Morgunblaðið - 16.11.1982, Síða 18

Morgunblaðið - 16.11.1982, Síða 18
18 - MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982 Amin Gemayel, forseti Líbanon, rsðir hér við konung Saudi-Arabíu, Fahd Ibn Abdel-Aziz, en hann er í opinberri heimsókn í Saudi-Arabíu um þessar mundir. Kosið í Brasilíu Kio de Janeiro, 15. nóvember. Al*. BRASILIUBÚAR gengu í dag að kjörborði í umfangsmestu kosningum er haldnar hafa verið þar í landi frá því herinn tók völdin fyrir átján árum og eru næstum sextíu milljónir manna á kjörskrá. Joao Figueiredo, forseti lands- ins, sem hefur lofað að koma á borgaralegri stjórn að nýju sagð- ist í gærkvöld vonast til þess að kjósendur myndu kjósa yfirmenn „sem kæmu lýðræðinu til hjálp- ar“. Hann sagði einnig, að þessar kosningar, þar sem kosnir eru fylkisstjórar, öldungadeildar- þingmenn, þingmenn til fulltrúa- deildar, og yfirvöld bæja og borga, væru „stór stund" fyrir Brasilíu- búa. Lýðræðislegi sósíalistaflokkur- inn, sá flokkur sem nú situr við völd, mun að öllum líkindum mæta harðri samkeppni stjórnar- andstöðuflokkanna fjögurra, en það eru flokkar sósíalista og rót- tækra, sem fengu leyfi Figureire- do árið 1979 til að taka að nýju þátt í stjórnmálum þar í landi. Þúsundir hermanna og lög- reglumanna voru á ferli fyrir utan kjörstaði um allt landið til að koma í veg fyrir uppþot og óeirðir, en kosningabaráttan, sem stóð í tvo mánuði, þótti fremur róstur- söm. Skoðanakannanir fyrir kosn- ingarnar bentu til þess að stjórn- arflokkurinn hefði nokkuð örugg- an meirihluta í 23 fylkjum lands- ins, en kosningarétt hafa allir Brasilíubúar sem eru átján ára og eldri og eru læsir og skrifandi. Norska Stórþingið: Klofningur vegna fjárveitingar til kjarn- orkueldflauga NATO Osló, 15. nóvcmber, frá Jan Krik Lauré, frétlaritara Morgunblaósins. NORSKA Stórþingið er klofið í afstöðu sinni til þess hvort veita skuli fjármunum til sameiginlegrar áætlunar NATO-ríkjanna um að koma fyrir kjarnorkueldflaugum í Vestur-Evrópu. Búizt er við því að ríkisstjórnin hafi aðeins eins atkvæðis meirihluta á þingi til að framfylgja frumvarpi sínu um þessa fjárveitinu þegar það kemur til kasta þingsins eftir viku. Farið er fram á þriggja milljón króna fjárveitinu frá Norömönnum til að undirbúa dreif- ingu kjarnorkueldflauganna og eiga þessir peningar að renna til smíði skotpalla. Norski Verkamannaflokkurinn sætir ámæli fyrir breytta afstöðu sína í þessu máli. Framan af var flokkurinn því fylgjandi að brugð- izt skyldi við kjarnorkuvígbúnaði Sovétmanna með því að koma fyrir kjarnokrueldflaugum í V-Evrópu, að því tilskildu að fyrst reyndu NATO og Bandaríkin að komast að samkomulagi við Sovét- stjórnina um afvopnun og fækkun eldflauga. Nú hefur Verkamanna- flokkurinn sett það skilyrði að árangur náist í afvopnunarvið- ræðunum sem fram fara í Genf. Hægri stjórnin í Noregi kallar þessa afstöðu Verkamannaflokks- ins svik við það sem áður hafi orð- ið samkomulag um. Stjórnin held- ur því fram að með þessu hverf- lyndi standi Verkamannflokkur- inn fyrir því að skapa óvissu innan NATO varðandi öryggisstefnu Norðmanna. Fari svo að frumvarp stjórnarinnar um fjárveitingu nái ekki fram að ganga er búizt við því að hún segi af sér. Irland: Hallar undan fæti hjá Haughey Dyflinni, 15. nóvember. Al*. CHARLES HAUGHEY forsætisráðherra írlands sem berst fyrir pólitísku lífi sínu, stendur höllum fæti, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem birt var i dag. Samkvæmt niöurstöðunum fær flokkur Haugheys, Fianna Fail, 44% atkvæða í kosningunum sem fram eiga að fara um miðja næstu viku. Helzti keppinauturinn, Fine Gael, fær 42% og sækir ört á, en Verkamanna- flokknum er spáð 10% fylgi. 