Morgunblaðið - 14.11.1982, Síða 28

Morgunblaðið - 14.11.1982, Síða 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 1982 Umnrnl Pnn SiniliuH 9-i „Sjabu tiL, þú eri orSinn to3 Cí'rn gama U, þú verður ak -faret a2> hugsa betur um sjalfan þic^'' HcaA/viin ást er... ... að benda honum á að eitthvað sé að kom- ast upp á milli ykkar. TM Rao U.S. Pat. Oft —aH rtghts rwervrt ® 1981 Lœ Angetes Tltnes Syndlcate Vonandi mun ég geta notið þessa þó ekki komi það strax. Við eigum línð Valtýr Guðmundsson, Sandi, skrifar 3. nóvember: „Vinsæli þáttur. Ástæðan fyrir því að ég sting niður penna í þetta skipti er sú að mig langar til fundar við Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur — og taka i höndina á henni fyrir grein þá er hún ritaði hér í Velvakanda nú eigi alls fyrir löngu. Þessa er vit- anlega engin kostur að svo komnu máli; læt ég því pennann um það að brúa bilið — að sinni. Þessi umrædda grein bar heitið: „Stelist ekki að fuglunum mínum til að drepa þá“. Samt man eg nú ekki orðalagið á fyrirsögn greinar- innar með vissu, en meiningin var örugglega á þessa leið. Það er líkt og þessi orð séu töluð frá mínu eigin hjarta, enda með ólíkindum hve ein lítil grein, á stundum get- ur falið í sér mikið sannleiksgildi, ef vel er að gáð. Ekki ætla eg samt að deila á þá menn, sem krækja sér í einn og einn fugl til matar, öðru hvoru, en það er nú eitthvað annað en slíkt sé látið nægja í mörgum tilfellum, því drápsgirni ýmissa virðast lítil takmörk sett, þegar blóð hinna saklausu fórnardýra er tekið að renna á annað borð, þótt frysti- geymslur þessara sömu aðila séu oftast nær fullar af mat árið út og árið inn, svo þar er vissulega að „bera í bakkafullan læk“ að mín- um dómi. En veiðináttúran er mörgum í blóð borin og trúlega næsta erfitt að kveða þann eiginleika niður með einu pennastriki, eða iafnvel heilli blaðagrein, en þeim hinum mörgu, er hafa skotvopn undir höndum þyrfti að vera það ljóst, oftar en raun ber vitni, að þ.ið er ekki sama hvernig þeim er leitt. T.d. ætti hver maður að læra skotfimi, og læra hana vel, áðui en hann gefur sig að fuglaveiðum. Allar lífverur jarðarinnar ei*a sín heimkynni, og sýnast hin;r litfögru hreiðurbúar okkar á vori 1 ekki vera þar nein undantekning nema síður sé. Flestir sem um- gangast þessa trygglyndu dýrk- endur láðs og lagar hér á þessum norðlægu slóðum, hlynna að þeim eftir bestu getu, bæði ljóst og leynt — og stuðla með því að við- haldi tegundanna, sem eiga mjög í vök að verjast, ekki síst þegar að kreppir í ríki náttúrunnar og hætturnar leynast alls staðar, næstum hvert sem litið er. Þess vegna finnst mér það ekk- ert undarlegt þótt fleiri en Guð- rún Kristín Magnúsdóttir taki sér þau orð í munn að þetta séu fugl- arnir okkar, vegna þeirrar ein- földu ástæðu að við eigum lífið í þeim — sumum hverjum a.m.k. Drynjandi skothvellir á vorin, og reyndar haustin líka, hafa mér ætíð þótt ákaflega dapurlegar hljómviður, þegar náttúran tjald- ar sínu fegursta og blessaðir sumargestirnir okkar njóta lífsins í svo ríkum mæli að unun er á að horfa, þar með talin „hvít með loðnar tær“ — og fleiri tegundir með svipaðar ættjarðarkenndir. En það er satt að segja allt fyrirgefanlegt, meðan lögum er hlýtt og fullomnustu dýravernd- unarsjónarmið í hávegum höfð. Þessu hvoru tveggja er þó varla hlýtt í öllum tilfellum, það er vit- að — og vantar mjög mikið á. T.d. er morðvopnum beint að gæsunum löngu eftir að