Morgunblaðið - 14.11.1982, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982
77
Kópavogur:
Aldraðir hafa
enga þörf fyrir
afsláttarkort
Ásgeir Guðmundsson, Kópavogi,
skrifar:
„Eg vil leiðrétta misskilning er
kemur fram í grein í Morgunblaðinu
10. þ.m. Greinin heitir: „Þetta er
reiðarslag fyrir strætisvagnana", og
mun eiga við SVR. í lok greinarinnar
eru fá orð um Strætisvagna Kópa-
vogs. Ég hefi verið Kópavogsbúi í
nær þrjá áratugi og vil ég leiðrétta
misskilning, sem þarna kemur fram.
Þar segir, að um langa hríð hafi ver-
ið látið óátalið, að engin afsláttar-
kort hafi verið seld í Strætisvögnum
Kópavogs.
Þegar ég varð 67 ára var mér af-
hent í Félagsmálastofnun Kópavogs
aðgangskort aldraðra. Veitir það
ókeypis far með Strætisvögnum
Kópavogs, svo og ókeypis aðgang að
sundlaug sem hér er. Má því augljóst
vera, að aldraðir hér í bæ hafa enga
þörf fyrir afsláttarkort með því að
þeir fá farið ókeypis.
Á ári aldraðra finnst mér rétt að
geta þess, að hér er mikill áhugi
fyrir málefnum gamals fólks. Má
þar nefna mikil frjáls framlög al-
mennings til Hjúkrunarheimilis
aldraðra, sem nú er risið og tekið til
starfa. Vegna veikinda höfum við
heimilishjálp frá Félagsmálastofn-
un. Þá hefi ég fengið og fæ enn heim-
ilishjúkrun frá heilsuverndarstöð-
inni hér. Finnst mér þessi þjónusta
öll þannig, að vart verði á betra kos-
ið.
Þá er félagsstarf aldraðra á veg-
um Félagsmálastofnunar í Hamra-
borg í föstum skorðum ár hvert, þar
sem haldnar eru skemmtanir og
námskeið og staðið fyrir ýmiss kon-
ar fyrirgreiðslu fyrir aldrað fólk.“
V'i
Vid
Hjiikrui
aldraðra
í Kopavo»3
iU
Er hægt að fá
Lotus I Tónabæ?
Tveir aðdáendur hljómsveitar-
innar Lotusar skrifa:
„Kæri Velvakandi.
Hér erum við tvær af höfuð-
borgarsvæðinu og okkur langar að
koma þessu á framfæri: Væri
nokkur leið að fá hingað hljóm-
sveitina Lotus frá Selfossi, til að
spila og syngja, t.d. í Tónabæ eða á
öðrum stöðum hér?
Þá verður þetta ekki lengra hjá
okkur að sinni. Við bíðum bara
eftir góðu svari."
gamals fólks sem er nýbúið að fá
lífeyrinn sinn. Meðan á þessu
stendur verður þetta fólk að borga
fullt gjald á við hina sem eru full-
vinnandi. Mér finnst alveg ófært
að láta þetta koma fyrir á ári aldr-
aðra.
*
Abending
til SVR
Gunnar Sigurðsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Eru
það ekki þessir skiptimiðar sem
e^i mesti dragbíturinn á strætis-
vögnunum? Ég vildi benda bæði
borgarstjóra og forstjóra SVR á
það, hvort ekki væri bara ráð að
leggja þessa miða niður, en halda
fargjöldunum óbreyttum.
Sendum um
allan heim
Sjónvarpið og Luzem:
Stoðar ekki að bera
við áhugaleysi fólks
kominn
í gluggann
til að minna
aað ...
Nú er
rétti tíminn
til að láta Rammagerðina ganga
Yfir 25 ára jólasendingunum til
reynsla vina og ættingja erlendis
Við göngum frá og sendum
jólapakkana um allan helm.
Allar sendlngar eru fulltryggflar
yður afl kostnaðarlausu.
RAHMAGERDIN
HAFNARSTRÆTI 19
Ólafur Þorsteinsson skrifar 10.
nóv.:
„Góði Velvakandi.
Nú stendur yfir í Luzern í Sviss
Ólympíuskákmót sem 94 þjóðir
taka þátt í, þar á meðal íslend-
ingar. Ekki dettur dagskrárstjóra
sjónvarpsins þó í hug að sýna
okkur skákir frá þessu móti. Mig
minnir að um 5000 manns hafi
tekið þátt í skákkeppni sem fram
fór um land allt í fyrra, svo að það
stoðar ekki að bera því við, að ekki
sé áhugi fyrir skákíþróttinni hér á
landi. Eg er þess fullviss, að væri
þarna í Sviss um einhverja stökk-
keppni að ræða, áflog eða bolta-
leiki, væri skilmerkilega greint frá
því í sjónvarpinu. Þeir Bjarni Fel-
ixson og Steingrímur Sigfússon fá
ekki svo lítinn tíma til ráðstöfun-
ar í hverri viku. En skák sést þar
helst aldrei. Þó eigum við marga
ágæta skákskýrendur. Þetta
finnst mér ekki síst lítilsvirðing
við hinn íslenska forseta FIDE,
Alþjóða skáksambandsins, Friðrik
Ólafsson.
Ég skora á dagskrárstjóra sjón-
varpsins að láta sýna og skýra
a.m.k. eina valda skák í viku frá
helstu mótum sem haldin eru.
Mér finnst ég of lítið hafa orðið
var við, að við styddum við bakið á
Friðriki Ólafssyni til endurkjörs í
forsetastól FIDE.
Útvarpið er með skákþætti sem
því miður eru lesnir svo hratt, að
það er ókleift fyrir lítt æfða
áhugamenn að fylgjast með þeirn."
Fer Vilmundur
ekki 1 prófkjör-
ið í Reykjavík?
VILMIINDIIR Gylfason alþing
ismaAur mun nú ihuga aó taka
ckki þáu í prófkjöri Alþýðu-
sagði á flokksþinginu að hann
ætiaði sér ekki að verða nein
hornreka í Alþýðuflokknum.
Vísa vikunnar
Hannibal klauf í tvennt þá tré var rekið;
nú tekur Vimmi þennan gamla sið
og reiðir hátt til höggs á litla sprekið
sem hann og fleiri kalla máttarvið.
Hákur.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hann fór frá Reykjavík og til Hafnarfjarðar.
Betra þætti: Hann fór frá Reykjavík til Hafnarfjarðar.
G3? SlGGA WöGA fi ‘ÍiLVEHAN
ALLTAP Á ÞRIÐJUDÖGUM
SUPERSTJARNAN
SHILTON
ER VANDLÁTUR
Á LÍFSSTÍL SINN
BALLESTEROS
ER HANN BESTI
GOLFLEIKARI
HEIMSINS?
AÐSÓKNIN
HEFUR ALLSSTAÐAR
MINNKAÐ
Ðl
ítarlegar og spennandi íþróttafréttir