina í vikunni og
sögöu þeir aö tónlist þeirra mætti
e.t.v. líkja viö þaö sem hljómsveitir
á borö viö Depeche Mode og
Yazoo lékju og gæti fólk þá e.t.v.
gert sér í hugarlund hvaö væri hér
á feröinni.
Sonus Futurae kom fjórum sinn-
um fram í Óöali í vor og sumar og
hefur síöan gert víöreist um félags-
miöstöövar borgarinnar. Sögöu
strákarnir, aö fólk hefði tekiö þeim
vel, en margir veriö dálítið „skept-
ískir" í byrjun. Auövitaö heföi einn
og einn bent þeim á, aö trommu-
settið hefði gleymst heima og ann-
aö í þeim dúr, en gagnrýnisradd-
irnar hefðu aö mestu hljóönað er
þeir hófu leik sinn.
Lögin á plötu þeirra félaga eru
öll ný af nálinni utan eitt. Þaö er aö
sögn þeirra fjögurra ára gamalt,
frá þeim tíma er þeir félagarnir
voru pönkarar. Hefur því aö sögn
veriö breytt til samræmis viö nýrri
tónlistarstefnur. Á þeim árum
komu þeir félagar fram undir nöfn-
um eins og Gaulverjar og Ekkó, en
þóttu ekki betri en svo aö menn
buöust til aö borga þeim ef þeir
hættu aö spila.
„Tölvupoppiö kom þannig til
sögunnar, aö Þorsteinn keypti sér
hljómborö og fleiri græjur í þeim
dúr og viö keyptum okkur upp-
tökutæki," sögöu þeir. „Viö fórum
eiginlega út í þetta mest fyrir for-
vitni sakir og erum komnir þetta
|angt.“ _
Stjörnugjöf Járn- síðunnar í samantekt
SÍDAN stjörnugjöfin var tekin upp í plötudómúm Járnsíöunnar höfum viö einu
einni birt lista yfir allar þær plötur, sem teknar hafa veriö til umfjöllunar. Viö
birtum listann nú á nýjan leik og þá auövitað endurbættan. Cure/ PORNOGRAPHY ★ ★★
Kiss/ KILLERS ★ ★★
Dire Straits/ LOVE OVER GOLD ★ ★★★
Yazoo/ UPSTAIRS AT ERIC’S ★ ★★★
Imagination/ In THE HEAT OF THE NIGHT ★
Donna Summer/ DONNA SUMMER ★
Steve Miller Band / ABRACADABRA ★ ★
Ýmsir/ GLYMSKRATTINN ★
Crass/ CHRIST — the album rt
Nýja Kompaníið/ KVÖLDA TEKUR ★ ★★
Jonee Jonee/ SVONATORREK ★ ★★★
ABC/ LEXICON OF LOVE ★ ★
Trio/ TRIO ★ ★★★★
Fleetwood Mac/ MIRAGE ★ ★
Van Halen/ DRIVER DOWN ★ ★★★
Anti Nowhere League/ WE ARE THE LEAGUE ★ ★★★★
Box/ SKUGGAHLIÐIN ★ ★
Bergþóra Árnadóttir/ BERGMÁL ★ ★★
Purrkur Pillnikk/ NO TIME TO THINK ★ ★★★★
Santana/ SHANGO ★ ★★
Robert Plant/ PICTURES AT ELEVEN ★ ★★★
B.A. Robertson/ R & BA ★ ★★
Survivor/ EYE OF THE TIGER ★ ★★
Go GO’s/ VACATION ★ ★
Frida/ SOMETHING'S GOING ON ★ ★
Spliff/ 85555 ★ ★★★★
lí- 'SVN 'fsc
Þremenningarmr í Sonut Futurae
í móðurtölvuherbergi Moggans.
Morgunblaóið/KEE