Morgunblaðið - 16.11.1982, Page 15

Morgunblaðið - 16.11.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982 15 opna safnið á aldarafmæli Nonna 16. nóvember 1957, og það tókst. Fjár til safnsins hefir verið afl- að með ýmsu móti. Styrkir hafa fengist nær árlega frá bæjarsjóði Akureyrar og ríkissjóði, og svo eru nokkrar tekjur af aðgangs- eyri, minjagripa- og kortasölu og jafnvel gjöfum, sem aðallega var fyrst í stað. Viðbygging var reist vestan við húsið árið 1962, en ár- lega þarf að vinna að viðhaldi og lagfæringum hússins, og það kostar mikið fé. Safnmunir eru af ýmsu tagi. Bækur eftir Nonna eru um 160 á um 30 tungumálum, til að mynda Nonni og Manni á 18 tungumál- um, ferðakista, hempa, trefill, leðurbelti, messusöngbók, bæna- bók og kross úr silfri, sem allt er úr eigu Nonna sjálfs, og til dýr- gripa safnsins telst hárlokkur af honum, sem móðir hans átti og varðveitti. Myndir eru geysi- margar, ýmist úr ævi Nonna og af honum við ýmis tækifæri, eða myndir úr bókum hans frá mörg- um löndum. Margs konar bús- gögn og húsgögn eru í safninu frá þeim tíma, þegar Nonni átti heima á Akureyri, en eru fengin úr ýmsum áttum. Gripir hafa verið gefnir víða að, en sumt var fyrir í húsinu, t.a.m. rúmstæði. Húsaskipan er að mestu óbreytt nema suðurstofurnar á neðri hæð. Aðsókn að Nonnahúsi hefir verið nokkuð jöfn árum saman, þ.p. 4500—5000 gestir á ári, þó að engin leið sé að telja þá ná- kvæmlega. Um helmingur þeirra er útlendingar, ekki síst frá Þýskalandi og öðrum Mið- Evrópulöndum, þar sem Nonni var kunnastur sem rithöfundur. Alltaf eru nokkrir gestir árlega, sem koma hingað beinlínis í píla- grímsferð á bernskuslóðir Nonna. Það eru aðdáendur hans, sem les- ið hafa bækur hans eða hlustað á fyrirlestra hans og jafnvel þekkt persónulega. Ekki er óalgengt að þetta fólk fari líka út að Möðru- völlum og Skipalóni til að litast um á þeim söguslóðum og sjá þær með eigin augum. í Zontaklúbbi Akureyrar eru nú 37 konur, þar af tvær af stofn- endum hans, þær Ragnheiður O. Björnsson og Þórhildur Stein- grímsdóttir. Stjórn hans skipa nú: Guðfinna Thorlacius, formað- ur, Jóhanna Valdemarsdóttir, varaformaður, Kristín Tómas- dóttir, ritari, Inger Elíasson, gjaldkeri, Ragnheiður Dóra Arnadóttir, stallari, og Margrét Pétursdóttir, meðstjórnandi. í Nonnanefnd (stjórnarnefnd Nonnahúss) eru þessar Zonta- systur: Guðríður Eiríksdóttir, formaður, Ragnheiður Gestsdótt- ir, gjaldkeri, Margrét Hall- grímsdóttir, María Sigurðar- dóttir, Ragnheiður Árnadóttir og Valgerður Valgarðsdóttir. Safnvörður er Stefanía Ár- mannsdóttir. Sv.P. í bensín! austur í Hveragerði og til baka á Renault 9 '83 Þeir eru ekki margir stóru bílamir sem eyða aðeins 61 krónu frá Reykjavík til Hveragerðis og til baka aftur. Renault 9 var kjörinn BÍLL ÁRSINS í Evrópu 1982 af 52 blaðamönnum bílablaða. Þeir höfðu til samanburðar allar aðrar bíltegundir í þessum flokki á Evrópumarkaði. Þeir nefndu m.a. þessi atriði í dómi sínum: • Frábært útlit. • Sérstaklega gott fyrirkomulag hvað varðar rými, mælaborð og útsýni. • Ótrúleg spameytni. • Þægilegri sæti en áður hafa þekkst. • Viðbragðsfljót, nákvæm og örugg vél. • Einstakir aksturseiginleikar. Komið og reynsluakið Renault 9 1983. Gerð Vél Eyðsla Verð R9TC 48 din 5,41 142.000.- R9GTL 60 din 5,41 152.000.- R9GTS 72 din 5,41 168.000.- R 9 Automatic 68 din 6,31 172.000.- Argerð 1983 er komin! 1! rjW < X? i ^ | . rx.x':'y.'-; -----Tlv, KRISTINN GUÐNASON Hf. SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI B6633 -------------------------------;---------------—------------------------------ .... ... ................. ............................................... . I **M»^*.. iflgl .Sajflfr :ZíM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.