Morgunblaðið - 16.11.1982, Page 43

Morgunblaðið - 16.11.1982, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982 23 SUPERSTJARNAN SHILTON Hann velur bfla sína, klæðnað og vini af ýtrustu vandvirkni Peter Shilton, einum af virtustu leikmönnum ensku deildarinnar má lýsa sem metorðagjörnum, hugsandi og sjálfselskum leikmanni. Meðal enskra knattspyrnu- manna er hann þekktur sem ofstækisfullur er fullkom- inn — sem heldur þeirri ósk leyndri að verða framkvæmdastjóri landsliðsins. Þessa stundina vinnur hann stöðugt að því að styrkja mannorð sitt út á við, en er mjög stefnufastur. Lífsstíll hans, bílar, klæðnaður og vinir, allt er þetta valið af ýtrustu vandvirkni. Hann heldur sig frá öðrum atvinnuknattspyrnumönnum, og inn á milli meira að segja frá konu sinni og börnum. I meira en tíu ár hefur Peter Shilton verið einn umtal- aðasti maður í Englandi, venjulegast á jákvæðan hátt og vegsamaður, og er almenningur farinn að taka það í sig að hann sé sá siðprúði maður sem hann lítur út fyrir að vera — þessi eini sanni fjölskyldumaður. Það var eink- um í gegnum sjónvarp og dagblöð sem menn sáu þetta, en síðan í bók sem hann, ásamt Josan Thomas, gaf út og hét hún „The Magnificent Obsession“ (Meinloka í meira lagi). Eiginkona Shilton, Sue Shilton, hefur ætíð fyrirgefið eiginmanni sínum undanbrögð þau sem fjölmiðlar hafa haft í fréttum sínum, en það er ekki þar með sagt að hún hafi gleymt neinu; sem sagt geymt en ekki gleymt. Peter Shilton var eitt sinn með giftri konu í Daimler- bíl sínum þegar eiginmaðurinn kom að þeim í morgun- sárið á einum góðviðrisdegi. Shilton ætlaði að snara sér á brott á sportbílnum sínum en ekki vildi betur til en svo að hann æddi beint á Ijósastaur, og þar með voru verðir laganna komnir í málið. Shilton var tekinn til yfirheyrslu, og settur í blóðprufu, sem sýndi það að Bakkus hafði verið með í ferðinni. Ökuskírteini sitt missti Shilton í 15 mánuði og var þar að auki gert að greiða um 7.000 kr. í sekt, fyrir að keyra ógætilega og þar að auki drukkinn. • Shilton meö konu sinni, Sue, og tveimur börnum. Eitt hliðarstökk Um tíu árum síöar, segir Sue Shilton í viðtali viö blaöið „Sunday Mirror”: „Ég kenndi eiginlega meira í brjósti um Shilton en sjálfa mig. Hann hefur gert þaö mikiö fyrir knattspyrnuna aö hann á ekki skil- iö þá meðferö sem hann hefur fengiö manna á meöal, bara fyrir eitt hliöarstökk." Shilton er afar bitur yfir öllum þeim ókvæöisoröum, sem hann hefur fengiö á sig fyrir vikiö, og í einum leik gekk þetta svo langt aö hann lét skipta sór útaf. Þrátt fyrir þennan áberandi atburö er þaö ekki óalgengt aö Shilton eyöi kvöldinu á veitingastaö eöa næt- urklúbbi án konu sinnar. „Henni finnst kannski aö giftur maöur ætti ekki aö fara aleinn i bæinn, en hún skilur mig,“ segir Shilton. „i hennar sporum myndi óg gera nákvæm- lega þaö sama. Ég hreinlega verö aö taka mér tíma í það inn á milli aö vera óg sjálfur til aö hrista af mór þá pressu sem hlýst af fótbolt- anum, og Sue samþykkir þaö.“ Peter Shilton játar aö þaö geti varla veriö létt aö búa meö honum. Hins vegar má þaö til sanns vegar færa aö hann só viljasterkur og metorðagjarn, og þaö er jafn ör- uggt og aö Bo Derek hafi vaxtarlag í lagi og Bjarni Fel. só KR-ingur. „Ég get verið ákaflega eigin- gjarn,“ segir Shilton, „en ööruvísi getur maöur einnig óg ekki veriö stefnufastur á sinni framabraut. Ég get ekki umborið þá hugsun aö vera aöeins sá næstbesti. Ég vænti þess ótrúlega og ómögulega af sjálfum mér.“ Þessi reisn mótar hann einnig í hans daglega lífi, hvort heldur hann velur sér hálsbindi eöa slær grasflötina viö hús sitt í Notting- ham. „Súperstjarna“ Peter Shilton er mjög vandlátur á sinn lífsstíl, og einmitt þess vegna hefur hann sér hjálparmann sem er hans hægri hönd í vaii á flest öllu sem Shilton kaupir, Þessi 31 árs verslunartengiliður heitir Jan Holmes, og hans verk er aö hjálpa Shilton aö halda sér í hærri klassa en almenningur og ekki síst aörir atvinnuknattspyrnumenn eru í. I augum Holmes er Shilton í senn „súperstjarna" og „súpermaöur". Holmes stakk eitt sinn upp á því viö Shilton aö hann keypti sér Mercedes Benz. „Kemur ekki til greina," svaraöi Shilton, „Clough á einn.“ Clough þessi er Brian Clough framkvæmdastjóri Nott- ingham Forest. „Hvað þá meö Jaguar xjs“. „Nei, Trevor Francis á einn slíkan.