Morgunblaðið - 14.11.1982, Síða 10
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982
Ýmsir töldu að meint bandalag
Paganinis við kölska væri eina
skýringin á því, að þótt hann væri
oft að dauða kominn gat hann
safnað í sig gífurlegum kröftum,
sem hann varð að hafa til að vinna
þau tæknilegu snilldarafrek sem
hann varð frægur fyrir.
Það var talið eina skýringin á
því að hann gat leikið á eins háum
nótum og eins hratt og raun bar
vitni, hlaupið með eins ótrúlegri
leikni upp og niður tónstigann,
leikið með eins mörgum og ótrú-
Iegum blæbrigðum, allt án þess að
missa nokkurn tíma tökin á leik
sínum, og skipt svo allt í einu yfir
í svo ljúft og upphafið lag, að engu
var líkara en hann hefði fangað
sálu hjákonunnar sem hann rak
frá sér.
Var þetta ekki eina skýringin á
því hvernig þessi holdskarpi,
kinnfiskasogni og náföli maður
með tryllt augnaráðið; hann sem
var eins og lík í framan, þessi
klunnalegi náungi í afkáralega
lafafrakkanum sem náði niður á
ökkla, reyndist ómótstæðilegur í
augum allra kvenna sem hann
felldi hug til? Varla gat verið til
önnur skýring en sú að kölski
hefði gert hann töframeistara
sinn.
Átrúnaðargoð
í Vínarborg gæddu aðdáendur
Paganinis sér á marzipan eða
rjómaís sem voru eftirlíkingar af
átrúnaðargoði þeirra og klæddust
höttum, hálsbindum og skóm sem
hétu í höfuðið á honum. í Lundún-
um elti múgurinn hann og reyndi
að snerta hann til að athuga hvort
hann væri af holdi og blóði. Kon-
ungur Englands færði „konungi
fiðlaranna“ demantshring að gjöf.
Austurríkiskeisari sæmdi hann
heiðurstitli og borgarstjórnin í
Vín heiðraði hann.
í Dyflinni komust áheyrendur í
svo mikla leiðslu þegar þeir
hlýddu á konzert hans í B-moll,
„La Campanella", með kaflanum
„Rondo de la Clochette" („Litlu
bjöllunni") að maður í salnum
hrópaði: „Húrra, Signor Paganini,
fáðu þér viskísjúss og hringdu
bjöllunni aftur!"
Paganini hafði lagt langa leið að
baki síðan hann fæddist í fátækt í
Genúa 27. október 1782. Faðir
hans, sem rak litla verzlun, var
staðráðinn í að hagnast á undra-
verðum hæfileikum sonar síns og
Paganinis sem var talinn hafa selt kölska sálu sína
Þegar Nicolo
Paganini, sem
fæddist fyrir 200
árum, var fimm
ára segir móðir
hans að engill
hafi birzt henni
og boðizt til að
veita henni allt
sem hún óskaði.
Hún bað um að
yngri sonur sinn
yrði mesti fiðlu-
snillingur heims-
ins og ósk hennar
rættist eins og í
öllum góðum
ævintýrum. En
snilld hans var
svo furðuleg og
ævintýraleg að
þegar hann stóð á
hátindi frægðar
sinnar sagði fólk
að hann hefði selt sál sína kölska.
Furðusögur um tækniafrek hans
gerðu hann að þjóðsagnapersónu í lif-
anda lífi og margir héldu að hann væri
gæddur yfirnáttúrulegum hæfileikum.
meðferðis í tónleikaferðum sínum,
dreifði þeim fyrir hverja tónleika
og hirti þær að þeim loknum.
Margar hjónabandstilraunir
hans fóru allar út um þúfur.
Frægt var þegar hann hljópst á
brott, fimmtugur að aldri, með
Charlotte Watson, 16 ára. Hún var
upprennandi sópransöngkona og
dóttir mannsins sem skipulagði
tónleikahald hans í Englandi.
Paganini var mjög hændur að
syni sínum, Achille, sem hann átti
með fyrri ástkonu sinni, Antoniu
Bianchi, og honum tókst að lokum
að gera hann að lögmætum erf-
ingja sínum. Hann fékk 80.000
pund í arf eftir hann, sem var
mikið fé í þá daga.
Ein vinsælasta þjóðsagan um
hann var á þá leið, að hann hefði
fullkomnað tækni sína og ótrúlega
leikni á árum langrar fangelsis-
vistar, sem hann hefði verið
dæmdur í vegna ástarævintýris. I
þessu leyndist sannleikskorn:
hann hafði einu sinni verið settur
í fangelsi í nokkra klukkutíma í
heimaborg sinni, gefið að sök að
hafa dregið skraddaradóttur á tál-
ar og neitað að kvænast henni.
Ævi hans lauk eins og harm-
rænum skopleik þegar hann var 58
ára að aldri. Vinir hans í París
fengu hann til að samþykkja að
nýtt spilavíti yrði skírt „Casino
Paganini" eftir honum. Yfirvöld
lokuðu hins vegar spilavítinu og
hótuðu að lýsa hann gjaldþrota og
leggja hald á ómetanlegt safn
hans af strengjahljóðfærum.
Allt þetta mál olli Paganini
miklu hugarangri og það lagðist
þungt á hann. Hann missti rödd-
ina þegar hann veiktist af ókenni-
legum hálssjúkdómi, sem dró
hann til dauða. Síðustu klukku-
stundirnar sem hann lifði lék
hann með miklum tilþrifum á
Guarneriusar-fiðlu sína. Hann
arfleiddi heimaborg sína, Genúa,
að fiðlunni, sem hefur verið varð-
veitt þar síðan á safni sem ómet-
anlegur, sögulegur dýrgripur.