friðunartími þeirra er genginn í garð — jafnvel strá- felldar ófleygar, meðan þær eru í sárum, á hinn lúalegasta hátt, um mánaðamót júlí/ágúst. Það eru í þeim bæði skammarvíg og lögleysur. Þetta væri reyndar lítt ámæl- isvert ef menn syltu heilu hungri, en það er nú eitthvað annað en svo sé, gott ef svona illa fengnar mat- arbirgðir lenda ekki á ruslahaug- unum að lokum. Því gæti ég trúað. Þá vil ég loks nefna alla þá mörgu einstaklinga, er særast til ólífs í þessum hildarleik — bæði á sjó og landi, en það er nú einmitt það, sem olli því að ég rita þessar línur. Oft hefur komið í minn hlut að binda endi á dauðastríð þessara langþreyttu veslinga, sem orðið hafa á vegi mínum, ekki sist á haustin, vængbrotnir, fótalausir ---og á annan hátt tíðum svo illa farnir að hrein ömun hefur verið á að horfa; síðast núna fyrir hálfum mánuði eða svo fann ég álft hér vestur í túninu með sund- urskotna fætur og bilaðan væng. Hún var svo upp tærð að varla hangdi annað á beinunum en sin- arnar einar — búin að lifa við þessi örkuml sennilega einar þrjár vikur eða meir, þessi leiksoppi ör- laganna lagði höfuð sitt á öxl sér, er ég skoðaði það, sem eg hefi þeg- ar greint frá og vil ekki endur- taka. Tvö raunamædd augu störðu út í hinn víðbláa geim, og senni- lega hefur þögul bæn fæðst undir þessum drifhvíta barmi: Hjálpaðu mér. En það gat ég ekki gert, því miður — nema á einn veg ... Þetta var „ungi“ frá í vor, bor- inn og barnfæddur að ég hygg í litlum hólma suðvestur í Fljóti — og gekk til fæðuöflunar hér stutt vestur í mýrinni í allt sumar ásamt fjölskyldu sinni — öllum að meinalausu, sem til þekkja, með öðrum orðum vinurinn kæri sem ég neyddist til að svipta lífi var fuglinn minn og allra, sem búa hér í nágrenninu, en ekki þess er veitti honum banasárin, og kunni lítið með byssu að fara, eins og dæmið sannar. Með fyrirfram þökk varðandi birtingu." Þessir hringdu . . . Hver er réttur farþega SVR? Ásta Þorfinnsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að beina þeirri spurn- ingu til Strætisvagna Reykjavík: ur, hver sé réttur farþeganna. I gær (miðvikudag) var ég farþegi í leið 13 sem fór af Lækjartorgi kl 19.05 áleiðis upp í Breiðholt, og ég hef aldrei á milli lífsfæddri ævi þurft að þola annað eins og í þess- ari ferð. j vagnjnurn voru tveir ungligsstrákar veifandi Wám- myndum framan í fólk, syngjandi klámvísur hástöfum úr sæti sínu og hrópuðu ókvæðisorð. Eg hefði yfirgefið samkvæmið ef ég hefði getað hreyft mig fyrir þrengslum í vagninum, en þess var enginn kostur fyrr en komið var upp í Breiðholt. Þá fór ég út við fyrsta tækifæri, löngu áður en komið var á mína heimastöð. Sú spurning hlýtur auðvitað að vakna í huga manns, frá hvers konar heimilum svona drengir séu, en þó liggur beinna við að fá að vita hitt, sem sé hvað SVR geti boðið farþegum sínum upp á af þessu tagi. Eg er á því, að í vissum ferðum verði vagnstjórarnir að vera tveir; ann- ar aki, en hinn sjái um, að farþeg- ar fái að vera óáreittir, meðan á ferðinni stendur, og víki þeim burt sem eru með dólgslega framkomu. Ófært á ári aldraðra Gerdur Kinarsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mér finnst það fyrir neðan allar hellur, að borgarfyrirtæki eins og Stræt- isvagnar Reykjavíkur skuli geta skrúfað fyrir að seija afsiáttar- kort vegna fargjaldadeilna við hið opinbera. Sérstaklega þykir mér þetta slæmt vegna öryrkja og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.