Morgunblaðið - 16.11.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982
5
Sjómenn óánægðir
með tollgæzluna
Hlutfall tollfrjáls varnings af launum
hefur lækkað úr 18% í 4% á síðustu 14 árum
MIKILLAR óánægju í garð tollgæzlunnar gætir nú hjá sjómönnum. Telja
þeir samskiptin við tollgæzluna óviðunandi og benda auk þess á, að verð-
mæti lcyfilegs tollfrjáls varnings við heimkomu hefur lækkað úr 18% af
grunnlaunum háseta niður í 4% á síðustu 14 árum. Sé tekið mið af launum
yfirmanna eða yfirvinnu sjómanna er hlutfallið enn lægra.
Morgunblaðið ræddi vegna
þessa við Guðmund Hallvarðsson,
formann Sjómannafélags Reykja-
víkur. Sagði hann, að samskipti
sjómanna á farskipum við toll-
þjóna færu nú mjög versnandi og
virtist sem keyrt hefði um þver-
bak í þeim málefnum. Tollgæzlan
væri rekin meira af kappi en for-
sjá. Menn væru þó ekki að agnúast
út í tollþjóna sjálfa, sem væru
væntanlega bara að hlúða skipun-
um yfirmanna sinna. Sem dæmi
um þetta mætti nefna, að nýlega
hefði 16 ára gamalt lampaút-
varpstæki verið tekið af skipverja
vegna þess, að hann hafði ekki
tollpappíra upp á það. Þá væru
ýmis dæmi um það, að verið væri
að hirða af mönnum hunguriús
umfram leyfilegt magn af áfengi,
Guðmundur sagði, að leið til
þess að lagfæra þetta á einhvern
hátt væri sú, að farmenn fengju
viðskiptabók, sem sýndi gjaldeyr-
iseyðslu þeirra og gætu þeir safn-
að sér rétti til innflutnings á verð-
meiri hlutum, með því að koma
ekki með eitthvað heim í hverri
ferð. Þeir væru sem sagt verðlaun-
aðir fyrir að fara vel með gjald-
eyrinn.
„Þessi mál eru nú komin í það
mikið óefni, að ekki verður við un-
að öðru vísi en að sá varningur,
sem menn mega koma með toll-
frjálsan til landsins, verði í sam-
ræmi við leyfilega gjaldeyrisút-
tekt og þá jafnframt horft til
tollviðskiptabókar," sagði Guð-
mundur.
TOLLUPPHÆÐIR og % hlutfall af launum háseta sem sjómaður má
koma með heim frá útlöndum. Dagsetningar eru þegar ný tollreglugerð
hefur verið gefin út nema sú síðasta.
Prósentur eru gróflega reiknaðar.
fjarv. % fjarv.Jengur % fjarv.lengur % mán.laun hjá
skemur cnhlutf. en 20 dagarhlutf. en 40 dagar hlutf. háseta á byrj.
20 dagar af aó 40 d. af en 40 dagar af launum
laun laun laun
28/11 1968 kr. 150018% kr. 500058% kr. 8.544
25/05 1972 kr. 1500 8% kr. 500025% kr. 19.967
01/08 1975 kr. 3000 6% kr. 900016% kr. 14000 25% kr. 56.051
12/04 1978 kr. 7000 6% kr. 2100017% kr. 32000 26% kr. 124.091
05/10 1979 kr. 15000 6% kr. 4000017% kr. 60000 26% kr. 230.139
13/07 1981 nýkr. 200 4% nýkr. 60013% nýkr. 900 19% nýkr. 4.713,83
07/04 1982 nýkr. 350 5% nýkr. 105016% nýkr. 1400 22% nýkr. 6.265.00
01/10 1982 nýkr. 350 4% nýkr. 105013% nýkr. 1400 17% nýkr. 8.025,00
Hver vill
hlusta á
geimfar-
ana í síma?
SÍMNOTENDUR hér á landi, sem
áhuga hafa, geta hlustað á samtöl
áhafnar bandarísku geimferjunnar
Kólumbiu við stjórnstöðina í
Houston í Texas er ferjan kemur
inn til lendingar.
Ók á staur
— grunaður um öivun
BRONCO-jeppa var ekið á ljósa-
staur á Ánanaustum á laugar-
dagskvöld og brotnaði staurinn,
en jeppinn skemmdist talsvert,
samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. fékk hjá lögreglunni í gær.
Ökumaður jeppans hvarf af
vettvangi, en hann fannst síðar.
Hann er grunaður um ölvun.