“ Holmes hélt áfram aö telja upp bílategundirnar, og þaö var ekki fyrr en komið var aö Daimler V12 að Shilton var ánægöur. „Þaö er klassabíll sem er frábrugöinn öðrum." Þaö var sama heimspekin sem réð ferö er hann tók þá ákvöröun aö veröa eini markmaöurinn á Stóra-Bretlandi sem spilaði í hvítrí treyju, sem varö þess valdandi aö hann varð meira umtalaöur fyrir treyjuna en leik sinn í markinu. Þráhyggja Shiltons þess efnis aö vera fullkominn er honum að sjálfsögöu mikið álag, og hann getur átt þaö á hættu aö faila í sömu gryfju og annar úrvalsleik- maöur í enska fótboltanum: Jimmy Greaves sem varö alkóhólmisman- um aö bráö. I bók sinni segir Shilt- on svo frá, að eitt sinn var hann svo aöfram kominn af álagi og auk þess niöurbrotinn aö læknar gáfu honum skipum þess efnis aö liggja undir sæng i tvær vikur. Þaö er einkennandi fyrlr Peter Shilton aö einangra sig, og hans skoöun er sú aö ef hann haldi sig ekki í hæfilegri fjarlægö frá félög- um sínum í knattspyrnunni komi þaö til meö aö veikja stööu hans sem afburöaleikmanns. „Venjulegast á ég erfitt meö aö eignast vini, til þess er ég of upp- tekinn af sjálfum mér og vinnu minni,” útskýrir Shilton. „Flestir halda aö vinnudegi mínum sé lokiö eftir nokkurra tíma æfingu, en því fer fjarri. Ég rek þaö í huga mór hvaö ég hafi veriö aö gera á æfing- unni eöa leiknum og svo gaum- gæfilega, aö stundum ætla ég hreinlega aö ganga af göflunum. Þessar hugsanir verö óg aö eiga einhvers staöar úti í bæ. Ég fer sjaldan á knæpur til þess, þar er of mikið aö gera, og maöur of þekkt- ur. Ég vel veitingastaöi eöa næt- urklúbba þar sem ég get fengiö drykk og góöan mat, og framar öilu þar sem gestirnir hafa meiri áhuga á stelpunum eöa tónlistinni en mér.“ Spilaskuld upp á 800.000 kr. Peter Shilton slappar einnig vel af viö fjárhættuspil, hann elskar aö spila í kappreiöum svo ekki sé 1984. Shilton býr ásamt fjölskyldu sinni í West Bridgeford sem er út- hverfi Nottingham. Hús þaö sem hann býr i er metið á tuttugu og fjórar milljónir króna og er aö sjálfsögöu innréttaö eftir hans höföi. Peter og Sue kynntust í næt- urklúbbi í Leicester 1967, þegar hún var 17 ára aö aldri og starfaöi sem ritari hjá lögmanni. Þau trúlof- uöu sig tveim árum síðar og giftu sig 1970. Síöan hefur Sue veriö heima viö og gætt húss og barna, og er alsæl meö sinn hlut. „Líf mitt er hluti af vinnu hans, sem hefur gefið okkur fallegan staö aö búa á, auk annarra fríö- inda.“ Þau hjón fara sjaldan saman út og alls ekki í verslunarleiöangur. „Allir rjúka á mig og fara aö tala um fótbolta,“ segir Shilton, og þar er Sue sammála. „Þegar viö erum saman, er ég frú Shilton, en þegar ég er alein er ég bara ég sjálf, og þannig kann ég best viö mig.“ Þó svo aö Sue Shilton hafi búiö í 15 ár með þessum einkennilega og margbrotna manni, kvartar hún ekki. Á veggnum í eldhúsinu hangir platti með meyjarmerkinu — merkinu sem Peter Shilton er fæddur í. Á plattanum, sem er gjöf til Shiltons frá Sue er skrifaö: Ég er fullkominn, af þvf að ég er eftirtektarsamur á smáatríði. Út á við kem ég fram sem köld persóna, en í raunveruleikan- um er ég vinalegur og göfug- lyndur. Þegar þú ert hryggur græt ég, og þegar þú þjáist blæðir mér, ég finn sársauka þinn, og skynja hugsanir þínar. En þegar heimurinn hrynur máttu reikna með mér. Þýtt og endursagt. Peter Shilton minnst á rúllettuna í „Victoria Gaming Club“ f Nottingham. Svo er sagt aö eitt sinn hafi Shilton skuldað klúbbnum litlar 800.000 kr. Shilton er ekki mikiö fyrir þaö gefinn aö ræöa spilafíkn sína, en viðurkennir þaö hins vegar aö hann tapi oft stórt. Hann ætti svo sem aö geta leyft sér aö tapa endrum og eins, þar sem hann hefur um tvær og hálfa milljón í árslaun hjá Nottingham Forest auk 300.000 króna í auglýs- ingatekjur. „Hann gæti þénaö enn meira ef hann vildi," segir Holmes, „en viö metum tilboöin gaumgæfi- lega og tökum aöeins þeim sem honum fellur reglulega vel viö.“ Peter Shilton á tvö hús, tvo bíla, og einn veöhlaupahest. Þar aö auki hefur hann komiö á staö nokkurs konar eftirlaunakerfi sem mun vera einnar og hálfrar milljón króna viröi, og kemur first til góöa á 35 ára afmælisdegi hans áriö • Shilton með heimilishundinn sem er skjannahvítur Labrador.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.