Morgunblaðið - 14.11.1982, Síða 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982
Morgunhræðslan við hvítu arkirnar
Ritvallarstarfsmenn rákust nýlega
á grein eftir hinn nýbakaða Nóbels-
verðlaunahöfund Gabriel Garcia
Marquez i Politiken. f greininni
fjallar hann um m.a. Hemingway
heitinn, sem einnig var Nóbelsskáld,
og þar koma fram ýmsar hugmyndir
Marquez um eðli skáldskapar, sem
hljóta að teljast forvitnilegar. Hér
fara á eftir brot úr greininni um-
ræddu:
„I kenningum Hemingways fólst
meðal annars sú skoðun að höf-
undur megi ekki ljúka störfum við
eitthvað að kveldi, án þess að vita
hvað hann ætli að gera morguninn
eftir. Þetta er hvorki meira né
minna en öruggt læknisráð gegn
versta óvini rithöfundarins, morg-
unhræðslunni við hvítu arkirn-
ar...“
„Eg man ekki hver það var sem
sagði, að við skáldsagnahöfundar
læsum aðeins sögur annarra en
okkar sjálfra til þess að kanna
hvernig þær væru skrifaðar. Ég
held að þetta sé rétt. Við látum
okkur ekki nægja þá leyndardóma
sem opinberaðir eru á blaðsíðun-
um, heldur flettum fram og aftur
tii að komast að því hvernig hlut-
irnir eru settir saman. Á einhvern
hátt, sem erfitt er að útskýra,
leysum við slíka bók upp í frum-
Gabriel Garcia Marquez
Ernest Hemingway
Umsjón:
Sveinbjörn I. Baldvinsson
parta sína og röðum þeim svo
saman á ný, þegar við höfum aflað
okkur vitneskju um hið dularfulla
sigurverk sögunnar ...“
„Þegar tekst að leysa svona upp
blaðsíðu í bók eftir William
Faulkner, hefur maður á tilfinn-
ingunni að skrúfur og fjaðrir liggi
dreifðar um allt og ómögulegt sé
að koma öllu í samt lag á ný. En
þessu er öðruvísi farið hjá Hem-
ingway. Hann hikar ekki við að
láta skrúfurnar sjást greinilega á
framhlið skáldverksins, líkt og á
járnbrautarvögnum. Hjá honum
er minni ástríða á ferðinni, minni
andagift og minna brjálæði en hjá
Faulkner...“
„I hinu sögulega viðtali sem
George Plimpton átti við Hem-
ingway fyrir Paris Review lýsti
hann því yfir í eitt skipti fyrir öll,
andstætt hinni rómantísku hug-
mynd um það að skrifa, að fjár-
hagslegt sjálfstæði og góð heilsa
væru skilyrði fyrir ritun bóka, að
einna mestur vandinn væri að
raða orðunum rétt, að það væri
gott að endurlesa bækur sínar ef
illa gengi með það sem verið væri
að vinna að, að það væri hægt að
skrifa hvar sem er þar sem ekki er
hætta á heimsóknum og símhring-
ingum í tíma og ótíma og að það
væri ekki rétt að blaðamennska
gengi af rithöfundi andlega dauð-
um eins og oft er haldið fram. Það
sem venjulega gerðist væri ná-
kvæmlega andstæðan, svo fremi
að menn væri ekki í blaðamennsku
allt of lengi ...“
Metsölubækur
ÞESSI listi yfir mest seldu skáldverkin í Bandaríkjunum birtist í
vikuritinu Time 1. nóvember sl. Hann er byggður á upplýsingum frá
rúmlega eitt þúsund bókaverslunum þar í landi. Tölurnar í svigum
tákna stööuna næstu viku á undan.
1. Space (Michener) (1)
2. Master of the Game (Sheldon) (2)
3. The Valley of Horses (Auel) (3)
4. Foundation’s Edge (Asimov) (7)
5. E.T. The E.T. Storybook (Kotzwinkle) (4)
6. Crossings (Steel) (5)
7. Different Seasons ( King) (6)
8. Spellbinder (Robbins) (8)
9. Lace (Conran) (9)
10. Life, the Universe and Everything (Adams) (—)
Voðaskot út um glugga
KURT Vonnegut hefur bætt nýrri
skáldsögu í hóp verka sinna. Þessi
tíunda skáldsaga hans heitir „Dead
Eye Dick“ og er aö formi til frásögn
fimmtugs lyfjafræðings, leikrita-
skálds og leiöindaskjóðu um eigið líf.
Sá heitir Rudy Waltz. Þegar Rudy var
tólf ára skaut hann af riffli út um
herbergisgluggann sinn og varð
ófrískri konu að bana, sem var á
gangi i mikilli fjarlægð. Þetta gerðist
á ma“ðradaginn. Bókarheitið er sótt i
þessa skotfimi Rudys.
Rudy er óreyndur í kynferðis-
málum þrátt fyrir hálfrar aldar til-
veru og lítur til baka yfir farinn
veg, sem hefur verið nokkuð grýtt-
ur. Faðir hans, sem hafði vingast
við Hitler á skólaárum í Vínarborg,
deyr í mannskaðaveðri og móðirin
deyr af æxli sem á rætur að rekja
Kurt Vonnegut
til geislavirkrar arinhillu á heimili
hennar. Neftrónusprengja springur
fyrir slysni í heimabæ Rudys og
íbúarnir falla unnvörpum, en bygg-
ingarnar standa óskemmdar eftir.
I formála segir Vonnegut að í
bókinni sé að finna einskis metna
menningarmiðstöð, sem sé höfuð
hans sjálf. Kynlausi lyfjafræðing-
urinn sé dvínandi kyntilvera hans
sjálfs og voðaskotið sé það slæma
sem hann hafi sjálfur gert.
Þessi nýja bók Vonneguts er 240
hls. að stærð. En af eldri verkum
hans eru sennilega þekktastar
skáldsögurnar „Slaughterhouse-
Five“, „Cat’s Cradle" og „Breakfast
of Champions", auk leikritsins
„Happy Birthday Wanda June“.
— ByggtáTIME
Rætur íslenzkrar
menningar
eftir Einar Pálsson
Ritiö Baksviö Njálu hefur veriö endurprentað. Er nú unnt aö fá allar sex bækur
ritsafnsins á skrifstofu Mímis. Útgáfan er mjög vönduö, fjöldi mynda skreytir
bækurnar, atriöa- og nafnaskrá fylgja. Skrifstofa Mímis veröur opin kl. 1—5
daglega til 10. desember.
Mímír, Brautarholti 4, sími 10004.
Bladbuiðarfólk
óskast!
Austurbær
Hverfisgata 63—120
Freyjugata 28—49
Uthverfi
Klapparás
Gnoöarvogur 44—88
Hjallavegur
Heiðargerði 2—124
ColourcÁrt yhcto
Kæru viöskiptavinir!
Vegna mikils annríkis biöjum viö ykkur um aö
leggja inn eftirpantanir á stofumyndum okkar
sem afgreiöast eiga fyrir jól sem fyrst.
Meö því er hægt aö foröast tafir og veita bestu mögulega þjónustu.
| UOSMYN DAÞ JÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEGM78 REYKJAVÍK SIMI85811