Morgunblaðið - 16.11.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982
19
Geimfararnir um borö í Kólumbíu. Frá vinstri: Obermayer, Brand, Lenoir og Allcn.
Galli í búningum kom
í veg fyrir gönguferð
C 'api* Canaveral, 15. november. Al*.
YFIRMENN NASA, Geimferðastofnunar Bandaríkjanna, veltu í dag fyrir sér
þeim möguleikum að lengja ferð Kolumbíu um einn dag. Verði af þessari
hugsanlegu lengingu gefur það geimfórunum tækifæri til gönguferðar úti í
geimnum á morgun.
Geimfararnir áttu að halda í
gönguferð í geimnum í morgun, en
henni var frestað þegar í ljós kom,
að búningur beggja var ekki 1 full-
komnu lagi. T.d. verkaði kælivifta í
búningi Joseph Allen ekki full-
komlega rétt. Slíkur búningur kost-
ar um 32 milljónir islenskra króna.
Atti að reyna að lagfæra gailana á
búningunum í kvöld.
„Þetta er svo sannarlega enginn
kjólfatadagur hjá okkur“, sagði
William Lenoir, og sló á létta
strengi þegar honum var fyrirskip-
að að halda einnig til innandyra og
fara hvergi. Honum var svarað í
svipuðum tón neðan af jörðu: „Þú
veist hvernig þessir mánudags-
morgnar eru.“
Erfiðleikarnir komu fyrst í ljós
þegar þeir Allen og Lenoir fóru í
þar til gerðan þrýstiklefa áður en
þeir áttu að halda út í geiminn.
Kom þá í ljós gallinn á kæliviftu
Allen.
Varð hann að fara úr bún-
ingnum sökum hita. Til tals kom að
Lenoir færi einn í gönguferð, en frá
þeirri hugmynd var fallið. Banda-
rískir geimfarar hafa ekki farið í
gönguferð úti í geimnum í 9 ár.
Upplýsingar Prime eyði-
lögðu gervihnattanjósnir
Lundúnum, 15. nóvember. Al\
AÐ SÖGN Lundúnablaðsins The
Sunday Times veitti Geoffrey Prime,
njósnari við fjarskiptastöðina í Chelt-
enham, Sovétmönnum upplýsingar
um fullkomnustu njósnaaðferðir með
aðstoð gervitungla, sem nokkru sinni
hafa verið undirbúnar á Vesturlönd-
um.
Að sögn blaðsins var með þess-
um útbúnaði, sem hefur dulnefnið
„Byeman Project", hægt að hlera
skeytasendingar innan Sovétríkj-
anna i fjarskiptastöðinni í Chelt-
enham. Allt fram til ársins 1975,
eða þar til Prime „lak“ upplýsing-
unum, höfðu Sovétmenn ekki
minnstu hugmynd um að verið var
að hlusta á allar þeirra sendingar
innanlands.
I frétt blaösins segir, að Prime
hafi veitt Sovétmönnum þessar
upplýsingar um svipað leyti og
tveir Bandaríkjamenn, Daulton
Lee og Christopher Boyce, sem síð-
ar voru handteknir.
„Uppljóstranir þessara þriggja
manna sýndu Sovétmönnum vel
fram á hve óvarðar fjarskiptasend-
ingar þeirra voru fyrir tækni Vest-
urlanda", segir blaðið. Eftir þessar
upplýsingar skiptu þeir um rás og
tóku að senda falskar upplýsingar
á þeirri rás, sem áður var notuð.
Gervihnettir útbúnir til njósna
voru fyrst sendir á loft 1966 með
það fyrir augum að mynda her-
stöðvar og eldflaugapalla Sov-
étmanna úr lofti og skrá staðsetn-
ingar þeirra. Síðar var kerfið þróað
upp í það að geta náð öllum hugs-
anlegum sendingum innanlands í
Sovétríkjunum, allt niður í tölvu-
kerfi sovéska hersins.
