Morgunblaðið - 14.11.1982, Side 5

Morgunblaðið - 14.11.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 53 Söguleg skáldsaga DANSKI rithörundurinn Vagn Steen hefur sent frá sér nýja skáldsögu. Sagan nefnist „Mer end meget“ og er 176 bladsíður að stærð. Sögusviðið er héraðið Djursland á austurströnd Jótlands árið 1856, eða skömmu eftir setningu stjórnarskrárinnar, sem markaði skýr spor í lýðræðisátt í land- Vagn Steen JOHN Fowles, höfundur sögunnar „The French Lieutenants Woman“, sem náði miklum vinsældum og hefur verið kvikmynduð með Meryl Streep og Jeremy Irons í aðalhlutverkum, hefur nú sent frá sér nýja skáldsögu. Ber hún heitið „Mantissa" og er John Fowles inu. Þetta er ekki átakalaust tímabil, borgararnir hræðast þegar almúginn tekur að notfæra sér hið nýfengna frelsi og það kemst mikið rót á trú- málin, en vald ríkiskirkjunnar er sterkt. í þessari nýju sögu lýsir Vagn Steen lífinu og fólkinu í þessu hér- aði mánuð fyrir mánuð, lífi sem á sér stað fjarri þeim stað þar sem stóratburðir gerast á, þar sem vald- ið er. Sagan er sett saman úr brot- um af ýmsum gerðum, sumum sögulegum og raunsönnum, en öðr- um sem eru nánast litlar skáldsög- ur, hvert um sig. Það sem sagan lýsir, er hvernig trúarleg vakning í héraðinu verður ógnun við ríkiskirkjuna, hvernig fókið hefur ekki mátt til að fram- kvæma þá byltingu sem um sinn virðist vera að verða að veruleika. Og í lokin er ljóst að allur mót- þróinn er um það bil að sigla leti- lega inn um hafnarmynni hins hefðbundna og viðtekna samfélags á ný. fremur stutt, eða innan við 200 blað- síður að stærð. Orðið „Mantissa" ku vera notað yfir fremur tilgangs- og marklitla viðbót við texta eða orðræðu, en er ekki kvenmannsnafn, eins og marg- ur gæti haldið. Þessi saga segir frá rithöfundinum Miles Green og sam- skiptum hans við skáldgyðjuna og fleiri aðila. Miles þessi rankar við sér í bólstruðum klefa á geðsjúkra- húsi og þjáist af minnisleysi, man til dæmis ekkert eftir eiginkonu sinni, henni til sárra leiðinda og ar- mæðu. Læknirinn, Dr. A. Delfie, ráðleggur ástúðlega meðferð og fær áhugasama hjúkrunarkonu til verksins. Gyðja ástarljóða og skáldskapar, Erato, birtist á sjón- arsviðinu klædd sem pönkari og er reið höfundinum fyrir að hafa plantað sér í þessa sögu og skorar á hann að stytta henni aldur á fimm línum til að lina þjáningar hennar. Þannig gengur sagan út á sam- skipti höfundarins og sögupersón- anna. — Byggt á Newsweek. Mótorpúðar Margar geröir. 54315 Vélaverslun Hvaleyrarbraut 3 Hafnarfirði. Fróóleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! Samskipti við skáldgyðjuna Pitmans-prófin gilda alls staöar í Evrópu og Ameríku. Tvö próf veröa haldin í vetur, 2. febrúar (English as a Foreign Langu- age) og 30. marz (English for Business Communi- cations). Verzlunarenska, ensk bréfritun. Þrír tímar á morgni fjóra daga vikunnar (auk vélritunar, ef óskaö er). Nokkur pláss laus. Sérstakt tækifæri fyrir þá sem vilja æfa sig í enskum bréfaskriftum fyrir vinnumark- aðinn. Upplýsingar í Einkaritaraskólanum, sími 10004 (kl. 1—5 e.h.). Mímir, Brautarholti 4 Kanaríeyjar á þríðjudöggm gegnum heimsborgina Amstendam Kanaríeyjar með viðkomu í Amsterdam. Sláiö tvær flugur í einu höggi; njótið sólarinnar á Kanaríeyjum og kynnist stórborgarlífi, menningar- og listaborginni Amsterdam. Brottför alla þriðjudaga. Verð: Smáhýsi. 4 pers: 11 dagar/ 11.647, 18 dagar/12.907, 25 dagar/12.989. íbúðir 3 pers. 11 dagar/11.750, 18 dagar/12.507, 25 dagar/ 13.299. Hótel m/fæði, tveir í herb.: 11 dagar/12.989, 18 dagar/14.847, 25 dagar/16.534. Sérhæfð þjónusta — vingjarnleg þjónusta. FERÐAMIÐSTÖÐIIM AÐALS7RÆTI9 SIMI28133 11255

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.