Morgunblaðið - 14.11.1982, Síða 14

Morgunblaðið - 14.11.1982, Síða 14
02 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 SVIPMYND A SUNNUDE GI Manuel Fraga Iribarne, leiötogi flokks hægri manna á Spáni, sem gengur undir nafninu .Al- þýöubandalagiö" (Alianza Popul- ar, AP), gat veriö næstum því eins ánægöur meö úrslit þing- kosninganna á dögunum og jafn- aöarmenn, þótt þeir sigruöu. Flokkur Fraga stórjók fylgi sitt í kosningunum og hefur nú 106 þingsæti af 350, en hlaut aöeins níu þingsæti kosningunum 1979. Slik fylgisaukning er einstætt af- rek. Alls fékk flokkurinn 4,5 millj. nýrra stuöningsmanna og er nú annar stærsti stjórnmálaflokkur- inn á Spáni. Fraga veröur leiötogi stjórnar- andstöóunnar og mun reyna aö hamla gegn nýmælum þeim, sem jafnaðarmenn beita sér fyrir, en viröa um leiö lýöræöisskipulagiö er geröi jafnaðarmönnum kleift að komast til valda. Hann treystir þvi aö stjórn jafnaöarmanna muni leióa til efnahagslegs hruns. Von hans er sú, aö jafnaó- armenn valdi þjóóinni vonbrigð- um, aö AP sigri í næstu þing- kosningum og hann veröi næsti forsætisráöherra Spánar. Hann veröur 63 ára gamall þegar næstu kosningar fara fram, en þaö veldur honum ekki áhyggjum. Eins og hann sagói í viötali í kosningabaráttunni: „Ég verö samt yngri en Churchill var 1945 og hann komst aftur til valda og varö merkur forsætis- ráðherra." Fraga þykir stjórnlyndur, en hann er enginn fasisti þótt hann væri upplýsinga- og feröamála- ráöherra Francos á árunum 1962 til 1969. Hann heldur því fram, aö francoisminn sé óafmáanlegur kafli í sögu Spánar og fáir geta víst boriö á móti því. Andstæö- ingar hans segja, aö hann sé lýö- ræöissinni í aöra röndina, en aö hinu leytinu hlynntur einhvers konar stjórnlyndisstefnu. Sjálfur kallar hann sig „frjálslyndan íhaldsmann". Sendiherra Hann var sendiherra í Lundún- um 1973 til 1975 og hefur látiö í Ijós mikla aódáun á brezkum þingræöisstofnunum. Hann líkir sér viö brezkan íhaldsleiötoga, þótt sú samlíking sé hæpin vegna ólíkra aöstæöna í Bret- landi og á Spáni. En hann er ein- dregið fylgjandi svokölluöu tveggja flokka kerfi, eöa eins og hann sagöi í kosningabaráttunni: „Auóvitaö vil ég sigra í kosning- unum, en ég hef jafnvel enn meiri áhuga á þvi aó tveggja flokka kerfi veröi komiö á fót hér á Spáni eins og í Bretlandi.“ Hon- um varö aö ósk sinni. Fraga er frá héraöinu Galizíu á Noröur-Spáni og flokkur hans stendur óviöa eins vel aö vígi og þar. Hann þreytist aldrei aö segja frá því aö hann sé af fátæku fólki kominn. Hann er fæddur í þorp- inu Villalba í sveitinni Lugo og foreldrar hans fluttust til Kúbu þegar hann var ungur aö árum. Aö loknu háskólanámi varö hann prófessor í stjórnvísindum og lögum í Valencia. Hann starfaöi lengi í utanríkisþjónustunni áöur enhann hóf afskipti af stjórnmál- um. Fyrir tólf árum reistu ibúar Vill- alba honum minnismerki í litlum almenningsgaröi gegnt húsinu þar sem hann fæddist, enda er þorpið frægt fyrir þaö eitt aö Fraga er fæddur þar. Minnis- merkiö var reist löngu áöur en flokkur hans var stofnaöur, en hann varö til 1976 viö samruna ólikra hópa, sem voru undir for- ystu manna er höföu gegnt áber- andi stöðu á Franco-tímanum. Flokknum hefur vegnaó mis- jafnlega vel. Hann varö fyrir áföll- um í byrjun, þvi aö hann fékk slæma útreiö í þingkosningunum 1977 og 1979. Síöan í kosning- unum 1979 hefur flokkurinn hins vegar sótt í sig veóriö og hann náói góöum árangri í fylkisþing- kosningunum í Galizíu og Andal- úsíu. i Galizíu hlaut flokkurinn 31% atkvæða og 26 sæti af 71 á fylkisþinginu í október í fyrra og hefur síöan fariö meö stjórn fylk- isins. I Andalúsíu hlaut flokkurinn 17% atkvæða í maí sl. „Boli“ Fraga þykir mjög hæfur maö- ur, en um hann hefur veriö sagt, aö honum hætti til aó láta tilfinn- ingarnar hlaupa meö sig i gönur. Hann er baráttuglaöur