Morgunblaðið - 16.11.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982
3
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík:
Skráning óflokks-
bundinna, sem ætla að
kjósa, hefst á morgun
SKKÁNING óflokksbundinna
stuóningsmanna Sjálfstæðisflokks-
ins, sem vilja taka þátt í prófkjörinu
í Reykjavík síðar í þessum mánuði,
hefst á morgun, miövikudag, að þvi
er segir í frétt er Morgunblaðinu
hefur borist frá skrifstofu Sjálfstæð-
isflokksins. Fer fréttin hér á eftir í
heild sinni.
Skráning fyrir stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins sem ekki
kjósa að vera flokksbundnir en
óska eftir að kjósa í prófkjörinu
28. og 29. nóvember nk., hefst í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, mið-
vikudaginn 17. nóvember nk.
Skráning stendur yfir á venju-
legum skrifstofutíma frá kl. 9—12
og 13—17 og einnig laugardaginn
20. nóvember frá kl. 10—12 og
skulu menn skrá sig persónulega.
Skráningu lýkur fimmtudaginn
26. nóvember og verður þá skrif-
stofan opin þann dag til kl. 24.00.
Starfsmaður ÁTVR:
Stal miklu
magni af
spíritus
KOMIST hefur upp stuldur starfs-
manns ÁTVR á miklu magni af spír-
itus og er talið að um sé að ræða
a.m.k. hundruðir litra, samkvæmt
upplvsingum sem Mbl. fékk hjá
Kannsóknarlögreglu ríkisins í gær.
Fjórir menn aðrir eru viðriðnir
málið og voru þeir í yfirheyrslum
um helgina, en starfsmaður ÁTVR
hefur játað á sig þjófnaðinn.
Stuidurinn hófst í byrjun þessa
árs og hefur staðið síðan og spír-
anum jafnframt verið dreift. Upp
komst um athæfið þegar lögreglan
í Reykjavík var að kanna ólöglega
dreifingu á áfengi og var m.a. gerð
húsleit i húsi við Laugaveg í því
sambandi.
Enginn hefur verið úrskurðaður
í gæsluvarðhald, enda málið talið
upplýst að mestu. Maðurinn sem
stal spíranum frá Áfengisverslun-
inni vann við áfengisblöndun og
hafði því aðgang að spíranum.
Boðið að sýna
Silkitromm-
una á leiklistar-
hátíð í Nancy
Silkitromman fer til
Caracas í Venezuela
ÞJÓÐLEIKHÚSINU hefur borist
formlegt boð um að sýna Silki-
trommuna eftir Atla Heimi Sveins-
son, á leiklistarhátiðinni í Nancy i
Frakklandi næsta vor, samkvæmt
upplýsingum scm Mbl. fékk hjá
Sveini Einarssyni Þjóðleikhússtjóra.
Sveinn sagði að leiklistarhátíðin
í Nancy væri ein þekktasta leik-
listarhátíð í Evrópu, en íslenskir
leikarar hefðu einu sinni sýnt verk
þar, en það var Inúk-hópurinn
sem sýndi þar fyrir u.þ.b. 7 árum.
Sveinn kvað hátíðina í Nancy
mjög framsækna og þangað væri
boðið sýningum sem forvitnilegar
þættu hvað framsækni snerti.
Sveinn sagði að hátíðin yrði síð-
ustu vikuna í maí, en óvíst væri
hvort unnt væri að þiggja boðið,
bæði vegna ferðar með Silki-
trommuna til Caracas í Venezuela
og kostnaðar við slíkar ferðir. í
Caracas væri stór listahátíð, en
hún er sú þekktasta í Ameríku
allri, að sögn Sveins.
„Samkvæmt reglum Fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík, sem samþykktar voru
á almennum Fulltrúaráðsfundi
hafa flokksbundnir sjálfstæðis-
menn í Reykjavík atkvæðisrétt,
ásamt þeim sem undirritað hafa
inntökubeiðni í flokksfélag fyrir
lok kjörfundar. Þá hafa þeir
stuðningsmenn flokksins, sem
hafa skráð sig til þátttöku í
prófkjörinu, einnig atkvæðisrétt
samkvæmt ofangreindu."
Rússneskt flotdufl fannst
RÚSSNESKT flotdufl fannst nýlega á reki út af Svörtuloftum og barst
tilkynning um það til Landhelgisgæslunnar og hirti varðskipið Óðinn
dufliðúr sjónum. I)ufl þessi eru notuð af rússneskum móðurskipum, en
duflunum er komið fyrir á siðum þeirra þegar skip eru affermd.
Ljósmynd: llclgi llallvarósson
Egilsstaöir:
Brotist inn í
Kaupfélagið
Egilsstöðum, 15. nóvember.
BROTIST var inn í Kjörbúð Kaupfé-
lags Héraðsbúa á Egilsstöðum að-
faranótt sunnudags, og stolið sex
þúsund krónum, fjórum búðarköss-
um í versluninni. Farið var inn með
þeim hætti að rúða í útidy rahurð var
brotin. Vettvangsrannsókn leiddi i
Ijós, að hér hafa tveir staðiö að
verki, en málið er enn óupplýst að
sögn lögreglu.
í vor var einnig brotist inn i Kaup-
félagið með svipuðum hætti og nú.
Það innbrot er einnig enn óupplýst.
— Ólafur
Þú getur
kjaraskerðingunni
með kaupmáttarauka
frá
' *
—
Prjónavélar og saumavélar við allra hæfi
á verði og skilmálum, sem henta öllum.
Allir vita aö 1. desember verða laun fólksins í landinu skert verulega og er ekki á bætandi. Þaö þrengir því mjög
að þorra landsmanna og ríður á að menn fái, sem mest út úr hverri krónu, sem varið er til nauðsynjakaupa.
TOYOTA-SAUMAVÉLARNAR OG PRJÓNAVÉLARNAR eru löngu landskunnar gæðavörur og létta fólki lífið á
um 7000 heimilum.
KOMDU OG TRYGGÐU ÞÉR KAUPkiÁTTARAUKA FRÁ TOYOTA FYRIR JÓLIN.
TOYOTA KS 901
PRJÓNAVÉLIN
Hér getur þú gefiö sköpunargleöinni lausan tauminn,
hvort, sem þú prjónar af ást eöa til aö hagnast á því.
Þú snýrð bara tökkum til að ákveða mynstrið, eða stingur inn mynst-
urkorti og lætur vélina um allt. Sáraeinföld gæðavél frá japönskum
meisturum og verðið aðeins
9865
kr.
PÁLINA
SAUMAVÉLIN
Þú getur bókstaflega allt meö
þessari frábæru vél, sem ber
frægasta saumakerlingarnafn í
heimi og þaö meö rentu.
VERÐIÐ AÐEINS KR.
3856
Þú kemst langt þótt þú eigir ekkert nema
saumamaskínu frá TOYOTA.
T0Y0TAVARAHLUTAUMB0ÐIÐ ARMULA 23 SIMI 81733.