. .
Eiginkona
Begins látin
Jerúsalem, 15. nóvember. Al\
ALIZA BEGIN, eiginkona Men-
achem Begin, forsætisráðherra ís-
raels, lést snemma i gærmorgun,
62 ára að aldri. Dánarorsökin var
hjartaslag.
Eiginmaður hennar var ekki í
landinu þegar dauða hennar bar
að höndum. Var hann á 10 daga
ferðalagi um Bandaríkin og
staddur í Los Angeles er honum
bárust tíðindin. Ráðgerði hann
að snúa heim þegar í stað. Fund-
ur þeirra Reagans og Begin var
fyrirhugaður á fimmtudag.
Aliza hafði verið á sjúkrahúsi
frá því í október vegna blóðrás-
arerfiðleika. Menachem Begin
frestaði m.a. fyrirhugaðri ferð
sinni til Zaire um miðjan októ-
ber vegna veikinda eiginkon-
unnar.
Þau Aliza og Menachem hitt-
ust fyrst í Póllandi þegar hún
var aðeins 17 ára gömul. Þau
giftust og flúðu síðan frá Pól-
landi undan klóm nazismans.
Samband þeirra hjóna var mjög
náið og það voru ófá skiptin,
sem Menachem í upphafi ræða
sinna þakkaði eiginkonu sinni
þann stuðning, sem hún hafði
veitt honum.
Björguðu sex
llelMon, Knglandi, 15. nóvembcr. Al\
FIMM MENN létu lífið er skoskt
flutningaskip, Nesam, lagðist á
hliðina í fárviðri um 100 sjómílur
undan ströndum Cornwallskaga á
sunnudag. Fárviðri geisaði á þess-
um slóðum. Bjarga tókst lífi sex
manna úr áhöfninni.
„Við áttum aldrei von á að
finna svo marga úr áhöfninni á
lífi“, sagði einn þyrluflugmann-
anna, sem þátt tóku í leitinni.
Stórt flutningaskip, Atlantic
Causeway, sem m.a. var notað í
Falklandseyjadeilunni, kom
fyrst á staðinn en tókst ekki að
bjarga mönnunum úr sjónum.
Skipstjórinn gerði hins vegar
einni þyrlanna, sem voru á leið-
inni, viðvart.
Á meðal þeirra, sem fórust,
var einn reyndasti sjómaður
Skota, John Watt. Hann hlaut
MBE-orðuna 1966 fyrir störf sín
í þágu bresks sjávarútvegs.
JOLALOGIN
Jólalögin koma öllum í jólaskap.
Þú getur byrjað að æfa þau strax í
léttum útsetningum Jóns Þórarinssonar.
Nú verður fjölskylduhátíð við hljóðfærið.!
ÍSLENSKT SÖNGVASAFN
Islenskt söngvasafn - vítamínsprauta
íslenskrar tónmenntar í áratugi.
Gömlu, góðu „Fjárlögin" gefin út á ný.
Þrjú hundruð söngvar í einni bók.
Collonil
vernd fyrir skóna,
leóriö, fæturna.
Hjá fagmanninum.
Byggió inn
yóareigió
ÖRYGGIS
HÓLF
og þaóheima
istofu
Hver þekkir ekki vandamál viö
geymslu pappíra og muna
heima?????
Nú er komin ódýr og örugg lausn
t.d. fyrir:
★Veröbróf, afsöl og sammnga
★ Ðankabækurnar
★ Peninga, innlenda og erlenda
★ Frímerkja- og myntsöfn
★ Heimilisbókhaldið
★ Skarlgripi
★ Ættar- og verðlaunagripi
★ Skattapappíra
★ Meðul og annað sem getur
verið hættulegt börnum
★ Leyndarmálin
★ Eldtraust og þjófheld
★ 4 mismunandi stærðir og geröir
Hallarmula 2 - Simi 83211
riJ - v uc_.111,11 J1 4
I yré£