og þróttmikill og stundum hefur honum veriö líkt viö bola. Honum hefur einnig veriö líkt viö vestur- þýzka stjórnmálaleiötogann Franz-Josef Strauss, þykir minna á hann og er sagður eins óút- reiknanlegur og hann, hvaö sem hæft er í því. Athygli vakti í kosningabarátt- unni, aö fundir Fraga voru mjög fjölsóttir og aö hann höföaöi mjög til ungs fólks, ekki síður en eldri kynslóöarinnar. Öll umferð stöövaöist hvert sem hann fór. Hann virtist hafa gaman af þessu og eiga auövelt meö aö umgang- ast fólk, heilsaöi jafnan mann- fjöldanum, dreiföi sælgæti meðal barnanna og gaf fulloröna fólkinu eiginhandaráritanir. Viöeigandi var að kosninga- baráttu Fraga lauk í Galizíu, þar sem stuöningsmenn hans hylltu hann ákaft þegar hann hvatti þá lögeggjan á tungu Galizíumanna meö oröunum „látum Galizíu veröa í fararbroddi viöreisnar á Spáni". Fraga lagöi á þaö mikla áherzlu í baráttunni fyrir þing- kosningarnar aö þær væru bar- átta milli sósíalista og íhalds- manna, milli vinstri manna, sem vildu koma á sósíalisma, og hægri manna, sem vildu umbæt- ur en aðhald. Vígorö AP var: „Þaö er kominn tími til aö leysa málin.“ Flokkurinn hét því aö binda enda á hryöjuverkastarf- semi. Einnig hét flokkurinn því m.a. aö beita sér fyrir skatta- lækkunum og auknu frelsi fyrir- tækja, lýsti yfir stuöningi viö her- inn og hvatti til þess aö haröar yröi gengiö fram í því aö halda uppi lögum og reglum. Til hægri Fraga viröist hafa færzt til hægri í kosningabaráttunni og þess varö vart aö afstaöa stuön- ingsmanna hans harönaöi þegar á hana leiö. Athugun, sem var geró, virtist leiöa í Ijós, að af- staöa jafnaöarmanna breyttist lítiö i kosningabaráttunni, en mikil fækkun varö á þeim stuön- ingsmönnum AP, sem töldu í upphafi kosningabaráttunnar aó mikilvægasta takmark flokksins væri aö tryggja réttlátara þjóö- félag, og mikil fjölgun á þeim stuöningsmönnum flokksins, sem töldu mestu varöa að halda uppi lögum og reglu. Þá var á þaö bent, aö einn allra flokka, aö flokki fasista und- anskildum, auglýsti AP í blaöinu El Alcazar, málpípu hægriöfga- manna. Því var haldiö fram, aö menn úr flokki fasista, Fuerza Nueva, heföu laumazt til áhrifa í AP og þótt Fraga fagnaöi þeim ekki beinlínis var þeim ekki vísaö á bug. Leiötogi Fuerza Nueva, Blas Pinard, missti eina þingsæt- iö sem flokkurinn haföi á fyrra þingi í kosningunum. Einn helzti aðstoöarmaöur Fraga, Fernando Suarez (sem er óskyldur hinum fyrrverandi for- sætisráöherra miöjumanna), hef- ur sagt: „Vió erum ósveigjanlegir i afstöóu okkar til allra þeirra sem reyna aö gera byltingu." Þótt þetta viröist afdráttarlaus stefna, hafa þessi ummæli veriö gagnrýnd á þeirri forsendu aö ósveigjanleiki komi aöeins aö gagni þegar upp hafi komizt um byltingartilraun og AP hafi ekki tekið nógu skýra afstööu til þess hvaó flokkurinn muni gera til aö binda enda á samsæri þau sem hafa veriö brugguð í heraflanum á undanförnum mánuöum. Á þaö er bent aö samkvæmt stefnuskrá flokksins sé eitt af markmióum hans aö „rækta var- anleg verömæti þjóöarinnar og dyggöir hennar, en heraflinn sé fremsti fulltrúi þeirra". Þaö sé einmitt vegna þess aö sumum foringjum í hernum finnist þeir standa vöró um þjóöarsálina, aö þeim finnist þaö skylda sin aö bjarga Spáni frá Spánverjum. Ummælí Fraga var í hópi þeirra stjórn- málaleiötoga sem gengu fylktu liöi um götur Madrid eftir bylt- ingartilraunina í fyrra til aö leggja áherzlu á stuöning sinn viö lýö- ræöi á Spáni. Á sama hátt og aörir spánskir stjórnmálaleiötog- ar hefur Fraga einnig gagnrýnt siöustu byltingartilraunina í haust. En seinna virtist hann draga nokkuö í land þegar hann sagói á þingi: „Ég fordæmi þá, en ég skil þá líka.