Paganini tapaði 50.000 pundum
á þessum ráðagerðum. Þótt hann
væri geysivel launaður var hann
ekki rausnarlegur. Þó átti hann
það til. Hann gaf Berlioz 4.000 dali
í viðurkenningarskyni fyrir
„Symphonie Fantastique". Berlioz
hafði samið „Harald á Ítalíu" fyrir
Stradivariusar-víólu Paganinis.
Líkið falið
Þegar Paganini lézt í Nizza
(Nice), 27. maí 1840, vildi erkibisk-
upinn ekki leyfa að hann fengi að
hvíla í vígðri mold þar sem honum
hafði láðst að skrá hinztu játningu
sína. Smurt lík hans var falið í
fimm ár unz páfinn gaf honum
upp sakir og tók hann í sátt. Hann
var lagður til hinztu hvíldar í
kirkjugarði í þorpi á landareign
hans á Ítalíu og á minnisvarða
hans stendur: „Nicolo Paganini,
sem laðaði fram guðlega tónlist
með fiðlunni."
Þjóðsagan um snillinginn fjöl-
kunnuga og djöfulóða, eins og
menn hafa kallað hann, lifir enn.
Paganini er söguhetjan í óperettu
eftir Franz Lehar. Hann kom við
sögu í útþynntri kvikmyndaútgáfu
á ástarævintýrum hans, þar sem
Stewart Granger var í aðalhlut-
verki („The Magic Bow“, 1946).
Hann kom einnig við sögu í
kvikmyndinni „Rhythm on the
Range (1936) þar sem Martha
neyddi hann til að æfa frá morgni
til kvölds og gaf honum ekki að
borða ef hann sló slöku-við. '
Hann kenndi honum á mandólin
og Paganini hafði alla ævi mikinn
áhuga á strengjahljóðfærum
(hann var ekki síður snjall á gítar
en fiðlu). Faðir hans sendi hann til
hæfra kennara (Servetto, Dosta,
Ghiretti og Alessandro Rollo í
Parma) og átta ára gamall samdi
hann fiðlusónötu. Níu ára gamall
lék hann í fyrsta skipti opinber-
lega, við geysigóðar undirtektir.
Hann var sjálfstæður og þrjózk-
ur og þoldi illa strangan aga föður
síns. Þegar hann var 18 ára tókst
honum að flýja til Lucca, þar sem
hann hreifst seinna af systur Nap-
oleons, Elisu Bacciocchi prinsessu.
Hann samdi fantasíu, sem átti að
lýsa leynilegri ást þeirra, fyrir að-
eins tvo strengi. Síðan bætti hann
um betur með „Napoleons-sónöt-
unni“ fyrir einn G-streng, sem
hann samdi á fæðingardegi keis-
arans og til heiðurs keisaranum.
Hann hlaut gífurlegar vinsældir
fyrir leik sinn á G-strenginn og
lék á hann við geysimikla hrifn-
ingu um alla Ítalíu.
Fljótlega varð Paganini al-
ræmdur fyrir furðulega hæfileika
sína og óreglusamt líferni. Aðeins
15 ára gamall var hann orðinn for-
fallinn fjárhættuspilari og sjúk-
lega svallsamur. Aður en hann
varð 18 ára hafði hann meira að
segja veðsett fiðlu sína fyrir spila-
skuldum (seinna var honum gefin
Guarneriusar-fiðla frá 1742 sem
enn er varðveitt).
Hjá honum skiptust á langar
stundir við spilaborðið og strang-
ar æfingar í einrúmi, allt að tiu
tíma á dag, og afleiðingin varð sú
að hann missti heilsuna. Hann
gegndi opinberri stöðu í þrjú ár,
en sagði henni lausri 1805 og eftir
það ferðaðist hann eirðarlaus um
alla Evrópu, að heita má til
dauðadags.
Allan þennan tíma þróaði Pag-
anini fiðlutæknina af mikilli
seiglu og list og hann varð vellauð-
ugur. Um hann spunnust fjöl-
margar þjóðsögur, hann lenti í
ítalski fiðluleikarinn Salvatore Acc-
ardo með fiölu Paganinis.
mörgum ástarævintýrum og sí-
fellt kom hann áheyrendum á
óvart með framúrskarandi tækni
og hugkvæmni.
Draugslegur
Tækni hans var svo fullkomin
að mönnum þótti ekki einleikið að
venjulegur maður gæti leikið
svona vel á fiðlu og hann olli hjá-
trúarkenndum ótta meðal áheyr-
enda með göldrum sínum. Draugs-
legt útlit mannsins magnaði þenn-
an ótta og þjóðsögur sköpuðust.
Stundum hafði hann brögð í
frammi í leik sínum, þótt þess
þyrfti ekki, og sum þau áhrif, sem
hann laðaði fram með fiðlunni,
áttu rætur að rekja til þess hvern-
ig hann stillti hljóðfærið (með
stillingum sem kallast scoradatur-
es). En enginn stóð honum á
sporði — keppinautar hans kom-
ust ekki með tærnar þar sem hann
hafði hælana.
Hann gætti þess vandlega að
varðveita leyndarmál seiðmagn-
aðrar fjölkynngi sinnar. Aðeins
örfá verk eftir hann voru birt um
hans daga. Hann hafði hljóm-
sveitarútsetningar konzerta sinna
á afmæli tónskáldsins.
leikni fiðluleikara.
Bandaríski fiðluleikarinn Ruggiero Ricci, sem
lék capricur Paganinis í breska sjónvarpinu
Carpricurnar eru taldar einn helsti prófsteinn á