Morgunblaðið - 14.11.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982
51
Nýjung í starfsemi Háskólabíós:
Sigrún Jónsdóttir
fyrst myndarlistarmanna
með sýningu
í GÆR var opnuð sýning á verkum
Sigrúnar Jónsdóttur í anddyri Há-
skólabíós í Reykjavík. Sigrún sýnir
þarna 30 verk, og með þessari sýn-
ingu hefst nýtt tímabil í sögu Há-
skólabíós, en hugmynd forráða-
manna þess er sú að gefa lista-
mönnum tækifæri á að kynna verk
sín í anddyrinu, að því er Friðbert
I’álsson framkvæmdastjóri Háskóla-
bíós sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins i gær. Sýning Sig-
rúnar, sem er sölusýning, verður
opin daglega frá klukkan 16 til 22,
og er aðgangur ókeypis.
Sigrún Jónsdóttir er fædd í Vík í
Mýrdal, þar sem hún ólst upp til
fermingaraldurs. Eftir nám hér
heima, meðal annars í Kvennaskól-
anum, Kennaraskóla íslands
(handav.deild) lá leiðin til Svíþjóðar,
þar stundaði hún nám í vefnaðarlist
við „Svenska slöjdföreningens-
skola“ í fimm ár. Á þessum árum fór
í anddyrinu
Sigrún námsferðir víða um Evrópu,
m.a. til Austurríkis, Frakklands, ít-
alíu og Spánar.
Árið 1956 fluttist hún heim til ís-
lands aftur. Síðastliðin 26 ár hefur
Sigrún unnið verk, aðallcga hökla
fyrir um 80 kirkjur bæði hér innan-
lands og erlendis. Höklarnir hafa
verið handofnir í íslenskri u11 og út-
saumaðir. Má t.d. nefna hátíöar-
hökla fyrir Skálholtskirkju, Akureyr-
arkirkju, Siglufjarðarkirkju, Eski-
fjarðarkirkju, Borgarneskirkju og
Hallgrímskirkju. Hún hefur einnig
gert fjölmargar skreytingar fyrir aðr-
ar opinberar byggingar svo og heim-
ili bæði innanlands og utan.
Sigrún Jónsdóttir hefur haldið
margar sýningar á verkum sínum
bæði vestan hafs og austan. Fyrir
þátttöku í sýningu á vegum
IINESCO í Monaco árið 1973 hlaut
hún heiðursviðurkenninm.
Ljósm.: Kristján 0. Elíasson.
Friðbert Pálsson framkvæmdastjóri Háskólabíós og Sigrún Jónsdóttir
við eitt verka Sigrúnar á sýningunni í anddyri Háskólabíós.
Akranes:
Lionessur
opna mál-
verkasýningu
SÚ MISRITUN varð í blaðinu sl.
föstudag, þegar sagt var frá sýn-
ingu á málverkum Kristjáns Hall
á Akranesi, að sagt var að
Lionsklúbbur Akraness opnaði
sýninguna. Það er ekki rétt, því
um er að raeða Lionessuklúbb
Akraness. Aðeins tveir slíkir
klúbbar munu vera á landinu, en
sá þriðji verður stofnaður í Kefla-
vík á næstunni. Július
Vitni vantar
ÁREKSTUR varð um klukkan
18.10, sl. þriðjudag á Nýbýlavegi í
Kópavogi. Áreksturinn varð á
móts við hús númer 76. Þar rákust
saman fólksbílar af gerðunum
Ford Mercury og Lada. Lögreglan
í Kópavogi óskar eftir því við þá
sem kynnu að hafa verið vitni að
fyrrgreindum atburði, að gefa sig
fram.
Hitaveita Rang-
æinga í gagniö
fyrir mánaðamót
HITAVEITA Rangæinga verður að
öllum líkindum tekin í gagnið laust
fyrir næstu mánaðamót og þá á
Hellu og Hvolsvelli, samkvæmt upp-
lýsingum sem Mbl. fékk hjá Jóni
Þorgilssyni sveitarstjóra á Hellu.
Jón sagði að vinnu við aðveitu-
æð væri lokið og við dreifikerfi á
Hellu og Hvolsvelli. Þá væri verið
að setja upp dælubúnað og annan
nauðsynlegan búnað á Laugalandi.
Gerð skýlis og miðlunargeymis
sagði Jón lokið, en líkur væru á að
vinnunni á Laugalandi lyki fyrir
mánaðamót og þá gæti vatnið far-
ið að renna.
Jón gat þess að hingað til hefðu
allar áætlanir við verkið staðist og
vonast væri til að lokaáætlanir
stæðust einnig.
NÝKOMNIR
og ganga óöfluga út enda
bestu fáanlegu
RAFGEYMARNIR
í öll hugsanleg taeki.
"ZZt'rP'* ’i
HEKLAHF
CaterpiNar, Cot, og CB eru skrósett vorumerki
Laugavegi 170-172, — Sími 21240