Morgunblaðið - 16.11.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.11.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982 13 Við munum vcita 15%-20% afslátt á hcrraskyrtum dagana 15.-20. nóvember. Lítið inn og gerið góð kaup meðan birgðir endast. Fimmtán styrkir jír Menningarsjóði ís- lands og Finnlands STJÓRN Menningarsjóðs íslands og Finnlands kom saman til fundar 8. og 9. þ.m. í Reykjavík tii þess aö ákveöa árlega úthlutun styrkja úr sjóönum. Umsóknarfrestur var til 30. september sl. og bárust alls 139 umsóknir, þar af 119 frá Finnlandi og 20 frá íslandi. Úthlutaö var sam- tals 81.500 finnskum mörkum og hlutu eftirtaldir umsækjendur styrki sem hér segir: 1. Ingibjörg Björnsdóttir, full- trúi, 5.000 mörk, til að kynna sér starfsemi sænsk-finnsku menningarmiðstöðvarinnar Hanaholmen í Esbo, Finn- landi. 2. Jón Hjartarson, leikari, 5.000 mörk, til að kynna sér starf- semi yngri leikhúsa í Finn- landi. 3. Sigríður Björnsdóttir, mynd- listarmaður, 5.000 mörk, til að sækja ráðstefnu um listlækn- ingar í Finnlandi og halda þar erindi. 4. Stefán Snæbjörnsson, innan- hússarkitekt, 5.000 mörk, til Finnlandsfarar til að undir- búa sýningu á íslenskum list- iðnaði þar. 5. Þóra Kristjánsdóttir, listráðu- nautur, 5.000 mörk, til að kynna sér starfsemi listasafna og listsýningarhúsa í Finn- landi. 6. Gustav Djupsjöbacka, píanó- ieikari og Matti Tuloisela, óperusöngvari, 8.000 mörk, til að halda tónleika í Reykjavík. 7. Finlandia-tríóið, Ulf Hást- backa, Izumi Tateno og Veikko Höylám 15.000 rnörk, til að halda tónleika á íslandi. 8. Markku Ikáheimo, fil.kand., 5.000 mörk, til að kynna sér hefðbundin byggingarstíl til sveita á íslandi. 9. Aimo Kanerva, prófessor, 5.000 mörk, til að kynna sér listastarfsemi á íslandi. 10. Hannuy Mákelá, rithöfundur, 5.000 mörk, til að kynna ser íslenskar bókmenntir og út- gáfustarfsemi hérlendis. 11. Juha Pentikáinen, prófessor, 5.000 mörk, til að kynna sér íslenska goðfræði og þjóð- fræði. 12. Norræna félagið í Kyrkslátt, 1.000 mörk, til íslandskynn- ingar. 13. Maija-Leena Seppálá, lektor, 2.500 mörk, til að afla kennslu- gagna fyrir framhalds- menntun handmenntakennara við Kennaraháskóla íslands. 14. Martti Silvennoinen, dag- skrárstjóri, 5.000 mörk, til að gera útvarpsdagskrá um ís- land og Norræna húsið í Reykjavík. 15. Berit Thors, menntaskóla- kennari, 5.000 mörk, til að safna gögnum um íslenska matargerð með það fyrir aug- um að gefa út íslenska mat- reiðslubók á sænsku. Höfuðstóll sjóðsins var 450.000 finnsk mörk sem finnska þjóð- þingið veitti í tilefni af því að minnst var 1100 ára afmælis byggðar á íslandi sumarið 1974. Síðar var af finnskri hálfu höfuð- stóllinn aukinn í 600 þús. mörk. Stjórn sjóðsins skipa Ragnar Meinander, fv. deildarstjóri í finnska menntamálaráðuneytinu, formaður, Juha Peura, fil.mag., Kristín Hallgrímsdóttir, stjórn- arráðsfulltrúi, og Kristín Mánt- ylá, skrifstofustjóri, en varamaður af finnskri hálfu og ritari sjóðsins er Matti Gustafson, fulltrúi, og varamaður af íslenskri hálfu Þór- unn Bragadóttir, stjórnarráðs- fulltrúi. (Krélt frá mcnntamálaráduncytinu) XEROX HÁGÆÐA - LJÓSRITUN ARVÉLAR • Vélar sem henta hvaða Ijósritamagni sem er. • Frá 10 - 120 Ijósrit á mínútu. • Vélar sem taka A3. • Vélar með minnkun.