44% atkvæða nægja Haughey ekki til að mynda stjórn, en í síð- ustu kosningum, sem fram fóru í febrúar sl., fékk Fianna Fail 47%, Fine Gael 37% og Verkamanna- flokkurinn 9%. Þegar spurt er um persónuvinsældir Haugheys og Fitzgeralds, fyrrum forsætisráð- herra og leiðtoga Fine Gael, vilja 55% hinn síðarnefnda sem næsta forsætisráðherra, en einungis 32% aðhyllast Haughey. Ákyörðun Reagans vekur ánægju í Vestur-Evrópu — efasemdablær í ummælum Mitterands, Frakklandsforseta Washington, París og víóar, 15. nóvembcr. AP. „VIÐ HÖFUM ákveðið að taka ekki þátt í viöskiptum, sem miöa að því að styrkja hernaðarlega stöðu Sovétríkjanna á einn eða annan hátt,“ sagði Ronald Reagan Bandaríkjaforseti í úrtvarpsræðu sem hann flutti á laugar- dag. „Þar sem við höfum nú komist að samkomulagi við bandamenn okkar í áhrifaríkari og viðameiri málum er ekki lengur nein þörf á að beita viðskiptaþvingunum. Ég aflétti þeim því hér með,“ sagði Reagan. Fulltrúar flestra ríkja í Vestur- Evrópu lýstu yfir ánægju sinni með ákvörðun Reagans. Efnahags- bandalagið lýsti t.d. yfir eindreg- inni ánægju með ákvörðunina. Sagði í tilkynningu frá banda- laginu, að þessi ákvörðun væri skref í þá átt að koma á frekara jafnvægi í samskiptum þess við Bandaríkin. Svipað hljóð var í strokknum í Lundúnum. Francis Pym utanrík- isráðherra hældi Reagan á hvert reipi fyrir ákvörðun hans og sagði hana „góð tíðindi fyrir Vestur- lönd.“ Emilio Colombo utanríkis- ráðherra Ítalíu tók í sama streng og Pym. Hins vegar var þyngra hljóðið í Francois Mitterrand Frakk- landsforseta. Hann sagði að það hefði verið þeirra, sem komu þess- um þvingunum á, að aflétta þeim og bætti því við að sem betur fer hefði viturleg ákvörðun orðið ofan á, er hann tjáði sig um ákvörðun Reagans. Forsetinn bætti því við í ummælum, sem fréttamenn höfðu eftir honum, þar sem hann var staddur á mikilli alþjóðlegri mat- vælasýningu í París, að Frakkar hefðu aldrei verið boðaðir til við- ræðna um þessi mál. „Frakkar eru ekki aðilar að neinu samkomulagi við Bandaríkjamenn um þessi mál- efni, a.m.k. ekki að mér vitandi," sagði Mitterrand. „Það er ekki einu sinni víst að um eitthvert samkomulag sé að ræða,“ bætti hann við og lauk máli sínu á því að segja, að það hefði til þessa verið hann, sem hefði tekið ákvarðanir varðandi hagsmuni Frakka og svo yrði áfram. Noregur: Leit að kafbáti hætt Osló, 15. oklóbcr, frá Jan Krik Lauré fréllaritara Morgunblaósins. LEIT að ókunnum kafbáti í skerjagarðinum úti fyrir Þránd- heimi hefur verið hætt. Norski herinn varð kafbátsins var fyrir helgi, en sjómaður einn fylgdist með honum í sjónauka í hálfa klukkustund. Lýsing sjómannsins á kafbátnum var svo greinargóð að sérfræðingar norska hersins telja fullvíst að um kafbát frá