“ Leiðtogar ann- arra flokka flýttu sér aö gagnrýna hann fyrir þessi ummæli. I kosningabaráttunni tilkynnti Fraga aö hann mundi aftur koma á dauöarefsingu ef hann kæmist til valda. Þegar hann var beðinn um nánari útskýringar, gaf hann ekki afdráttarlaus svör við því hvort dauóarefsingin ætti aö ná til þátttakendanna í byltingartil- rauninni í fyrra. Seinna sagöi hann, aö hann vildi aö dauöa- refsingin næöi bæöi til hryöju- verkamanna og uppreisnar- manna í hernum. Nokkrum dög- um síöar sagöi hann aö þaö sem hann heföi haft í huga væri mál undirforingja, sem myrti yfir- mann sinn. Þessi og fleiri ummæli Fraga væru talin stafa af kæruleysi undir venjulegum kringumstæö- um og ekki er alltaf aö marka þaö sem stjórnmálamenn segja í hita baráttunnar. En ummælin voru óheppileg á sama tíma og uppi var orörómur um enn eitt samsæri og altalaö var aö hern- um óaöi viö horfunum á því aö sósíalistar kæmust til valda. Þótt Fraga hafi heitið því aö AP veröi lýöræöinu trúr í stjórnarand- stööu, óttast ýmsir aö sá litli min- nihluti foringja í hernum, sem vill skipta sér af stjórnmálum, kom- ist á þá skoöun, þótt sú skoöun væri röng, aö ef þeir hrifsuðu völdin í sínar hendur, gætu þeir treyst á nokkurt umburöarlyndi hjá öörum stærsta stjórnmála- flokki landsins. Segja má, aö spænska þjóöin hafi skipzt í tvær öndveröar fylk- ingar i kosningunum, fylkingar jafnaöarmanna og hægri manna. Ýmsir óttast, og í þeim hópi er Adolfo Suarez, fyrrverandi for- sætisráöherra, aö slík skipting geti oröió þjóöinni hættuleg. Hættan felist ekki í tveggja flokka kerfi sem slíku, heldur í eðli þeirra flokka, sem hlut eiga aö máli í Ijósi borgarastyrjaldar- innar fyrir tæpri hálfri öld. Leiötogar AP telja þetta frá- leitt og Fernando Suarez segir, aö því sé ekki til aö dreifa aó Spánverjar skiptist í tvær önd- veröar fylkingar, sem muni ber- ast á banaspjótum. „Þaö sem um er aö ræöa eru fylkingar vinstri og hægri manna, sem líta ólikum augum á hlutina, en eru reiöu- búnir til þess aö heyja hófsama baráttu." Breyting Ástandiö hefur breytzt síöan á fjóröa áratugnum og klofningur þjóöarinnar þá var meö nokkuö öðrum hætti en nú. Á þeim tíma, 1936, mynduöu sósíalistar undir forystu Manuel Azana „alþýöu- fylkingu" meö kommúnistum og stjórnleysingjum. Nú hefur Felipe Gonzales, leiötogi jafnaöar- manna, rúmlega 100 þingsæta meirihluta og hann hefur ekki þörf fyrir bandamenn. Aöstæóur eru nú meö þeim hætti, aö líklega mundi hernum reynast ógerningur aö steypa þjóökjörinni stjórn á ný. Þessi hætta er þó fyrir hendi og einnig óttast margir fjárflótta úr bönk- um. Háttsettir menn í hernum og bankastjórar hafa flýtt sér aö róa fólk og á bak viö tjöldin hefur Juan Carlos konungur útskýrt fyrir herforingjum og bankastjór- um aö þeir hafi enga ástæöu til aö hafa áhyggjur. Ef til vill felst mesta hættan i því aö einhverjir ofurstar fái yfir- menn einhverra hernaöarum- dæma á sitt band og til blóðbaös komi á einangruöu svæöi. Til þess aö ná völdunum í landinu öllu, yröi aö gera konunginn áhrifalausan, en konungurinn hefur sýnt aö þaö er ekki auövelt verk og hann viröist vera öflug- asta brjóstvörn lýöræöisins á Spáni. „Herinn veit aö jafnaöarmenn njóta stuðnings meirihluta þjóö- arinnar," sagöi Juan Luis Cebri- an, aóalritstjóri blaösins El Pais í Madrid, eftir kosningarnar. Óánægöir samsærismenn í hern- um hafa sáralitiö fylgi. Þaö sést bezt á því, aö Tejero undirofursti úr Þjóóvarólióinu, sem stjórnaöi árásinni á þinghúsió i febrúar i fyrra, beiö auömýkjandi ósigur í kosningunum á dögunum. Hann hlaut aöeins um 25.000 atkvæöi, eöa 0,01 af hundraöi greiddra at- kvæöa. Fraga hefur heitiö aö leggja sitt af mörkum til þess aö þróun- in veröi friðsamleg. Flest bendir til þess aö svo geti oröiö, þótt einhver upphlaup kunni aö veröa gerö í hernum. Hvaö Fraga snertir, óttast menn helzt aö hann kunni aö hlaupa á sig. Ef þaö gerist, geta hlotizt af vand- ræöi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.