® Vélar með stækkun. • Vélar með matara. • Vélar með raðara o.fl. Fullkomin viögerdarþjónusta. Síöumúla 6, S:84209 - 84295 RANK XEROX umboðiö NON HF. Austurstræti 1 sími: 27211 85009 85988 Viröulegt einbýlishús í hjarta borgarinnar Húseignin er kjallari tvaer hæöir og rúmgott geymsluris. Grunnfl. hússins ca. 95 fm sér íbúö í kjallara. Húslö er vel byggt og í góöu ástandl. Mögulegt er aö hafa þrjár íbúölr i húslnu. Bíl- skúrsréttur. Losun samkomu- lag. Laugavegurí góóu ástandi Rúmgóö 3ja herb. íbúö á 3. hæö, ofarlega vlö Laugaveg í góöu steinhúsi. Verö kr. 850 þús. Hryggjarsel í smíðum Raöhús tvær hæðir og kjallari. Mögulegar tvær ibúöir. Afh. strax. Gott skipulag. Kambasel endaraöhús Húsiö er vel staösett. Aöeins 3 hús í lengjunni. Húsiö er vand- að. Ekki alveg full frágengið. Innbyggöur bílskúr. Ath. Skipti á sérhæö í bænum. Neðra Breiðholt Góö 4ra herb. íbúö á 4. hæð. Sér þvottahús. Suður svalir. Eyjabakki, útsýni 3ja herb. íbúö á efstu hæö. Stórar suður svalir. Gluggi á baði. Verð aðeins 950 þús. í smíðum í Kópavogi Rúmgóö 3ja herb. íbúö í fjórbýl- ishúsi. Afh. fokheld meö sam- eign fullfrágenginni um áramót. Ath. skipti á 2ja—3ja herb. íbúö. Höfum ákveðinn kaupanda aö sér h»ð, raðhúsi. eöa einbýlishúsi. Veröhug- myndir 2—2,5 millj. Tilbúin aö versla. Góöar greiðslur. Staðsetning miðbærinn. Kópavogur 5 herb., skipti á 3ja herb. íbúö á 2. hæö í góöu samkomu- lagi viö Lundarbrekku. 4 svefnherb. Samkomulag meö milligjöf. Hraunbær 2ja herb. Stórglæsileg íbúö á 2. hæö. Ákveöin sala. Vestur svalir. Kjöreignr Ármúla 21. Dan V.S. Wiium, lögfraðingur. Ólafur Guðmundsson sölum Ólykt af nefnd — eftir Friðrik Einarsson, lœkni x Heilbrigðismálaráðherra hefir skipað nefnd til þess að „vinna að úttekt á daggjaldasjúkrahús- um“. Komið hefir fram í umræðum í fjölmiðlum, að forstöðumenn spítalanna eru ekki sammála um hagkvæmni rekstrarforma spít- alanna, t.d. hvort betra sé að fjármagna reksturinn með daggjöldum eða með beinu fram- lagi úr ríkissjóði. Það er löngu vitað, að fram- kvæmdastjóri ríkisspítalanna, Davíð A. Gunnarsson, er alveg viss um, að engir spítalar á land- inu séu reknir með jafnmiklum ágætum og ríkisspítalarnir. Logi Guðbrandsson, framkvæmda- stjóri Landakotsspítala og Haukur Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Borgarspítalans eru ekki jafnvissir um að svo sé. Það vekur því furðu, að Davíð Á. Gunnarsson skuli hafa verið skipaður í þessa nefnd, án þess að þeir Logi og Haukur fengju þar einnig að koma sjónarmið- um sínum á framfæri. Þá er einnig gengið fram hjá Lands- sambandi sjúkrahúsa við skipun nefndarinnar. Því skal hér með mótmælt, að nefndin sé þannig skipuð, að ástæða sé til að óttast, að sú niðurstaða, sem hún kemst að, sé fyrirfram ákveðin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.