Austur-Evrópuríki hafi verið að ræða. Séð yfir Rauða torgið meðan á útför Brezhnevs stóð. Fyrir miðju er grafhýsi Leníns og t.v. sést í Kremlarmúrinn. Andrópoff minntist Brés- neffs sem friðarsinna Moskvu, 15. nóvembcr. AP. SÍRENUR vældu í fjarska og skotið var úr fallbyssum á Rauða torginu þegar svört og rauð kista með jarðneskum leifum Leóníd Brésneffs, Sovét- leiðtoga í átján ár, var í morgun látin síga niður í gröfina við rætur Kremlarmúra þar sem aðrir kommúnistaforingjar hvíla. Áður en kistunni var lokað þrýsti Viktoría Brésneff grátandi kossi á vanga hins látna eigin- manns síns. Júrí Andrópoff sem nú er mesti valdamaður í Sovétríkjunum bar mikið lof á hinn látna leiðtoga og kvað hann hafa barizt linnulítið fyrir friði í heiminum. Andrópoff varð tíðrætt um það sem Brésneff hefði af mörkum lagt í þágu afvopnunar og slökun- arstefnu, um leið og hann kvað Sovétríkin reiðubúin til heiðar- legrar og gagnkvæmrar sam- vinnu við hvort það ríki sem hefði einlægan áhuga á samvinnu. Andrópoff flutti tíu mínútna ávarp í minningu Brésneffs af grafhýsi Leníns yfir fjölda er- lendra gesta og sovézkra ráða- manna og lét þess sérstaklega getið í þessu sambandi að hann mundi gæta helztu hagsmuna móðurlandsins og tók fram að hverri tilraun til árásar yrði mætt af fullkominni hörku. Viðstödd voru m.a. Bush, vara- forseti Bandaríkjanna, Indira Gandhi, forsætisráðherra Ind- lands, Jaruzelski, valdhafi í Pól- landi, Fidel Castro, Kúbu-leið- togi, Suzuki, forsætisráðherra Japan, Karmal leiðtogi í Afgan- istan og Zia Ul-Haq, forseti Pak- istan. Að útförinni lokinni hitti Andrópoff erlendu gestina að máli í Kreml, en þeir Bush áttu síðar hálftíma samtal um sam- skipti Sovétríkjanna og Banda- ríkjanna. Að þeim fundi loknum sagði Tass, hin sovéezka frétta- stofa, að Andrópoff hefði heitið því að vinna að bættri sambúð ríkjanna á grundvelli „fullkomins jafnréttis, gagnkvæmrar virð- ingar og íhlutunarleysis," en viðstaddir viðræðurnar voru utanríkisráðherrarnir Schultz og Gromyko. Andrópoff ræddi líka einslega við Gandhi og Carstens, forseta V-Þýskalands, en flestir aðkomu- mannaætluðu heimleiðis síðdegis á mánudag. Kvittur er þó á kreiki um að Huang Hua utanríkisráð- herra Kina ætli að dveljast í Moskvu fram á miðvikudag. Þúsundir syrgjandi sovétborg- ara fylgdu Brésneff til grafar og báru af honum andlitsmyndir í svörtum römmum, en athöfninni var sjónvarpað um gjörvöll Sov- étríkin og auk þess til Banda- ríkjanna og flestra Evrópulanda. Hermenn gengu gæsagang með riffla reidda um öxl og fóru á undan líkfylgdinni sem lagði upp frá þeim stað þar sem lík Brésn- effs hefur staðið á viðhafnarbör- um síðustu þrjá daga. Brynvagn- inum með kistuna var ekið inn á Rauða torgið á hádegi. Andrópoff og Tikhonoff forsætisráðherra voru meðal þeirra flokksleiðtoga sem báru kistuna síðasta spölinn þar sem fjölskylda hins látna og helztu ráðamenn stráðu á hana mold, svo sem siður er. Athygli vakti að Kirilenko, sem árum saman var nánasti samstarfs- maður Brésneffs og þótti einn lík- legasti arftaki hans en hvarf síð- an úr stjórnmálanefnd kommún- istaflokksins nýlega, var í hópi fjölskyldu hins látna við athöfn- ina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.