í fréttatilkynningu frá Póst-
og símamálastjórninni, sem
Morgunblaðinu hefur borist, seg-
ir að hringja beri í síma 1-307-
410-6272 í Bandaríkjunum frá
klukkan 04 í nótt sem leið, til
klukkan 14.28 í dag, er Kólumbía
á að lenda.
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík:
Utankjörstaðakosning hefst á morgun
MORGUNBLAÐINU hefur borist
cftirfarandi fréttatilkynning frá full-
trúaráði sjálfstæöisfélaganna í
Reykjavík, um utankjörstaðaat-
kvæðagreiðslu í prófkjörinu, sem fer
fram dagana 28. og 29. nóvember
næstkomandi.
Prófkjör sjálfstæðismanna í
Reykjavík vegna næstu alþingis-
kosninga fer fram dagana 28. og
29. nóvember nk.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
vegna prófkjörsins hefst miðviku-
daginn 17. nóvember og stendur yfir
frá kl. 14—17 mánudaga til föstu-
daga, og laugardaga frá 10—12.
Utankjörstaöakosningin stendur yfir
til laugardagsins 27. nóvember, að
þeim degi meðtöldum. Utankjör-
staðaatkvæðagreiðslan fer fram á
skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, II. hæð.
Atkvæðisrétt í prófkjörinu eiga:
a) allir flokksbundnir sjálfstæð-
ismenn 16 ára og eldri, b) stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins
sem eiga munu kosningarétt í
Reykjavík 1. janúar 1983 og undir-
ritað hafa inntökubeiðni í sjálf-
stæðisfélag í Reykjavík fyrir kjör-
fund eða á kjörfundi, c) stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins
sem ekki óska eftir að gerast
flokksbundnir en eiga munu at-
kvæðisrétt í Reykjavík 1. janúar
1983 og hafa skráð sig til þátttöku
í prófkjörinu á skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins, Háaleitisbraut 1,
fyrir kl. 24, fimmtudaginn 25. nóv-
ember: nk.
Á atkvæðisseðlinum er nöfnum
frambjóðenda raðað eftir staf-
rófsröð. Til þess að atkvæðaseðill
teljist gildur skal krossa framan
við nöfn frambjóðenda hið fæsta
og mest 10 nöfn.
Frambjóðendur voru valdir með
framboðum studdum af 20
flokksbundnum sjálfstæðis-
mönnum og af kjörnefnd, sem
skipuð er 15 kjörnum og tilnefnd-
nm síálfstæðismönnum.
svo sem þrjá bjóra eða slatta í
léttvínsflöskum.
Það væri nauðsynlegt að bæta
þessi samskipti og breyta
tollreglugerðinni í þá átt, að
skynsamlegt hlutfall yrði á milli
gjaldeyrisskammts farmanna er-
lendis og leyfilegs tollvarnings við
heimkomuna. Nú mættu menn
taka 30% launa út í erlendum
gjaldeyri, en væri svo aðeins
heimilt að koma með tollfrjálsan
varning heim að verðmæti 350
krónur eftir hverja ferð, sem væri
styttri en 20 dagar. Dæmið gæti
litið þannig út, að á mánuði hefði
háseti um 15.000 krónur með yfir-
vinnu. Honum væri því heimilt að
taka um 4.500 krónur af launum
sínum í erlendum gjaldeyri, en
miðað við tvær ferðir á mánuði
mætti hann aðeins koma heim
með varning að verðmæti 700
krónur. Rétt væri þá að geta þess
að áfengi og tóbak væri undanskil-
ið í þessari upphæð.
I láskólatónlcikar:
Jónas Ingimund-
arson leikur
verk eftir Chopin
HÁDEGISTÓNLEIKAR eru haldnir
hvern miðvikudag í Norræna húsinu
á vegum Tónleikanefndar háskól-
ans, og hefjast kl. 12.30.
Miðvikudaginn 17. nóvember
leikur Jónas Ingimundarson
píanóleikari ýmis verk eftir Chop-
in, tvær polonesur og sex etýður.
Tónleikarnir eru öllum opnir. Þeir
vara um 40 mínútur; aðgangseyrir
er kr. 50.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
fHforgiittiMgi&tö
Litasjónvörp
í fararbroddi...
í tilefni af frábærum árangri LUXOR
rafeindaútbúnaóar við móttöku á
sendingum sjónvarpsefnis
frá gerfihnöttum höfum við
ákveðið að bjóóa takmarkaó magn
af 26” litasjónvörpum frá LUXOR
á sérlega góðu verði:
HUÐMBÆR
eða útb. kr. 6000 og afg. á 6 mán
HLJOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI
HVERFISGÖTU 103
SÍMI 25999/17244